Pressan - 28.01.1993, Page 7

Pressan - 28.01.1993, Page 7
FIMMTUDAGUR PRiSSAN 28. JANÚAR 1993 7 Hæstiréttur hefur staðfest dóm Undirréttar í forkaupsmáli í Vestur-Landeyjahreppi. Vísar Hæstiréttur alfarið til forsendna Undirréttar, en þar kemur fram að Eggert Haukdal, oddviti og alþingismaður, hafði ekki aflað upplýsinga frá nágröngj0ff?S§Íum, sem hann hélt þó fram í gögnum málsins að hann hefði gert. Ik PRESSAN/JIM SMART Eggert Haukdal, alþingismaður og oddviti LAGÐIÚSÖNN GÖGN FYRIR RABUNEYTIOG HERABSDOM Nýlega staðfesti Hæstiréttur dóm Undirréttar varðandi for- kaupsrétt hreppsnefndar Vestur- Landeyjahrepps á jörðinni Eystra- Hóli. Undirréttur hafði feílt úr gildi forkaupsrétt hreppsnefndar- innar í þessu máli og vísaði Hæstiréttur til forsendna Undir- réttar í dómi sfnum. DV sagði frá þessum dómi á laugardaginn en undirréttardómurinn hefur haft fordæmisgildi í forkaupsmálum af þessu tagi og hefúr Hæstiréttur rennt enn frekari stoðum undir það. Undirréttardóminn kvað upp Kjartan Þorkelsson ásamt með- dómendunum Allan Vagni Magnússyni og Tryggva Gunn- arssyni. Hæstiréttur var skipaður Þór Vilhjálmssynu Garðari Gíslasyni, Guðrúnu Erlendsdótt- ur, Gunnari M. Gunnarssyni og Haraldi Henryssyni. Það sem er forvitnilegast í mál- inu er aðferð oddvitans, Eggerts Haukdals alþingismanns, við að fá fram vilja sinn. Verður ekki annað séð en hann hafi lagt ffam gögn um upplýsingar, sem hann þó hafði ekki aflað sér, bæði gagn- vart landbúnaðarráðuneytinu og Undirrétti. Eina vöm hans var að hann hefði byggt á sögusögnum. EGGERT FANN EKKINÁ- GRANNANA SEM VITNAÐ VARTIL Eftir að ágreiningur kom upp um kaup á jörðinni var málinu skotið til landbúnaðarráðuneytis- ins, sem er úrskurðaraðili í for- kaupsmálum sem þessu. Þangað sendi oddvitinn, Eggert Haukdal, bréf þar sem hann segir: „Voru þeir [nágrannarnir] sammála um, að þeir æsktu ekki nábýlis við kaupendur og var það e.t.v. ekki að ástæðulausu. Afstaða nágrann- anna var mikilvægt atriði í ákvarðanatöku hreppsnefndar- innar...“ Þetta vó þungt þegar iandbúnaðarráðuneytið felldi úr- skurð sinn, en samkvæmt upplýs- ingum ffá Jóni Höskuldssyni, lög- fræðingi ráðuneytisins, vannst ekki tími til að kanna heimildir á bak við þessar fullyrðingar. Sagði hann að ráðuneytið hefði aðeins 28 daga til að íjalla um slík mál en samkvæmt nýjum tiliögum væri ætlunin að lengja ffestinn upp í 60 daga. Að öðm leyti vildi hann ekki tjá sig um málið. í dóminum var málið hins veg- ar rannsakað og eftir að báðir aðil- ar fengu að kalla til vitni komst Undirréttur að eftirfarandi niður- stöðu: „...verður að telja sannað, að stefndi [hreppsnefndin] hafí ekki aflað sér upplýsinga um við- horf nágranna Eystra-Hóls áður en nefndin tók ákvörðun sína, eins og stefndi hefur þó haldið fram í bréfi til landbúnaðarráðu- neytisins, dags. 15. nóvember 1988.