Lesbók Morgunblaðsins - 23.11.2002, Síða 11
við að hanna búsáhöld úr plasti. Meðal ann-
ars unnu þeir fyrir danska fyrirtækið Rusti
sem enn í dag framleiðir plastskálina Marg-
aretu sem varð til á hönnunarstofu þeirra fé-
laga um miðjan sjötta áratuginn. Skálin
stendur enn fyrir sínu og sýnir það vel
hversu vel heppnað verkið var. Margaretu-
skálin er ekkert einsdæmi því margt af þeim
búsáhöldum sem Sigvard Bernadotte átti
þátt í að hanna var í framleiðslu í langan tíma
og naut mikilla vinsælda. Eitt dæmi er dósa-
hnífurinn Rauða-Klara, sem hann hannaði á
sjöunda áratugnum og var á tímabili til á
þriðja hverju heimili í Svíþjóð. Dósahnífurinn
er enn í framleiðslu og selst árlega í um það
bil 50.000 eintökum um allan heim. Ef telja
ætti upp allt það sem Sigvard Bernadotte
hefur átt þátt í að hanna yrði listinn langur,
en þar má m.a. finna jafn ólíka hluti og postu-
línsvaska, potta, kaffikönnur, kalltæki, rit-
vélar og vélsleða. Það lítur því út fyrir að fátt
hafi verið honum framandi og sjálfur sagðist
hann hafa jafn mikla ánægju af því að hanna
hluti í ódýrt efni eins og plast sem allir gætu
keypt og silfurmuni fyrir fáa útvalda.
Samstarf þeirra Sigvards Bernadotte og
Actons Bjørn varð mjög árangursríkt og urðu
þeir brautryðjendur innan norrænnar iðn-
hönnunar. Sigvard Bernadotte var einnig val-
inn forseti alþjóðasambands iðnhönnuða,
ICSID. Árið 1964 flutti Sigvard Bernadotte
til Stokkhólms og opnaði þar eigin hönn-
unarstofu sem átti stóran þátt í að móta þá
hluti sem enn í dag eru í notkun á mörgum
sænskum heimilum.
Prins?
Eins og áður sagði missti Sigvard Berna-
dotte titil sinn sem prins og fríðindin sem
honum fylgdu þegar hann kvæntist konu sem
ekki var konungborin. Fimmtíu árum síðar,
og þá kvæntur þriðju eiginkonu sinni, gerði
hann hins vegar tillkall til að fá titilinn aftur.
Ástæðan var sú að Bertil, yngri bóðir hans,
hafði nokkrum árum áður gifst konu af borg-
aralegum ættum án þess að missa titil eða
fríðindi. Núverandi konungur Svíþjóðar vildi
hins vegar ekki ógilda ákvörðun langafa síns,
Gustafs V. Varð það til þess að Sigvard
Bernadotte lagði málið fyrir Evrópudómstól-
inn þar sem hann áleit að gengið væri á
mannréttindi sín. Engin niðurstaða fékkst
hins vegar í málinu áður en Sigvard Berna-
dotte lést í febrúar síðastliðnum, 94 ára gam-
all. Hann var því ekki prins þegar hann féll
frá, þó að það hafi verið heitasta ósk hans í
mörg ár.
Heitið silfurprinsinn bar hann hins vegar
með réttu því að í hönnunarstarfi hans var
silfrið aldrei langt undan og sjálfur sagði
hann að það hefði skipað mikilvægan sess í
hönnun sinni. Í upphafi ferils síns sem silf-
urhönnuður þótti Sigvard Bernadotte sem
fólk tæki starf hans ekki alvarlega vegna
uppruna hans. Slíkar efasemdir minkuðu hins
vegar með aukinni starfsemi og hurfu loks
þegar hið fræga safn Metropolitan í New
York keypti kaffikönnu með tilheyrandi
rjómakönnu og sykurskál eftir hann. Þegar
Sigvard Bernadotte fæddist inn í sænsku
konungsfjölskylduna fyrir tæpum hundrað
árum blasti við honum framtíð innan forrétt-
inadastéttar Evrópu. Hann haslaði sér hins
vegar völl á öðrum vettvangi þar sem hann
náði frægð og frama á eigin forsendum og
skapaði sér nafn sem sígildur hönnuður.
Heimildir:
Bernadotte, Sigvard: Krona eller klave. Stokkhólmi
1975.
Design Sigvard Bernadotte. (Sýningarskrá) Nation-
almuseum, Stokkhólmi 1997.
Widman, Dag: Konsthantverk, konstindustri, design
1895–1975. Konsten i Sverige. Stokkhólmi 1975.
Höfundur er listfræðingur og starfar á
Listasafni Íslands.
