Pressan


Pressan - 09.03.1989, Qupperneq 19

Pressan - 09.03.1989, Qupperneq 19
Fimmtudagur 9. mars 1989 19 • Stam er eðlilegur þáttur á þroskaferli þeirra barna sem eru að byrja að tala. • Óeðlileg afskipti af staml geta magnað það upp. • Fleiri drengir en stúlkur stama. Næstum allir geta sungið og hvíslað án þess að stama. Jj >/ Pétur Jónasson sálfrœðingur og Gylfi Baldursson heyrnar- og talmeinafrœðingur ræða við Pressuna um stam. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga auðvelt með að tjá sig. Þeir sem stama liða oft hreinustu sálarkvalir og stundum lenda þeir i þeirri aðstöðu að geta ekki einu sinni sagt hvað þeir ætla að kaupa í verslun. Nemendur í skólum kvíða þvi oft að verða teknir upp í tímum, en sennilega kviðir enginn slíkri stundu jafnmikið og sá sem stamar. EFTIR ÓNNU KRISHNE MAGNÚSDÓTTUR Stam er eitt af því sem engin haldbær skýring er til á af hverju stafar. Mörgum kemur fyrst í hug sálrænt ástand þegar á stam er minnst en að sögn PÉTURS JÓN- ASSONAR sálfræðings, fram- kvæmdastjóra Kópavogshælisins, eru þrjár meginskýringar nefndar á stami. í fyrsta lagi lært atferli, þ.e. að þeir sem stama hafi lært það af einhverjum sem stamar, sálfrœði- legir þœttir og líffrœðilegir, það er að segja að eitthvað í heila eða taugakerfi valdi því að fólk stamar. Stam barna eðlilegur þáttur þroskaferils___________ GYLFI BALDURSSON, heyrn- ar- og talmeinafræðingur, segir stam venjulega alltaf vera áunnið, aldrei meðfætt: „Þaðeru óskaplega margar kenningar í gangi um það hvað veldur stami. Stam er mjög tengt sálarlífi viðkomandi mann- eskju og því hvernig samskipti hennar við fólk eru og hvernig hún upplifir umhverfi sitt. Stam er sér- staklega viðkvæmt á mótunarárum tjáningar á aldrinum 3—5 ára og langalgengast að stam byrji þá. Hins vegar hefur því oft verið hald- ið fram að ekki eigi að beina athygl- inni um of að staminu eða gera mik- ið veður út af því — þá fyrst magn- ist stamið og úr verði vítahringur." PÉTUR JÓNASSON kemur einnig inn á þann þátt að ekki eigi að gera veður út af stami: „Það er stundum sagt að stam eigi ekki ræt- ur sínar í munni barnsins heldur í eyrum foreldra," segir hann. „Það er kannski fyrst þegar foreldrarnir fara að hafa áhyggjur af staminu að barnið fer að stama fyrir alvöru. Það er sjaldnast æskilegt að gera veður út af stami barna og í raun- inni er það eðlilegur þáttur á þroskaferli barns, sem er að læra að tala, að stama eitthvað.“ „Börn ganga í gegnum tímabil þar sem þau tafsa mikið og hiksta á orðum,“ segir GYLFI BALDURS- SON. „Þetta gerist þegar þau eru að læra að tala og koma undir sig fótunum og við þessu er best að gera ekki neitt.“ Sungið og hvisiað,____________ ekkert stam___________________ Oft heyrast sögur af þeim sem stama, sem byggja á að þeir hinir sömu geti talað óhikað undir viss- um kringumstæðum. Sagt er að margir stami aldrei nema á fund- um, aðrir geti sungið án þess að stama og enn aðrir stami aðeins í návist ákveðinna persóna: „Það eru til allar útgáfur af þessu,“ segir Gylfi. „Sumir stama bara við ákveðnar aðstæður, aðrir aðeins á vissum hljóðum.