Pressan


Pressan - 28.01.1993, Qupperneq 8

Pressan - 28.01.1993, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993 segir fyrrum Eistlendingurinn Tzvi Partel í viðtali við PRESSUNA. Hann segist hafa hitt íslenska ráðamenn að máli vegna Miksons fyrir þrjátíu árum, en þeir hafi ekkert aðhafst. „Mikson er morðingi móður minnar heitinnar og sálugrar syst- ur minnar," sagði fyrrum Eist- lendingurinn Tzvi Partel í samtali við PRESSUNA nú í vikunni. Móðir Partels og systir eru meðal þeirra sem eistnesk vitni halda fram að Evald Mikson hafi nauðg- að og myrt þegar hann var foringi í Omakaitse-sveitum þjóðernis- sinnasumarið 1941. f síðustu viku birti PRESSAN hluta úr nýlegri grein í eistneska dagblaðinu Esti Ekspress, þar sem sagt var frá vitnisburði Hilka Mo- oste (skírnarnafn hennar og ætt- arnafn víxluðust í fyrri umfjöll- im). Hún lýsti því hvemig Mikson hefði niðurlægt og nauðgað konu um fertugt og ungri dóttur hennar að nágrönnum ásjáandi. Aðrir Omakaitse-félagar tóku þátt í nauðgununum, að sögn Mooste. Konan var 39 ára gömul móðir Partels, Leah að nafhi, og stúlkan 15 ára systir hans, Eva. Partel er rúmlega sjötugur og hefur búið í ísrael síðan 1939. Bróðir hans og faðir flúðu Eist- land þegar Þjóðverjar réðust inn í landið og gengu til liðs við Rauða herinn. Að stríði loknu sneru þeir aftur, en komust þá að því að Leah og Eva höfðu verið drepnar. Nágrannar sögðu þeim að þar hefði Mikson verið að verki. At- burðirnir eru sagðir hafa átt sér stað nálægt Tartú, þar sem Mik- son ólst upp. „Mikson var frægur knatt- spymumaður og uppáhald allra á þessum tíma,“ sagði Partel. „Ég dáði hann sem hetju og fór á hvem einasta fótboltaleik. En svo drap hann móður mína og systur. Nágrannarnir, kristið fólk, sáu hvemig Mikson nauðgaði konun- um og myrti á villimannlegan hátt og síðan voru þær urðaðar ein- hvers staðar í þorpinu. Bróðir minn og faðir létu grafa þær ann- ars staðar þegar þeir sneru aftur sex árum seinna. Móðir mín sálug átti skart- gripaverslun og hafði sérstakt dá- læti á hringjum. Hún átti poka með fallegum hringjum sem hún hafði eignast, en þeir rændu því öllu af samviskuleysi, eftir að hafa nauðgað þeim og drepið á hrotta- legan hátt.“ BAÐ ÍSLENSKA RÁÐAMENN AÐ AÐHAFAST í MÁLINU Partel er skýr, ern og vel máli farinn, en það má greina á mæli hans að það tekur á að rifja upp örlög fjölskyldunnar. Hann segist áður hafa reynt að vekja athygli ís- lenskra stjórnvalda á glæpum Miksons, en án árangurs. Hann segist til dæmis hafa hitt íslenska ráðamenn í ísrael fyrir um það bil þijátíu ámm, en þorir ekki að full- yrða hvort þar var forseti fslands eða ráðherrar á ferð. „Fyrir 30-35 árum voru ís- lenskir ráðamenn í heimsókn í 4-5 daga í ísrael og hittu meðal annarra Ben Gurion. Þegar ég frétti að von væri á þeim fór ég ffarn á að fá að hitta þá. Þegar ör- yggiskröfum hafði verið fullnægt gekk ég á fund manns, forseta eða ráðherra, og sagði honum frá Mikson. Ég lét hann hafa bréf og eintak af bók Erwins Martinsons á ensku. Ég bað hann að gera eitt- hvað í málinu. Hann lofaði að grennslast fyrir um það og lofaði öllu fögm, en það varð ekkert úr því. Ég heyrði aldrei í honum aft- ur.“ Bókin, sem Partel nefhir, heitir „Þjónar hakakrossins" og fjallar um stríðsglæpi nasista í Eistlandi. Hún kom út árið 1961. Ekki hefur fengist staðfest hvaða ráðamaður það var, sem Partel segist hafa hitt að máli, en á þessum tíma vom fs- lendingar þrisvar í opinberri heimsókn í fsrael. Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráðherra fór þangað í ágúst 1960, en það var áður en bók Martinsons kom út. Bjarni Benediktsson forsætis- ráðherra var í fsrael í byrjun sept- ember 1964 og Ásgeir Ásgeirsson forseti árið 1966 ásamt Emil Jóns- syni utanríkisráðherra. Einhver þeirra virðist vera sá sem tók við gögnunum frá Partel og lofaði að kanna málið. Rétt er að hafa í huga að þetta er eftir að mál Miksons kom fýrst upp á íslandi árið 1961 í kjölfar skrifa Þjóðviljans um það. Þá var Bjarni Benediktsson dómsmála- ráðherra og lýsti því yfir að ekkert yrði aðhafst í máli Miksons, enda væm ásakanirnar byggðar á upp- lognum áróðri frá leyniþjónustu Sovétríkjanna. VILL MIKSON FYRIR RÉTT „Ég hef reynt að láta réttlætið ná fram að ganga, en án árang- urs,“ segir Partel. „Ég er orðinn ekkill og einstæðingur og varla „Mikson varfrægur knattspyrnumaður og uppáhald allra á þessum tíma," segir Tzvi Partel. „Ég dáði hann sem hetju og fór á hvern ein- asta fótboltaleik. En svo drap hann móður mína og systur." fær til stórra verka lengur eftir hjartaaðgerðir. Það er mín eina ósk að Mikson verði færður fyrir rétt og dæmdur fyrir morðið á ættingjum mínum. Ég mundi svo sannarlega bera vitni um það sem ég veit ef ég væri beðinn um það. En trúlega verður ekkert af því héðan af. Ég hef ekki áhuga á skaðabót- um eða peningum. Mikson á ekk- ert annað skilið en að verða hengdur á gálga fyrir það sem hann gerði. Þessi morðingi situr hins vegar uppi á fslandi þar sem haldið er hh'fiskildi yfir honum. Umheimin- um virðist vera sama um það sem gerðist, svo það gleður mig meira en orð fá lýst að þið skulið sýna málinu áhuga, máli milljóna manna sem voru myrtir, máli móður minnar og systur. Fólk á að fá að heyra um þetta.“ Karl Th. Birgisson Búnaðarbankinn í klípu: Stungu af tll Afrfku frá 47 millióna shuld Búnaðarbankinn hefur birt greiðsluáskorun til forráða- manna hlutafélagsins Ballskák- ar um að standa skil á samtals 47 milljóna króna skuld þeirra við bankann. Bankinn á þó takmarkaða möguleika á að fá skuldina greidda, þar sem allir stjórnarmenn Ballskákar, Gylfi Snædal Guðmundsson, Guð- rún Skarphéðinsdóttir, kona hans, og Ruth Gylfadóttir, dóttir þeirra, eru nú búsettir í Suður- Affíku. Ekki aukast möguleikar bankans á því að fá skuldina greidda við þá staðreynd að þvert gegn því sem kemur fram í greiðsluáskorun bank- ans er Ballskák hf. alls ekki þinglýstur eigandi að þeirri fasteign sem sett var að veði vegna skuldarinnar. Skuldin er samkvæmt tveimur veðskuldabréfum, sem Sláturfélag Suðurlands gaf upprunalega út í september 1989. Annað bréfið var upp á 450 þúsund þýsk mörk en hitt upp á 225 þúsund dollara. Tveimur mánuðum síðar var gerð nafnbreyting á bréf- unum þegar nýr greiðandi tók við þeim, Ballskák hf. Átti að greiða bréfin með 15 jöfnum greiðslum á 6 mánaða fresti, í fyrsta sinn í september 1991. Til tryggingar var tekið veð í 2. hæð Grensásvegar 14. Sam- kvæmt greiðsluáskoruninni er það þinglýst eign Ballskákar. Samkvæmt gögnum sýslu- mannsins í Reykjavík er þetta þinglýst eign Naustaborgar hf., sem nú ber nafnið Grensásveg- ur hf., en um það félag hefur verið fjallað í PRESSUNNI vegna fjársvikamála. Forráða- menn þess félags eru þeir Ág- úst Fylkissott, Jón Magnússon og Orn Karlsson. Félag þetta keypti eignina af SS í ágúst 1991, en leigði hana mánuði síðar Sigurði Erni Sigurðssyni Hagskiptamanni, sem einnig hefur verið til umfjöllunar í PRESSUNNI. Vanskilatilkynningum bankans hefur í engu verið sinnt. Verði skuldin ekki greidd eða um hana samið fyrir næstu mánaðamót mun bankinn krefjast nauðungarsölu á fast- eigninni við Grensásveg. „Mikson my móður mína og systur" VIKAN FRAMUNDAN 28. janúar 1986 sáu milljónir manna bandarísku geimfeijuna Challenger springa í loft upp í flugtaki. Meðal þeirra sem fórust var gagnfræðaskólakennarinn Christa McAuliffe, en til stóð að hún héldi kennslustund fýrir börn utan úr geimnum. 