Lesbók Morgunblaðsins - 23.11.2002, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. NÓVEMBER 2002 15
MYNDLIST
Galleri@hlemmur.is: Hrafnhildur
Arnardóttir. Til 8. des.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Haraldur
(Harry) Bilson í Baksal. Ljósafold:
Guðmundur Hannesson. Til 8. des.
Gallerí Skuggi: Rósa Sigrún Jóns-
dóttir. Stella Sigurgeirsdóttir. Til 1.
des.
Gallerí Sævars Karls: Hildur Ás-
geirsdóttir. Til 5. des.
Gerðuberg: Myndskreytingar úr nýj-
um barnabókum. Til 6.1.
Hafnarborg: Norræni skartgripa-
þríæringurinn. Handverk og hönnun
– Spor. Til 25. nóv.
Hönnunarsafn Íslands: Óli Jóhann
Ásmundsson. Til 1. des.
i8, Klapparstíg 33: Sigurður Guð-
mundsson. Undir stiganum: Þuríður
Sigurðardóttir. Til 23. nóv.
Íslensk grafík: Skúffugallerí. Til 8.
des.
Listasafn Akureyrar: Hraun-ís-skóg-
ur. Til 15. des.
Listasafn ASÍ: Þorkell Þorkelsson,
ljósmyndir. Til 8. des.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Íslensk myndlist
1980–2000. Til 15.1.
Listasafn Rvíkur – Ásmundars.:
Listin meðal fólksins. Til 31. des.
Listasafn Rvíkur – Hafnarhús: Inga
Svala Þórsdóttir. Nútímalist frá
arabaheiminum. Til 19.1.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: And-
litsmyndir og afstraksjónir. Til 30.3.
Listhús Ófeigs: Gunnsteinn Gíslason.
Til 26. nóv.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur: August
Sander. Til 1. des.
Norræna húsið: Veiðimenn í út-
norðri. Til 15. des.
Nýlistasafnið: Samsýning: Magnús
Pálsson, Eric Andersen & Wolfgang
Müller. Til 24. nóv.
Undirheimar, Álafosskvos: Sjö lista-
konur. Til 24. nóv.
Þjóðarbókhlaða: Halldór Laxness.
Til 31. des.
Þjóðmenningarhúsið: Áfangar í
kortagerð. Til 8.8. Handritin. Landa-
fundir. Skáld mánaðarins: Einar í
Eydölum.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Sunnudagur
Landakotskirkja: Styrktartónleikar
Caritas. Kl. 16.
Bústaðakirkja: Kammermúsíkklúbb-
urinn. Kl. 20.
Laugardagur
Borgarleikhúsið: Tónleikaröðin
15:15. Tímahrak. Kl. 15:15.
Háskólabíó: Sálin hans Jóns míns.
Einleikari Una Sveinbjarnardóttir.
Stj.: Bernharður Wilkinson. Kl. 17.
Salurinn: Guðný Guðmundsdóttir
fiðla, Peter Máté píanó. Kl. 17.
Langholtskirkja: Kór Langholts-
kirkju. Kl. 17.
Þriðjudagur
Listasafn Rvíkur – Kjarvalsstaðir:
Kammersveit Reykjavíkur. Kl. 20.
Íslenska óperan: Jóhann Friðgeir
Valdimarsson tenór. Ólafur Vignir
Albertsson píanó. Kl. 12.15.
Fimmtudagur
Háskólabíó: SÍ. Einleikari Philippe
Entremont. Stj.: Philippe Entremont.
Kl. 19.30.
Kristskirkja, Landakoti: Kammerkór
Suðurlands. Kl. 20:30.
Langholtskirkja: Kvennakór Reykja-
víkur. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Halti Billi, fim., fös.
Lífið þrisvar sinnum, lau. Jón Oddur
og Jón Bjarni, sun. Með fulla vasa af
grjóti, sun. Karíus og Baktus, lau.
Viktoría og Georg, sun. Veislan, lau.,
fim., fös.
