Pressan - 14.02.1991, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN14.. FEBRÚAR 1991
19
Djarftekur til
í frægu viðtali sagðist
Steinn Steinarr vera æði
djarftækur til annarra
manna verka og víða um
heim ættu skáld um sárt
að binda hans vegna. Stef-
án Rafn Vilhjálmsson, bak-
ari í Borgarfirði, þarf því
ekki leiðum að líkjast þó
hann fái lánaðar hug-
myndir frá þýska málaran-
um Gottfried Helnwein.
Á sýningu Stefáns Rafns
má sjá mynd af manni sem
hóstar ofan í kaffibollann
sinn yfir lestri á Morgunblað-
inu. Stefán Rafn hefur sagt að
þessi mynd, Með morgun-
kaffinu, sýni síðasta komm-
únistann við það að láta af
trúnni.
Helnwein hinn þýski veit
sjálfsagt ekkert hvað Morg-
unblaðið er enda lætur hann
sinn mann hósta yfir allt öðru
blaði. Þó mennirnir þeirra
Stefáns Rafns og Helnweins
séu eins og kaffibollarnir líka,
þá er ekki hægt að segja að
Stefán steli hugmyndinni
hrárri.
Stefán Rafn Vil-
hjálmsson situr
undir mynd sinni
Síðasti kommún-
istinn. Á minni
myndinni má sjá
málverk Gottfried
Helnweins
Erdbeben.
Borðstofusett á rúma milljón
„Þetta er borð, tuttugu
og tveir stólar, mjög stór
skenkur, annar minni og
þjónustuborð," sagði sölu-
maður í versluninni Bú-
stofn um eitt hundrað ára
gamalt borðstofusett sem
er falt fyrir um tólf hundr-
uð þúsund.
Settið var í eigu Stefáns
heitins Thorarensens iyfsala
og eiginkonu hans. Það er
dánarbú þeirra sem á borð-
stofusettið.
Borðstofusettið. sem er úr
eik, var flutt til íslands um
1915. Það var keypt í Dan-
mörku. Óskað er eftir tilboð-
um í settið en miðað er við að
það kosti um 1.200 þúsund
krónur. Eins og áður sagði
fylgja tuttugu og tveir stólar
sem allir geta verið við borð-
ið samtímis. Hægt er að
minnka borðið mikið. Þegar
það er samsett tekur það sex
stóla.
Annar skenkurinn er mjög
stór. Hann er 2,42 metrar á
hæð eða eins og venjuleg
lofthæð.
Dýrauerndunarfélag Islands
ROTTURNAR SLEPPI VI0
MENNTASKÓIANÁM
Nýsköpun
atvinnulífsins
Gallsteinar
sem mala gull
Þrátt fyrir erfid-
leika í loðdýrarækt,
fiskeidi og hefð-
bundnum búgreinum
fer því fjarri að fólk
úti á landsbyggðinni
hafi gefið upp alla von
um að detta í lukku-
pottinn.
Dagblaðið Tíminn,
sem hefur boðað frjáls-
lyndi og framfarir í sjö
tugi ára, greindi frá væn-
legri atvinnugrein um
daginn, ræktun gall-
steina í kúm. í fréttinni
var sagt að fyrir hvert
gramm af gallsteini
fengjust greiddar um
330 krónur, það er ef
gallsteinninn er í hæsta
gæðaflokki; gullin-
brúnn, heill, vel þurrk-
aður og eins og hænu-
egg á stærð.
Gallsteinar eru notað-
ir til að örva kynorku
karla á svipaðan hátt og
mulin nashyrningshorn.
Dýraverndunarfélag ís-
lands hefur farið þess á
leit við forsvarsmenn
Menntaskólans við
Hamrahlíð að skóiinn
hætti að nota rottur við
sálfræðikennslu.
í nokkur ár hafa rottur ver-
ið notaðar til að auka skilning
nemenda á sálarlífinu. Nem-
endur hafa gert ýmsar tii-
raunir með rottur í búri oe
Á undraskömmum tíma
hafa hjólabuxur orðið
ómissandi öllum þeim sem
sparka bolta sér til ánægju
eða tekjuauka. Þeir sem
fylgdust með fótboltanum
hér í sumar sáu að allir
leikmennirnir voru í þess-
séð hvernig neyðin kennir
svangri rottu að ýta á takka til
að fá að éta.