“ VITNAÐITIL VIÐRÆÐNA SEM EKKIFÓRUFRAM I áðurnefndu bréfí var einnig vitnað til viðræðna sem hrepps- nefndin var sögð hafa átt við kaupendur jarðarinnar. Um það segir í dómnum: „Ágreiningur er milli málsaðila um, hvort fúlltrúar úr hreppsnefndinni og kaupendur hafi rætt saman um ákvörðun kaupenda áður en hreppsnefndin tók ákvörðun sína. Telja verður, með vísan til skýrslna aðila, að ekki hafi verið sýnt fram á, að slík- ar viðræður hafi átt sér stað... “ Þegar Eggert Haukdal var að endingu spurður við skýrslutöku hvort ákvörðun hreppsnefndar- innar hefði fyrst og fremst verið byggð á sögusögnum svaraði hann: „Að hluta.“ í greinargerð stefnenda er enn- fremur mótmælt þeirri fullyrð- ingu Eggerts að Sigurði Reytiis- syni, sem var sá aðili er hrepps- nefndin vildi selja, hafi verið sett skilyrði um hvernig hann hagaði afnotum af jörðinni. Vitna stefn- endur til framburðar Sigurðar sjálfs og einstakra hreppsnefndar- manna þar sem skýrt hafi komið fram að honum hafi ekki verið sett nein skilyrði af þessu tagi. Virðist dómurinn taka mark á þeim rökum í niðurstöðu sinni. Næsta lítið virðist því standa eftir af framburði Eggerts. Eggert sagðist í samtali við blaðamann sem minnst vilja tjá sig um niðurstöðu Hæstaréttar, enda teldi hann það mistök að hafa látið málið fara áfram til Hæstaréttar. „Þarna má segja að hafi orðið smámistök," sagði Eggert þegar hann var spurður um málið. Ef litið er í undirréttardóminn vekur athygli að þarna eru ýmis atriði í málflutningi ykkar sem engin stoðfimnst fyrir, svo sem að nágrannarnir hafi verið á rnóti þessu? „Þannig var það í upphafi, en síðan var lagst á hluta þeirra og þá breyttistþetta," sagði Eggert. En af niðurstöðu dómsins má ráða að þú hafir haldið fram staðlausum stöfum? „Ég vil nú ekki meina það, mið- að við að við höfðum þetta frá ákveðnum mönnum sem síðan var snúið af veginum með látum og hamagangi hinna.“ Voru þeir þáfengnir til aðfalla frá réttumframburði? „Þeir voru náttúrulega ekki búnir að skrifa undir neitt. Þeir sögðu okkur þetta bara munn- lega. Svo hafði mikið að segja að í Undirrétti sátu ungir lögmenn sem vildu forkaupsréttinn feigan. Þetta voru ungir menn sem vilja frelsi en engin boð og bönn,“ sagði Eggert.__________________ Sigurður Már Jónsson Sigurður Reynisson verktaki ætlaði að ganga inn í kaupin fyrir tilverknað Eggerts. Gunnar H. Árnason, gjaldþrota fyrrum veitingamaður Skrifaði ávísanir af reikningi sem lokað var 1988 Ávísunin sem Gunnar notaði til að greiða Úða- fossi. Umræddum reikningi í Múlaútibúi Lands- bankans var lokað fyrir nær fimm árum. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur verið beðin að rannsaka ávísanaútgáfu Gunnars H. Árna- sonar, fýrrum veitingamanns í Evrópu og Casablanca. Sam- kvæmt heimildum PRESSUNN- AR hefúr Gunnar að undanförnu gefið út fjölda ávísana úr tékk- hefti, en viðkomandi reikningi var lokað fýrir fimm árum eða 1988, um svipað leyti og veitingahúsið Evrópa var tekið til gjaldþrota- skipta. Er talið víst að enn séu all- nokkur blöð ónotuð úr heftinu. Gunnar mun ýmist hafa notað gamla tékkareikningsnúmerið eða tilbúið númer. Samkvæmt heim- ildum blaðsins hefúr Landsbank- inn árangurslaust reynt að hafa uppi á Gunnari til að fá ávísana- heftið. Sjálfur var Gunnar tekinn til persónulegra gjaldþrotaskipta í desember 1989 og gerður eigna- laus upp gagnvart kröfum sem að núvirði hljóða upp á ríflega 80 milljónir króna. Litlum sögum fer af því hvað Gunnar hefur gert undanfarin ár, en síðustu daga hefur hann verið að gefa út um- ræddar ávísanir. 