Pressan - 09.03.1989, Page 11

Pressan - 09.03.1989, Page 11
Fimmtudagur 9. mars 1989 pressupennar Hendið helvítinu niður Er virkilega sú tið liðin í sögu ís- lenzkrar þjóðar, að heiöarlegt, dug- mikið t'ólk geti rifið sig úr fjptrum meðalmennskunnar, orðið mikið af eigin verkum? Saga þessarar aldar segir okkur frá fólki sem varð bjargvættir heilla byggða, fólki sem átti nennu og þor til þess að breyta draumum í vökumyndir, skapa hag- sæld, fylla kjötkatla sem aðrir þyrptust að. Já, sú var tíð. Um land- ið allt sér þessa stað. Horfðu á Akranes, horfðu á Bolungarvík, horfðu á... Manstu Tlior Jensen, manstu Egil Thorarensen, kannast þú við Gísla á Grund? Jú, víst manstu þess kappa alla, og fjölda annarra. Úr blá-skínandi fátækt unnu þeir sig til bjargálna, þannig að hundruð og þúsundir nutu góðs af. Kjark átti þetta fólk og dug meiri en við flest hin, það er rétt, en réð það eitt sköpum? Eg held ekki. Enn er sem sé til fólk sem vinnur og streðar, sparar, eignast drauma og hættir síðan öllu til að koma þeim í framkvæmd. En þó virðist munur orðinn á. Athafnamanni þessa ára- tugar er hleypt af stað, svona til þess að við sjáum, hver draumur hans er, og meðan við erum að átta okkur á, hvort hann tilheyrir þeim er fjár- magnið úr gullakistum þessarar þjóðar eiga, eða hvort hann er að- einsv með fjármagn heiðarlegrar vinnu í höndum. Venjulega tekur það okkur tvö til þrjú ár að komast að þessu. Nú, ef athafnamaðurinn á ékki aligris við gullakisturnar, þá er honum voðinn vis. Við hleypum honunt upp að bjargbrúninnni, leyfum honum jafnvel að klöngrast yfir með annan fótinn, en heldur ekki lengra. Og nú hefst herferðin. Fyrst leit- um við, hvort viðkomandi skuldi ekki einhverjum eitthvað. Venju- lega er auðvelt slíka að finna, þá er ekki heimta daglaun að kvöldi á miðjum vorvelli, og þessu fólki söfnum við saman, stillum það til hrópsins: Eg vil fá uppskeruna strax, hefi ekki efni á að bíða til haustsins. Hendið helvítinu niður! Næst fáum við slúðurtungur og hælnagara i liðið, og þá blasir sigur við. Uppi á bjargbrúninni standa þeir sem fjármagnið telja sig eiga, og þeir kunna þá list, að vernda sinn hóp, það er ekki pláss fyrir marga á hefðartindi, því er traðkað á streðhöndunum, þar til þær missa tak, og ógnvaldurinn hrapar til hrópandi lýðsins fyrir neðan. Uppi á tindinunvþvo hinir útvöldu hend- ur sinar úr sápuleginum: Verndum rétt lítilmagnans. Lítilmagninn stendur fyrir neðan, og leitar í vös- um þess sem hent var niður, en þar er ekkert að finna. Það koma held- ur engir sjóðir rúllandi niður hlíð- ina. Helduraðeinsorðin: Elskurnar mínar, haldiðþiðaðnokkuðséeftir handa ykkur? Þegar við höfum náð í okkar, þá á hvorki athafnamaður- inn né þið nokkurn skapaðan hlut. Slíkt hljótið þið þó að skilja. Þetta er lögmál, lögmál viðskiptanna, sent þið fáið ekki raskað. En hal'ið þökk fyrir hjáipina, luin var okkur mikils virði. Sjálfsagt finnst einhverjum þetta hörð orð, og því ber mér að finna þeint stað. Keyrðu með mér að Hótel Örk, keyrðu með mér að Holiday Inn, keyrðu með mér að..., en fyrir alla muni mundu að sneiða hjá olíutönkum OLÍS, við verðum bráðum kölluð til annarra erinda þangað. Hvað er að ske? Er virkilega svo kontið, að tönnin i hefli meðal- mennskunnar sé orðin svo beitt, að hún skeri haus af hverjum þpim, er vogar sér að rétta úr baki? Víst nran eg, að athafnamenn skulda oft unt stund. Það er timi sáningar og uppskeru. En skulda ekki fleiri? Heyrði eg rangt að þrír og hálfur milljarðurgjalda frá 1986 og 1987 væri ekki enn kominn i skattahirzlur? Reynið ekki að telja mér trú um, að það séu hinir fátæku í landinu, sem ekki standa í skilum.H SR. SIGURÐUR HAUKUR GUÐJÓNSSON Barna- og unglingavika 12.-18. mars 1989 mamma Mánudagur 13. mars ifi Fimmtudagur 16. mars Tónabær kl. 20.00. Tómstundir — pallborð unglinga. Gerðuberg kl. 20.00. Jafnrétti til nóms. Vitinn — Hafnarfirði kl. 20.00. Dagvistarheimili — Menntastofnun! Sóknarsalur kl. 20.00. Tómstundir barna og unglinga. Gerðuberg kl. 20.00. Samvera fjölskyldunnar. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Alþýðusamband íslands, Kennarasamband íslands, ina, Bandaíai v ... ,a9 hóskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, Starrsmannafélaq ríkisstofnana, Fósturfélag íslands, Sókn, Hið íslenska kennarafélag, Iqa Félag bókaqerðarmanna rfs I l I I 15% í AFSLÁTTUR svínakjöt! GULLASCH...... KR.69o ! M/KRYDDUÐUM HRÍSGRJÓNUM I SNITCHEL......KR. 895 I SMÁRÉTTIR..... KR. 735 S M/GRÆNMETI I KÓTILETTUR....KR. 7951 HNAKKI BEINLAUS..KR. 699 ú HAMBORGARHRYGGIR .. KR. 6551 HAMBORGARLÆRI .KR. 595 gj BAYON SKINKA..KR. 6951 FOLALD I SNITCHEL........KR. 795 Zú GULLASCH........KR. 665 I FILLET..........KR. 820 MÖRBRÁÐ.........KR. 820 " HAKK............KR. 210 SMÁSTEIK........KR. 305 % VERÐ AÐEINS 296 KR./STK STÆRRI GERÐ ^ FIMMTUDAG OPIÐ TIL 18.30 FÖSTUDAG OPIÐ TIL 19.30 LAUGARDAG OPIÐ TIL 16.00 “ Glæstbæ 68 5168. PIZZA KYNNING!

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.