“ Pétur segir til fólk sem stamar bara heima hjá sér og hvergi annars stað- ar og „stam í návist ákveðinna aðila er algengt". Hvort það er óöryggi eða hræðsla sem því veldur svarar Pétur að mörg atriði komi þar til: „Sumir þeirra sem stama stama aldrei þegar þeir tala við ungbörn eða dýr, en stama gjarnan mikið ef þeir eru til dæmis að tala við yfir- mann sinn eða liggur eitthvað mik- ilvægt á hjarta. Krakkar sem stama mikið í skólum geta gleymt sér í leik og stama ekki undir þannig kring- umstæðum, og margir skólakrakk- ar stama mun minna á sumrin.“ Pétur segir það nær algilt að fólk sem að jafnaði stamar stami ekki þegar það syngur. „Fólk getur yfir- leitt alltaf bæði sungið og hvíslað án þess að stama og oft getur komið að gagni að breyta röddinni, tala í bassa eða einhverri annarri tónteg- und. Hins vegar verður slíkt oft til- gerðarlegt og aftrar fólki frá því af þeim sökum.“ „Þú gætir farið að__________ stama sjálfur“______________ Stam er algengara hjá drengjum en stúlkum og háir börnum meira en þeim sem eldri eru, enda hverfur stam með aldrinum hjá mörgum. Börn sem ekki stama gera sér enga grein fyrir því hugarangri sem slíkt getur valdið þeim sem það gera. Þau eru því nokkuð mörg börnin sem gera grín að þeim sem stama með því að herma eftir þeim. Slíkt gerði strákur einn sem Pétur Jónas- son minnist á. Hann og félagar hans hermdu eftir manni sem stam- aði, þar til móðir stráksins hafði orð á að slíkt skyldi hann ekki hafa í flimtingum: „Þú gætir farið að stama sjálfur.“ „Og það gekk eft- ir,“ segir Pétur. „Strákurinn fór að stama og kannski skýringin sé sú að ótti hans gagnvart því að hann gæti sjálfur farið að stama hafi fram- kallað stamið." í öðru tilviki sem Pétur minnist gerðist það að barn sem var í sveita- dvöl var bitið illa af hundi á bæn- um. Ekkert var gert við þessu biti, en barnið var í losti í nokkra daga og mælti ekki orð frá vörunt. Fyrstu hljóðin sem barnið gaf síðan frá sér var gelt og þegar það fékk málið aftur stamaði það. Pétur nefnir einnig bandaríska rannsókn sem gerð var á fjölskyldu einni þar í landi. Mikið var unt stam í fjöl- skyldunni en þegar nokkrir fjöl- skyldumeðlimanna fluttu í annað fylki dró verulega úr stami þeirra,. meðan stamið hélt áfram hjá hin- um: „í því tilviki höfðu fjölskyldu- mynstrið og áhrif vissra aðila í fjöl- skyldunni sitt að segja.“ Alltof fáir talkennarar En hvað er hægt að gera? Gylfi og Pétur telja báðir að best sé að gera sem minnst, sérstaklega þegar börn eiga í hlut, og þótt einstakl- ingsbundið sé hvenær þörf er að leita hjálpar sé það varla fyrr en við 10—11 ára aldurinn: „Best er að leita til talmeinafræð- inga sem sérhæfa sig í stami,“ segir Pétur, en Gylfi bendir á að tal- meinafræðingar sem starfa hjá Heyrnar- og talmeinastöðinni séu ekki í stakk búnir til að sinna þess- um aðilum: „í rauninni eru hér á landi afskaplega fáir talkennarar sem geta tekið kennslu af þessu tagi að sér, fyrir utan þá sem þegar starfa í skólunum,“ segir hann. „Sannleikurinn er sá að hér eru allt- of fáir talkennarar við störf. Fólk hefur einfaldlega ekki lagt þetta nám fyrir sig i meira mæli, sjálfsagt vegna þess að stöðugildi eru ekki fyrir hendi þótt þörfin sé mikil. Það er varla hægt að mæla með því að fólk fari í langt nám sem tryggir því ekki starf síðar.