Pressan - 09.03.1989, Side 10

Pressan - 09.03.1989, Side 10
Fimmtudagur 9. mars 1989 10 „VEÐSETTI GLITNISTÆKIN í FLJÓTFÆRNI” „Ég og fasteignasalinn þekkfumst. Hann lét mig vita af American Style,“ segir Daníel Ben Þorgeirsson. — segir Daníel Ben Þorgeirsson fyrrum eigandi American Style „Ég gerði það í hugsunarleysi að veðsetja tæki sem ég átti ekki. Ég myndi flokka þetta undir fljót- færni,” segir Daníel Ben Þorgeirs- son um þá breytni sína að veðsetja tæki fjármögnunarleigunnar Glitn- is fyrir kaupum á skyndibitastaðn- um American Style. Daníel er liðlega tvítugur íslensk- ur athafnamaður og átti á síðasta ári tvo veitingastaði, einn í Garða- bæ og annan í Reykjavík. Núna á hann engan. „Ég er í ýmsum rekstri í dag,” svarar Daníel spurningunni um hvað hann starfi. — Hvernig bar það til að þú keyptir American Style? „Ég var að leita mér að stað til að kaupa. Ég þekkti Þorlák Einarsson hjá Húsafelli og hann lét mig vita af staðnum.” — Ætlaðir þú einhvern tíma að borga skuldabréfin fyrir American Style? „Ég fékk ekki tækifæri til að borga. Það varð að samkomulagi „VAR í SUMARFRÍI ÞEGAR KAUPIN ÁTTU SÉR STAГ — segir Bergur Guðnason eigandi Húsafells „Ég var í sumarfríi fyrripart ágústmánaðar þegar kaupin á American Style áttu sér stað,“ ségir Bergur Guðnason, ábyrgð- armaður fasteignasölunnar Húsafells. Skuldabréfin 30 sem reyndust ólögleg eru samin í nafni Bergs Guðnasonar, en sölumaður og eigandi Húsafells, Þorlákur Ein- arsson, fyllti skuldabréfin út. Þorlákur og bróðir hans Einar voru milligöngumenn í viðskipt- unum. „Ég geri mér vitanlega grein fyrir ábyrgð minni sem Iöggilts fasteignasala,“ segir Bergur um háttalag bræðranna. Um það hvort Bergur ætlar að beita sér fyrir því að Hafþóri Kristjánssyni verði bætt tjónið sem hann varð fyrir segir hann: „Um það mál vil ég ekki tjá mig að svo stöddu. Ég vil fá að taka það fram að síðdegis í gær (mánudagur 6. mars) fékk ég símhringingu frá lögmanni Hafþórs, Sigurði Gunnarssyni. Sigurður gerði mér það tilboð að hann skyldi sjá til þess að greinin um þessi fasteigna- viðskipti myndi ekki birtast í Pressunni ef Húsafell borgaði þær skaðabætur sem gerð er krafa um. Mér finnst þetta undarlegt tilboð, “ sagði Bergur. Pressan bar þessi ummæli und- ir Sigurð Gunnarsson og honum segist öðruvísi frá samtalinu. „Ég talaði við Berg og hann vildi fá að vita um greinina í Pressunni. Ég sagði honum að hugsanlegt væri að stoppa birtingu, en um það yrði Bergur að eiga við blaða- mann. Ég benti honum á að ég hefði ekki vald til að segja blaða- mönnum fyrir verkum," segir Sigurður. ■ milli okkar Hafþórs Kristjánssonar að hann tæki staðinn tilbaka!’ — Þú borgaðir Hafþóri fyrir- framgreidda húsaleigu og annan kostnað með innstæðulausri ávís- un. „Já, þetta var ávísun upp á 177 þúsund krónur og ég held að hún sé núna hjá Rannsóknarlögreglu ríkis- ins. Ég ætlaði að borga inn á tékka- reikninginn með peningum sem ég átti von á, en fékk ekki. Sá sem skuldaði mér fór á hausinn." — En samningnum hefur ekki verið rift. „Nei, það er vegna þess að Haf- þór krefst skaðabóta frá mér og Húsafelli. Ég geri ekkert í málinu fyrr en ég hef annaðhvort fengið skuldabréfin tilbaka eða staðinn minn!’ — Þú átt við American Style? „Já, ég á þann stað samkvæmt samningi. Ég er til dæmis ekkert hress með þær breytingar sem Haf- þór hefur gert á staðnum!’ — Ertu þá að hugsa um að fara út í veitingarekstur? „Nei, það sagði ég ekki” — Skuldar þú víða? „Ég skulda. Skulda ekki allir sem eru í viðskiptum?” Sjoppur setja fólk á hausinn Langar þig til að verda sjálfs þín herra og halda út i sjálfstæðan atvinnurekstur? Ertu jafnvel að hugsa um að kaupa litinn söluturn sem þú og fjölskyldan gætuð rekið i sameiningu? þeir eru nógir söluturnarnir. Ef þú ert á þessum buxun- um skaltu hætta strax við. Þeir eru mun fleiri sem tapa en græða á smárekstrinum. Sjoppur setja fólk unnvörpum á hausinn. SJOPPUR SVIKAMYLLA „Sjoppureksturinn eroft ein samfelld svikamylla. Sá fyrsti sem eignast sjoppuna svíkur þann næsta til að bjarga eigin skinni og sánæsti heldurupp- teknum hætti og þannig koll af kolli,“ sagði fasteignasali nokkur í samtali við Pressuna. Þessi fasteignasali, sem og aðrir er sátu inni með upplýs- ingar, vildu ekki láta nafns get- ið af ótta við aö verða bendlaö- ir við þann subbuskap sém viröist einkenna kaup og sölu á söluturnum. Söluturnar ganga kaupum og sölum og sjaldnast eru þeir í höndum sömu eigendanna lengur en I eitt eða tvö ár. Þá hefur annað tveggja gerst að eigendurnir sjá ekki fram á að reksturinn beri sig eða að þeir eru dauðuppgefnir á löngum vinnudegi. Sjoppur eru al- mennt opnaðar klukkan nlu eðahálftíu ámorgnanaogekki lokað fyrren klukkan hálftólf á kvöldin. MILLJÓN Á MÁNUÐI Meðalsöluturn veltir um milljón krónum á mánuði, eða rúmum 2.000 krónum hvern klukkutlma sem sjoppan er opin. Maður sem þekkir til þessara viðskipta segir al- genga álagningu vera á bilinu 15 til 20 prósent af veltu. Það gerir um 400 krónur á tímann og á mánuöi rúmar 150 þúsund krónur. Það er ekki mikið eftir til að greiða i kaup, sjálfum sér eða öðrum, þegarbúiðerað greiða húsaleigu, rafmagn og annan kostnað af rekstrinum með þessum 150 þúsund krónum. Algengt verð á söluturni er andvirði tveggja til þriggja mánaða veltu. Meðalsöluturn fæst því á2—3 milljónir króna. MIKIÐ FRAMBOÐ Fasteignasalar sem Press- an talaði við sögðu algengt að fólk sem hefði lítið vit á við- skiptum freistaðist t[l að leggja út I kaup á sölúturni með það fyrir augum að þéna góðan pening á skömmum tlma. Annað kæmi þó ádaginn og sjoppuviðskipti hefðu reynst mörgum dýrt ævintýri. Fólk stæói uppi slyppt og snautt, hefði jafnvel misst húsnæði sitt út af skuldum söluturnsins. Lausleg athugun Pressunn- ar leiddi í Ijós að nóg framboð er af söluturnum. Þá er hægt að fá með hverskonar greiðslu- skilmálum, til dæmis engri út- borgun og upphæðina á skuldabréfum til nokkurra ára. Afturámóti viljaekki nærri all- ar fasteignasölur taka sjoppur til sölu. Hjá nokkrum fast- eignasölum var viðkvæðið „að þessum viðskiptum fylgja ein- tóm vandræði og svik“. FALSAÐUR SÖLUSKATTUR Algengustu svikin eru í þvl formi að seljandinn segir sjoppuna velta mun hærri upphæðum en raunin er. Óprúttnir sjoppueigendur segja jafnvel auðtrúa kaup- endum að auðvelt sé að selja „undir borðið" og komast hjá söluskattsskilum. Söluturn- um er skylt að skrá viðskipti sín f peningakassa og láta I té afrit til skattayfirvalda. Til að komast hjá söluskattsskilum, svo einhverju nemi, veröur aó efna til stórfellds svindls og baktjaldamakks. Til að átta sig á raunvirði söluturns veröur maður að þekkja þá upphæð sem stað- urinn veltir á mánuði. Eina heimildin fyrir raunverulegri veltu fyrirtækisins er sölu- skattsskýrslur. Þar á að standa svart á hvítu hversu mikil veltan er. En jafnvel sölu- skattsskýrslurnar eru stund- um vafasamur pappír. Útsmognasta aöferðin til að blekkja kaupendur söluturna eraðgreiðahærri söluskatten rekstrinum ber í tvo til þrjá mánuði áður en sjoppan er sett á sölu. Til að komast að slíkum svikráöum verður kaupandinn að fara í saumana á bókhaldinu og taka sér tlma til að grandskoöa strimlana i peningakössunum. Verðandi sjoppueigendur gefa sér fæstir tlma til að líta nánar á reksturinn sem þeir ætla að fjárfesta I. Þess vegna fara svo margir á hausinn.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.