Pressan - 09.03.1989, Blaðsíða 20
20
Fimmtudagur 9. mars 1989
«c
bridge
Það er óhætt að fullyrða að 5.
maðurinn við borðið, áhorfandinn,
hefur oftast besta yfirsýn yfir at-
burðarásina. Ég fylgdist með eftir-
farandi spili fyrir skömmu og verð
að játa að illt var að spá hver hefði
betur að lyktum:
♦ 1064
V G93
♦ ÁD3
«¥• ÁD84
OMAR
SHARIF
♦ D83
V K64
♦ G109
•¥• G953
♦ Á7
VÁ1087
♦ K752
•¥• 1076
♦ KG952
V D52
♦ 864
•¥• K2
N gefur, enginn á og vekur á 1-
laufi. 1-spaði í austur og eftir bít-
andi sagnbaráttu verður S sagnhafi
í 3-hjörtum. (NS hefðu haft meira
upp úr krafsinu ef þeir hefðu dobl-
að andstöðuna í 2-spöðum.)
Útspil vesturs var spaði. Úr „suð-
vestur“-sæti mínu sá ég að 9 slagir
voru auðfengnir með tvísvíningu í
trompinu. En suður sat við stjórn-
völinn. Hann drap útspilið á ás og
spilaði spaða til baka. Enn kom
spaði, trompað. Næst svínaði sagn-
hafi í laufi. Austur vann á kóng og
skilaði litnum til baka, sjöa, nía og
ás.
Enn var hægt að ráðast á trompið
og tryggja sér 9 slagi, en suður valdi
að taka 3 tígulslagi og spilaði sig
síðan út á laufi.
Vestur var inni á gosa og þurfti
nú aðeins að spila síðasta laufinu
(austur trompar lágt) til að sagnhafi
lokaðist inrti heima og þyrfti að
gefa 2 trompslagi. En hann spilaði
Iitlu trompi.
Austur varðist vel þegar hann lét
tvistinn duga. Sagnhafi Iagði næst
niður trompás og vestur fékk loka-
tækifærið í vörninni: Að fórna
trompkónginum undir. En vestur
las ekki stöðuna, læstist inni á
tromp í 12. slag og varð að gefa
blindum siðasta slaginn á laufátt-
una.
skák
Lewis — Ljóðhús
Síðan eg skrifaði síðasta þátt
hefur mér borist meiri vitneskja
um taflmennina frá Lewis og
verða þeir því á dagskrá aftur í
dag. Þórhallur Vilmundarson
prófessor benti mér á að til er
fornt íslenskt nafn á Lewis: Ljóð-
hús. Þetta nafn þykir mér bæði
skáldlegt og fallegt. Þórhallur
hafði séð taflmennina frá Ljóð-
húsum í British Museum í Lund-
únum og sagði að það væri greini-
legt að þeir væru taldir með mestu
dýrgripum safnsins. Vakin var
sérstök athygli á þeim í anddyri og
þar voru til sölu eftirmyndir af
þeim úr einhverju nútímalegra
efni.
Einnig hef eg frétt að eftir-
myndir Ljóðhúsamanna hafi ver-
ið til sölu á Jersey, eyju í Ermar-
sundi sem er talsvert sótt af ferða-
mönnum. Mennirnir voru gerðir
úr alabastri og fylgdi borð úr
sama efni. Gripirnir kostuðu of
fjár. Þessir fornu taflmenn virðast
því þekktari á Bretlandseyjum en
hér á íslandi.
Eg nefndi síðast að gerð mann-
anna þætti benda til þess að þeir
væru komnir af norðurslóðum.
Rostungstönnin sem þeir eru
smíðaðir úr bendir ekki síður í
norðurátt, og fjöldi taflmann-
anna bendir til þess að þeir hafi
átt að verða verslunarvara, hafi
beinlínis verið smíðaðir til út-
flutnings. En enginn veit hvernig
þeir komust á þann stað sem þeir
fundust á. Kannski hefur kaup-
maðurinn brotið skip sitt við
ströndina og komið mönnunum
fyrir á þessum örugga stað.
Kannski hafa verið meiri sam-
skipti milli þessara eyja í Atlants-
hafi að fornu en vitað er um.
Ensku og íslensku nöfnin á
mönnum skákborðsins gætu bent
til þess.
Þórhallur Vilmundarson skaut
fram þeirri hugmynd að efla sam-
skipti þessara eyþjóða að nýju
með því að halda árlega skákmót
til að minna á þessa fornu gripi.
Þarna gæti verið um landskeppni
Englendinga og íslendinga að
ræða, haldna til skiptis í löndun-
um. Hún gæti þá verið kennd við
Ljóðhús þegar keppt er hér, en við
Lewis þegar keppt er á Englandi.
Englendingar eru að vísu öflugri
skákþjóð en við, en keppnin gæti
engu að síður orðið tvísýn og
áhugaverð. Þessari skemmtilegu
hugmynd er hér með komið á
GUÐMUNDUR
ARNLAUGSSON
framfæri við forystumenn okkar
á skáksviði.
krossgátan
vmtwÉy
ílÖfULl J'
$ SK£IKA
KYTtU. - y
F/ÍÚDI'V
RlFSA
SPARA
SoL-
16
10
WkköB
jl
spdp
FRób
söqt/
)?
Jv)£/W
0R fifl/iei
rziNs
DPr-lTILL
SAH'
STÆDlP
hPÖPG
SPuPT
BdflL.Fl
flUKT
hLfa
73
OUGLtCuR
BF-isSifl
í
,-RDT-,
FoPm I
HÆKKuH
SjÖTflrJ
SMtTTU
HARMA
GÓÐPt
L'ELtGI
UMDÆHIS-
STAfíR
HflfllGSA
BLÉTTu
bBEiT
17
WOKI
fíSÆLAST
LÆKKuH
KPiöGum-
STiiúuH
VElMfi-
ffi.Fl
IZ
HoldiaP
UfluT-
GRIPIP
(o
II
DRfíuP
F'oTfl-
Buflí)
TlMBuR
70&A
T
SPIL
HAF
HlALMufí
m
PlKKA
STELGuR
flflurF
SKRiFi
SEQil-
IHH
KpHu-
nAFH
SToPull
UíROoMS
r
1
12
&R btof,
TmsjZjp
m&i-
Us>
Hm
Kall
II
FFEísA
S Tr-PK
HtLG I
GtRuHfl
\áTliN\
FUGL
F-tHS
J ALfl
VAÐIR
FOR-
FFDuR
pL
mens
¥
1 2
17 18
10 11
12
13 14 15
16
Skilafrestur er til 20. mars. Utanáskriflin er: PRESSAN— kross-
gáta nr. 24, Árnníla 36, 108 Reykjavík.
Verðlaun fyrir rétta lausn eru bókin Við byggðum nýjan bœ, endur-
minningar Huldu Jakobsdóttur, sem A Imenna bókafélagið gefur át.
Höfundur er Gylfi Gröndal og því til mikils að vinna.
Dregið hefur verið árréttum lausnum á 22. krossgátu, en að þessu
sinni er það Guðný Pálsdóttir, Sigtáni 27, 450 Patreksfirði, sem er
hinn heppni verðlaunahafi. Bókin sem hán fœr I sinn hlut er Ævi-
saga Eðvalds Hinrikssonar, Úr eldinum til íslands, sem Almenna
bókafélagið gefur át.
I