1 tilraunum sín- um til að kría út vörur og þjón- ustu hefur Gunnar sýnt mönnum lánsumsókn upp á 250 þúsund sænskar krónur í sænskum banka, eða sem svarar um 2,5 milljónum króna. RLR hefur borist 5 þúsund króna ávísun sem Gunnar gaf út vegna viðskipta við fyrirtækið Úðafoss og einn- ig ' mun hann meða) annars hafa greitt fyrir vörur hjá versluninni Nóatúni í Kópavogi og hjá skyndibitastaðn- um Bravó með nokkrum ávísun- um af sama lokaða tékkareikn- ingnum, sem var hjá Múlaútibúi Landsbankans. Þá hefur biaðið heimildir fýrir því að Gunnari hafj verið neitað um viðskipti í Herra- húsinu, þar sem hann hugðist kaupa fatnað fyrir stórfé.______ Friðrik Þór Guðmundsson Gunnar H. Árnason. Var gerður upp eignalaus í 80 milljóna króna persónulegu gjaldþroti 1990. Blöndal gerir sér engar grillur um sjálfan sig og mikilvægi sitt og er að því leytinu kærkomin undantekning í ráðherraliðinu. Hann týndist norður í Mý- vatnssveit um helgina, en það hvarflaði ekki að honum að neinn mundi sakna hans, hvað þá heldur efna til leitar að hon- um þótt hann væri að þvælast úti í fárviðri um miðja nótt. Það reyndist rétt. Það var verra með Tómaslnga Olrich, sem var með í för. Halldór hélt að það mundi enginn sakna hans heldur. Það var líka rétt. Haukdal var einu sinni öðrum þingmönnum þjálfaðri í hrossakaupum, en virðist nú vera farið að fatast flugið. Hann var orðinn svo vanur að versla með atkvæði sitt á Al- þingi að hann hélt að hann kæmist upp með það líka sem oddviti í hreppsnefnd Vestur- Landeyjahrepps. En Hæstirétt- ur komst að því að öfúgt við þingmennina gilda landslög um venjulega hreppsnefndar- menn og því hefur hann nú slegið á puttana á Eggerti vegna afskipta hans af jarða- kaupum þar eystra. Af þessu er bara eina lexíu að draga: efþú ætíar að misnota atkvæði þitt, gerðu það á Alþingi, eins og Stefánsson virðist hafa gert. Hann kom inn á þing í nokkra daga um daginn og greiddi at- kvæði með EES-samningnum. Nokkrum dögum seinna kem- ur í ljós að Hafnarfjarðarbær á inni tugmilljónir hjá Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga sem ekki voru þar áður. Það þarf enginn að halda því fram að þetta sé tilviljun, en Guðmundur Árni veit hvað hann er að gera, því skammirnar lenda ekki á hon- um, heldur á Jóhönnu Sigurð- ardóttur, sem má ekki vamm sitt vita frekar en SIGHVATUR Björgvittsson flokksbróðir þeirra, þótt hann hafi nú hækkað verðið á móðurlífs-, eyrnabólgu- og yfirleitt öllum læknisaðgerðum sem hugsast getur. Það erþess vegna dveg maklegt að pólitíski prísinn skuli líka hafa hækkað á að- gerðum ríkisstjórnarinnar, sem hefúr aldrei verið óvin- sælli. Hún er orðin eins og gamall dráttarjálkur: skapstirð, gagnslaus og þung á fóðrum, en of kunnugleg og aumkunar- verð til að slá hana af. Hins vegar mundu fáir sakna henn- ar. Ekki ffekar en Halldórs og Tómasar Inga.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.