“ Þegar barn stamar hefur þótt raunhæfari möguleiki að taka fjöl- skylduna í meðferð en barnið sjálft: „Foreldrum er kennt að umgangast barnið á eðlilegan hátt þannig að ekki sé gert ntikið úr staminu,“ seg- ir Gylfi og Pétur bætir við: „Það er ástæða fyrir fjölskyldur barnanna að leita sér upplýsinga um hvernig bregðast eigi við staminu og það er í rauninni affarasælla en að sá sem stamar þurfi að gangast undir mikl- ar rannsóknir. Það þarf að varast að gagnrýna þann sem stamar, segja honum að reyna að hætta því eða stama minna, því með því móti vekur maður upp meira álag hjá viðkomandi, sem aftur leiðir til þess að hann fer að stama meira. Stam virðist stundum batna ef pressan er tekin af viðkomandi, til dærnis með því að benda honum á hógværan hátt á að maður hafi tek- ið eftir staminu og hann þurfi ekk- ert að skammast sín fyrir það. Þá verður viðkomandi rólegri, hættir að vanda sig eins við að tala og við það minnkar stamið.“ Ný þjónusta: Heimagerðar kræsingar — sem þú þarft ekki að sjó um! Fleiri karlmenn en konur hafa hringt Hversu margar konur hefur ekki dreymt um að geta lyft upp símtólinu þegar haida skal veislu og fá sendar heim dýrindis heimabakaðar kökur, brauðtertur eða kaffisnittur? Mörgum hefur dottið í hug að setja upp slíka þjónustu, en oftar en ekki hafa þær hugmyndir aldrei orðið að veruleika. EFTIR ÓNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR - MYND MAGNÚS REYNIR Nú eru bjartari tímar! Tvær þaul- vanar konur hafa nefnilega tekið af skarið og auglýst þjónustu sína. Þetta eru þær RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR og EDDA KARLSDÓTTIR, sem hafa árum saman smurt og bakað og finnst kjörið að nýta kunnáttu sína til að auðvelda húsmæðrum veisluhald. „Við bökum allt sem fólk biður um,“ sagði Ragnheiður. „Edda sér alveg um baksturinn og ég um smurða brauðið.“ Ragnheiður starfaði áður fyrr sem aðstoðar- stúlka matreiðslumanna í Lídó og eitt sinn þegar „smurbrauðs- daman“ þar veiktist var hún beðin að bjarga hlutunum: „Ég sá um smurða brauðið í þrjá mánuði og þess á milli hljóp ég í min störf i eld- húsinu,“ segir hún. „Ég fékk ekki krónu fyrir að smyrja og eftir þessa þrjá mánuði fór ég til veitingastjór- ans og sagðist vilja fá einhver laun fyrir aukavinnuna. „Þetta er skóli og þú átt eftir að njóta þess alla ævi að hafa lært að smyrja brauð,“ var svarið sem hann gaf mér. „Og það er rétt,“ segir hún. Ragnheiður segir þær halda verð- inu í lágmarki: „Við tökum fyrir efnið sem við kaupum og ætlum okkur tímakaup fyrir vinnuna," segir hún og lofar að allt sem frá þeim kemur sé glænýtt: „Við erum báðar í fullu starfi á daginn og sinn- um þessu því á kvöldin og um helg- ar. Við erum með uppkomin börn og erum því ekki bundnar yfir heimilisstörfum. Markntiðið er að skila okkar með sóma — en við leggjum auðvitað ekki heilsuna að veði og lofum ekki upp í ermina á okkur!‘ Að sögn Ragnheiðar hafa margir hringt til að spyrjast fyrir um hvað boðið er upp á og verðið: „Það skemmtilega er að fleiri karlmenn en konur hafa hringt," segir hún. „Það sýnir breytta tíma. Núna láta konur ekki bjóða sér að þurfa að sjá um allan baksturinn og bera ábyrgð á öllu þegar stórar veislur eru framundan og karlmenn eru farnir að fá smjörþefinn af þeim líka. Og það var ekki seinna vænna!" segir hún með áherslu.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.