Pressan - 28.01.1993, Page 2

Pressan - 28.01.1993, Page 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993 U N D I R Ö X I N N I A! hverju viltu ekki hitta Zuroff, Þorsteinn? „Hann fær viðtal við skrifstofu- stjóra í dómsmálaráðuneytinu." Telurðu það nóg? „Ég tel það, fullkomlega, að sjálfsögðu." Er ekki málið þess eðlis, svo al- varlegt, að ráðherra þurfi að sinna þvt? „Ég veit ekki hvert erindi hans er. Það kemur (Ijós þegar hann hefur átt þessar viðræður við skrifstofustjórann." Hann hefur svo sem úttalað sig um það. „Hann hefurengin gögn sent eða annað og því er ekkert til- efni til að hafa annan hátt á. Þetta er mjög óvenjulegt, en gögnin verða skoðuð og það sem hann hefur fram að færa með venjulegum hætti." Gæti komið til greina að hitta hann á síðari stigum? „Það fer eftir því hvert erindi hans er og hvað hann er að leggja á borð fýrir ráðuneytið. Það vitum við ekki enn." Ráðherrar í öðrum löndum, svo sem Bretlandi, Ástralíu, Eist- landi og Litháen, hafa tekið á móti honum í svipuðum mál- um. „Það getur vel verið. Þetta fer allt eftir því hvert erindi hans er, sem kemur (Ijós þegar hann hefur átt þessar viðræður við skrifstofustjórann." Hefurðu einhverju að tapa? „Nei, en ég skil heldur ekki hvaða mál það er. Hann fær viðræður við skrifstofustjórann í ráðuneytinu og ég veit ekki hvaða sjónarmið þetta er. Mér vitanlega hefur hann heldur ekki kvartað yfir því." Mér skilst að hann hafi boðist til að framlengja dvöl sina ef það mætti verða til þess að þú sæir þér fært að hitta hann. „Það er auðvitað hans mál. Við skoðum gögnin þegar þau hafa verið lögð fram." Hefur þetta verið rætt f ríkis- stjórn? „Nei." Forsætis- og dómsmálaráðherrar hafa neitað að hitta að máli Efr- aim Zuroff, forstjóra Wiesenthal- stofnunarinnar, sem hingað kem- ur I byrjun næstu viku. Þorsteinn Pálsson er dómsmálaráðherra. F R E M S T JÓN SIGURÐSSON. Vill stólinn hans Jóhannesar Nordals, en ekki fyrr en að undangengnum stólaskiptum. KARL STEINAR GUÐNASON. Hans bíður ráðherradómur eða stóll Eggerts G. Þorsteinssonar í Tryggingastofnun. LTTGANGA NORDALS KEMUR RÓTI Á KRATA Nú þegar ljóst er að Jóhannes Nordal hættir sem Seðlabankayf- irstjóri um mitt ár hafa vangavelt- ur krata um mannatilfærslur hjá flokknum fengið nýtt líf. Almennt er talið víst að Jón Sigurðsson verði eftirmaður Jóhannesar, en hann vill þó ekki hverfa við svo búið úr stjórnmálum og ekki fyrr en að loknum nokkrum tilfærsl- um í ráðherrastólum. Líklegasti millileikurinn er nefndur að setja Björgvin Vilmundarson í Seðlabankann. Þá losnar banka- stjórastaða í Landsbankanum og er nafh Þrastar Ólafssonar með- al annarra í þeirri umræðu. Þegar Jón hverfur úr ráðherrastóli er röðin komin að Karli Steinari Guðnasyni að verða ráðherra og tæki hann þá félagsmála- eða heil- brigðis- og tryggingaráðuneyti. Hann er reyndar líka oft nefndur sem hugsanlegur effirmaður Egg- erts G. Þorsteinssonar í for- stjórastóli Tryggingastofnunar, en Eggert verður 68 ára í sumar. Um stólaskipti hefur ekkert verið ákveðið enn, en Jón Bald- vin Hannibalsson hefur látið spyrjast að hann vilji helst „selja“ sjálfstæðismönnum utanríkis- ráðuneytið fyrir annað hvort at- vinnumálaráðuneytanna. Fyrir Jóni liggur líka að skipa í sendi- herrastöður á næstunni og hugs- anlegt er að hann nýtti það í hró- keringum. Þannig hefur verið fleygt nafni Eiðs Guðnasonar sem hugsanlegs sendiherra. ENHVERÁÞÁ AÐ ST|ÓRNA HAFNARFIRÐI? Fari Jón Sigurðsson í stól Jó- hannesar Nordals í Seðlabank- anum losnar þingsæti fyrir Guð- mund Árna Stefánsson, bæjar- stjóra í Hafnarfirði. Og menn sem þekkja til Guðmundar og Hafnar- fjarðarkrata yfirleitt telja einsýnt að þar á bæ dugi þingsætið ekki eitt og sér, heldur þyki eðlilegt að ráðherrastóll erfist einnig. En fari svo að Guðmundur losi bæjar- stjórastólinn þarf að fylla hann og eru í því sambandi taldir líklegast- ir bæjarfulltrúarnir Tryggvi Harðarson og Ingvar Viktors- son. Ekki er hægt að álykta að konumar gefi sitt eftir, þær Jóna Ósk Guðjónsdóttir, formaður bæjarstjórnar, og Valgerður Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi, sem skipaði fjórða sætið. EDDA SIGRÚN SAGÐI ÁKÆRUVALDIÐ STJÓRN- AST AF PRESSUNNI Edda Sigrún Ólafsdóttir lög- fræðingur er þessa dagana að veija sig í Héraðsdómi Reykjavík- ur vegna ákæru um skilasvik, skattsvik og brot á bókhaldslög- um. Lögmaður hennar, Viðar Már Matthíasson, sagði við mál- flutning að ákæra um skattsvik og bókhaldsbrot væri réttlætanleg, en umdeilanlegt væri að skilasvik hefðu átt sér stað. Þar er nánar til- tekið um að ræða að Edda Sigrún er ákærð fyrir að hafa haldið eftir tæplega 4 milljónum króna sem á þriðja tug fórnarlamba umferðar- slysa áttu að fá í hendurnar, en hún hélt eftir. Samkvæmt ákær- unni hélt hún eftir þessum fjár- hæðum á tímabilinu frá maí 1988 til janúar 1990, en tók síðan að greiða viðkomandi skjólstæðing- um mismuninn upp úr júlí 1990. Edda Sigrún er síðan ákærð fyrir söluskattsundandrátt upp á 500 þúsund krónur að núvirði og fyrir að hafa vantalið rekstrartekjur á skattffamtali, sem ella hefðu leitt til tekjuskatts- og útsvarsálagn- ingar upp á 1,7 milljónir að nú- virði. Edda Sigrún og Viðar Már munu við málflutning hafa sakað ákæruvaldið um að fara offari í málinu og þá vegna áhrifa af fféttaflutningi PRESSUNNAR. JÓN BÖ SLÆR EIGIN MET Við sögðum ffá því hér í haust að Jón Böðvarsson hefði slegið öll aðsóknarmet með námskeið- um sínum í fornsögunum hjá endurmenntunardeild Háskólans, en þá skráðu sig um 160 manns á eitt námskeið hjá honum. Nú er Jón að undirbúa námskeið í Eglu og eru hátt í 200 manns búnir að innrita sig þótt innritunarfrestur sé fráleitt liðinn. Engin augljós skýring er á þessum óhemjumikla áhuga á fornsögunum, nema þá að landinn vilji brynja sig með menningararfmum áður en flóð- gáttir hinnar nýju Evrópu opnast með EES í sumar. Býðst til að borga 150 þúsunci svo hægt sé að setja Jóhartn í í síðustu PRESSU var sagt frá fórnarlambi „tálbeitunnar“, Jó- hanns J. Ingólfssonar, sem ekki hefur tekist að innheimta skaða- bætur sem henni voru dæmdar vegna nauðgunar. Sama dag og blaðið kom út hafði maður nokkur samband við lögffæðing stúlkunn- ar, Valborgu Þ. Snævarr, fyrir hönd annars manns sem ekki vildi láta nafns getið. Sá kvaðst reiðubúinn að færa stúlkunni 150 þúsund krónur að gjöf, svo hún gæti lagt fram tryggingu til að koma fram gjaldþrotaskiptum á búi árásar- mannsins. „Þetta eru ótrúleg gleðitíðindi,“ sagði Valborg Þ. Snævarr. „Maður- inn þekkir ekki stúlkuna og tengist málinu ekki á neinn hátt. Honum ofbauð einfaldlega hve staða stúlk- unnar er veik, effir að hafa lesið um mál hennar í blaðinu. Hann kvaðst vilja leggja sitt af mörkum, ef það mætti verða til þess að hægt væri að ná fram réttlæti í málinu. Pen- ingana er ég búin að fá í hendur og þeim fylgja engir skilmálar. Þetta er aðeins gjöf mannsins til stúlkunn- ar.“ Valborg sagði að næsta skref í málinu væri að gera úrslitatilraun til fjárnáms. Ef það reyndist árang- urslaust yrði því fylgt eftir með beiðni um gjaldþrotaskipti á búi Jóhanns. Nú væri ekkert því til fýr- irstöðu að stúlkan gæti lagt fram tryggingarféð, 150 þúsund krón- umar, þökk sé ókunna manninum, sem augljóslega lætur sig réttlæti mikluvarða. GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON. Væntanlegur þingmaður. Verður gerð krafa um ráðherradóm? TRYGGVI HARÐARSON. Hann og Ingvar Viktorsson eru taldir líklegustu eftirmenn Guðmundar Árna f Hafnarfirði. EDOA SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR. Heldur þvífram að ákaeruvaldið sé undir áhrifum af skrifum PRESSUNNAR. JÓN BÖ. 200 manns hafa skráð sig á námskeið í Egiu. PPLEIÐ Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri. Hann sýndi það í vikunni sem hann tilkynnti að hann væri að hætta, að ef hann segir að vit sé f sæstreng til Evrópu þá fær málið meira vægi. 1 Stjörnubíó. Hefur verið með margar af helstu metsölu- myndunum und- anfarið og bfður með sýningu á enn fleiri. Davið A. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna. Hann skilaði 140 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Það er ábyggilega margfaldur hagnaður á við það sem Hörður og hinir hlutafé- lagaforstjórarnir geta státað af. ■s m i Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra. Hann mun fá stólinn hans Jóhannesarog jafnvel skipa sig sjálfur. Löggurnar. Þær stækka og vaxa i ál þegar það brýst út millirfkja- deila um hverjir eigi að sauma búningana þær. Á NIÐURLEIÐ Sigurður Hróarsson, leikhússtjóri Borg- arleikhússins. Slæm krítfk er ekki svo vond, en það er hins vegar ófyrirgefan- legt að fara til Eiríks Jónssonaraðgráta yfir henni. Friðrik Sophusson fjár- málaráðherra. Það er eitthvað að fjármála- ráðherra sem öll spjót beinast að en mælist þó ekki einu sinni I óvinsældakönnunum. Samskip. Það er í lagi að tapa fyrir Eimskip en verra að gráta það í heilsíðuauglýsingum. Ing Björn Albertssor þingmaður. Það er eitthvað of- sóknarbrjálæð- islegt við að taka það per- sónulega þegar sjálfstæðismenn skipta honum út úr stjórr Sementsverksmiðjunnar fyrir mann úr Vesturlandskjördæmi. Dyrhólaey. Hún missir ákveðinn sjarma nú þegar hún er orðin tekjulind einhverra bænda. Næsti bær við er að hún verði niðurgreidd. I

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.