Búsáhöld úr plasti. Meðal annars Margaretuskálin í tveimur stærðum og könnur sem voru sér-
staklega hannaðar með það í huga að passa vel í ísskáp.
Vinsælar ritvélar frá Facit. Lengst til vinstri er Facit T1 frá 1957 sem var seld í 140 löndum, mið-
vélin er rafmagnsritvél frá 1960 og lengst til hægri er Facit Privat.
Kaffikanna með tilheyrandi rjómakönnu og sykurskál sem Bernadotte teiknaði fyrir Georg Jen-
sen árið 1952 og Metropolitan-safnið í New York festi kaup á. Á myndinni sést einnig silf-
urkanna fyrir klakavatn sem var í miklu uppáhaldi hjá Sigvard Bernadotte.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. NÓVEMBER 2002 11
Eru margir menn heiðnir?
SVAR: Svarið við þessari spurningu hlýtur
að vera „já“, miðað við flestar merkingar orðs-
ins heiðinn.
Í Íslenskri orðabók stendur um lýsing-
arorðið heiðinn:
1) sem er heiðingi, ókristinn; guðlaus; heið-
inn siður Ásatrú; heiðinna manna heilsa forn-
mannaheilsa, góð heilsa. 2) ófermdur, illa upp-
lýstur um trúmál. 3) sem vantar á: heiðinn
klyfberi gjarðalaus klyfberi; verlaus (um
sæng): sofa í heiðnu rúmi; bryddingalaus; auð-
ur, óskrifaður: heiðin blaðsíða; sviplaus, eyði-
legur: þetta er svo heiðið.
Um nafnorðið heiðingi stendur:
1) maður sem ekki játar kristna trú. 2) mað-
ur sem ekki játar nein æðri trúarbrögð. 3)
ófermdur maður. 4) trúleysingi. 5) sá sem býr
á heiði, úlfur.
Ef við skiljum heiðinn sem „ókristinn“ þá á
það orð við um tvo þriðjuhluta jarðarbúa eða
um 4 milljarða manna. Ef heiðinn er sá sem
ekki aðhyllist nein „æðri“ trúarbrögð liggur
kannski beinast við að spyrja hvað geri sum
trúarbrögð öðrum æðri. Hér er væntanlega
átt við eingyðistrú, það er kristni, gyðingdóm
og íslam, en fylgjendur þessara trúarbragða
vilja sumir líta svo á að þessi trúarbrögð séu
svokölluð „æðri trúarbrögð“. Kristnir eru um
2 milljarðar manna, múslímar eru 1,3 millj-
arðar og Gyðingar 14–18 milljónir. Eftir
standa þá um 2,7 milljarðar manna sem ekki
aðhyllast æðri trúarbrögð og hljóta það að
teljast margir menn.
Ef heiðinn þýðir einfaldlega „trúlaus“ þá er
heldur erfiðara að svara til um fjölda. Líklega
eru um 14 til 19% jarðarbúa, eða eitthvað um
einn milljarður manna, einhvers konar trú-
leysingjar.
Ófermt fólk má auðvitað finna víða þótt ná-
kvæmar tölur um fjölda þess liggi ekki fyrir.
Það að merkingin „ófermdur“ sé flokkuð með
„illa upplýstur um trúmál“ er auðvitað merki
um viðhorf gamalla tíma þegar fermingin var
endapunktur á trúarfræðslunni sem börn
hlutu. Nú á dögum ætti hins vegar að vera
ljóst að þessir tveir hlutir þurfa alls ekki að
falla saman og má sjálfsagt finna fermt fólk
sem er illa upplýst um trúmál ásamt vel upp-
lýstu, ófermdu fólki. En líklega má segja um
flest okkar að við séum illa upplýst um trúmál,
að minnsta kosti á heimsmælikvarða, þar sem
það gildir sjálfsagt víðast að fólk veit lítið um
önnur trúarbrögð en sín eigin. Sé viðmiðunin
þessi hlýtur heimurinn að vera fullur af heið-
ingjum. Líklega hafa þó trúmál verið nokkuð
þröngt skilgreind í upphaflegu merkingunni
hér að ofan þannig að átt er við að hinir
ófermdu séu illa upplýstir um það sem kennt
er til fermingar.
Líklega þarf ekki að taka það fram að þriðja
merking orðsins heiðinn í orðabókinni, það er
„sem eitthvað vantar á“ getur tæpast átt við
um menn, enda lítið vit í að segja að einhver
manneskja sé verlaus eða bryddingalaus. Eitt-
hvað svipað gildir um fimmtu merkingu orðs-
ins heiðingi. Að minnsta kosti ætti að vera
óhætt að fullyrða að fáir menn eru úlfar.