Borgarleikhúsið: Sölumaður deyr,
Honk!, lau., sun. Jón og Hólmfríður,
fös. Herpingur og Hinn fullkomi
maður, lau. Píkusögur, fim. Rómeó
og Júlía, sun., mið., fim.
Íslenska óperan: Rakarinn frá Sev-
illa, sun., fös.
Loftkastalinn: Benedikt búálfur, sun.
Iðnó: Hin smyrjandi jómfrú, sun.
Beyglur, lau., fös.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Grettissaga,
lau. Sellófon, sun., þrið., mið.
Möguleikhúsið: Jólarósir Snuðru og
Tuðru, fim., fös.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
12 TÓNVERK verða frumflutt kl. 15:15 í dag á
nýja sviði Borgarleikhússins á tónleikum sem
hafa fengið nafnið Tímahrak. Tónlistarmenn-
irnir sem fram koma eru: Hilmar Jensson raf-
hljóða- og gítarleikari, Matthías Hemstock raf-
hljóða- og slagverksleikari, Pétur Grétarsson
slagverksleikari og Sigurður Halldórsson
sellóleikari. Að sögn tónlistarmannanna má
skýra nafn tónleikanna með því að flutningur
verkanna verður bæði á staðnum, það er í
núinu, og úr fortíðinni. Verkin munu svo vænt-
anlega hljóma í undir- og yfirmeðvitund áheyr-
enda þannig að framtíðin kemur þarna senni-
lega eitthvað við sögu líka. 12 ný verk verða
flutt og hafa sum þeirra skírskotun aftur í ald-
ir. Verkin verða látin mynda sterka heild eins
og um eitt verk væri að ræða og tímaramminn
gerir það svo að verkum að hvert þeirra endar
til þess að það næsta geti hafist. Verkin eru
misveigamikil og gegna hvert sínu hlutverki í
heildinni. Níu þeirra eru eftir meðlimi hópsins:
Inngöngulag eða Lúppa, Passa Galli per la let-
tera E, byggt á samnefndu verki ítalska tón-
skáldsins Giovanni Battista Vitali (1632–92),
Cecilia, byggt á gregoríönskum óð til Heilagr-
ar Sesselju úr íslensku skinnhandriti frá 13.
öld, Gjarðir, Ballaða og Fjögur örverk eða
tengingar. Sveinn Lúðvík Björnsson er svo
höfundur verksins Egophonic, fyrir selló og
segulband, Guðni Franzson er höfundur
Strokks, fyrir selló og segulband eftir Guðna
Franzson. Síðast en ekki síst leikur hópurinn
Kvartett fyrir selló, gítar og tvo slagverksleik-
ara sem Lárus Grímsson samdi fyrir hópinn.
Sigurður Halldórsson sellóleikari segir að
sig hafi langað til þess að þessi hópur tónlistar-
manna spilað bæði tónlist sem aðrir hafa samið
fyrir hann, en líka að vinna eigin verk frá
grunni. „Nafnið, Tímahrak, datt upp úr Matt-
híasi Hemstock þegar við hittumst í apríl til að
skipuleggja æfingatíma fyrir tónleikana. Við
fundum einn dag, allt til loka ágúst, þar sem
við gætum hist á klukkutíma fundi. Við sáum
fram á að þetta yrði tímahrak. En eftir að nafn-
ið var komið fór ég að leita að jákvæðari hlið-
um á orðinu, og hugmyndin að prógramminu
þróaðist í samræmi við það. Við erum að flytja
lifandi tónlist á staðnum, en einnig úr fortíðinni
af því að sumt spilum við af bandi. Þetta eru
allt ný verk, en mörg þeirra eru byggð ýmist á
gömlum atburðum eða gamalli músík, þannig
að það er talsverð vídd í tíma tónlistarinnar. Í
þriðja lagi erum við með mjög strangan tíma-
ramma og setjum okkur ákveðin markmið í
tímasetningu. Upphaflega ætluðum við að vera
með geisladisk sem væri með þögn hér og
dreifa verkunum á milli á rétta staði og láta
þau passa inn á milli þagnanna. Þetta var upp-
haflega tímahrakspælingin. Við ákváðum þó að
ganga ekki alveg svona langt í fyrstu atrennu,
og það er alls ekki meiningin að búa til neina
stress-tilfinningu. Við ætlum að láta verkin líða
áfram án truflunar, og ætlum ekki að leyfa
fólki að klappa eða horfa hvert á annað á milli
þeirra. Það verður vonandi góður heildarsvip-
ur á þessu.“
Meginþorri verkanna var skapaður fyrir
stuðning Menningarborgarsjóðs.
