Pressan - 09.03.1989, Síða 27

Pressan - 09.03.1989, Síða 27
Fimmtudagur 9. mars 1989 27 sjonvarp FIMMTUDAGUR 9. mars Stöð 2 kl. 22.00 APRÍLGABB * * (Apríl Fool’s Day) Bandarísk kvikmynd frá 1986. Leikstjóri: Fred Walton. Aðalhlut- verk: Jay Baker, Deborah Foreman, Deborah Goodrich og Ken Olandt. Þessi hrollvekja fjallar um unga stúlku sem býður nokkrum skóla- systkinum til dvalar á afskekktri eyðieyju. Fljótlega fer gamanið að kárna þegar hver gesturinn á fætur öðrum týnir tölunni. Upphefst leit að morðingjanum sem lýkur með óvenjulegum hætti í lok myndar. Myndin er framleidd af sama fólki og stóð að Föstudeginum þrett- ánda. Að þessu sinni er reynt að gæða sömu hryllingsformúlu smá- skammti af kímni, sem tekst sæmi- lega. Alls ekki við hæfi barna. rad Janis og Thayer David. Frekar þunn gamanmynd sem segir frá kynnum næturklúbbsdansara við vitgrannan flakkara í villta vestrinu. Nokkrar góðar senur, en annars spilla óviðeigandi söngkafl- ar myndinni. Ríkissjónvarpið kl. 22.35 FEIGAR FYRIRSÆTUR * * (She’s Dressed to Kill) Bandarísk spennumynd frá árinu 1979. Leikstjóri: Gus Trikonis. Aðalhlutverk: Eleanor Parker, Jess- ica Walter og John Rubenstein. Ágæt spennumynd um nokkrar sýningarstúlkur sem eru saman- komnar í fjallabústað tískuhönn- uðar. Þær ætla að hjálpa henni að öðlast aftur fyrri frægð en einhver virðist vilja þær feigar. Stöð 2 kl. 23.30 EFTIRFÖRIN (Trackdown) Bandarísk sakamálamynd frá 1976. Leikstjóri: Richard T. Heffron. Að- alhlutverk: Jim Mitchum, Karen Lamm, Ann Archer, Erik Estrada og Cathy Lee Crosby. Unglingsstúlka strýkur að heiman og bróðir hennar hefur leit að henni í Los Angeles þar sem hún er lent í skuggalífi borgarinnar. Leitin verð- ur fljótt afdrifarík fyrir alla aðila. Myndin skartar varla djúphugsuð- um boðskap en það vantar a.m.k. ekki litríka atburðarás. FÖSTUDAGUR 10. mars Stöð 2 kl. 16.30 ÁN ÁSETNINGS *** (Absence of Malice) Bandarísk frá 1981. Leikstjóri: Sidney Pollack. Aðalhlutverk: Paul Newman og Sally Field. Myndin greinir frá kaupsýslumanni sem les grein um sjálfan sig þar sem hann er sakaður um aðild að alvar- legum glæp. Blaðamaðurinn, sem skrifaði greinina eftir villandi heim- ildum, neitar að láta af ásökunum sínum og kaupsýslumaðurinn freistar þess að jafna metin. Góð sakamálamynd þar sem bæði New- man og Field fara á kostum. Stöð 2 kl. 21.50 HERTOQAYNJAN 0G BRAGÐAREFURINN *'k (The Duchess and the Dirtwater Fox) Bandarískur vestri frá 1976. Leik- stjóri: Melvin Frank. Aðalhlutverk: George Segal, Goldie Hawn, Con- Stöð 2 kl. 23.35 HEIMUR KONUNNAR * * * (Woman’s World) Bandarísk mynd frá 1954. Leik- stjóri: Jean Negulesco. Aðalhlut- 'i verk: Clifton Webb, June Allyson, ; Van Heflin og Lauren Bacall. Þessi gamansama mynd greinir frá forstjóra stórfyrirtækis sem boðar þrjá af starfsmönnum sínum á fund þar sem hann hyggst velja arftaka sinn. Málið flækist þegar á hólminn er komið og ekki hjálpar að eigin- konur starfsmannanna eru við- staddar. Myndin gefur góða innsýn í harðan heim viðskiptalífsins. Stöð 2 kl. 01.10 REFSIVERT ATHÆFI * * * (The Offence) Bresk sakamálamynd frá 1973. Leikstjóri: Sidney Lumet. Aðal- hlutverk: Sean Connery og Trevor Howard. Sean Connery leikur lögreglumann í London sem hefur fengið sig full- saddan af glæpum og ofbeldi. Þeg- ar hann fær mál kynferðisafbrota- manns