Pressan - 30.03.1989, Síða 11
g{ít>r eifsm ,tic •jygBDwir'
Fimmtudagur 30. mars 1989
PRESSU
MOLAR
«
^■íðastliðið miðvikudagskvöld
var kjörin ný stjórn á aðalfundi
Samtakanna ’78. Lét Þorvaldur
Kristinsson af formennsku og við
tók fyrsta konan, sem gegnt hefur
því embætti frá stofnun samtak-
anna, Lana Eyþórsdóttir. Tvær
aðrar konur eru líka í sjö manna
stjórn félagsins og áheyrnarfulltrúi
æskulýðshóps er einnig kona. Það
má því með sanni segja að kven-
þjóðin sé komin til aukinna áhrifa
innan samtakanna eftir þetta
stjórnarkjör...
ffl
^^■uk þess að tapa fyrirsjáan-
lega miklum upphæðum vegna
gjaldþrots Avöxtunar sf. munu eig-
endur verðbréfa í sjóðum þrotabús-
ins þurfa að greiða skilanefnd
allverulegar upphæðir, ef marka
má upplýsingar sem félagsmenn í
hagsmunasamtökum þeirra hafa
aflað sér. Skilanefndin hefur unnið
að því að tryggja hagsmuni kröfu-
hafa en lítið áunnist til þessa.
Kostnaður, þ.m.t. laun skilanefnd-
ar, var þrátt fyrir þetta kominn í um
fjórar milljónir kr. um síðustu ára-
mót. í skilanefndinni sitja Gestur
Jónsson hrl., Símon A. Gunnars-
son endurskoðandi og Ólafur Ax-
elsson hrl. Eins og Pressan greindi
frá á sínum . tíma hafa eigendur
Avöxtunarbréfa myndað óformleg
samtök til að standa saman á rétti
sínum. 9. apríl er svo áformað að
ganga frá formlegri félagsstofnun
og rnunu félagsmenn þegar vera
nokkuð á annað hundrað talsins...
v
erslanakeðjan Safeway er
nánast orðin hluti af þjóðmenningu
Bandaríkjanna. Umboðsaðili fyrir
Safeway á íslandi er heildsölufyrir-
tækið Isleið. Skemmst er frá því að
segja að nýlega keypti 51% hlut í
fyrirtækinu, þegjandi og hljóða-
laust, Páll G. Jónsson, öðru nafni
Páll í Polaris...
b .,
tekur á sig ýmsar myndir. Óli Kr.
Sigurðsson forstjóri leikur auðvit-
að eitt aðalhlutverkið í því spili.
Höfuðandstæðingur hans er sagð-
ur Landsbankinn, sjálfur við-
skiptabankinn. Auk Óla og Lands-
bankans hefur Hallur Hallsson
fréttamaður komið nokkuð við
sögu i leiknum. Olísmenn telja að
uppspretta frétta Halls sé í Lands-
bankanum. Óli Kr. er sagður hafa
sannprófað þetta. Hann mun hafa
látið létta lygasögu leka inn í
Landsbankann, með þeim fyrir-
séðu afleiðingum að Hallur Halls-
son hringdi skömmu síðar og
spurði spjörunum úr...
c
^^kipulagsbreytingar hjá fyrir-
tækjum taka stundum á sig ólíkleg-
ustu myndir. Kannski er réttara að
segja að uppsagnir hjá fyrirtækjum
séu kallaðar ólíklegustu nöfnum.
Til dæmis er ekki óalgengt að upp-
sögn sé kölluð því virðulega nafni
„skipulagsbreyting". Þetta þekkja
margir af biturri reynslu. Oft er slík
aðgerð framkvæmd gagnvart þeim
sem minnst mega sín. Þetta gerðist
hjá Ríkisskip á dögunum. Þá var
ræstingakonu sagt upp af þeirri
ástæðu, að skipulagsbreytingar
ættu sér stað hjá fyrirtækinu. Kon-
an var búin að vinna hjá fyrirtæk-
inu um árabil. Ekki hefur spurst um
fleiri uppsagnir hjá fyrirtækinu, né
skipulagsbreytingar...
c
^■tjórnmálamenn gera ýmislegt
til að nálgast kjósendur sína. Nú á
dögum gerist þetta yfirleitt í gegn-
um fjölmiðla, en bættar flugsam-
göngur hafa einnig gert pólítíkus-
unum auðveldara að brosa beint
framan í lýðinn. Þannig átti Hall-
dór Ásgríinsson ekki í vandræðum
með að fagna með Fáskrúðsfirðing-
um á dögunum, þegar þeir tóku á
móti endurbyggðum togara sínum
frá Póllandi. I þá mund sem togar-
inn, Ljósafell, lagðist að bryggju
eftir mikla eftirvæntingu heima-
manna settist einkaflugvél með
Halldór á flugvöllinn í firðinum.