Að lokum er rétt að fjalla um orðið heiðinn í
merkingunni „sem aðhyllist ásatrú“. Þegar Ís-
lendingar tóku kristna trú var talað um að þeir
sem stunduðu átrúnað á gömlu goðin, æsina,
væru heiðnir eða aðhylltust heiðinn sið. Í hug-
um kristinna Íslendinga jafngilti þetta
kannski því að vera ekki kristinn sem aftur
jafngilti því að vera trúlaus, sem skýrir þessar
mismunandi merkingar orðsins heiðinn. Nú
orðið er þetta orð stundum haft um þá sem eru
ásatrúar og er það væntanlega sértækasta
merking þess. 1. desember 2001 voru meðlimir
Ásatrúarsafnaðarins á Íslandi 568 sem teljast
auðvitað ekki margir menn á heimsmæli-
kvarða en þó eru þeir að minnsta kosti í ein-
hverjum skilningi „margir“. Einnig eru til sam-
bærilegir söfnuðir í öðrum löndum en fjöldi
meðlima þeirra liggur ekki fyrir.
Eyja Margrét Brynjarsdóttir, doktorsnemi í heimspeki
við Cornell-háskóla.
Geta kolkrabbar étið menn?
SVAR: Í mörgum þekktum ævintýramynd-
um eru sýnd atriði þar sem risakolkrabbar ráð-
ast á heilu skipin og kippa þeim niður í haf-
djúpið. Þetta eru myndir á borð við Tuttugu
þúsund mílur neðan sjávar (1954) sem byggð er
á sögu Jules Verne og Toilers of the Sea (1936)
sem byggð er á sögu Victors Hugos. En hér er
aðeins um ævintýri að ræða, flestir kolkrabbar
eru smáir og hafa enga burði til að gera mönn-
um nokkurt mein.
Tegundin Octopus arborescens er aðeins um
5 cm á lengd en sú tegund sem verður stærst er
Octopus dofleini. Kolkrabbar af þeirri tegund
geta orðið rúmir 5 metrar á lengd með örmum
og eru vanalega um 15–20 kg. Stærsti kol-
krabbi sem fundist hefur var um 75 kg.
Smokkfiskar geta orðið miklu stærri en kol-
krabbar. Stærsti höfuðfætlingurinn er risa-
smokkfiskurinn sem getur vegið nokkur hundr-
uð kíló.
Jón Már Halldórsson, líffræðingur.
Hvernig er hægt að finna hvaða
efni eru í miðju jarðar?
SVAR: Hugmyndir um jarðkjarnann koma
úr fjórum áttum:
Í fyrsta lagi sýna jarðskjálftamælingar að
kjarninn er úr þungu efni og að innri kjarninn
er fast efni en ytri kjarninn fljótandi. Jafnframt
er stærð kjarnans og hinna tveggja hluta hans
þekkt frá jarðskjálftafræði.
Í annan stað „vantar“ járn í berg jarð-
möttulsins og skorpunnar miðað við hugmyndir
um heildarsamsetningu jarðar (sem byggðar
eru á loftsteinarannsóknum) og miðað við eðl-
ismassa jarðar.
Í þriðja lagi er segulsvið jarðar skýrt þannig
að kjarninn sé eins konar rafall úr járni.
Í fjórða lagi eru flestir loftsteinar, sem falla
til jarðar, taldir vera brot úr himinhnöttum sem
sundrast hafa við árekstra við aðra slíka. Loft-
steinunum má skipta í tvo aðalflokka, berg-
steina og járnsteina. Hinir síðarnefndu er tald-
ir vera brot úr kjarna himinhnatta en
bergsteinarnir úr möttli þeirra.
Loks benda spánnýjar rannsóknir til þess að
í kjarnanum sé nokkuð (um það bil 5%) af kísli
(Si) sem við afar háan þrýsting getur myndað
samband við járn. Skjálftafræðinga hefur lengi
grunað að eitthvert létt frumefni sé í kjarn-
anum auk járns og nikkels — til dæmis brenni-
steinn, súrefni, vetni eða kolefni — vegna þess
að hraði skjálftabylgna gegnum hann er ögn
minni en vænta mætti ef um hreint nikkeljárn
væri að ræða. Nú benda rannsóknir sem sagt
til þess að „hulduefni“ þetta sé kísill.
Sigurður Steinþórsson, prófessor í jarðfræði við HÍ.
ERU MARGIR
MENN
HEIÐNIR?
Hvers vegna geta grjótskriður runnið upp í móti,
hvað er smættarkenning og hvenær byrjaði fólk
að ganga í sokkum? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur
verið svarað að undanförnu á Vísindavefnum.
VÍSINDI