Pressan


Pressan - 09.03.1989, Qupperneq 25

Pressan - 09.03.1989, Qupperneq 25
-Fimmtudagur 9/mars 1989 25 spain vikuna 9. mars—16. mars. (21. mars — 20. apríl) Notfæröu þér hæfileika þlna til aö taka skyndilegar ákvaröanir. Snögg hugsun getur leitt til ófyrirséös hagnað- ar eða tækifæris. Hafðu gætur á því að vinarráð gætu reynst brigðul á næst- unni. (21. apríl — 20. mai) Þú skalt varast að ofmetnast yfir góð- verkum sem þú vinnur næstu daga. Mundu að hógværð er alltaf betri til langs tima. Þú munt komast að því á næstu dögum hve ástalífið getur tekið á sig fjölbreyttar myndir. \ (21. mai — 21. júni) Ef eitthvað gengur illa hjá þér skaltu ekki hikaviðaðsleppaþví og snúaþérað öðru. Tvíburar geta nefnilega oft streist óþarflega gegn nauðsynlegum breyting- um. Ef þú skilur þennan eiginleika get- urðu brugðist við slæmum aðstæðum á réttan hátt. (22. júní — 22. júlí) Ef þú leggur i ferðalag á næstu dögum gefóu þér þá nægan tima til að komast á leiðarenda. Þú getur þess vegna átt von á töfum sem þú færð engu breytt um. Helgin verður þér gjöful ef þú notar hana til að fara út á lifið i góðra vina hópi. (23. júlí — 22. úgúsl) Reyndu að horfa framhjá daglegu amstri og virtu stöðunafyrir þér með víð- sýni. Þrátt fyrir minni háttar óhöpp sérðu að þér er smám saman að takast ætlun- arverkið. Gefðu sjálfum þér smáhrós og haltu svo áfram tviefldur aö kröftum. 3$ (23. ágúsl — 23. sept.) Þú getur átt von á að þurfa að horfast i augu viö erfiðar ákvaröanir varðandi þlna nánustu. Reyndu að vera hlutlaus og láttu skynsemina ráða fremur en til- finningar. Góð tíð er framundan i ásta- málunum ef þú passar að taka ekkert sem sjálfsagðan hlut. (24. sept. — 23. okt.) Þér miöar seint í lifi þlnu næstu daga. Starfið og einkalifið munu eiginlega standa I stað en láttu það ekki á þig fá. Hægt og örugglega hlýturðu sigur. Enga örvæntingu! cék (24. okt. — 22. nóv.) Ef streita eða óyfirstiganlegir erfið- leikarhrjáþig þáer baraeitt ráð sem dug- ar: Kynlif. Láttu það vaöa hvar sem þú ert með þinu uppáhaldsleikfangi, þér mun eflaust líöa betur á eftir. Endilega prófa eitthvað nýtt i þessum efnum á næst- unni. (23. nóv. — 21. des.) Skapandi aðstæður eru vænlegastar fyrir þig núna. Nýjar hugmyndir munu spretta fram fullskapaöar. Ef þær nýtast ejtki strax hafðu þær bak við eyraö, þvi þessar hugmyndir munu örugglega nýt- ast vel innan skamms. Vandi sem tengist heilsunni gæti kallað áóvenjulegalækn- ingu fljótlega. (22. des.—20. janúar) Varaðu þig á óvæntu slysi. Beltin spennt, engin óþarfa áhætta o.s.frv. Rómantiskt stefnumót gæti skemmst með tilkomu óvæntra gesta. (21. janúar — 19. febrúar) Varúð i ástamálum gæti komið sérvel. Passaðu að látaekki of mikiö uppi. Nýtt samband gæti boðað ánægjuleg tiðindi fyrir fjárhaginn. Láttu það samt ekki trufla lifsvenjur þínar i peningamálum, þvl svo bregóast krosstré sem önnur tré. (20. febrúar — 20. mars) Hugaöu að smáatriöum í samskiptum við aðra. Kæruleysi gæti komiö sér mjög illa ef þér yfirsést eitthvað. Hafðu það einnig hugfast að dómgreind þin er ekki mjög góð ef til þess kæmi að þú yrðir að taka afstöðu í deilu tveggja vina. i framhjáhlaupi Bessi Bjarnason leikari Hræddastur með Ómari Ragnars — Hvaöa persónur hafa haft mest áhrif á þig? „Það eru konurnar í lífi mínu.“ — Hvenær varðstu hrædd- astur á ævinni? „Það var þegar ég var með Ómari Ragnarssyni í flugvél og hann slökkti á vélinni og lét hana svífa til lendingar." •— Hvenær vardstu glaö- astur á ævinni? „Þegar ég átti fyrsta barn- ið.“ — Hvers gætirðu síst verið án? „Ég gæti síst verið án Volv- ósins míns.“ — Hvaö finnst þér krydda tilveruna mest? „Það er að fara á hestbak.“ — Hvaö fer mest í taugarn- ar á þér? „Þegar maður er að leika og kann ekki textann." „Hvað finnst þér leiöinleg- ast aö gera? „Elda.“ — Hverer pinlegasta staöa sem þú hefur lent í? „Það var þegar ég vissi ekki af hverju fullur salur af fólki hló að mérog ég leit í kringum mig og sá ekki af hverju fólkið var að hlæja og síðan var ég með opna buxnaklauf." — Hvaö vildirðu helst starfa að undanskildu því sem þú gerir núna? „Vinna við sölumennsku." „Hver er uppáhaldsleikar- inn? „Rúrik Haraldsson." AM Y ENGILBERTS lófalestur í þessari viku: SMURFA (kona, fædd 30.des 1960) GREINDARLÍNAN (1): Þessi kona læturoftast skyn- semina stjórna sér í tilfinninga- málum, en ástundum í innri tog- streitu þegar tilfinningar og skynsemi berjast um völdin. Um 26 til 30 ára aldur þarf konan ein- mitt að gera upp við sig mikil- vægt mál, sem varðar það hvort tilfinningarnar ná yfirhöndinni eða skynsemin. Þetta gæti tengst sambúð eða hjónabandi. VENUSARBELTI (2); Konan er svolítið sveiflu- kenndur persónuleiki, næm og viðkvæm. Hún tekur hlutina oft mjög nærri sér. Einnig virðist hún alláhrifagjörn og á gjarnan í erfiðleikum með að ákveða hvaða stefnu hún ætti að taka. TILFINNINGALÍNAN (3): Þessi konaernúnaað farainn í nokkurs konar undirbúnings- tímabil og það mun spanna yfir tvö til þrjú ár. Á þessum tíma (1991—1992) gætu orðið tölu- verðar breytingar tengdar fjár- málum hennar og starfi. Hún gæti farið út á svið, sem eru frekar nýjungakennd, t.d. innan einhverrar tækni. Hún er mjög háð sínu gamla heimili, eða a.m.k. foreldrum sfnum. Þettaer líka afar skyldurækin og trygg- lynd persóna. Sjón þessarar konu gæti ver- ið viðkvæm.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.