Lögum samkvæmt er
óheimilt að nota dýr í tilraun-
ir hér á landi ef aðrar aðferðir
eru jafngóðar. Nú þurfa kenn-
arar í sálfræði að sýna fram á
að ekki sé hægt að auðga
skilning nemenda með öðr-
um hætti en rottum í búri.
um buxum innan undir
íþróttabuxunum, skálm-
arnar á svörtu hjólabux-
unum stóðu niður undan
skálmunum á íþróttabux-
unum.
Strax og hjólabuxurnar
komust í tísku í fyrstu deild-
inni urðu þær ómissandi í
yngri flokkunum og á leik-
völlunum. Þeir foreldrar sem
ekki létu undan börnum sín-
um og keyptu hjólabuxur
þurfa ekki að búast við mikilli
aðhlynningu í ellinni.
En nú er draumurinn bú-
inn. Alþjóða knattspyrnu-
sambandið hefur bannað
hjólabuxurnar. Þær eru því
orðin forboðin tíska. í fram-
tíðinni verður það varla
nema Árvakur og önnur neð-
anjarðar-knattspyrnulið sem
skarta þessum klæðnaði.
TÍSKUFYRIRBRIGÐI
K/EFT í BIÓMA
KYNLÍF
Hvad er fullnæging?
Kæra Jóna,
Ég verð að skrifa þér
línu því ég hef áhyggjur
af sjálfri mér. Þannig er
að ég er sautján ára og
hefur verið á föstu með
strák í fimm mánuði.
Hann er ofsalega góður
við mig og vill allt fyrir
mig gera — ekki síst í
bólinu en þar virðist ég
fara í lás því ég get bara
ekki fengið það. Ég kem
mér beint að efninu:
hvað er fullnæging og
hvernig er eiginlega
hægt að fá hana? Ég hef
talað við bestu vinkonu
mína og hún segir að
best sé að fá fullnægingu
í samförum með ein-
hverjum sem maður
treysti. Þýðir það þá aö
ég eigi erfitt með að
treysta kærastanum?
Honum finnst þetta
vandamál mitt mjög leið-
inlegt af því hann vill
ekki ríða bara fyrir sig.
Hann vfll líka að ég fái
eitthvað út úr því. Er eitt-
hvað hægt að gera eða er
ég alveg vonlaus?
Ein sautján ára og í
sambúð.
JÚNA
INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
Þú ert alls ekki ein um að
velta því fyrir þér hvað full-
næging sé og hvers vegna
þú færð hana ekki. Mér
virðist sem meirihluti
stelpna sem ég hef talað
við, sautján ára og yngri,
hafi aldrei upplifað kyn-
ferðislega fullnægingu og
vita ekki hvernig þær geti
upplifað hana. Það er að sjá
að þér finnist þetta von-
laust, ert farin að halda að
þú sért eitthvað gölluð og
kærastinn er líka farinn að
halda að hann sé í „sóló-
sexi“ þegar þið sofið sam-
an.
Eitt einkenni á góðu sam-
bandi er umhyggja og til-
litssemi parsins við hvort
annað Það er ekki undar-
legt að kærastanum þínum
finnist hann vera farinn að
njóta ástarleikjanna á þinn
kostnað ef þú færð ekki
svipað út úr því og hann.
Hann er líklega að spá í það
hversu góður elskhugi
hann sé, hvort það sé eitt-
hvað sem hann geri vitlaust
eða jafnvel farinn að halda
að hann virki ekkert kyn-
ferðislega örvandi á þig.
Þín viðbrögð og hans geta
síðan spilað þannig saman
að útkoman verði einn alls-
herjar vítahringur. Honum
finnst hann ekki góður
elskhugi, þér finnst vera
eitthvað að sjálfri þér, bæði
reyna og reyna en ekkert
gerist. Það að reyna setur
nefnilega í gang kvíða sem
auðveldlega stoppar það
að eðlileg kynferðisleg örv-
un geti átt sér stað í líkam-
anum. Að reyna að leysa
vandamálið er orðið
vandamálið. Bölvuð klípa,
ekki satt?
