Pressan - 09.03.1989, Síða 16
16
Fimmtudagur 9. mars 1989
siúkdómar og fólk
4U
•••»
• • •
• ••
• .• •
•?•• •••
»••••%,* .
?• ••*. • • • *
4m\J
• «T • ’
'/•• •
• • «0^» •« *•
••
• • •
MISNOTKUN RÓANDI LYFJA
Aukasjúklingur
úr sveit
Stundum kemur það fyrir á
stofutíma, að sjúklingum er skotið
inn á milli þeirra sem eiga pantaðan
tíma.' Þá eru símastúlkurnar að
reyna að leysa einhvern bráðan
vanda, sem sjúklingurinn segir að
hafi komið upp. Slíkir aukasjúkl-
ingar segjast alltaf verða örstutt
inni hjá lækninum og þurfi í raun
ekki að segja við hann nema hálft
orð. Raunin er yfirleitt önnur; þeg-
ar inn er komið er margt sem bera
þarf undir lækninn og hálfa orðið
verður stundum ærið langt. Þennan
morgun var óvenjumikið að gera og
ég kominn langt á eftir áætlun. Þá
hringdu þær á símanum og báðu
mig að líta á konu utan af Iandi,
sem væri á ferðalagi og þyrfti nauð-
synlega að fá einhver lyf. Ég féllst á
það með semingi og vonaðist til að
geta afgreitt hana með hraði. Kon-
an kom inn á stofuna, hún var mið-
aldra, lágvaxin, klædd í gráleita
popplínkápu með græna slæðu og
svart lakkveski undir hendinni.
Hún hreyfði sig hægt og stirðlega
og andlitið var eins og höggvið í
stein. Röddin var lágvær og án allra
blæbrigða. Hún sagðist heita Elín
og vera B-dóttir. Hún kvaðst ekki
vera sjúklingur minn, en því miður
næði hún ekki sambandi við heim-
ilislækninn sinn. —"Viltu ekki vera
svo vænn að skrifa upp á glas af
Valium (dia/epam) fyrir mig og
annað af Mogadon (nitrazepam)?
Ég er alltaf vön að fá 50 töflur af
hvoru fyrir sig enda misnota ég
þetta alls ekki, en þarf alveg nauð-
synlega á því að halda. Ég á bæði
bágt með að sofna og svo er ég ægi-
lega kvíðin á daginn og verð jd taka
eitthvað inn. — Já, sagði ég,.'hvað
tekurðu mikið af þessum lyfjum á
dag? — Það er ekki neitt, sagði
konan, eina Mogadon á kvöldin og
1—2 Valium á daginn, ég hef stund-
um fengið eitthvað annað en mér
finnst þetta nú vera best.
Þekkt vandamál
Flestir læknar sem verið hafa á
stofu kannast við þetta. Engar upp-
lýsingar fáanlegar um sjúklinginn
og hann biður um lyf sem læknin-
um er bölvanlega við að skrifa upp
á umyrðalaust. Á sama tíma rennur
flestum til rifja bjargarleysi konu
sem þessarar, þar sem hún situr
raunamædd á svip í popplínkáp-
unni sinni með vasaklútsbleðil milli
•handanna og svart kvenveskið í
kjöltunni. Svona kona er umkomu-
laus og á svo bágt að manni finnst
það verði að leysa vanda hennar
einhvern veginn. Þá er auðveldast
að taka upp lyfseðlablokkina og
skrifá upp á róandi og kveðja kon-
una með virktum. Slík afgreiðsla
tekur um það bil 2 mínútur en það
tekur mun lengri tíma að skrifa ekki
neitt. Ef það er gert þarf að tala við
konuna og skýra út fyrir henrú,
hvað þessi lyf séu varhugaverð og
hún eigi ekki að taka þau gagnrýn-
islaust ár eftir ár.
Afneitun
og réttlœting
Ég leit á klukkuna og ákvað svo
að spyrja konuna meira um þessa
lyfjameðferð með róandi. Mér Ieist
ekkert á það, hversu sljóleg hún
virtist vera til augnanna, svo mig
grunaði, að hún misnotaði róandi
lyf. — Hvað hefurðu notað þetta
lengi? spurði ég varfærnislega. Hún
sagðist hafa tekið þessi lyf í mörg ár
og þeir segðu, læknarnir hennar, að
hún mætti alls ekki án þeirra vera.
Það væri í raun stórhættulegt ef
hún missti úr eina einustu töflu.
