Pressan - 09.03.1989, Side 22
22
Firtimtudagur 9. mars 1989
Kynskiptingur er ekki einstaklingur; sem langar til aö skipta um
kyn. Kynskiptingur ersannfœrður um að hann sé og hafi alltaf ver-
ið af gagnstœðu kyni.
GREIN: JÓNÍNA LEÓSDÓTTIR
ÍMYNDAÐU ÞÉR AÐ ÞÚ VAKNAÐIR í FYRRA-
MÁLIÐ í NÝJUM LÍKAMA AF GAGNSTÆÐU
KYNI VIÐ ÞANN. SEM ÞÚ GENGUR NÚ UM í.
SAMT SEM ÁÐUR VÆRIR ÞÚ SAMA PER-
SÓNAN. MEÐ SÖMU TILFINNINGAR OG VIÐ-
HORF OG FYRR. FANGI í ÞESSUM ÓKUNNA
LÍKAMA.
ÞANNIG LÍÐUR KYNSKIPTINGUM. OG ÞÁ ER
AÐ FINNA Á ÍSLANDI EINS OG ANNARS
STAÐAR. HAFA A.M.K. TVEIR ÞEIRRA FENGIÐ
SAMÞYKKI FYRIR SKURÐAÐGERÐ.
Fyrir rúmu ári kom út
á Bretlandseyjum bók-
in „Bodyshock — The
truth about changing
sex“ („Líkamsáfall —
Sannleikurinn um kyn-
skipti“)eftir blaðakon-
una Liz Hodgkinson.
Hún er byggð á fjöl-
mörgum viðtölum og
viðamiklum rannsókn-
um höfundarins á köri-
um og konum, sem
skipt hafa um kyn.
Fram kemur í bókinni
að kynskiptinga er að
finna í öllum þjóðfélög-
um og ölium stéttum.
peir eru óiikir innbyrðis
og hafa hlotið mjög mis-
jafnt uppeldi. Þetta fólk
virðist einungis eiga
eitt sameiginlegt: Frá
fyrstu tíð hefur því
fundist það vera af öðru
kyni en líkami þess
sagði til um. Líkamlega
amar þó ekkert að þess-
um einstaklingum, því
þeir eru fullkomlega
rétt skapaðir frá náttúr-
unnar hendi.
Brenda - Mark Rees
TAPAÐI FYRIR
EVRÓPUDÖMSTÓLNUM
Mark Rees, sem nú er tæplega fertugur maöur með háskóla-
gráðu í bókmenntum, hét áður Brenda. Hann varð frægur árið 1986,
þegar hann fór með mál sitt fyrir Evrópudómstólinn. Hann gat ekki
sætt sig við að vera kvenkyns áfæðingarvottorðinu, en tapaði raun-
ar málinu.
„Mér fannst ég alltaf vera strákur og á gelgjuskeiðinu fór mig að
hrylla við líkama mínum. Ég varð að fá honum breytt, svo fólk kæmi
ekki fram við mig eins og ég væri kona. Heimurinn er nefnilega und-
arlegur fyrir karlmann í kvenmannsllkama og ég náði ekki áttum.“
Mark (þ.e.a.s. Brenda) fékk að lokum taugaáfall og var lagður inn í
sjúkrahús. Læknarnir tóku strax mark á honum og undirbúnings-
meðferðin hófst. Eftirtvo mánuði hættu blæðingarog tæpu ári síð-
ar breyttist röddin. Síðan fór Mark að vaxa skegg. Brjóst, leg og
eggjastokkar voru fjarlægð með skurðaðgerö, en Mark hefur ekki
enn fengið ytri kynfæri.
Lúra = Michael Dillon
FYRSTA KONAN, SEM VARÐ MAÐUR
Lára er af mjög ríkri fjölskyldu af aðalsættum, var alin upp af
tveimur ógiftum frænkum sínum og gekk í háskóla í Oxford. Þegar
hún var 23 ára (árið 1939) spurðist hún fyrir um kynskiptaaðgerð, en
það var ekki fyrr en 1945 að undirbúningur gat hafist og þremur ár-
um síðar fór aðgerðin fram. Hún var framkvæmd af Sir Harold Gilli-
es, sem „fann upp“ hvernig búa mætti til ytri kynfæri. Er aðferð
hans notuð enn þann dag i dag.
Lára varð þannig Michael Dillon, hóf læknanám og varð ástfanginn.
Ástin varhins vegarekki endurgoldinog réð hann sig því sem skips-
lækni og ferðaðist um heimsins höf. Arið 1958 gerði blaðamaður
nokkur þá uppgötvun að hann hefði eitt sinn verið kona og Michael
viðurkenndi allt. Skömmu síðarsagði hann starfi sinu lausu, gerð-
ist búddamunkur í Tíbet, fyrstur allra Breta. Hann dó úr næringar-
skorti á Indlandi árið 1962