TÓNMÁL TÍMAHRAKSINS
Morgunblaðið/Golli
Hilmar Jensson rafhljóða- og gítarleikari, Pétur Grétarsson slagverksleikari, Matthías Hem-
stock rafhljóða- og slagverksleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari.
KÓR Langholtskirkju heldur tónleika á
morgun, sunnudag, kl. 17 í Langholts-
kirkju, á messudegi heilagrar Sesselju,
verndara tónlistarinnar. Frumflutt verða
verk eftir Árna Egilsson og Oliver Kentish.
Auk þessa eru verk sem frumflutt voru
sl. sumar af danska kórnum Tritonus undir
stjórn Johns Høybye og færeyska kórnum
Skýrák undir stjórn Kára Bæk ásamt Kór
Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stef-
ánssonar. Verkin eru Lofsöngur Sakaría
eftir Tryggva M. Baldvinsson, Lofsöngur
Elísabetar eftir Kára Bæk og Lofsöngur
Maríu (Magnificat) eftir John Høybye.
Eftir Árna Harðarson verður flutt verk
sem hann samdi árið 1997 fyrir Graduale-
kórinn auk Kórs Langholtskirkju. Nú munu
fyrrverandi „Grallarar“ sem syngja í kórn-
um vera í hlutverki Gradualekórsins. Eftir
Hildigunni Rúnarsdóttur verður flutt verk-
ið „Þeytið lúðurinn í Síon“ sem hún samdi
árið 1999 og eftir Báru Grímsdóttur verður
flutt Maríukvæðið Ég vil lofa eina þá.
Einsöngvarar úr röðum kórfélaga eru
Regína Unnur Ólafsdóttir, Sigríður Grön-
dal og Sæmundur Helgason.
Olivers Kentish samdi verk sitt í nóv-
ember 1999 og er það hugleiðing um alda-
mótin. Guðmundur Sigurðsson leikur á
orgel og Steef van Oosterhout á klukkur
og „regnstaf“ og Ólafur H. Jóhannsson
flytur textann á íslensku. Kórinn syngur
síðan hvern kafla í framhaldi.
Messa í fullri lengd á döfinni
Árni Egilsson samdi verk sitt árið 2002
og tileinkaði kórnum. Verkið kallar hann
Eilífi ljóssins faðir og er það samið við
sálm Herdísar Andrésdóttur. Í verkinu,
sem er sungið án undirleiks, beitir Árni
ýmsum stílbrögðum s.s. klappi og mjög
hrynrænum köflum.
Lofsöngvarnir þrír úr Lúkasarguðspjalli
eru hluti samstarfsverkefnis hinna þriggja
kóra sem styrkt er af Norræna menning-
arsjóðnum. Kórarnir komu saman í byrjun
júlí sl. og frumfluttu þá þessi verk. Áætlað
er að kórarnir hittist aftur næsta sumar í
Danmörku og flytji þá þrjú ný verk til við-
bótar og sumarið 2004 er áætlað að koma
saman í Færeyjum og flytja þrjú verk til
viðbótar og taka síðan upp öll verkin níu
og gefa út á geisladiski.
Hildigunnur Rúnarsdóttir er nú að semja
messu í fullri lengd fyrir kór, einsöngvara
og hljómsveit í tilefni 50 ára afmælis Kórs
Langholtskirkju næsta ár.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jón Stefánsson, stjórnandi Kórs Langholtskirkju, æfir hér samhljóminn.
SUNGIÐ Á MESSUDEGI
HEILAGRAR SESSELJU