Pressan - 28.01.1993, Side 5

Pressan - 28.01.1993, Side 5
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993 5 ir rotabú veitingahússins Þórscafé, þ.e. hlutafélagsins Þórshallar, hefur verið gert upp. Hlutafélagið var úrskurðað til gjald- þrotaskipta í ágúst 1991 og reyndust sam- þykktar kröfur tæplega 167 milljónir króna. Upp í kröfurnar greiddust 4,2 milljónir, en þá er þess að geta að Lands- bankinn eignaðist fasteign veitingahúss- ins við Brautarholt fyrir nokkrum árum, en nú hefur Reykjavíkurborg hana til af- nota. Helstu aðstandendur Þórshallar voru þeir Björgvin L. Ámason og Jón Ó. Ragnarsson. Um leið og það félag var tekið til skipta var Þórscafé hf. einnig úr- skurðað tii gjaldþrotaskipta og lauk því máli í apríl á síðasta ári. Þar fundust engar eignir upp í 19,3 milljóna króna kröfur. Alls námu kröfur í búin tvö því 186 millj- ónum króna... XT ótt íslenskir ráðherrar hafi neitað að ræða við Efraim Zuroff, forstjóra Wie- senthal-stofnunarinnar, gegnir ekki sama máli um ríkissaksókn- ara, Hallvarð Ein- | varðsson. Ríkissak- sóknaraembættið hefiir gert ráðstafanir til að taka á móti Zuroff eftir helgina, enda málið strangt til tekið á hans könnu ef það verður að sakamáli fyrir dómstólum... islensku bókmenntaverðlaunin verða afhent 1. febrúar næstkomandi. Eins og flesta rekur minni til varð töluverður ágreiningur um útnefninguna og telja þeir sem til þekkja að reynt verði að komast hjá hávaða við verð- launaveitinguna sjálfa. Er því hald manna að Þorsteinn frá Hamri hreppi hnossið þar sem flestir eru sammála um ágæti hans sem skálds. Aðrir sem voru út- nefndir og koma að sjálfsögðu til greina eru Böðvar Guðmundsson, Ólafur Gunnarsson, Gyrðir Elíasson og Vil- borg Dagbjartsdóttir... m síðustu helgi voru hlutabréf í fstel hf., dótturfyrirtæki fsmars hf., aug- lýst til sölu. Nánar tiltekið vill Þráinn Hauksson, sölustjóri ístels, fara út úr fyr- irtækinu og mun þar mestu ráða ágrein- ingur um framtíðarstefnu þess. Heildar- hlutafé fstels er 5 milljónir og á Þráinn 416 þúsund þar af, en stærsti eigandi er enn að öðm leyti ísmar og þar af Reynir Guðjónsson og Birgir Benediktsson. Bréfin em enn óseld, en samkvæmt heim- ildum okkar er ekki ólíklegt að hægt sé að krefjast liðlega tvöfalds nafnverðs... Athugasemdfrá Hagskiptum Sigurður örn Sigurðarson, annar Sig- urðanna í Hagskiptum, hefur sent PRESSUNNI athugasemd vegna fféttar blaðsins 14. janúar sl. um málefni Ferða- þjónustunnar og Sigurðar H. Garðars- sonar. f athugasemdinni tilgreinir Sigurður 1) að röng sé sú fullyrðing blaðsins að 5 milljóna króna víxill hafi verið hagnýttur í heimildarleysi af SHG, 2) að röng sé sú fullyrðing að skuldir hafi verið skildar eft- ir í Ferðaþjónustunni, þær hafi verið yfir- teknar af kaupanda rekstrarins, 3) að röng sé sú fuilyrðing að Ferðaþjónustan sé nýstofhuð, hún hafi verið stofiiuð 1972, og 4) að röng sé sú fullyrðing að bókhald Ferðaþjónustunnar hafi verið í molum. Svarritstj. 1) f fféttinni var greint ffá því að örlög téðs víxils væru til rannsóknar að beiðni bústjóra, sem og örlög bókhaldsins. Ekk- ert var fullyrt fyrirfram um niðurstöðu rannsóknarinnar. 2) Augljóslega kemst seint á hreint hvað keypt var og yfirtekið þegar Sigurðamir seldu Svavari Egilssyni Veröld en nafnbreyttu afganginum í Ferðaþjónustuna, sem fór á hausinn og fékk á sig 100 milljóna króna kröfur. Bæði Svavar og fyrirtæki Sigurðanna sjálffa áttu kröfur í þrotabú Ferðaþjónustunnar, fyrir utan banka og aðra kröfuhafa. Salan fól augljóslega ekki í sér hreint borð hjá selj- andanum. 