Pressan - 28.01.1993, Síða 10

Pressan - 28.01.1993, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993 30 konur hafa leitað skjóls í Kvennaathvarfinu vegna ofsókna HMVHUTUIBT •FBELDI, NJRNIR, INNBROTS MORBMtaNII PRESSAN/JIM SMART Þolendur ofsókna mega búa við skert persónufrelsi, þjakaðir af ótta og kvíða. Á þeim hvílir sönnunar- byrði tem erfítt reynist að framfylgja þegar til málaferiakemur. Of- sóknir viðgangast því og lítt er aðhafst þrátt fyrir alvöru málsins. Reynt hefur verið að knýja á um lagabreyt- ingar til að gera ger- endum erfiðara fyrir með að stunda iðju sína. Mikil aukning hefur orðið á þeim íjölda kvenna sem leitað hafa aðstoðar Samtaka um kvennaathvarf vegna alvarlegra ofsókna af hálfu fyrrum sambýíis- manna og eiginmanna. Af 217 konum leituðu liðlega 30 konur skjóls í athvarfmu árið 1991 vegna ofsókna. Talan hækkaði til muna á síðasta ári. Ofsóknir sem þessar teljast til alvarlegra sakamála sem þó reynist erfitt að færa sönnur fyrir og eru sjaldan kærð. Þau eru því mun algengari en opinberar tölurgefatilkynna. Vegna erfiðrar sönnunarbyrði eru dómsmál fágæt, en í þessum málum sem öðrum er í gildi hin almenna regla að maður er sak- laus þar til annað sannast. Þolandi þarf því að afla sönnunargagna með einum eða öðrum hætti svo fella megi dóm í máli. f fram- kvæmd reynist það afar erfitt og neiti ákærði sakargiftum er um að ræða staðhæfmgu gegn staðhæf- ingu og málið andvana fætt; grundvöllur kærumáls horfinn og gerandi kemst upp með þann ásetning að gera fórnarlambi sínu lífið leitt með áframhaldandi of- „Þetta eru engir pústrar á jafn- réttisgrundvelli og álagið er svo skelfilegt að vart er hægt að lýsa því," segir Jenný Anna Baldursdóttir hjá Samtökum um kvennaathvarf. sóknum. Ofsóknarþoli er oft hjálparvana og skelfmgu lostinn og þegar sýnt er að yfirvöld geta lítt aðhafst í máli hans gefst hann upp og aðlagast ástandinu. Erfið sönnunarbyrði Árið 1975 var kveðinn upp dómur í Hæstarétti þar sem synj- að var kröfu ákæruvaldsins um gæsluvarðhald yfir manni sem of- sótt hafði konu um langt skeið með svo grófum hætti að um tíma þurfti hún lögreglufýlgd. Svo langt hafði hann gengið í aðför sinni að það dugði honum að keyra ffarn- hjá vinnustað konunnar til að vekja með henni óhug. Maðurinn starfaði á þeim tíma sem leigubíl- stjóri og því vandkvæðum bundið að meina honum akstur nærri heimili hennar eða vinnustað. Sönnun um ofsóknir var nánast ómöguleg. Mál þetta, sem hefur verið kall- að „Málfríðardómurinn", hafði í för með sér að ári síðar var refsi- mörkum breytt. Upp frá því gátu ofsóknir á hendur öðrum varðað fangelsisvist, en hámark refsingar fyrir breytingu hafði aðeins verið sex mánaða varðhald. Var það hækkað í sex mánaða fangelsi eða varðhald í ótiltekinn tíma. Sönn- unarbyrðin hélst hins vegar óbreytt. Að sögn Þóris Oddssonar vara- rannsóknarlögreglustjóra er sönnunarbyrði afar erfið og af þeim sökum fari fá mál fyrir dóm- stóla. „Jafnvel þótt kærur séu margar í einstöku máli er megnið af þeim ósannað þar sem ákærði ber að öllu jöfnu af sér allar sakir og sönnunargögn eru fá eða eng- in. Dómari eða ríkissaksóknari geta ekki sakfellt meintan geranda ef sýnt þykir að það leiði til sýknu fyrir dómi og hvorki liggja til grundvallar sönnunargögn né framburður vitna. Því er fátt sem styður meint kæruefni.“ Þórir seg- ir menn einkar snjalla í ofsóknar- aðferðum sínum og takist í all- flestum tilfellum að komast hjá því að vera staðnir að verki. „Eftir góða rispu nægir þeim oft að sýna sig, en engin leið er að sanna augnatillit eða andlitsgrettu." Hann segir ennfremur að vand- kvæðum sé bundið að koma við eftirliti eða veita ofsóttri mann- eskju vernd, þar sem hvorki sé fyrir hendi mannskapur né fjár- munir og þjóðfélagið að auki það lítið að gerandi átti sig nær sam- stundis á því að með gerðum hans er fylgst. Hefur hann þá hægt um sig rétt á meðan og hefur jaftivel gaman af þegar hann sér að tilvera fómarlambsins er komin á hvolf. Engir pústrar á jafnréttisgrund- velli Hugmyndaauðgi gerenda virð- ast fá takmörk sett. Sífelldar ógn- anir um að gera illt, stöðugar sím- hringingar, heimsóknir á vinnu- stað eða skóla barnanna eru vel- þekktar aðferðir. Algengt er einnig að þolanda sé veitt eftirför eða brotist inn á heimili hans og hann beittur þar ofbeldi, líkamlegu eða kynferðislegu. Jafnvel em hafðar í frammi hótanir um að drepa börnin, hengja móðurina eða skera á háls; bæði beinar og óbeinar morðhótanir. Birtingar- myndir ofbeldisins geta einnig fal- ist í branasárum og beinbrotum og því að gæludýr séu drepin að börnunum ásjáandi. Þau eru einnig gjarnan vakin upp til að horfa á þegar faðirinn beitir móð- urina ofbeldi og dæmi eru um gerendur sem hafa setið tímunum saman með byssu við gagnaugað meðan fjölskyldan fylgist með í skelfingu. Þá hafa verið brögð að því að menn skrái lögheimili sitt á heimili konunnar effir skilnað að borði og sæng og fær lögreglan lítt að gert ef til átaka kemur inni á heimilinu. „Þetta eru engir pústrar á jafn- réttisgrundvelli og álagið er svo skelfilegt að vart er hægt að lýsa því,“ segir Jenný Anna Baldurs- dóttir hjá Samtökum um kvenna- athvarf. „Dæmin sem nefnd hafa verið hér á undan era engin und- antekningartilvik, en ofbeldi í sambúð kemur oft á undan sjúk- legum ofsóknum. Er maðurinn þá oftast búinn að sýna það sem í honum býr og hvers hann er megnugur. Það verkar mjög „vel“ á þolandann. Þessar konur búa við stöðuga lífshræðslu og læra hvemig á að haga sér til að komast hjá aðgerðum af hálfu geranda. Það er ein ástæða þess að konur draga kæru sem þær hafa lagt fram til baka í von um að þær fái ffið. Slík eftirgjöf getur hins vegar

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.