Pressan - 25.01.1990, Síða 15
Fimmtudagur 25. jan. 1990
15
UNNI EFTIR TVÆR VIKUR
5ex manna fjölskylda sá sig nauðbeygda til að selja
heimili sitt. Eftir samtals átta ára starf í verslun
hafði móðirin 277 krónur á tímann í bakaríi.
húsið. Bróðir mannsins míns er líka
kominn á götuna og við erum í sam-
einingu að leita að stóru húsi til
leigu því þaö er dýrt að leigja minni
einingar".
Seld tvisvar með
bakaríinu!
Launin sem Sæunn var á þegar
henni var sagt upp störfum í bakarí-
inu vegna eigendaskipta voru ekk-
ert til að hrópa húrra fyrir: 277
Pegar við nefndum töluna 6000
krónur í matarinnkaup fyrir helg-
ina mótmæltu margir því að fimm
manna fjölskylda þyrfti að eyða
svo miklu. Við lögöum því leiö
okkar i Hagkaup, verslunina sem
Jónína Hilmarsdóttir verslar
gjarnan í, og keyptum inn það sem
Jónína sagðist myndi kaupa til
helgarinnar. Upphæðir eru settar
inn tæplega og engar hreinlætis-
vörur eru inni i kaupunum.
Mjólk, 6 lítrar ....... 392.00
Egils-þykkni .......... 161.00
Brauð, 3 stk.
gróft, á 143,- ........ 429.00
Bananar, 1 kg ......... 133.00
Epli, 1 kg ............ 129.00
Appelsínur, 1 kg ...... 119.00
Kartöflur, 2 kg........ 214.00
Fiskur, 1 kg ýsuflök ... 419.00
Súpukjöt, f. 5 manns .1.500.00
Rófur, 5 stk........... 144.00
Hvítkál, 1 höfud ....... 90.00
Súrmjólk, 2 1 á 88 kr. . 176.00
Ostur, 1 stk. meðalstór 550.00
Smjörvi ............... 177.00
Smjörlíki, Ljóma ...... 110.00
SAMTALS KR. 4.743.00
krónur og 50 aurar á tímann: ,,Bak-
ariið var selt tvisvar á þeim tíma
sem ég vann þar og við starfsstúlk-
urnar vorum seldar með bakaríinu í
bæði skiptin. Viö vorum aldrei
spurðar hvort viö vildum starfa hjá
næsta eiganda heldur gerðir samn-
ingar um aö nýr eigandi tæki við
okkur út uppsagnarfrestinn. Þetta
kalla ég mansal, sem greinilega er
löglegt hér hjá verslunareigendum.
Ég talaði við Verslunarmannafélag-
ið og fékk gefiö upp hjá þeim á
hvaða taxta ég ætti að vera, en þeg-
ar ég hafði talaö fyrir daufum eyr-
um eigandans skrifaði ég tímakaup-
iö á stimpilkortiö. Þegar ég fékk út-
borgaö næstu mánaðamót á eftir
hafði hann strikaö yfir töluna og
skrifað „GLEYMDU ÞVÍ" þríundir-
strikað. Meira gat ég ekki gert því
annars átti ég á hættu að vera rek-
in."
Þessi lágu laun fékk Sæunn þó
ekki útborguð um áramótin þegar
hún hætti: ,,Ég veiktist skömmu fyr-
ir jólin og var veik í fjóra daga.
Mætti í vinnu með vottorð í einn
dag og sló niður og var veik fram aö
áramótum, og fékk vottorö fyrir
þeim dögum líka. Fyrir þessa veik-
indadaga neitar nýi atvinnurekand-
inn að greiða mér laun og borgar
mér ekki einu sinni fyrir daginn sem
ég mætti!"
Neyðin kennir . . .
En hvernig getur fjölskyldan
keypt sér mat? Sæunn fékk um 22
þúsund krónur útborgaðar fyrir des-
embermánuð og eiginmaðurinn á
lágum launum ríkisstarfsmanns:
„Við getum það ekki," er svarið. „Ég
tók tíu slátur, sem nú eru öll búin.
Frændi minn sem býr í Ólafsvík
sendir okkur fisk og við höfum kom-
ist upp á lag meö að borða bauna-
rétti, sem viö höfðum aldrei prófað
fyrr en fór að harðna í ári. Þetta er
ódýr fæða og prýðismatur, þegar
maður er kominn upp á lagið!
Svona kennir neyðin manni. .."
Sæunn segist fá skrifað hjá kaup-
manninum á horninu og með því að
skammta fjölskyldumeðlimum
mjólk og aörar nauösynjar hafi hún
getaö haldiö þeim reikningi í 18.000
krónum á mánuði „nema desemb-
erreikningurinn sem fór upp í
26.000 krónur. Það er ekki mikiö
fyrir sex manna fjölskyldu".
