Pressan - 14.02.1991, Side 18

Pressan - 14.02.1991, Side 18
/ 18 FIMMTUDAGUR PRESSAN14.. FEBRÚAR 1991 Ein af ótal kenningum um hvers vegna fólk kyssist svona mikið felur i sér að í fyrndinni hafi frummaðurinn áttað sig á að með því að skiptast á munnvatni við aðra frummenn hafi þeir fundið fyrir sameiginlegri vellíðan. Líffræðingar hafa leitt líkur að því að þetta hafi ekki verið úr lausu lofti gripið hjá frum- manninum. Með munnvatn- inu berast virk efni sem hafa áhrif á hugarástand þess sem þiggur.___________________ Og þegar þetta er komið upp á borðið liggur beinast við að halda áfram á sömu braut og stíga skrefið til fulls: Ástin er aðeins líffræðileg svörun við efnum sem berast með blautum kossi. KVALA-KOSSINN OG NART-KOSSINN En það eru ekki allir kossar Kossar eru hollir. Þeir mýkja upp allt að tuttugu og níu andlitsvöðva og œfa hjartavöðvana. hjarta og æðasláttur eykst um allt að 50 pró- sent. eins. Rómverjar skiptu koss- um niður í nokkra meigin- flokka; osculum, sem er vin- arkoss á kinn, basium, sem er hrifningarkoss á varir og su- avium, sem er koss elskenda. Þrátt fyrir að þeir tveir fyrr- nefndu séu góðra gjalda verðir ætlum við einkum að skoða þann síðasttalda. Biblía ást leitinna unglinga í lok sjöunda áratugarins var bókin Listin að kyssa eftir Hugh Morris. Hugh þessi var Alnæqrú smftast ekki með kossum. Flensa, síf- ilis og herpes gera það hins vegar. mun nákvæmari í flokkun sinni en Rómverjar. Kannanir hans á leyndardómum koss- anna hafa leitt í ljós fjölmarga flokka; andlegi-kossinn, sog-kossinn, augnhára-koss- inn, kvala-kossinn, raf- magns-kossinn, nart-kossinn, óvænti kossinn og dans-koss- inn eru aðeins fáar af þeim tegundum sem Hugh þessi fann og flokkaði. BLESSAÐIR HÆLIÐ ÞÉR HENNI! Ef einhver er búinn að gleyma þessari bók hans Hugh þá má minna á að pilt- arnir sem króuðu stúlkurnar af upp við armana á sófunum í unglingapartíunum, geysp- uðu og teygðu úr sér þar til þeir voru skyndilega komnir með aðra hendina utan um axlirnar á stúlkunum höfðu lært list sína af Hugh. Um framhaldið segir Hugh: „Þegar þér hafið komið handleggjunum þægilega fyrir um herðar stúlkunnar, og „allt virðist í himna lagi" er næsta skrefið að skjalla hana á einhvern hátt. Öllum konum þykir lofið gott. Þeim þykir vænt um að heyra að þær séu failegar, jafnvel þótt spegillinn á móti þeim endur- varpi lyginni beint framan í ófrítt smettið á þeim. Blessaðir hælið þér henni! Segið henni að hún sé fal- leg!“ Svo mælti Hugh Morris í lok sjöunda áratugarins og brautskráði heila kynslóð af ómótstæðilegum flögurum. VARIR SEM EFTIRMYNDIR SKAPABARMA Annar Morris var einnig upp 4 sitt besta á sjöunda ára- tugnum; Destnond Morris, mannfræðingur sem virðist ekki meta kenningar eftir sennileika heldur skemmt- Samkvæmt Heimsmeta- bók Guinness varði lengsti koss sögunnar í 417 klukkustundir (tvær vikur, 3 daga og níu klukkustundir). hvers anagildi. Ein af hans allra skemmilegustu kenningum snýst einmitt um kossa. Nokkrar apategundir hafa náð leikni í því að líkja eftir kynfærum sinum með andlit- inu og nota þetta óspart í ást- arleikjum sínum. Morris hreifst að þessum leikjum ap- anna og bjó til kenningar um hvernig konan beitti svipuð- um