Pressan - 09.03.1989, Síða 28
PRESSU
gærkvöldi var haldinn sameig-
inlegur fundur með útgáfusljórn
Þjóðviljans og framkvæmdastjórn
Alþýóubandalagsins um fjárhags-
stöðu Þjóðviljans. Ýmsar leiðir
hafa verið ræddar út úr ógöngun-
um, en skv. traustum heimildum
Pressunnar hefur þegar verið
ákveðið að segja upp öllum starfs-
mönnunt blaðsins, minnka það nið-
ur i 4—8 síður og endurráða síðan
aðeins fimrn starfsmenn á ritstjórn.
Það rnunu vera ritstjórarnir Silja
Aóalsteinsdóttir og Árni Berg-
mann, einn fréttastjóri og tveir
blaðamenn. Þjóðviljinn verði því
framvegis lítið flokksblað og er
þessi niðurstaða talin verulegt áfall
fyrir Olaf Ragnar og stuðnings-
menn hans, en á síðasta ári beitti
Ólafur sér gegn því að Meröi Árna-
syni ritstjóra yrði sagt upp í átökun-
um í kringunt Þjóðviljann. Nú geti
hann aftur á móti litið hreyft sig
gegn fylkingu Svavars Gestssonar
og Úlfars Þormóðssonar . . .
| istamenn eru sagðir miskunnar-
Iausir í innri samskiptum. Sarna
saga er sögð um listfræðinga og
listaverkamiðlara. Þetta hefur
komið á daginn vegna kaupa Lista-
safns Islands á mynd eftir Svavar
Guðnason. Bera Nordal, forstöðu-
ntaður safnsins, hefur mátt sæta
töluverðri gagnrýni fyrir kaupin, en
myndin var keypt á 3,3 miiljónir.
Nýr flötur er kominn upp, því kraf-
ist hefur verið upplýsinga unt hvort
einhver hafi haft milligöngu í við-
skiptunum, þ.e. hvort einhver hafi
þegið sölulaun. Því hefur verið neit-
að opinberlega, en engu að síður
mun málið komið á borð í mennta-
málaráöuneytinu. Það sem veldur
þessum látum eru sögð sárindi
ákveðins listaverkasala í borginni.
Sá hinn sami er sagður hafa gert
þau mistök að meta myndina á 600
þúsund...
L
■^^andídatarnir fjórir til emb-
ættis biskups, séra Heimir Steins-
son, séra Jón Bjarman, séra Olafur
Skúlason og séra Siguröur Sigurð-
arson, eru komnir á fullt skrið i
kosningabaráttunni. Kirkjumenn
segja Ólaf hafa vinninginn enn sem
komið er, en teljá Heinti hafa sótt á
síðustu vikurnar. Sigurður er talinn
koma næst þeim, en flestir telja Jón
Bjarman verða þann sem fellur út í
fyrstu kosningu. Ekki er talið að
neinn kandídatanna eigi möguleika
á helmingi atkvæða í fyrstu atrennu
og því þurfi að kjósa á milli þeirra
þriggja efstu. Alls greiðir 161 at-
kvæði og er talið að í dag eigi Ólaf-
ur a.m.k. þriðjung vísan...
c
%^töð 2 hefur gert þátt um ís-
lenskar feguróardrottningar, enda
mál til komið að festa á filntu allar
þessar glæsilegu stúlkur. Kynningu
á þessari mynd Stöðvar 2 fylgdu
þær upplýsingar að þátturinn yrði
tekinn til sýningar í landi þar sent 4
milljónir ntanna myndu sjá hann.
Þá er varla um marga staði að ræða
og sjálfsagt er það Noregur sem fær
heiðurinn af að sýna þáttinn, því
flestöll önnur lönd hafa meira en
fjórar milljónir áhrofenda . . .
A
^^ins og kunnugt er helur
Magnús Torfi Ólafsson látið af
störfum blaðafulltrúa ríkisstjórn-
arinnar þar sem hann er kominn á
eftirlaun. Ekki hefur verið tilkynnt
um eftirmann Magnúsar í embætti,
en heyrst hefur að það gæti orðið
Arnþrúður Karlsdóttir, fyrrum
fréttamaður á ríkissjónvarpinu...
Islendingar í París hafa séð
ástæðu til að safna undirskriftum
vegna skipunar Alberts Guð-
mundssonar í embætti sendiherra.
Rúmlegá sjötíu ntanns skrifa undir
skjalið og segjast mótmæla „þeim
aðferðum sem íslensk stjórnvöld
hafa beitt við skipti sendiherra í
París“, eins og það er orðað...
Við höfum skipt allri herberqjabúsloð út og bjódum nú eingöngu
ný glæsileg herbergi med margvíslegum þægindum
Innan veggja hótelsins
eru allskyns þjónustufyrirtæki
til þæginda fyrir gesti.
m cf p
jsig
- CM
É
J
Skemmti- og veitingastadir
I fyrsta sinn boðið upp á
reyklaus herbergi
Frábær staðsetning
og útsýnið þekkja allir
Hótel Esja er í fjölfarinni
strætisvagnaleið
Við bjóðum gesti hjartanlega velkomna í ný herbergi á nýju ári
FLUGLEIDA HÓTEL
Sími 82200 — Telex 2180 — Telefax 82130