Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.2002, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.2002, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 5. OKTÓBER 2002 3 Ein er upp til fjalla yli húsa fjær út um hamra hjalla hvít með loðnar tær – Svo mæltist skáldinu forðum og mér er nær að halda að þessar hendingar hafi um leið ritast inn í þjóðarsálina. Ég er alinn upp við rjúpnaveiðar frá blautu barnsbeini og þann sið að hafa rjúp- ur í jólamatinn. Hefur sá siður haldist á mínu heimili æ síðan. Ég fékk alltaf vatn í munninn þegar ég sá rjúpur hanga á löpp- unum úti í hjalli í gamla daga og fylgdist spenntur með þegar þær voru hamflettar, man súrsætan ilminn af hvanngrænu lyng- inu og laufinu sem vall út úr sarpinum. Ekkert er í mínum huga ljúffengara en bragðið af kjötinu með tilheyrandi sósu og brúnuðum kartöflum. Hingað til hefur mér fundist það ómissandi þáttur í jólahaldinu að hafa rjúpnasteik á borðum á að- fangadagskvöld þótt ég bragði aldrei rjúpu nema þennan eina dag ársins. En í öllum umræðunum um rjúpnastofn- inn að undanförnu fór ég að hugsa um þennan blessaða fugl með loðnu tærnar sem einn fárra þraukar veturinn með okk- ur hér á norðurhjaranum. Eftir að hafa fylgst með deilunum um stærð rjúpn- astofnsins, sögulegt lágmark hans, hve mikið sé óhætt að veiða, hve langt veiði- tímabilið eigi að vera og hvort grípa eigi til einhverra verndaraðgerða, rann það upp fyrir mér. Mér þykir í rauninni afar vænt um þenn- an friðsama og vinalega fugl, og mér er alls ekki sama hvað um hann verður, hvernig staðið er að því að veiða hann, né hvernig sambandi manns og rjúpu er háttað yf- irleitt. En hún er bundin mér álíka flóknum tilfinningaböndum og valnum, sem sagan segir að reki upp vein þegar hann kemur inn að hjartanu á rjúpunni því þá átti hann sig á að hún er systir hans. Það væri sannkallað níðingsverk að út- rýma rjúpunni úr íslenskri náttúru og yrði okkur Íslendingum til ævarandi skammar. Og þótt sitt sýnist hverjum um aðgerðir til verndar rjúpunni er það deginum ljósara að henni er veruleg hætta búin eins og mál- um er nú háttað. Fyrir utan þá staðhæf- ingu vísindamanna að rjúpnastofninn sé nú í sögulegu lágmarki og rjúpan verði þess vegna sett á válista yfir tegundir í yfirvof- andi hættu, hafa það margir gamalreyndir veiðimenn og bændur lýst áhyggjum sínum og ótta um afdrif hennar. Manni rennur kalt vatn milli skinns og hörunds við að lesa frásagnir þeirra af hernaðinum gegn rjúpunni. Þegar heilu flokkarnir af stríðsmönnum vopnaðir hríð- skotabyssum streyma upp um heiðar á blöðrujeppum um leið og leyfið er gefið. Sagt er að sumir þeirra skjóti allt hvað af tekur að hópum á flugi og fjöldi særðra fugla leiti skjóls í kjarri og lautum þar sem þeir heyja sitt kvalafulla helstríð. Þetta eru verulega ógeðfelldar aðfarir og það er skylda stjórnvalda að grípa í taumana og hafa hemil á þessum villimönnum. Nú er það hins vegar komið á daginn að ekki á að grípa til neinna sérstakra vernd- araðgerða á því veiðitímabili sem í hönd fer og hefst eftir örfáa daga. Aðeins var aukið við verndaða svæðið í kringum Reykjavík og út á Reykjanesskaga. Það var allt og sumt. Engin stytting á veiðitíma, ekkert sölubann, hvað þá alfriðun rjúpunnar í ein- hvern tíma á meðan verið væri að rannsaka stofnstærð. Því var borið við að ekki væru lögformlegar heimildir til aðgerða en ým- islegt væri í bígerð fyrir árið 2003. Vonandi ber hið ágæta fólk í umhverfisráðuneytinu gæfu til að móta heilsteypta reglugerð sem fyrst um veiðar á rjúpunni sem gefur henni að minnsta kosti einhverja lífsvon, þótt auðvitað hefði átt að bregðast hart við núna strax. Að mínum dómi var lágmark að stytta veiðitímabilið í einn mánuð eins og Náttúrufræðistofnun hefur lagt til, og get reyndar með engu móti skilið hvers vegna