28. janúar 1935 varð fsland fýrsta landið sem lögleiddi fóst- ureyðingar. 28. janúar 1725 lést Pétur mikli Rússakeisari, 53 ára að aldri. 29. janúar 1988 framdi óperu- söngvarinn Dantcho Bantchev- sky sjálfsmorð með því að kasta sér af svölum Metropolitan- óperuhússins í New York. Það gerði hann á meðan á sýningu á Macbeth eft ir Verdi stóð. 30. janúar 1933 varð Adolf Hitler kanslari Þýska- lands. 30. janúar 1948 var indverski mannréttindafrömuðurinn Ma- hatma Gandhi myrtur. 30. janúar 1965 var Winston Churchill jarðaður. 30. janúar 1973 komu Bítlarnir fram 1 síðasta sinn opinberlega en þá spiluðu þeir á þaki höfuð- stöðva Apple-fýrirtækjasam- steypunnar í London. 31. janúar 1943, fýrirnákvæm- lega 50 árum, gáfust Þjóðverjar upp fyrir Rauða hernum við Sta- língrad. Mánuðina á undan höfðu farið fram sérlega blóðug- ar orrustur milli herjanna og er talið að minnsta kosti 850 þús- und þýskir hermenn hafi farist. Svipaðar tölur hafa verið nefndar um mannfall hjá Rússum. 1. febrúar 1790 kom hæstirétt- ur Bandaríkjanna saman í fyrsta skipti. 1. febrúar 1979 var knatt- spyrnukappinn Trevor Francis, fýrstur enskra leikmanna, seldur fýrir eina milljón punda. Það var Nottingam Forest sem greiddi þessa upphæð fýrir hann. 1. febrúar 1979 kom Ayatollah Khomeini aftur til frans eftir hafa verið 16 ár í útlegð. 1. febrúar 1981 varð Gro Harl- em Brundtland fyrst norskra kvenna til að verða forsætisráð- herra. 2. febrúar 1852 var fýrsta almenn- ingssalernið fýrir karlmenn opnað á Bret- landi. 2. febrúar 1970 lést nóbelsverð- launahafinn Bertrand Russel. 2. febrúar 1979 lést Sid Vicious, aðeins 21 árs að aldri. Sid, sem lék á bassa í hljómsveitinni Sex Pistols, mun vera frægasti ræfla- rokkari allra tíma. 2. febrúar 1986 fengu konur í fyrsta skipti kosningarétt í Liech- tenstein. 3. febrúar 1468 lést Johann Gu- tenberg, nú kunnur sem faðir prentlistarinnar. 3. febrúar 1963 lést dægurlaga- söngvarinn Buddy Holly í flug- slysi. 3. febrúar 1969 varð Yasser Arafat leiðtogi PLO, frelsissam- taka Palestínuaraba. 3. febrúar 1989 lét P.W. Botha af embætti forsætisráðherra Suð- ur-Afríku. AFMÆLI 28. janúar Henry Morton Stanley fæddist þennan dagárið 1841. Hann vann sér það helst til frægðar að ferðast inn í svörtustu Afríku til að leita félaga síns, dr. Living- stones. Gunnþórunn Jónsdóttir, ekkja Óla Kr. í Olís, verður 47 ára. Jón L. Amalds ráðuneytisstjóri verður 58 ára. Karólína Guðmundsdóttir verkffæðingur verður 38 ára. 29. janúar Germaine Greer, rithöfundur og femínisti, fæddist þennan dag fyrir 54 árum. Anna K. Jónsdóttir borgar- málafrömuðurverður41 árs. Ingvi I. Ingvason, forstjóri Raf- ha, verður 49 ára. 30. janúar Gene Hackman leikari verður 52 ára. Ragnar Tómasson lögffæðing- ur verður 54 ára. Aðalsteinn „ríki“ Jóns- son á Eski- firði verður 71 árs. 31.janúar Frans Schu- bert tónskáld fæddist þennan dagárið 1797. Phil Collins poppstjarna verður 42 ára. Einar J. Gíslason í Fíladelfíu á stórafmæli, verður sjötugur. 1. febrúar Clark Gable kvikmyndastjarna fæddist árið 1901. Jón Ásgeirsson, formaður HSÍ, verður 56 ára. Ólafur Stephensen auglýsinga- frömuður verður 57 ára. 2. febrúar James Joyce rithöfundur fædd- ist árið 1882. Jusse Björling tenórsöngvari fæddistárið 1911. ■ Pétur Pét- ursson læknir verð- ur 46 ára. Sveinn E. Ulfsson, veitingamað- ur og verk- taki, verður 43 ára. Ólafur Björnsson, fyrrverandi prófessor, verður 81 árs. 3. febrúar Gertrude Stein, rithöfundur og gagnrýnandi, fæddist árið 1874. Jóhann Ágúst Sigurðsson læknir verður 45 ára. Hrafnkell A. Jónsson, varaþing- maður og verkalýðs- frömuður, verður 45 ára. Böðvar Guðmundsson rithöf- undur verður 55 ára.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.