brögðum til að fá karlinn til lags við sig. Samkvæmt kenningum Morris hafa varir konunnar tekið á sig mynd skapabarm- anna. Reyndar fylgir það með að brjóstin eru eftir- mynd af rassi. LIPRAR OG MJÚKAR TUNGUR MIÐJARÐAR- HAFSINS En á sama hátt og menn hafa velt því fyrir sér hvers vegna fólk er að kyssast þannig velta menn því fyrir sér hvernig á að kyssa vel. Nægir þar að minna á bókina hans Hugh Morris. Frakkar eru sagðir kyssa allra manna best og hafa fengið dýpstu og blautustu kossana skírða í höfuðið á sér. Því hefur jafnframt verið haldið fram að letneskar þjóðir kyssi betur en germ- anskar. Galdurinn sé fólginn í því hvernig tungumálið þjálf- ar upp tunguna. Á meðan hin heitu mál Miðjarðarhafsins gera tunguna lipra og mjúka sitja Norður-Evrópubúar uppi með harða og óþjála tungu Tungan er liöugasti vöðvi líkamans. sem vart er hæf í hina ástríðufyllri kossa. En hvernig ber maður sig að? I bókinni Kynlíf kvenna, sem Örn og Örlygur gaf út 1973, eru eftirfarandi ráð- leggingar til kvenna: t$ ■ m ###» \ Jttm K v ’Éh,: Simpansar kyssa líkt og menn (þeir kyssa til að heilsa, við ástarleiki og til þess að tjá undirgefni). Hestar kyssa líka við samdrátt kynjanna, hundar í leik og fiskateg- und ein syndir með var- irnar límdar saman svo tímunum skiptir. • „Varirnar eiga að vera því sem næst máttvana. Slakaðu samtímis á vangavöðvunum. Þá kemur það af sjálfu sér að munnurinn opnast nægilega til þess að glettin tunga þín getur smeygt sér út á milli tanngarðanna og inn á milli vara hans þegar kossinn ger- ist heitur og ástríðan eykst." VOTUR KOSS ER BETRI EN STUTTAR SAMFARIR „Votur koss er betri en stuttar samfarir," segir hindú- ískt máltæki, en sennilega eru ekki allir sammála um 98^ Þjóðflokkur nokkur á Kyrrahafseyjunum er með óvenju stutt augn- hár og hafa mannfræð- ingar rakið það til sér- stæðs og dálítið villts kossaflans. Leikurinn hefst á því að elskend- urnir snyrta hár hvors, annars. Þar næst nudda þeir látlaust saman nefj- um, kinnum, vörum og tungum. Siðan bíta þeir og sjúga neðri varir hvors annars þar til blæðir úr. Leikurinn nær síðan há- marki þegar elskendurnir bíta augnhárin hvort af öðru. Til að róa sig niður skiptast þau síðan á munnvatni og bíta hvort annað í kinnarnar, hök- una og nefið. Ef lostinn heltekur þau að nýju rífa þau i hárið á hvort öðru og hefja leikinn að nýju. það. Votir kossar eru hins vegar oft undanfari samfara, styttri eða lengri. Frá því á sjöunda áratugn- um hafa margar kynlífshand- bækur lagt mikla áherslu á forleik samfara og nauðsyn hans til þess að konan geti notið samfaranna. Um þetta segir Óttar Guð- mundsson læknir í bók sinni íslenska kynlífsbókin: „Ég hef rætt við menn sem höfðu lesið þetta og fengið einhvers konar forleiksþrá- hyggju. Samfarirnar voru orðnar aukaatriði og þeir ein- beittu sér hálffúlir að for- leiknum, enda höfðu þeir les- ið að hann skipti öllu fyrir gagnkvæma fullnægju af kynlífi. Þeim fannst kynlífið orðið bragðdauft og óspenn- andi." EINSOG LAMBAKÓTILETTUR í MORGUNMAT Maður að nafni Richard McBrien rís upp gegn þessari endalausu kröfu um forleik í nýjasta hefti Cosmopolitan. Þar segist hann skilja vel að eðlilegt sé að taka tillit til þarfa konunnar