Hún nefndi nöfn nokkurra lækna
og talaði um þá af mikilli lotningu
og kallaði þá prófessora og dokt-
óra. — En tekurðu aldrei meira af
þessum lyfjum en 2—3 töflur á
dag? spurði ég. — Nei aldrei, svar-
aði Elín, ég get svarið það. í þessu
barði ritarinn að dyrum og rétti mér
gamla sjúkraskýrslu konunnar sem
þá hafði fundist. Hún hafði búið í
héraðinu fyrir nokkrum árum en
flutt annað og lítið komið til lækn-
anna á þessari stöð í nokkur ár. Ég
blaðaði í skýrslunni og sá þá, að
Elín fór að ókyrrast mjög. í Ijós
kom þegar skýrslunni var flett, að
Elín hafði átt við lyfjavandamál að
stríða fyrir mörgum árum og farið
í meðferð. Hún virtist hafa misnot-
að róandi lyf áfram og tekist að ná
út nokkrum lyfseðlum á hverju ári.
Mér fannst ekki þurfa frekari vitn-
anna við. Þessi kona var greinilegur •
misnotandi róandi lyfja og hafði
verið það lengi.
Áfengi og róandi lyf
Ég tók að spyrja hana um þessi
lyf og hún játaði nú að taka mun
meira af þeim en hún hafði tjáð mér
í upphafi. Saga hennar var nokkuð
dæmigerð fyrir misnotanda þessara
lyfja. Hún hafði ung farið að
drekka of mikið og Ient í vandræð-
um þess vegna. Síðan uppgötvaði
hún róandi lyf og fannst þau mikill
happafengur. Róandi lyfin höfðu
sömu áhrif og áfengi en lyktuðu
ekki og auk þess reyndist henni
^uðvelt að sannfæra lækna um að
diún þyrfti nauðsynlega á þeim að
halda. Henni fannst hún_alltaf vera
kvíðin og lyfin slógu á það. Þegar
við ræddumst við var hún farin að
t^'ka inn 50—60 milligrömm af Val-
inm (Diazepam) á dag auk nokk-
urrav taflna af Mogadon (Nitraze-
pan) á hverju kvöldi. Þessir skammt-
ar eru mun stærri en venjulega eru
gefnir, sem stafar af því að sjúkling-
ur sem neytir þessara lyfja að stað-
aldri myndar þol fyrir áhrifum
þeirra og getur tekið inn mun stærri
skammta en eðlilegt getur talist.
— Ég hef reynt að losa mig við
þessi lyf, sagði Elín, en það er alveg
ómögulegt; um leið og ég minnka
skammtana eitthvað verð ég svo
ægilega kvíðin og spennt, hætti að
sofa og líður svo illa, að ég fer að
taka þau aftur. Nú orðið er ég sífellt
hrædd um að eiga ekki nóg af þess-
um lyfjum og er alltaf á þönum
milli lækna til að fá lyfseðla.
— Þessi einkenni eru auðvitað al-
veg eðlileg, sagði ég. Það er nefni-
lega náttúra þessara róandi lyfja, að
þau lækna engan mann, en halda
einungis ákveðnum einkennum
niðri. Þegar þú reynir að minnka
neyslu þessara lyfja koma gömlu
einkennin þín upp á yfirborðið á
nýjan leik.
Fráhvarf
eða Valiumskortur
Sumir sem svona er ástatt fyrir
telja sér trú um, að þeir líði af Vali-
umskorti og verði að hafa þessi lyf
svo þeim geti liðið vel. Þá eru menn
komnir inn í vítahring róandi efna.
Vandamálið er það, að þessi lyf eru
mjög vanabindandi og margir
þeirra sem fara að nota Iyfin verða \
háðir þeim og geta alls ekki losað
sig við þau aftur hjálparlaust. Ný-
leg skýrsla frá Bandaríkjunum segir
að liðlega 1% allra fullorðinna hafi
einhvern tímann á ævinni misnotað
þessi lyf í lengri eða skemmri tíma.
Annað vandamál varðandi róandi
lyf er aó helmingunartími þeirra er
mjög langur eða tíminn, sem það
tekur líkamann að losa sig við lyfið
út úr líkamanum. Þetta þýðir að
áhrifin eru langvinn og þess vegna
erfitt að hætta neyslu efnanna
skyndilega. Á meðferðarstofnunun
tekur það yfirleitt langan tíma að
minnka lyfjaskammtana og ná
fólki lyfjalausu, einmitt vegna þess,
að fráhvarfið er mjög langdregið.
Fráhvarfseinkennin sem fylgja í
kjölfar neyslu þessara lyfja eru
kunnugleg; kvíði, spenna, svefn-
leysi, skjálfti, depurð og vonleysi
auk ýmissa líkamlegra einkenna
eins og flökurleika, kláða, vöðva-
spennu og einkenna frá eyrum og
augum. — Já, þessi einkenni kann-
ast ég öll við, sagði Elín dapurlega.
