Pressan - 14.02.1991, Blaðsíða 24

Pressan - 14.02.1991, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN14.. FEBRÚAR 1991 Bærinn sem fæddi af sérJón Baldvin. Ólaf Raqnar. Joe Grimson og Hannibal Um fá bæjarfélög á íslandi eru til jaf n margar þjóðsögur sannar og lognar og ísafjörð. Bær með íbúa á fjórða þúsundið og jafn margar kjaftasögur um hvern og einn lífs eða liðinn. Hvergi er drukkið jafn hraust- lega um helgar og þrælað af jafn mikilli samviskusemi virka daga. Bærinn er vandlega stétt- skiptur en allir una glaðir við sitt enda er þetta allt sami hafra- grauturinn á skemmtistaðnum Krúsinni á laugardögum. Fyrir utan Sjallann situr grænlenskur sjómaður með tvö blá augu og rauðar varir, ekki komnar til af góðu og hvað með það. Do You Speak English og þegiðu. Skemmtanaiífið hefur yfir sér framandi blæ enda eru erlendir verkamenn af öllum mögulegum og ómögulegum stærðum og gerðum og einnig tónlistaraðall sem hlustar á tónlist en ekki bara rokk og ról eins og lýður- inn í Krúsinni. Drykkfelldir leið- beinendur í tilvistarkreppu eða hvað það heitir nú og trunt trunt og tröllin í fjöllunum. ísafjörður er ekki lengur rauði bærinn eins og forðum. Öllu heldur upplitað- ur og lúðrasveitin spilar bara Gamla nóa á fyrsta maí en ekki Nallann því að hann er fallinn í gleymsku. Allir eiga flott skíði sem á annað borð kunna á skíði og sumir eiga fínan bíl. ísfirðing- ar hafa sérkennilegan húmor sem þeir veita útrás í húsbygg- ingum og gatnamálum en þeir brosa ekki oft því að vatnið fer illa meö tennurnar. Eins og skáldið orðaði það: Dýpsta sœla sorgin þunga suífa hljódlaust yfir storö. Þeirra mál ei talar tunga tárin eru beggja orö. Eða þannig. En ísfirðingar eiga fræga syni og dætur. Þeirra á meðal þrjá ráðherra og marga þingmenn. En þeir eiga bara einn alþjóðlegan fjármálamann. Þóra Krístín Ásgeirsdóttir Uppqbúinn á rakarastofunni hjá pabba ar skoðanir manna langar leiðir á greiðslunni. Kratarnir voru gjarnan ' / lokkaprúðir og skiptu til vinstri. Þeirri hárgreiðslu hefur Ólafur síð- 'f , an haldið til haga svo landsfrægt er orðið. Það má reyndar geta þess að Ólafur Ragnar og Jón Baldvin voru báðir síðhærðir í bernsku þó að það / hafi verið sjaldgæft á þeim tíma um Ólafur Ragnar sem glókollur á ísafiröi Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráðherra fæddist þann 14. maí 1943 á ísafirði. Faðir Ölafs Ragnars var Grímur Kristgeirsson úr Borgarfirði. Móðir hans hét Svanhildur Ólafs- dóttir Hjartar og var húsmóðir. Hún var berklaveik og dvaldist Ólafur því langdvölum hjá afa sínum og ömmu á Þingeyri. Sumir sem Press- an spurði vildu kenna sjúkdómi móðurinnar um hvað Ólafur var lít- ið með öðrum krökkum. Hvort sem þar var um að kenna lífhræðslu eða þeim fordómum sem fólk hafði varðandi sjúkdóminn. RAKARI FYRIR KRATANA Grímur var búfræðingur að mennt en fluttist ungur til ísafjarðar. Hann gerðist lögregluþjónn á ísa- firði en síðar starfaði hann sem rak- ari og loks verkstjóri hjá bænum og bæjarfulltrúi fyrir kratana. Meðan jafnaldrar Ólafs á ísafirði veltu sér í slorinu, slógust með spýtusverðum eða dorguðu á bryggjunni sat Ólafur uppábúinn á rakarastofunni hjá pabba sínum