Pressan - 09.03.1989, Síða 8
8
Fimmtudagur 9. mars 1989
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Auglýsingastjóri
Blað hf.
Hákon Hákonarson
Jónína Leósdóttir
Ómar Friðriksson
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 38, simi: 68 18 66. Auglýsingasími:
68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sími 68 18 66. Setning og
umbrot: Filmurog prent. Prentun: Blaðaprent hf.
Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu-
blaðið: 800 kr. á mánuði. Verð I lausasölu: 100 kr. eintakið.
Ráðist að samhjálpinni
Ríkisstjórnin boðar nú stórfelldan niðurskurð á kostnaði við
starfsemi sjúkrahúsanna í landinu. Fyrirmæli hafa verið gefin um
tafarlausa lækkun launakostnaðar um 4%. Heildarniðurskurður-
inn verður trúlega ennþá meiri eða a.m.k. um 200 milljónir króna
hjá ríkisspítulunum.
Aðhald og niðurskurður beinast að öllum þáttum ríkisútgjalda
jafnt. Ennfremur eru settar fram harðari kröfur um rekstraraðhald,
ekki síst á sjúkrastofnunum landsmanna.
Sjúkrahúsin hafa þurft að loka sjúkradeildum, skerða starfsemi
annarra deilda. Lækkun launakostnaðar þýðir líka fækkun starfs-
manna og að dregið verði úr yfirvinnu.
Forstjóri ríkisspítalanna hefur sagt að þessi niðurskurður þýði að
það verði að hefla af allri starfsemi spítalanna. Forstöðumenn spít-
alanna verða að gera upp við sig hvaða deildum megi loka án þess
að skapa neyðarástand. Það verður að svara spurningum um hvaða
læknisaðgerðum megi slá á frest og hvernig eigi að mæta ört stækk-
andi biðlistum sjúklinga við einstakar deildir.
Aðför fjárveitingavaldsins og ríkisstjórnarinnar að sjúkrahúsun-
um beinist gegn sjúku fólki. Það er verið að boða niðurskurð á sam-
hjálpinni.
Hvar eru nú þeir félagshyggjuþingmenn sem gagnrýndu hvað
harðast ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á árunum 1983 til
1987 fyrir að boða niðurskurð á hinni félagslegu þjónustu á sama
tíma og boðaður var óbreyttur kaupmáttur launafólks? Þeir hinir
sömu sitja nú í ráðherrastólum undir forystu Steingríms Hermanns-
sonar sem lýsir því yfir að litið sem ekkert svigrúm sé til kaupmátt-
araukningar á árinu.
Það efast fáir um að nauðsyn ber til að beita aðhaldi og hagræð-
ingu hjá ríkisspítulunum sem annars staðar í opinbera geiranum.
Það á að taka fyrir kjör og sérréttindi lækna. Það á að stokka upp
og samræma verkaskiptingu á milli sjúkrahúsa. Ennfremur á að
herða eftirlit með kostnaði við nýbyggingar sjúkrahúsa s.s. hvort
byggingarkostnaður K-byggingar Landspitalans sé innan eðlilegra
marka. En það er öfugsnúin félagshyggjupólitík að ganga svo hart
fram í sparnaði og hagsýni að bitni stórlega á þjónustu spítalanna
við sjúklinga.
Ríkisstjórn sem leggur niðurskurðarhnífinn að daglegri starf-
semi sjúkradeilda á ekkert tilkall til þess að nefnast félagshyggju-
stjórn sem stendur vörð um velferðarkerfið.
hin pressan
„Þvert á móti hafa strákar og
stelpur í aldanna rás hlaupió hér
saman á eðlilegum aldri...“
— Garri I Timanum
„Ég er raunar alveg undrandi og
stórhneykslaður á menntamanni
að hafa þessa framgöngu...“
— SverrirBergmann i Morgunblaðinu
„Eitthvert kvöldið eftir fréttir
mun Rósa Ingólfsdóttir sjón-
varpsþulur tala alveg til tólf.“
— Guómundur Andri Thorsson i
Þjóðviljanum
„Samanborið við öskutunnur
(allt annað, segir konan min) hlýt-
ur ástin að vera hamingja!1
— Gunnlaugur Guömundsson
stjörnuspekingur í Morgunblaóinu
„Þetta er algjör geggjun.“
— Guðmundur J. Guömundsson i
Tímanum
„Þið eigið að vinda ykkur i að
verða pólitiskt sekar.“
— Guömundur Bjarnleifsson i Þjóö-
viljanum
„Félagslíf er ekki
hallœrislegt. “
—— Andri Þór Guðmundsson i DV
„Ágúst Gíslason segir að með
óbreyttu kerfi verði Búnaðarþing
nátttröll."
— Frétt í Tímanum
„Eða hvað haldið þið að yrði
gert við okkar biskup, ef hann
kæmi til Rómar?“
— Bréf í Velvakanda Morgunblaösins
„Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins er ekki einn um að hafa fé
af blöðunum."
— Úlfar Þormóösson í DV
„Strákar eru alltaff betri en
stelpur. Sama hvað þær remb-
ast."
Sigurður Þór Guðjónsson í DV
Stofugangur fjármálaráðherrans
nyir pressupennar
PRESSAN hefur fengið til liðs
við sig þau Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, fyrrverandi borgar-
fulltrúa Kvennalistans, Ögmund
Jónasson, formann BSRB, Guð-
mund Arna Stefánsson, bæjar-
stjóra í Hafnarfirði, Jón Orm
Halldórsson, stjórnmálafræðing,
og séra Sigurð Hauk Guðjónsson,
prest í Langholtskirkju. Sá síðast-
nefndi hefur raunar skrifað pistla
í PRESSUNA af og til frá upp-
hafi, en Ingibjörg Sólrún, Guð-
mundur Árni, Jón Ormur og Ög-
mundur verða sem sagt nýir
,,Pressupennar“ frá og með þessu
tölublaði.
Það er séra Sigurður Haukur
Guðjónsson, sem skrifar pistilinn
í dag. Hann er að finna á blaðsíðu
11.
1. Ingibjörg Sólrún Gisladóttir
2. Guðmundur Árni Stefánsson
. 3. Sigurður Haukur Guðjónsson 4. Ögmundur Jónasson
5. Jón Ormur Halldórsson