Hvað er þá hægt að gera?
Á bara að hætta við að
reyna, setja tærnar upp í
loft og bíða eftir að krafta-
verk gerist? Áður en ég
svara því skulum við líta á
hvað þarf til að eðlileg kyn-
svörun geti átt sér stað. Það
er í rauninni sára einfalt en
er samt nógu flókið eða erf-
itt fyrir allt stressið, tíma-
leysið og fullkomnunarár-
áttuna í sexinu sem tröllríð-
ur okkar íslenska samfé-
lagi. Það sem þarf er
tvennt; að geta gleymt sér í
ástarleiknum og að þekkja
hvernig örvun viðkomandi
þarf til að fá fullnægingu.
Þegar kynlífsvandi er til
staðar geta fæstir gleymt
sér í ástarleiknum og notið
hans óhindrað. Þess í stað
skjóta upp kollinum alls
kyns hugsanir — fær hún
það núna? Er það þetta sem
hún þarf? Er hann ekki orð-
inn leiður á að örva mig?
Þetta er ekki það að
gleyma sér heldur að vera
fastur í óttanum við að mis-
takast — pottþétt leið tii að
þá mistakist allt! Fæstar
konur sem eiga við full-
nægingarvanda að etja
hafa hugmynd um hvaða
örvun er best fyrir þær
sjálfar. Ástæðan er einfald-
lega sú að þær hafa aldrei
nennt eða ekki getað eða
ekki viljað fróa sér sjálfar til
að þær viti hvað þeim
finnst gott. Margir halda að
þessi þekking komi bara af
sjálfu sér. Svo bíða þær og
bíða og náttúrlega gerist
ekkert. Þegar kærastarnir
spyrja þær hvað þeim finn-
ist gott, vita þær það ekki
og kannski bara slaökva til
að bjarga eigin skinni og
sjálfsvirðingu.
Lausnin er fyrst og f remst
þessi, taktu frá tíma fyrir
sjálfa þig nokkrum sinnum
í viku gagngert til að fróa
sjálfri þér, sama hversu leið-
inlegt þér þykir það. Ef þú
heldur þér við efnið ferðu
að finna að eitthvað er farið
að gerast. Vöðvaspennan í
líkamanum eykst, vellíðan
streymir um þig alla um
leið og vöðvarnir í leggöng-
unum og þar í kring dragast
reglubundið saman. Þetta
er fullnæging.
Þú verður að gera þetta
fyrst í einrúmi, ef kærast-
inn er líka til staðar er
hætta á að þú stressist of
mikið og farir að reyna.
Kannaðu eigin kynfæri —
hvar er snípurinn, barm-
arnir o.s.frv. Notaðu KY
rakasmyrsl (fæst í apótek-
um) ef kynfærin eru þurr
og þú blotnar lítið við fró-
unina. Ef þú heldur þér við
efnið kemur að því að þú
framleiðir leggangableyt-
una sjálf. Lestu erótískar
sögur eða horfðu á eina
léttbláa í myndbandstæk-
inu — þetta eru ágætis leið-
ir til að gleyma sér og
minnka áhrif kvíðans sem
stoppar eðlilega kynsvör-
un. Ef ekkert gerist á
nokkrum vikum væri
kannski ráð að arka út í búð
og kaupa eitthvað gott
nuddtæki en það eru bestu
víbratorarnir. Þessir batt-
eríhlöðnu, aflöngu, litlu
titrarar eru stundum ekki
nógu kröftugir til að örva
nóg að fullnægingu. Þegar
þú þekkir þig sjálf getur þú
kennt kærastanum það
sem þú kunnir ekki áður.
Hugsanlegt verður það erf-
iður hjalli en vel yfirstígan-
legur. Ef hann skilur að
karlmennska hans var
aldrei í húfi mun honum
bara létta og finna að
ábyrgðin á fullnægingar-
leysi þínu var ekki hans.
Góðar stundir!
Spyrjió Jónu um kynlífió. Utanáskrift: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík