Pressan - 28.01.1993, Blaðsíða 3

Pressan - 28.01.1993, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR PHESSAN 28. JANÚAR 1993 3 J- ramhaldsaðalfundur fiskeldisfyrir- tækisins Silfurstjörnunnar hf. í Öxarfirði var haldinn á mánudaginn síðasta. Miklar breytingar hafa nú orð- ið á stjórn Silfurstjörn- unnar, en Trausti Þor- láksson, bifvélavirkinn ffægi, hefur nú vikið úr stjóm. Var það að kröfu Byggðastofnunar sem um leið skipti um sinn mann í stjóminni, en Ingimar Jóhanns- son gekk loksins úr henni. f staðinn kom inn Óli Þór Ástvaldsson ffá Akureyri og er hann stjórnarformaður. Trausti var inni í stjóminni í krafti eignarhluts síns í fyrirtækinu Fiskeldisþjónustunni hf. í Kópavogi. Nú mun vera rætt um að leysa það fyrirtæki upp þannig að einstakir hluthafar þar fái hlut í Silfurstjömunni... T> JLJ yggðastofnunarmenn munu nú loksins hafa verið búnir að missa þolin- mæðina gagnvart Trausta Þorlákssyni hjá Silfurstjömunni, því um leið og hann vék úr stjóm var prókúruumboð tekið af honum. Byggðastofnun mun hafa gert al- varlegar athugasemdir við fjármálaum- sýslu Silfurstjömunnar, en þar vom laun og hlunnindi talin vega óvenjuþungt. Auk þess mun hafa verið gerð athugasemd við hvemig Trausti uppfyllti margra ára gam- alt hlutafjárloforð sitt, en hann virðist hafa gert það með láni frá Byggðastofnun. Rætt er um að honum verði gert að end- urgreiðaþað... T A. ryggingayfirlæknir Tryggingastofii- unar, Bjöm önundarson, hefur verið í fréttum vegna svonefnds valbrármáls. Rifja má upp að í október 1991 hófst op- inber rannsókn á skattaiegri meðferð aukatekna tryggingalækna. Skattrann- sóknarstjóri var með málið í rannsókn í átta mánuði eða þar til í júní 1992. Emb- iriiinn') Hiönií, Jónasar Hallgrímssonar, prófessors og trúnað- arlæknis Sjóvár-Almennra, og Atla Þórs Ólasonar, trúnaðarlæknis VfS. í þessu sambandi má geta þess að á milli áranna 1990 og 1991, eftir að opinber rannsókn hófst, hefðu framtaldar tekjur Björns hækkað úr 3,2 milljónum í rúmlega 6 milljónir yfir árið, um 2,8 milljónir eða 89 prósent. Stefán, aðstoðarmaður hans, hækkaði á sama tíma úr 2,1 milljón í 5,6 milljónir, um 3,4 milljónir eða 161 pró- sent. RLR hefur haft málið hjá sér í sjö mánuði án niðurstöðu, jafnvel hreyfing- arlaust með öllu, þrátt fyrir viðamikla rannsókn Skattrannsóknarstjóra á undan. Spurja menn sig hvemig Bimi og Stefáni sé stætt á því að sitja áffarn í stólum sín- um... H, .vað Bjöm Önundarson trygg- ingayfirlækni varðar má einnig rifja upp, að hann var skipaður í stöðu sína í janúar 1975 af þáverandi heil- brigðisráðherra, Matt- híasi Bjamasyni. Fjór- ir læknar sóttu um ■stöðuna og hafði Bjöm þá sérstöðu að fá einn umsækjenda ekki eitt einasta atkvæði í trygg- ingaráði, auk þess að hafa minnstu menntunina af umsækjendum. Matthías lét slíkt ekki stöðva sig, en þeir Björn þekktust úr útgerðarrekstri á Vestfjörð- um frá því í upphafi sjöunda áratugarins, en Björn sat í stjórn fyrirtækjanna Ás- borgar og Fiskaborgar á Flateyri 1960 til 1962, þegar Matthías var forystumaður í samtökum útgerðarmanna fyrir vestan... s iðanefhd Blaðamannafélags fslands hefur úrskurðað í máli Santosar afrugl- arasala gegn Ólafi Jóhannssyni, frétta- manni Stöðvar 2. Taldi Siðanefnd að brot Ólafs væri alvarlegt. f ffamhaldi af þessu er rétt að minna á að langt er nú síðan ákæruvaldið fékk til meðferðar kæru vegna manna sem seldu sjóræningja- myndlykla. Þrátt fyrir að nú sé rúmt ár síðan rannsókninni lauk hefur engin ákæra verið gefin út... ÖFLUGRI • FJÖLHÆFARI • ÓDÝRARI -en nokkru sinni fyrr

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.