en vill jafn- framt að karlinn fái stundum að stjórna tímasetningunni. McBrien leggur mesta áherslu á morgnana — og þar komum við að kossunum. Hann heldur því nefnilega fram að karlar kunni einfald- lega ekki við að kyssa á morgnana. „Eg veit ekki af hverju þetta er svona, kannski liggur skýringin á þessu djúpt í sál- arfylgsnum okkar, en þetta er alla vega staðreynd sem fleiri konur ættu að gera sér grein Eskimóa-kossinn er ekki bundinn viö Eskimóa eina. Maorar á Nýja-Sjá- landi, Malajar og ýmsir þjóöflokkar í Afríku og Asíu nudda einnig saman nefjum í staö þess að kyssast með vörunum. fyrir. Þegar við viljum síður kela og kyssast í bítið á morgnana er það ekki vegna þess að við höfum gerst af- huga konunni á meðan við sváfum. Það er heldur ekki vegna þess að við viljum drífa ástarleikinn af til þess að fara fram að lesa blöðin. Það er bara vegna þess að okkur langar ekki. Þetta er svipað og vera boðið upp á lambakótilettur í morgunmat. Það er í sjálfu sér ekkert að því en það get- ur fengið hvern sem er til að verða bumbult." Þar hafið þið það. Og reyn- ið að fá ykkur til þess að kyssa manninn ykkar snemma morguns. KYSSTU MIG OG ÉG SKAL SEGJA ÞÉR HVER ÞÚ ERT En því fer fjarri að það fylgi alltaf samfarir á eftir kossun- um. Kossar eru nefnilega þægilegt tæki til þess að máta sig við annað fólk — og óbrigðult ef marka má ráð- leggingar Daisann McLane, sem skrifaði nýverið í karla- blaðið Detaiis. Hún segir að kynlíf sé dul- arfullt og frumstætt fyrir- _ brigði sem visindi nútímans hafi síður en svo náð að kort- leggja. Meðal helstu tækja kynlífsins eru kirtlar sem gefa frá lykt og ýmis skilaboð önnur. Ráðleggingar Daisann Félagsfræðingar telja að kossinn sé runninn frá frumstæöri aðferð sem mæður notuðu til að fæða börn sín. Þær létu tuggðan matinn upp í börnin í gegnum munn- inn. felast í því að treysta á þessi skilaboð. Ef fyrsti kossinn reynist fúll á bragðið er það ekki að ástæðulausu. Það er sama þó þú reynir að kenna um lélegri tannhirðu, hvítlauk eða jafn flóknum þáttum eins og sýru- stigi munnvatnsins, á endan- um mun alltaf koma í ljós að fyrstu skilaboðin reyndust rétt. Þeir sem skella skolla- eyrum við þeim munu vakna upp mánuðum eða árum seinna í óhamingjusömu sambandi. Ef þið viljið fara að ráðum Daisann skulið þið því hætta um leið og fyrsti kossinn reynist vondur og ieita að öðrum vörum. TÖLVAN í SVEFNHERBERGINU En sumir trúa ekki jafn blint á móður náttúru og hún Daisann og vilja treysta frek- ar á þjálfun og þroska. Það getur hins vegar reynst erfitt því það er líkt með kossinn og argentískan tangó, það er erfitt að æfa hann einn. En fyrir þá sem vilja æfa hann saman er komið hjálp- artæki á markaðinn. Tölvu- í Japan eru kossar á al- mannafæri algjört tabú. Foreldrar kyssa aldrei böm sín og elskendur kyssast afar sjaldan og þá yfirleitt ekki nema í forleik að samförum. sérfræðingum hefur nefni- lega tekist að koma tölvunni inn í svefnherbergið. Þeir hafa hannað forrit sem veitir fólki kynlífsráðgjöf. Og ein af spurningunum sem tölvan er tilbúin að svara er að sjálfsögðu: Er ég góður kyssari? Gunnar Smári Egilsson tók saman best og hvenœr ekki

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.