Fáskrúðsfirðingar gátu því fagnað
bættu og breyttu skipi með þing-
manni sínum og sjávarútvegsráð-
herra. Gamanið stóð reyndar stutt
hjá ráðherranum, því hann var flog-
inn um leið og ræðuhöldum lauk,
en gleði heintamanna stóð fram-
undir morgun næsta dag...
c
^^tuttu áður en Landsbankinn
lokaði á ábyrgðir gagnvart Olís
munu fulltrúar Olíufélagsins, öðru
nafni ESSO, auk Skeljungs, Shell,
hafa boðið Óla Kr. Sigurðssyni for-
stjóra að kaupa af honum fyrirtæk-
ið á 240 milljónir. Óli er sagður
hafa neitað. Stuðningsmenn Óla
segja neitunina hafa kallað fram
viðbrögð Landsbankans, sem
fólust í því að hætta ábyrgðum fyrir
olíuförmum. Kenningunni til
stuðnings er bent á að Valur Arn-
þórsson, nýr bankastjóri, sagði af
sér á hádegi, daginn fyrir mánaða-
mót, sem formaður Ólíufélagsins.
Fjórum dögum þar á eftir mun
hann hafa skrifað undir bréf bank-
ans um stöðvun bankaábyrgðanna
gagnvart Olís. Valur er sagður hafa
þegið laun sem stjórnarformaður
Olíufélagsins allt þar til fjórum
dögum áður en hann skrifaði undir
bréfið um stöðvun gagnvart Olís,
samkeppnisaðilanum...
GRÆNN: LITUR SKURÐSTOFUNNAR
Hvers vegna?
Sjúklingar velta sjálfsagt ekki oft
fyrir sér ástæðu þess að skurðlækn-
ar og annað starfsfólk á skurðstof-
um skuli klæðast grænum hlífðar-
fötum við aðgerðir, enda ekki með
hugann við lit á fatnaði á þeim
stundum. Græni liturinn er þó alls
engin tilviljun og ástæða þess að
hann er á fatnaði skurðstofufólks-
ins á sér langa og merka sögu.
Grænn litur er hinn táknræni lit-
ur guðsins Asklepíosar, sem var
lækningaguð Grikkja til forna og
var talinn sonur Appollóns.
Blóðblettir sjást síður á grænu
efni en hvítu, en eins og kunnugt er
þá er hvíti liturinn allsráðandi á
sjúkrahúsum.
Grænn litur er róandi og deyfir
hræðslu.
Síðast en ekki síst er það mikil-
vægt á sjúkrahúsum að sótthreins-
aður fatnaður sé aðskilinn frá öðr-
um. Þar af leiðandi er hagnýtt að
sami litur sé á þeim fatnaði sem not-
aður er til sömu starfa.
En hvers vegna er ekki hægt að
nota rauðan klæðnað á skurð-
stofu? Ástæðan er meðal annars sú
að rauður iitur telst vera espandi og
fremur vekja upp hræðslu en hitt,
og aðrir litir þykja ennfremur
óhentugir. Þannig táknar svart sorg
og dauða og á sjúkrahúsum táknar
blái liturinn minnkaða mótstöðu
gegn sýkingu og gult er merki um
aukna smithættu. Það var því ekki
að ástæðulausu að græni liturinn
var valinn sem litur skurðstofunn-
GULLASCH
■■
M/KRYDDUÐUM HRÍSGRJÓNUM
SNITCHEL .. KR. 895
SMÁRÉTTIR . KR. 735
M/GRÆNMETI
KÓTILETTUR .. KR. 795
HNAKKI BEINLAUS... . KR. 699
HAMBORGARHRYGGIR ..KR. 655
HAMBORGARLÆRI ... ..KR. 595
BAYON SKINKA .. KR. 695
FOLALD
SNITCHEL KR.
GULLASCH. .. KR.
FILLET KR.
MÖRBRÁÐ. . . . KR.
HAKK KR.
SMÁSTEIK. . . . . . KR.
PIZZA KYNNING!
VERÐ AÐEINS KR./STK STÆRRI GERÐ
FIMMTUDAG OPIÐ TIL 18.30
FÖSTUDAG OPIÐ TIL 19.30
LAUGARDAG OPIÐ TIL 16.00
0» 68 5168.
ar.