Pressan


Pressan - 09.03.1989, Qupperneq 23

Pressan - 09.03.1989, Qupperneq 23
Fimmtudagur 9. mars 1989 23 Margar og_______________________ erfiðar aðgerðir Kynskiptaaðgerð fellur eiginlega undir lýtaskurðlækningar eða svo- kallaðar plastikaðgerðir, þó þvag- færalæknar komi einnig við sögu þegar körlum er breytt í konur. í flestum tilvikum þurfa kynskipt- ingar að gangast undir margar að- gerðir og alltaf er um ákveðna áhættu að ræða. Engin trygging er fyrir árangrinum, þó auðvitað hafi orðið gífurlegar framfarir í lækna- visindum frá því fyrstu kynskipta- aðgerðirnar voru framkvæmdar fyrir u.þ.b. fjórum áratugum. Þegar karli er breytt í konu eru kynfæri hans fjarlægð og útbúin gervileggöng, en löngu fyrir slíka aðgerð er byrjað á því að sprauta manninn reglulega með kvenhor- mónum. Sprauturnar hafa m.a. þau áhrif að brjóst hans stækka, en skeggrót verður að fjarlægja með margra vikna rafmeðferð. Hormónagjöf er líka notuð, þeg- ar breyta á konu í karl. Röddin verður þá dýpri og brátt hefst skeggvöxtur. Brjóstin þarf hins veg- ar að fjarlægja með skurðaðgerð og einnig leg og eggjastokka. Ytri kynfæri eru síðan búin til með því að nota húð af öðrum stöðum lík- amans, en að sjálfsögðu verður ekki sama tilfinning í þessu tilbúna Iíffæri og hjá venjulegum karl- mönnum. Tveir íslendingar í aðgerð Enn hefur ekki tekist að útskýra af hverju sumir einstaklingar eru sannfærðir um það frá barnsaldri að þeir séu af öðru kyni en líkaminn segir til um. (Algengast er að fyrsta minningin um þessa sannfæringu sé frá 3—4 ára aldri.) Áður fyrr var talið að ráðrík móðir og undirgef- inn faðir gætu verið orsökin, eða að foreldrarnir hefðu óskað sér barns af öðru kyni en raun bar vitni. Þess- ar kenningar hafa líka verið vinsæl- ar sem útskýring á samkynhneigð, en þykja núorðið ekki eiga við nokkur rök að styðjast, hvorki varðandi homma, lesbíur né kyn- skiptinga. Líklegast þykir að eitt- hvað hafi farið úrskeiðis á fóstur- stigi þeirra einstaklinga, sem síðar í lífinu vilja skipta um kyn. Þeir fræðimenn, sem rannsakað hafa þessi mál, álíta að einn af hverjum tíu þúsund einstaklingum í heiminum sé kynskiptingur. Sé það rétt eru um 25 slíkir hér á landi. Hvort sem þessi tala er nærri lagi eða ekki er a.m.k. víst að fólk í þess- ari aðstöðu fyrirfinnst hér á landi engu síður en annars staðar. í fyrsta tölublaði PRESSUNNAR var t.d. viðtal við ónafngreindan ungan landa okkar, sem kvaðst þrá það heitast að gangast undir kynskipta- aðgerð. Eftir að viðtalið birtist hef- ur blaðið þar að auki komist í sam- band við tvo íslenska karlmenn, sem báðir hafa fengið þann úrskurð hjá sálfræðingum og læknum að þeir séu kynskiptingar. Annar þessara manna hefur nýverið geng- ist undir skurðaðgerð og hinn hefur fengið vilyrði fyrir aðgerð innan skamms. Hvorugur þeirra tréystir sér hins vegar til að ræða þessi mál í fjölmiðlum að svo komnu, af til- litssemi við ættingja og vegna þess í hve litlu þjóðfélagi við búunt. Hlutskipti kynskiptingsins er ekki eftirsóknarvert. Hvorki í stóru samfélagi né smáu. Við, þessi „venjulegu“, eigum nefnilega flest erfitt með að skilja þetta fólk og dæmum það því ranglega. Margir eiga t.d. erfitt með að meðtaka það að kynskiptingar vilja alls ekki vera í þeirri aðstöðu, sem þeir eru. Þeir vildu fórna hverju sem er til að verða sáttir við líkama sinn. Sú til- finning að finnast maður vera af öðru kyni en Iíkaminn segir til um bakar viðkomandi nefnilega ómælda þjáningu — að ekki sé minnst á þjáningar fjölskyldu og vina. Kynskiptingar fá ekkert kynferð- islegt út úr því að klæðast fötum hins kynsins, eins og t.d. svokallaðir klæðskiptingar, enda er þráin eftir öðrum líkama alls ekki kynferðis- legs eðlis. Georg = Christine Jorgensen FRÆGASTI KYNSKIPTINGURINN Daninn Georg Jorgensen var einn fyrsti kynskiptingurinn, sem gekkst undir skurðaðgerð, en hún fór fram í Danmörku. Eftir það varð Georg konan Christine og árið 1952 fórfréttin um hanaeinsog eldur í sinu um allan heiminn. Christine varð heimsfræg og fluttist til Ameriku, þar sem hún býr enn þann dag í dag. Lewen = Judy Cousins ÞÓTTIST FREMJA SJÁLFSMORÐ Frá fjögurra ára aldri var Lewen Cousins fullkomlega meðvitað- ur um að hann væri í raun og veru kvenkyns. En hann reyndi að berj- ast