það var ekki gert. Þar þurfti engar laga- breytingar til. Ég kvíði veiðitímabilinu sem í vændum er. Ég óttast að fjöldadrápararnir fari fram með sama offorsinu og fyrr og alltof margir veiðimenn taki sinn hefðbundna skammt og ætli öðrum en sjálfum sér að sýna hófsemd og stillingu. Ekki bæta Villibráðarkvöldin svokölluðu úr skák. Hótel Loftleiðir er þeg- ar farið að auglýsa slík veisluhöld þar sem rjúpusúpa og bringur kitla bragðlaukana, og mér skilst að þetta þyki fínt á fleiri bæj- um. – Heyriði strákar! Okkur vantar þús- und bringur um helgina. Haldiði að þið reddið því ekki. Rjúpan á nóga skæða óvini, svo sem mink og sílamáf sem í síauknum mæli hakka í sig rjúpnaungana inn um allar heið- ar á haustin, þótt mannskepnan leggist ekki á hana líka af ofurþunga með nýtísku- tækni að vopni. Eða er það kannski svo að okkur mönnunum sé ekkert heilagt í nátt- úrunni? Að við teljum okkur til þess borna að gjörnýta gæði hennar í eigin þágu, ann- að sé helber tilfinningasemi, jafnvel að því marki að einstaka dýrategundum verði út- rýmt, samanber geirfuglinn, þar sem við Íslendingar komum víst eitthvað við sögu? Meira að segja hefur örlað á þeirri hug- mynd að sniðugt gæti verið að fara að skjóta hrossagauka og lóur til að auka við kræsingarnar á villibráðarkvöldunum. Svari hver fyrir sig. Ég fyrir mitt leyti hef tekið þá ákvörðun í samráði við fjölskyldu mína að rjúpna- steik verði ekki á borðum á heimili okkar á jólunum þetta árið og ég styð heils hugar tillögur rjúpnavina og annarra nátt- úruverndarsinna um algjöra friðun rjúp- unnar á íslenskri grund næstu fimm árin. Gæðakonan góða grípur fegin við dýri dauðamóða, – dregur háls úr lið – Vonandi kemur það ekki í hlut Fjallkon- unnar að snúa síðustu rjúpuna úr háls- liðnum. HVÍT MEÐ LOÐNAR TÆR RABB E y s t e i n n B j ö r n s s o n e y s t b @ i s m e n n t . i s ÚR VÖLUSPÁ Ask veit eg standa heitir Yggdrasill, hár baðmur, ausinn hvíta auri, þaðan koma döggvar þær er í dala falla stendur æ yfir grænn Urðarbrunni. Þaðan koma meyjar margs vitandi, þrjár úr þeim sæ er und þolli stendur, Urð hétu eina, aðra Verðandi, skáru á skíði, Skuld ina þriðju. Þær lög lögðu, þær líf kuru alda börnum, örlög seggja. Völuspá er heiti á kvæði undir fornyrðislagi sem varðveitt er í tveimur gerðum: 63 erinda kvæði í Konungsbók eddukvæða frá um 1270 og 59 erinda kvæði í Hauksbók, ritað um miðja 14. öld. FORSÍÐUMYNDIN er af einbýlishúsinu Mávanesi 4 en það er teiknað af Manfreð Vilhjálmssyni arkitekt. Ljósmyndari: Kjartan Þorbjörnsson (Golli). Guy de Maupassant er einn af fremstu smásagnahöfundum heims fyrr og síðar. Sigurður A. Magnússon skrifar um stormasamt lífshlaup hans og sögurnar sem endurspegluðu það að nokkru. Hernámslið – varnarlið nefnist grein eftir Emil Als, sem vill gera skýran greinarmun á þessu tvennu og segir þá sem ekki hafi gert það í umræðu síðustu áratuga vilja draga hulu yfir þá staðreynd að íslensk stjórnvöld skuli ekki einungis hafa samþykkt erlenda hersetu heldur beinlínis óskað eftir henni með meirihluta þings og þjóðar að baki. Er ljósmyndin list? spyr Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir með- al annars í grein er fjallar um sögu ljós- myndunar og sérstaklega þátt hennar í listasögunni. Greinin er rituð í tilefni af sýningunni Þrá augans sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands en það er fyrsta ljós- myndasögulega yfirlitssýningin hér á landi. LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 3 9 . T Ö L U B L A Ð - 7 7 . Á R G A N G U R EFNI Manfreð Vilhjálmsson arkitekt var í brennidepli á Sjónþingi í Gerðubergi síðastliðinn laugardag. Sús- anna Svavarsdóttir sat þetta fyrsta Sjón- þing sem fjallar um byggingarlist og segir frá því sem fyrir augu og eyru bar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.