Pressan - 09.03.1989, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 9. mars 1989
7
PRESSII
ónlistargagnrýni um kammer-
tónleika hjónanna Sigurðar I.
Snorrasonar og Önnu Guðnýjar
Guðinundsdóttur eftir Sigurð Þór
Guðjónsson birtist í DV í þessari
viku. Hrósar gagnrýnandinn leik
eiginmannsins, en segir leik Önnu
Guðnýjar ekki jafngóðan. Endar
greinin á vangaveltum um konur,
sem farið hafa verulega fyrir brjóst-
ið á íslensku kvenfólki. Síminn hjá
jafnréttisráði var a.m.k. glóandi (rá
því blaðið kom út, því mikill fjöldi
kvenna vildi kvarta yfir megnri
karlrembu í tónlistargagnrýninni...
| ~ að verður síst meiri kennslu-
skylda lögð á lektorinn Hannes
Hólmstein Gissurarson í félagsvís-
indadeild á næsta skólaári en í vet-
ur. Hefur Hannes ekki kennt
skyldunámskeið í deildinni frá því
hann hlaut lektorsstöðuna og í síð-
ustu viku afgreiddi deildarfundur
kennsluskrá fyrir næsta ár þar sem
Hannesi er enn hafnað sem hæfum
kennara til að kenna skyldugreinar
á næsta skólaári. Það liggur því fyr-
ir að Hannes fær aðeins að bjóða
upp á valnámskeið fyrir nemendur
á næsta skólaári, ef þeir kæra sig
um, en að öðru leyti verður lektor-
inn að einbeita sér að fræðistörfum
og rannsóknum. Afstaða félagsvís-
indadeildar um að Hannes sé ekki
hæfur til að kenna skyldufög við
deildina er óhagganleg og styðst við
dómnefndarálitið frá síðasta
ári . . .
Í^Éýju fasteignalögin eru þeim
ósköpum gædd að þau ná ekki til
sölu á rekstri. í reynd þýðir þetta að
ólöggiltir vafagemsar úr hópi fast-
eignasala fara út í viðskipti með
sjoppur og annan smárekstur á
meðan heiðarlegir fasteignasalar
forðast þessi viðskipti eins og heit-
an eldinn . . .
c
^^amkvæmt niðurstöðum könn-
unar, sem Félagsvísindastofnun
skilaði nýverið um hlustun og
„áhorf“ á útvarp og sjónvarp, kem-
ur fram að einungis 1% aðspurðra
horfði á fræðsluvarp ríkissjón-
varpsins. Heyrst hefur að til standi.
að taka málefni fræðsluvarpsins til
athugunar í menntamálaráðuneyt-
inu á næstunni, en ekki er ljóst
hvort það er bein afleiðing af niður-
stöðu könnunarinnar...
Bhaldssemi fyrirfinnst einnig í
Landsbankanum. Þar er sagður
fremstur í flokki Sverrir Hermanns-
son bankastjóri. Hann er sagður
vilja breyta víxileyðublöðum til
fyrra forms. Það sem talið er fara í
taugarnar á Sverri er Landsbanka-
merkið á pappírnum, en það var
tekið upp fyrir örfáum árum. Sverr-
ir er sagður vilja sjá gamla góða
merkið. Margir starfsmenn, sér-
staklega þeir eldri, eru sagðir
standa með Sverri í þessu máli...
♦ KJARABÚT* HEIMILANNA«FRA K ♦
SNORRABRAUT 29
SÍMI 62-25-55
FENGUM AUKASENDINGU AF HINUM FRABÆRU BONDSTEC
ÖRBYLGJUOFNUM OG GETUM ÞVÍ BOÐIÐ
TAKMARKAÐ MAGN Á SÉRSTÖKU
KJARAVERÐI.
BT-101
EINN ALLRA FULLKOMNASTI OG
HÆFASTI ÖRBYLGJUOFNINN SEM
VÖL ER Á í DAG. 10 ORKUSTIG,
ELDUNARPRÓGRÖM, 28 LÍTRA
INNANMÁL, PRÓGRAMMAMINNI,
SJÁLFVIRK AFFRYSTING,
HITASTÝRÐ ELDUN,
BARNALÆSING, MINNI FRAM í
TÍMANN, HITAMÆLIR,
SJÁLFVIRK UPPHITUN SEM
HELDUR MATNUM Á RÉnU
HITASTIGI EINS LENGI OG
MENNVIUA. NÁKVÆMUR
ÍSLENSKUR LEIÐBEININGA-
BÆKLINGUR FYLGIR.
RÉTT VERÐ 38.650,-
KJARABÓT OPUS
AÐEINS
27.900,-
BT-112
MJÖG FULLKOMINN OG ÖFLUGUR
TÖLVUSTÝRÐUR ÖRBYLGJUOFN.
650 VATTA ELDUNARORKA, 32 LÍTRA
INNANMÁL, 10 ORKUSTILLINGAR
OG ELDUNARPRÓGRÖM.
ÍSLENSKUR LEIÐBEININGA-
BÆKLINGUR FYLGIR.
RÉTT VERÐ 31.800,-
KJARABÓT OPUS
AÐEINS
22.500,-
BT-612
HINN SÍVINSÆLI
FJÖLSKYLDUOFN.
500 VATTA ELDUNARORKA
18 LÍTRA INNANMÁL, AFFRYSTING,
SNÚNINGSDISKUR OG AÐ
SJÁLFSÖGÐU FYLGIR
ÍSLENSKUR LEIÐBEININGA-
bæklingur:
RÉTT VERÐ 16.980,-
KJARABÓT OPUS
AÐEINS
13.600,-