En ætlarðu að vera svo vænn að
skrifa upp á þetta fyrir mig þó ég
taki alltof mikið af þessu? — Nei,
það geri ég ekki, sagði ég, þú ert
með alvarlegan sjúkdóm sem lýsir
sér í ofneyslu þessara efna og ég
ætla ekki að viðhalda þessu ástandi
með því að bæta á þig lyfjum. Á
hinn bóginn er ég tilbúinn að ljá þér
lið til að komast í meðferð og reyna
þannig að ná þér af þessum efnum.
Hún horfði á mig um stund og
sagði svo: — Heldurðu að það þýði-1
nokkuð? — Já, það held ég, þér
leggst eitthvað til. — Mér leggst
aldrei neitt til,- sagði Elín og setti
vasaklútinn sinn niður í veskið,
kvaddi og fór. Ég leit aftur á klukk-
una og kallaði í næsta mann. ■
dagbókin
hennar
Kœra dagbók.
Ég veit ekki hvort ég þori í skól-
ann á morgun, því ég er svo hrædd
um að einhver hafi séð til mín með
ömmu á Einimelnum í dag. Það var
sko algjör bömmer, en byrjaði voða
sakleysislega með því að amma
bauð mér í bíltúr á „tíkinni" sinni
(eins og hún kallar glænýju milljón
króna Honduna, sem mamma er
græn í öfund út af) og ég sló til, af
því mér leiddist soldið. Fyrst keyrð-
um við pínu pons og kíktum á ferm-
ingarveisluföt á okkur í búðar-
gluggum. (Það á sko að ferma
Adda bróður bráðum. Þeir taka
greinilega við hverju sem er í þenn-
an kristna söfnuð!) Amma heillað-
ist alveg fyrir ytan kellingabúðirnar
og svitnaði ekki einu sinni, þó hún
sæi verðmiðana. (Kannski náði hún
bara ekki að lesa á þá...) En það var
meiriháttar mál að halda henni í
tvær sekúndur fyrir framan búðirn-
ar, sem ég hafði áhuga á.
Það fór hins vegar ekki allt í steik
fyrr en sú gamla gerði sér lítið fyrir
og parkeraði á bílastæðinu, sem al-
þingismennirnir eiga, og vippaði
sér út með stóran piastpoka. Hún
var rosa sposk á svipinn og ég hélt
að það væri bara prakkarasvipur
yfir því að Ieggja á annarra manna
' stæði. En það var sko ekki málið.
Amma sagði, að þessar þing-
mannadruslur væru aldrei í vinn-
unni á sunnudögum frekar en aðra
daga og ég þyrfti ekkert að hafa
áhyggjur af því að hún væri að
svína eitt eða neitt á þeim. Ne-hei,
hún Elsa litla á Einimelnum ætlaði
bara að bregða sér sem snöggvast á
skauta á Tjörninni, eins og í gamla
daga!
Gvuuuð, ég hélt ég yrði ekki
eldri. Ég meina það... Amma var þá
með tvenna skauta í plastpokanum
(sína gömlu frá sautjánhundruð og
súrkál og skautana hennar Fríðu
föðursystur, sem eru örugglega frá
því um aldamótin) og ætlaðist til
þess að ÉG léti sjá mig á fleygiferð
með henni á Tjörninni. Glætan,
maður. Ég þorði nú samt ekki ann-
að en elta hana, því ég var svo
hrædd um að hún dræpi sig eða
eitthvað — og pabbi hefði alveg
pottþétt drepið mig, ef amma hefði
drukknað í vök í miðri Reykjavík
um hábjartan daginn. En það hefði
bara þurft heila herdeild til að
stoppa hana. Hún fleygði sér á
Tjarnarbakkann, tætti af sér
skóna, smellti sér í skautana og
hvarf inn í mannþröngina á svell-
inu. Einn, tveir og þrír. Síðan peytt-
ist hún út og suður um Tjörnina,
rakst á fleirihundruð og fimmtíu
manns og setti almennt allt í kerfi.
Meira að segja lítil börn voru ekki
óhult fyrir henni. Ég lét sko ekki sjá
mig nálægt henni, en það gætu auð-
vitað einhverjir hafa séð okkur
koma og fara saman, þó ég hafi
reynt að hlaupa á undan henni í bíl-
inn. Ef einhver af strákunum, sem
ég er skotin í, hefur séð mig skal ég
svoleiðis....
Amma var svo ekkert nema tuðið
á leiðinni heim. Fúl yfir því að ég
skyldi ekki fara á skauta, fúl yfir því
að svellið var sléttara í gamladaga
og fúl yfir því að Davíð skyldi ekki
Iáta spila dansmúsík úr hátölurum,
eins og þegar hún var ung. Og sú
verður aldeilis fúl á morgun, mað-
ur, þegar hún verður að deyja úr
harðsperrum, sem hún á enga von
á. Hún var nefnilega soldið liðugri,
þegar hún brunaði um Tjörnina
fyrir hundrað árum!
Bless, Dúlla.