í hendurnar verður honum á að myrða hinn grunaða. Sean Connery sýnir góða takta í þessari vel gerðu sakamálamynd. LAUGARDAGUR 11. mars Stöð 2 kl. 21.30 FULLT TUNGL AF KONUM * * (Amazon Women on the Moon) Bandarísk gamanmynd frá 1987. Leikstjórar: Joe Dante, Carl Gott- lieb, John Landis, Peter Horton og Robert Weiss. Aðalhlutverk: Steve Guttenberg, Rosanna Arquette, Michelle Pfeiffer, Carrie Fisher og Griffin Dunne. Þessi farsi er samansafn af stuttum grínatriðum sem eiga það sameigin- Iegt að beinast að bandaríska sjón- varpinu. Þeim er leikstýrt af fimrn mismunandi leikstjórum og árang- urinn er eftir því mislitur. Sum atriðin eru alveg óborganleg en önnur í heild sinni misheppnuð. Þ.ví miður falla flest atriðin í síðar- nefnda flokkinn. Slöpp handrit gera það svo að verkum að góðir leikarar eins og Michelle Pfeiffer njóta sín ekki sem skyldi. Ríkissjónvarpið kl. 22.00 BÖRNIN FRÁ VÍETNAM * * * (The Children of An Lac) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1980. Leikstjóri: John Llewellyn Moxey. Aðalhlutverk: Shirley Jones, Ina Balin og Beulah Que. Vel gerð mynd byggð á sannsögu- legum atburðum sem áttu sér stað í Víetnamstríðinu og segir frá konu, sem hefur tekið að sér munaðarlaus börn. Hún reynir í samvinnu við tvær aðrar konur að smygla börn- unum frá Saigon rétt fyrir fall borg- arinnar. Góður leikur og áhrifa- mikill söguþráður. Stöð 2 kl. 00.10 SKÝRSLAN UM TELMU JORDAN *** (The File on Thelma Jordan) Bandarísk sakamálamynd frá 1949. Leikstjóri: Robert Siodmak. Aðal- hlutverk: Barbara Stanwyck, Wendell Corey, Paul Kelly og Joan Tetzel. Myndin segir frá saksóknara sem verður ástfanginn af konu sem er grunuð urn morð. Hann tapar mál- inu vísvitandi til að sýkna hana. Myndin tilheyrir svokölluðum „filnr noir“-kvikmyndum, sem draga skuggahliðar mannsins upp á yfirborðið. Góð leikstjórn og fag- Imannleg kvikmyndataka prýða myndina. Stöð 2 kl. 01.50 SKÖRÐÓTTA HNÍFSBLADID **'* (The Jagged Edge) Bandarísk kvikmynd frá 1985. Leikstjóri: Richard Marquand. Aöalhlutverk: Glenn Close, Jeff Bridges og Robert Loggia. Sérlega spennandi sakamálamynd um konu sem finnst myrt á hroða- legan hátt á heimili sínu. Eiginmað- ur hennar er grunaður um verknað- inn og lögfræðingur hans vill ekki verja mál hans nema hún sé sann- færð um sakleysi hans. Eiginmann- inum tekst ekki bara að sannfæra hana, heldur verður hún líka ást- fangin af honum. Vel gerð blanda af spennumynd og réttarfarsdrama með óvæntum endalokum. s 12. mars Stöð 2 kl. 16.05 SAMKEPPNIN * * * (The Competition) Bandarísk ástarsaga frá 1980. Leik- stjóri: Joet Oliansky. Aðalhlutverk: Richard Dreyfuss, Lee Remick og Amy Irving. Tveir ungir pianóleikarar, sem eru að keppa unr sömu verðlaunin, verða ástfangnir. Söguþráðurinn er ekki miklu lengri en útfærslan er góð og bæði Dreyfuss og lrving falsa píanóleik sinn snilldarlega. Stöð 2 kl. 23.10 GULLNI DRENGURINN ** (The Golden Child) Bandarísk gamanmynd frá 1986. Leikstjóri: Michael Ritchie. Aðal- hlutverk: Eddie Murphy og Char- lotte Lewis. Eddie Murphy mokar inn pening- um með því að endurtaka öll gömlu brögðin. í þetta sinn leikur hann löggu sem fer til Tíbet til að bjarga gullna drengnum úr höndum illra anda. Algjörlega formúlukennd grínmynd eins og við var að búast.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.