á móti þessari tilfinningu eftir bestu getu, gerðist m.a. hermað- ur, kvæntist og eignaðist þrjú börn. Þegar hann var 53 ára gamall og börnin komin á legg gat Lewen ekki lifað lengur sem karlmaður og lét líta út fyrir að hann hefði framið sjálfsmorð. Þannig hugðist hann hlífa fjölskyldunni við að sjá hann verða að konu, en seinna komst allt upp. Uppkomnar dæt- ur Judyar sættu sig við breytinguna, en fyrrverandi eiginkonan og ungursonurviljaekkert hafameð þessanýju persónu að gera. Judy býr nú ein. George Jamieson = April Ashley DÝRT OG SARSAUKAFULLT Það er ómögulegt að sjá það á April Ashley að hún haf i einhvern tímann verið karlmaður, þó hún hafi verið sjómaður á kaupskipum fyrir kynskiptin. Hún hlaut líka hormónameðferð og fór í uppskurö snemmaáþrítugsaldri og hefur því verið kona ívið lenguren hún var karlkyns. Á meðan April var enn George fór hann að vinna á nætur- klúbbum í París og kom þá fram I kvenmannsgervi. Aðgerðin fór fram í Casablanca árið 1960 og kostaði mikla fjár- muni, sársauka og erfiðleika. En upphaflega var April sonur verka- manns I fátækrahverfi í Liverpool og hafði aldrei fengið gjöf fyrren mamma hans henti sokkum í hann á ellefu ára afmælisdaginn. Eftir kynskiptin gekk April svo langt að giftasig sem kona, en eft- ir að hjónabandið rann út í sandinn hefur hún að mestu búið ein. Georg = ivieiume maruri HUGSAÐI „MÉR TÓKST ÞAÐ!" UPP VIÐ ALTARIÐ Tim, sem er af verkamannaættum, var einungis sex ára, þegar það rann skyndilega upp fyrir honum að hann væri raunverulega stelpa. Hann gerði hins vegar all.t, sem í hans valdi stóð, til að berj- ast á móti þessari sterku tilfinningu: „Fyrst hélt ég að ég væri hommi. Ég vissi að ég var ekki eins og aðrir strákar, en var ruglaður í ríminu og gat ekki horfst í augu við að ég væri kynskiptingur. Þess í stað tók ég eiturlyf I vonlausri til- raun til að „finna sjálfan mig“ og sætta mig við það... Ég gekk til sál- fræöings og tvisvar byrjaði ég í hormónasprautum, en hætti við... Að lokum var svo komið að ég varð að skipta um kyn til að missa ekki vitið.“ Tim vann í fimmtán ár sem bílstjóri á vöruflutningabifreið, gekk tvisvar í hjónaband og eignaðist fjögur börn. Þegar Tim tók ákvörð- un um að fara í kynskiptaaögerð varð hann að skipta um starf og þess vegna lærði hann hraðritun og vélritun og fór á ritvinnslunám- skeið. Þetta var árið 1981 og tveimur árum síðar fór hann í skurðað- gerðina. Nú erTim orðinn aö Rakel, litrlkum persónuleikasem slðastliðin tvö ár hefur verið bæjarfulltrúi Verkamannaflokksins I úthverfi Lundúnaog starfar í samtökum róttækralesbía. Rakel berst fyrirþví að kynskiptingar reyni ekki að telja sjálfum sér eða umheiminum trú um að þeir séu ígildi „venjulegra" karlaeða kvennaeftir aðgerð- ina. Og hún vill að þeir hætti að pukrast með þetta og beri frekar höfuðið hátt. En Rakel segirýmsagallafylgjaþvl að veraorðin kona. Hún geti t.d. ekki lengur verið ein á ferli á kvöldin og svo segist hún fullviss um að bjórinn smakkist öðruvísi eftir kynskiptin. Georg, sem er listamaður, gerði allt til að kæfa þá tilfinningu að hann væri kona í karlmannslíkama. Hann gekk m.a.s. í hjónaband og uppi við altarið hugsaði hann með sér „Mér tókst það! Ég er bú- inn að sanna að ég er eðlilegur!" En hjónabandið gekk ekki, því þessi tilfinning Georgs var eftir sem áður mjög sterk. “ Frá átta ára aldri hafði Georg fundist hann vera kvenkyns, en hann lék hlutverk karlmannsins mjög vel. Hann hlustaði á „heavy met- al“tónlist, ók um ámótorhjóli, lét sér vaxasítt skegg og varð um 120 kíló að þyngd. En svo tók hann ákvörðun og grennti sig um þrjátíu kífó á fjórum mánuðum. Nú eru liðin þrjú ár frá því Georg breyttist í Melanie og hún býr enn ásamastaðog áður. Henni finnst fáránlegt að flýjaog felasig, enda segir hún að fólk gefi sér ekki minnsta gaum þrátt fyrir allt. Hún fór m.a.s. ber að ofan á ströndina á Mallorka, án þess að hafa áhyggjur af því hvað öðrum fyndist. Melanie finnst bara verst hvað þaö tekur hana langan tíma að læra að ganga eins og kona. „Það er ekkert endilega betra að vera kona en maður, en nú þarf ég ekki lengur að leika. Núna get ég í fyrsta sinn verið ég sjálf!“ Tim - Rakel Webb AÐUR KARLMAÐUR, NÚNA LESBÍA

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.