3) Það er grátbroslegur mál- flutningur að segja að slitrurnar sem Ferðaþjónustan samanstóð af hafi í raun verið sama fyrirtækið og stofnað var fýrir rúmum tuttugu árum — burtséð frá kennitölum og nafnbreytingum. 4) í ffétt- inni kemur fram að bókhald fyrirtækis Svavars Egilssonar hafi reynst í molum, ekki bókhald Ferðaþjónustunnar. Það bókhald heffir aldrei borist bústjóra, sem telur hugsanlegt að því hafi verið fleygt. Leiðrétting f síðustu PRESSU sögðum við frá því að Páll Vilhjálmsson blaðamaður hefði ráðið sig á Vikublaðið. Um leið fylgdu með upplýsingar um hvar hann hefði starfað áður. Þar var sagt að hann hefði starfað á Þjóðviljanum, sem er rangt, Páll var á Þjóðlífi. Biðjumst við velvirðingar á mistökunum. 20% AFLSLÁTTUR Á HERBERGISÞRÆLUM Nottambulo fatastandur ■ Gæðohönnun ítalskro arkitekta DESfORM Brautarholt 3-3. hæð, sími: 62 47 75 Vii prenlum ó boli og húfur Eigum úrval af bolum m.a. írá Screen Stars Vönduð vinna og gæði í prentun. Langar og stuttar ermar, margir litir. Hettubolir Húfur i mörgum litum. Filmuvinnum myndir. Gerum tilboð í stærri verk, Nýtt! Nýtt! Nýtt! Nýtt! Nýtt! Komdu með Ijósmynd eða teikningu og við Ijósritum myndina á bol eða húfu fyrir þig. BIQL'UR yegur Sími 7 91 90 • Fax 7 ogur -L\.vikmyndahúsaeigendum barst fyr- ir skömmu bréf frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur þar sem segir að hljóðstyrkur hafi reynst yfir leyfilegum mörkum (85 dB) við mælingu og er bent á að herða þurfi eftirlit meðan á sýningum stendur. í bréfinu er jafnffamt bent á mikinn sóða- skap af völdum sælgætis og sælgætisum- búða, en át þess þykir afar hvimleitt og truflandi fyrir þá sýningargesti sem ekki leggja sér það til munns. Er farið fram á að eigendur kvikmyndahúsa setji upp hvatningarspjöld sem leitt gætu af sér betri umgengni, en að öðrum kosti verði málinu vísað til heilbrigðisnefndar til frekari ákvörðunar. Undir bréf þetta skrifar Dagmar Vala Hjörleifsdóttir heilbrigðisfulltrúi... V -I_iitt þeirra hlutafélaga sem annast hafa veitingarekstur í Sprengisandshús- inu við Bústaðaveg er Skyndir hf. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta sl. júní og var búið gert eignalaust upp fýrir skömmu. Kröfur hljóðuðu upp á tæpar 15 milljónir. Meðal stofnenda voru Eggert Bjarni Ól- afsson og Gunnar Breiðfjörð, en undir það síðasta var stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Yngvi Örn Stefáns- son. 1 sömu andrá má nefna að hlutafé- lagið Skjöldurinn hefur verið tekið til skipta, en það rak Trúbadorinn við Laugaveg og voru helstu aðstandendur þeir Skjöldur Sigurjónsson og Franco- is Louis Fons... sjóngler ó tilboöi i.. v*.rlgr... .im im— n M.. „ 25% Afslattur leri Verslunln Gleraugaö býöur vlðsklptavlnum sfnum 25% afslött ó öllum gerðum sjónglerja. f verslun okkar að Suöurlandsbraut 50 bjóðum vlö gott úrval umgjaröa ó góðu verðl. Tllboðlð tll 20. febrúar. tS* GLERAUGAÐ |ltrii|aa*«nlii v/ Faxafen i ■ Screansport-Eurosport Alhliða þjönusta veitt af fagmönnum. myndbandaaðstaöa skemmtileguin völlum. ......WKnMKK Í V.W Púttmót alla stinntidaga. Vippaðstaða Æfingaaðstaða Ætingabásar með góðum iwiiii ywnaiaBBaittf- y ;r æfingamottum. - ■ ■ • . ' ' 30m æfingabraut (Drive).

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.