Hún segir enga spurningu að þaö
sé mun verra aö lifa núna en fyrir
nokkrum árum: „Maður fær miklu
minna fyrir peninginn úti í búö en
fyrir nokkrum árum, það er alveg
staðreynd. Við skuldum enn um
þrjár milljónir í húsinu og verðum
einhvers staðar í kringum núlliö
þegar við flytjum út. Við unnum
sjálf mikið i húsinu í tvö ár þannig
aö þaö hækkaöi verulega í veröi.
Það var þrælavinna, enda er þetta
gamalt timburhús. Eina markmið
okkar var að halda húsinu og það
verður sárt að sjá á eftir því."
Stjórninni um
að kenna
Hverju eða hverjum kennir hún
um versnandi afkomu heimilanna?
„Þetta er stjórn landsins að
kenna," segir hún án nokkurrar um-
hugsunar. „Ég hef aldrei hugsað svo
langt að ég yrði ráðherra og get því
ekki svarað hvaö ég myndi gera.
Hér þarf aö hækka laun, lækka
skatta og lækka matvörur, en fyrst
og fremst myndi ég nýta landiö á
annan hátt en nú er gert. Við þurf-
um ekki aö borga svona mikið fyrir
kindakjötið sem er framleitt hér og
ekki heldur fyrir kjúklingana. Enda
hef ég hvorki borðað fuglakjöt né
lambakjöt síðan á jólunum .. ."
Sæunn á ekki bifreið og gengur
því milli verslana til að versla sem
ódýrast: „Ég eyöi miklum tíma í aö
skoöa vöruverð," segir hún. „Það er
liægt að fá mismunandi tegundir
með sama innihaldi á mismunandi
verði. Ég velti hverjum eyri fyrir
mér, annaö er ekki hægt." Hún seg-
ir sífellt erfiöara að fá börnin til aö
ganga í fötum af öðrum, þótt sjálf
hafi hún ekki keypt sér nýja flík í
þrjú ár: „Það er ekki auðvelt að fara
fram á það við táninga aö þeir séu
ööruvísi en aörir. Eg reyni aö sauma
sjálf á krakkana, en þaö þarf líka að
eiga peninga fyrir efni. Við erum
hvorki með Stöð 2 né myndbands-
'æki og það að horfa á ríkissjón-
trpið er því eina skemmtunin sem
' veitum okkur — og þaö er góð
......nmtun hjá góðri stöö."
En hvaða augum lítur hún fram-
tíðina. Er einhver von til að ástandiö
breytist? „.lá, það er, alltaf von."
svarar hún. „Verkalýösféíögin geta
byrjað á að semja betur fyrir sitl
fólk. Maöur verður alltaf að lifa í
voninni, annars er ekkert eftir. . ."
Við létum setja upp dæmi fyrir okkur um það hversu miklu ung
hjón meö tvö börn eyddu á mánuöi. Jón er með 100.000 krónur i
mánaðarlaun en Helga konan hans vinnur úti hálfan daginn og fær
35.000 krónur. Samtals eru tekjur þeirra 135.000 krónur og af þeim
greiða þau:
Skattur 13.000.-
Félagsgjöld, lífeyrissjóðir 4.000.-
Húsaleiga 35.000.-
Rekstur bifreiðar 15.000-
Tryggingar 4.000.-
Matur, áætl. 1.500 kr. á dag 46.500,-
Rafmagn, hiti 5.000,-
Afnotagjöld sjónv. og St. 2 3.600,-
Dagmamma 15.000.-
Sígarettur, 1 pk. á dag 5.600.-
Dagblöð 2.000,-
Strætisvagnaferðir 2.000.-
Hárgreiðsla, klipping 2.000.-
Leikföng, bækur 2.000.-
Gjafir 2.000.-
Heimilistæki 2.000.-
Læknisþjónusta, lyf 2.000,-
Ýmislegt 3.000.-
SAMTALS 163.700.-kr.mán.
Uin hver mánaöamót eru Jón og Helga |)ví í skuld upp á 28.700
krónur sem gerir 344.400 krónur á ári. Þau geta tekiö hvort sitt lániö
upp á 200.000 krónur, samtals 400.000 til tveggja ára, og með núgild-
andi vöxtum myndu þau greiöa til baka 685.000 krónur.
Inn í þessi útgjöld hjónanna eru ekki reiknuö sumarfrí, íþróttir,
skeinmtanir, kaup á hljómplötum eða kostnaður vegna yfirdráttar
o.s.frv.
• •
AF NYSKOPUN
...önnurmeð
hnausþykkum,
hreinum
jarðarberjasafa...
...ogsú þríðja
með sex
komtegundum
og stcerðar
ferskjubitum
Mildsýrð, hnausþykk,
bragðljúf holl og
nœríngarrík mjólkurafurð
með BIOgarde®gerlum
sem öllum gera gott.
Spændu í þig eina!
imf
Ein er með
stórum
eþla- og
þenibitum...
MKMJÖLK
SPÁNNÝR