Pressan - 14.02.1991, Blaðsíða 26

Pressan - 14.02.1991, Blaðsíða 26
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR 6. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 14. FEBRUAR 1991 STOFNAÐ 1990 Ég bara vissi ekkl fyrr en fyrirtækið var komið á hansinn — segir Magnús Lárusson, sem hefur sett sitt nítjánda fyrirtœki á hausinn Kópovogi, 14. febrúor „Ég skíi þetta ekki, bankinn skilur þetta ekki, þeir hjá Byggðastofnun skilja þetta ekki og starfs- fólkið skilur þetta ekki,“ sagði Magnús Lárusson stóratvinnurekandi þegar hans nítjánda fyrirtæki var tekið til gjaldþrota- skipta um helgina. „Auðvitað erum við gáttað- ir á þessu," sagði Valur Vals- son, bankastjóri íslands- banka, í samtali við GULU PRESSUNA. „Þó Magnús hafi verið óheppinn undanfarin ár töld- um við víst að honum tækist þetta núna. En það virðast engin takmörk fyrir hvernig markaðurinn getur leikið hann Magnús, eins og þetta er góður pittur." Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNAR munu ýmsir bankar og sjóðir tapa um 400 milljónum á gjald- þrotinu. „Við höfum séð það verra hjá Magnúsi og erfum þetta ekki við hann," sagði Guð- mundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar í samtali við GULU PRESSUNA. í þetta sinn var það fram- leiðsla á stöllum undir styttur sem fór á hausinn hjá Magn- úsi. Áður hefur hann rekið iðnfyrirtæki sem hafa fram- leitt dósaupptakara með skeiðklukkum, kólestról- snautt refafóður, stefnuljós fyrir skuttogara og margt fleira. „Ef þetta kennir mér eitt- hvað þá er það að halda ótrauður áfram," sagði Magn- ús í samtali við GULU PRESS- UNA. NAKINN MAÐUR Á REIÐHJÓLI SKELFIR HVERGERÐ INGA VIÐ ÆTLUM AD KÆRA TIL MANNRÉTTINDA- DÓMSTÓLSINS — segja Bíbi og Bárður, sem hafa sent inn lög í Eurovision frá upphafi en aldrei komist í úrslit. Konurnar í Hveragerði á æfingu SKOTFÉLAG KVENNA STOFNAÐ í HVERAGERÐI — maðurinn á hjólinu var ekki kveikjan en hann hefur hjálpað okkur við öflun félaga, segir Elfa Vignisdóttir, formaður félagsins. Hjón í Hlíöahverfinu Ég hef trú á að þetta takist næst, segir Magnús Lárusson. Ræktnðu tvær lúður og einn ál — og fengu 57 milljónir í afurðalán — hann birtist alltaf á götunum þegar Hemmi Gunn er í sjónvarpinu, segir Elfa Vignisdóttir, sem hef- ur séð manninn tólf sinnum. Þessa mynd tók Elfa út um eldhúsgluggann sinn i gaerkvöldi. Reykjgvík 14. fqbrúar „Þetta var nú bara tóm- stundagaman hjá okkur þar til ávísanirnar frá Landsbankanum tóku að streyma inn. Nú erum við orðin háð þessum pening- um og treystum okkur illa til þess að skera niður neysluna,“ sagði Berta Njálsdóttir, en hún og eig- inmaður hennar hafa feng- ið um 57 milljón króna af- urðalán frá Landsbanka Islands út á tvær lúður og einn ál sem þau hafa hald- ið í lítilli tjörn í garðinum við húsið þeirra við Bröttuhlíð. „Við sóttum aldrei um nein lán," sagði Grettir Kristjáns- son, eiginmaður Bertu, í sam- tali við GULU PRESSUNA. „Þeir hjá bankanum virðast bara hafa frétt af þessu tóm- stundagamni okkar og sent okkur lánin." Á bankaráðsfundi í Lands- bankanum í gær var ákveðið að kæra þau Bertu og Gretti til rannsóknarlögreglunnar. „Það liggur ljóst fyrir að þau fengu mun meira en þau áttu að fá,“ sagði Sverrir Her- Við höfum æft stíft, látið sauma á okkur búninga og erum tilbúin í slaginn, segja Bíbí og Bárður. Ragnar Vilbergsson sýnir blaðamönnum hvar bjölluöt hafa verið framin á undanförnum mánuði. Foruarnarstarf lögreglunnar •• Reykjavík, 14. febrúar BJOLLVAT ER ALGJÖRTFRAT — er slagorö átaksviku gegn sívaxandi bjölluötum næsta vika verður helguð baráttunni gegn bjölluötum. Þjóðfrægir Islendingar hafa setið fyrir á myndum sem birtar verða á veggspjöldum, rokktónleikar verða haldnir undir yfirskriftinni „Bjölluat er algjört frat" og margt fleira verður gert. „Við viljum reyna að tala tungumál sem þeir sem fremja ötin skilja," sagði Ragnar á fundinum. „Því segjum við: Það er púkalegt að glíma — við ókunnuga dyrasíma." „Margir gera sér ekki fyllilega grein fyrir hvaða ónæði bjölluatið getur valdið. Meö þessu átaki viljum við reyna að draga það fram í dagsljósið, bæði fyrir þá sem verða fyrir at- inu en þó sérstaklega þá sem hafa stundað það,“ sagði Ragnar Vilbergsson, lögreglufulltrúi hjá for- varnadeild lögreglustjór- ans í Reykjavík, á blaða- mannafundi í gær. Á fundinum kom fram að Fiskverkamadur frá Neskaupstad Þykir sláandi líkur Englands- drottningu Neskaupstað, 13. febrúar „Þetta hefur ekki valdið mér neinum óþægindum. Ég hef bara gaman af þess- um ruglingi,“ sagði Páll Kjartansson, fiskverka- maður frá Neskaupstað, í samtali við GULU PRESS- UNA, en Páll þykir sláandi líkur Elísabetu Englands- drottningu. „Mér var dálítið strítt hér á árum áður og þá sérstaklega þegar ég klæddi mig upp í kjóla og svoleiðis. En á seinni árum held ég að þorpsbúar séu bara stoltir af mér,“ sagði Páli. Hann hefur haft það fyrir Páll Kjartansson fiskverka- maöur vana að klæða sig upp á kvöldin og skartar þá bæði kórónu og öðrum djásnum. „Hann hefur haldið sig mest hérna í sjoppunni hjá mér,“ sagði Benedikt Ólafs- son verslunarmaður. „Hann gerir engum mein. Það er helst að þeir Bretar, sem koma hingað á sumrin, láti hann fara í taugarnar á sér." Páfagaukur í blómabúd Kærður fyrii meiðyrði Hveragerði, 13. febrúar___ „Ég var ekki fyrr kom- inn inn í búðina en fugl- inn réðst að mér með munnsöfnuði sem ég get ekki haft eftir. Mér krossbrá og roðnaði, enda var búðin full af fólki sem heyrði svívirð- ingarnar í minn garð,“ sagði Guttormur J. Ein- arsson, atvinnumálafull- trúi umhverfisráðherra, í samtali við GULU PRESSUNA, en hann hef- ur kært páfagaukinn Bó- bó fyrir meiðyrði. Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR er þetta ekki í eina skiptið sem Bóbó hefur gengið fram af fólki með munn- söfnuði sínum en hingað til hefur enginn kært hann. „Ég er ekki einungis að kæra fyrir mína hönd," sagði Guttormur, „heldur fyrir alla þá sem hafa mátt Bóbó var enn í blómabúðinni í gærkvöldi og virtist ekki hafa látiö stefnuna á sig fá. þola óhróðurinn frá þess- um fugli." „Ég ætla ekki að verja Bóbó," sagði Úlfar Einars- son, eigandi blómabúðar- innar sem hefur haldið Bó- bó undanfarin ár. „Bæði er að ég hef ekki efni á að borga lögmönnum og eins er ég orðinn hálf leiður á fuglinum. Hann verður því sjálfur að borga sektirnar sem hann verður dæmdur til að greiða." Berta og Grettir meö lúðurnar tvær og álinn. mannsson bankastjóri við GULU PRESSUNA. „Ég held að þetta sýni að Landsbankinn þarf að endur- skoða útlánareglur sínar," sagði Grétar Höskuldsson, einn af talsmönnum fiskeldis- manna. „Það er fjöldinn allur af fólki út um allt land sem á um sárt að binda vegna þessara lána. Ég veit þannig um fólk sem hefur þurft að byggja sér 300 fermetra einbýlishús, byggja útisundlaug og leggj- ast í ferðalög út af þessum lánum. Við hjá félagi fiskeld- ismanna erum að undirbúa skaðabótakröfur á hendur bankanum," sagði Grétar.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.