greiddur og snurfusað- ur eins og dúkka. Grímur þótti rösk- ur rakari og var jafnan leitað til hans ef tíminn var naumur enda sólund- aði hann ekki tíma í neitt óþarfa stúss. í þá daga hafði hver flokkur sinn rakara og mátti þekkja pólitísk- stráka. Enda höfðu þeir afar fallega og ljósa lokka og gátu mæður þeirra ekki hugsað sér að skerða þá. Á SKÍÐUM SKEMMTI MÉR TRA Ólafur Ragnar kom á skíðaviku til ísafjarðar upp^ úr 1970, útbúinn flottum skíðagræjum og nýjum skíðagalla og var á honum hvorki blettur né hrukka. Hann fór hnar- reistur upp í brattari lyftuna og hugðist bruna niður. En það fór nú svo að eftir að hafa strokið sér íhug- andi um hökuna litla stund gekk hann niður aftur með skíðin á bak- inu og var að sögn viðstaddra ekki jafn hnakkakertur og áður. Athqfnqmqdur og Arngrímspúki Jósafat Arngríms- son, alþjóölegur at- hafnamaöur Jósafat Arngrímsson fæddist á Mýrum í Dýrafirði, en ólst upp á ísa- firði yngstur af ellefu systkinum. Faðir hans var Arngrímur Bjarna- son mikill athafnamaður. Arngrím- ur var höfuðandstæðingur Hanni- bals Valdimarssonar í pólitík, sjálf- stæðismaður og ritstjóri blaðs sjálf- stæðismanna á Vestfjörðum. Jósafat minntist æskuáranna í tímaritinu Mannlífi með eftirfarandi hætti. „Ég lít fyrst og fremst á mig sem ísfirðing og elska ísafjörð. Ég drakk það í mig með móður- mjólkinni að kenna aldrei í brjósti um sjálfan mig og láta aldrei deigan síga. Mamma heitin fór oft meö þessa vísu og hún segir margt um uppeldi okkar systkinanna: En enginn madur á mér sér inn þegar blœöa sárin. Hef ég reynt ad harka af mér og hlceja í gegnum tárin. Þetta hef ég haft að leiðarljósi í líf- inu.“ STEFNDI AÐ ÞINGMENNSKU Jósafat varð snemma mjög virkur í pólitík og fylgdi sjálfstæðismönn- um að málum líkt og faðir hans. Jafnaldrar Jósafats á Isafirði segja hann hafa verið ákaflega litskrúð- uga persónu. Hann var jafnaldra þeim Jóni Laxdal leikara og Jóni Bjarnasyni Ijósmyndasmiði. Þeir þrír áttu það til að vera mjög uppá- tækjasamir. Einn viðmælenda blaðsins lýsti Arngrímspúkunum eins og hann kallaði Jósafat og bræður hans þannig: Þeir voru sér- stakur þjóðflokkur svona ribbaldar og það sem aðallega einkenndi þá var að þeir fóru gjarnan í burtu um tíma þegar komið var fram á ung- lingsár og komu til baka eins og greifar í klæðaburði og háttalagi. Jósafat sýndi lítil tiiþrif í viðskiptum þegar hann var yngri en þeim mun meiri þegar hann óx úr grasi. UMDEILDUR FERILL Hann settist að á Suðurnesjum og hóf þar í meira lagi umdeildan feril sinn sem fjármálamaður. Hann stefndi að þingmennsku líkt og sveitungar hans Jón Baldvin og Ól- afur Ragnar áttu eftir að gera. Árið 1964 var Jósafat, þá forstjóri og framkvæmdastjóri sjö fyrirtækja, hnepptur í gæsluvarðhald meðan rannsókn var gerð á skjalafalsi í tengslum við verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli. Með rannsókn- inni og þeim málum sem sigldu í kjölfarið fuku þingmannsdraumarn- ir út í veður og vind. Fjármálaferill Jósafats hélt síðan áfram og hann hefur skapað sér feril sem alþjóðleg- ur fjármálamaður og að sumra dómi vafasaman undir nafninu Joe Grim- son.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.