Pressan - 28.01.1993, Síða 11

Pressan - 28.01.1993, Síða 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993 11 haft þveröfug áhrif og valdið því að maðurinn gangi enn harðar fram en áður. Svona lagað lagast aldrei af sjálfu sér og eina leiðin út er að leita réttar síns með hjálp réttra aðila.“ Jenný segir að hótan- ir beri ævinlega að taka alvarlega og kæra hvert einasta lítið atvik, taka upp símtöl og halda jafnvel dagbók. Gera hvaðeina til að afla sér einhverra sönnunargagna. Gerandinn ótrúlega útsmoginn Markmiðið með ofsóknum er alla jafna það að konur taki aftur við fyrrum maka sínum eða sam- býlismanni, sem finnst eðlilegt að beita ofbeidi til að ná fram vilja sínum, þótt alloft virðist tilgang- urinn alls enginn og með öllu óskiljanlegur. Yfírleitt þekkir ger- andinn þolandann og er reyndar afar sjaldgæft að um annað sé að ræða. Það er nánast regla að áður en til aðgerða kemur af hálfu brotaþola hefur hann lengi reynt að hafa gerðir gerandans að engu og búið við stöðugt ónæði. Sumir hafa látið slíkt háttalag líðast um árabil áður en nokkuð er að gert. Reynir þolandi að afstýra því með einhverjum hætti og gerir jafnan ítrekaðar tilraunir til að tala um fyrir viðkomandi. Þrautalending- in er að leita til lögreglu og eru menn loks sóttir til saka ef nægi- legar sannanir virðast liggja fyrir athæli þeirra. Þeir sem til þekkja eru almennt á einu máli um að einungis lítill hluti brota komi til meðferðar dómsvaldsins og þau mál sem lögreglan fær til meðferðar leysist oftar en ekki með lögregluáminn- ingu, þar sem brotaþoli hefur sjaldnast í hyggju að sakfella við- komandi og vakir eingöngu fyrir honum að öðlast frið. Áminning er hins vegar ekki refsing sem slík en er þó skilyrði refsiábyrgðar og saksóknar. Reynist hún duga til að menn láti af hátterni sínu hefur málið hlotið formlega afgreiðslu þótt ekki hafi það leitt til dóms. „Áminning stöðvar sjaldan þann sem virkilega hefur í hyggju að halda ofsóknum sínum áfram,“ segir Jenný. „AJgengt er því að h't- ið sé að gert og ofsóknirnar fái að viðgangast. Gerendur vita ná- kvæmlega hvernig þeim ber að haga sér svo sönnunargögn finnist ekki, og því síður vitni. Það getur þá jafnvel farið svo að þolandan- um sé ekki trúað.“ Nálgunarbann mundi flytja fjöll Samtök um kvennaathvarf lögðu á síðasta ári fram tillögu um breytingar á hegningarlögum í samráði við Tryggva Agnarsson lögfræðing. í þeim fólst að svo- kallað nálgunarbann (restriction order) kæmi til viðbótar lagaregl- unum sem þegar eru fyrir hendi, sem felur í sér að sá er yrði sann- anlega uppvís að ofsóknum ætti yfir höfði sér dómsúrskurð, skil- orðsbundinn að því leyti að í ákveðinn tíma væri honum mein- að að vera á ferli nálægt heimili, skóla og öðrum þeim stöðum sem þolandinn er mikið á. Brot á þess- ari grein hegningarlaganna mundi varða fangelsisvist. Dómsmála- ráðuneytið hefur fyrirhugað að skipa nefnd upp úr mánaðamót- urn sem fjalli mun nánar um til- lögurnar, en Jenný telur nálgunar- bann stórt skref fram á við. Það mundi ekki leysa vandann en væri mikið öryggisatriði. „Það er mikill skilningur hjá lögreglu á þessum málum en þeir standa jafnráð- þrota og aðrir því lagabókstafur- inn, í þeirri mynd sem hann er nú, virðist lítt fallinn til að taka rétti- lega á málum. Þessi skilningur breytir þó engu um fátækt úr- lausna og ef breytingatillögurnar ná ekki fram að ganga viðhelst núverandi fyrirkomulag. Sam- ræmd vinnubrögð lögreglu, lækna og annarra mundu flytja fjöll, en við verðum að átta okkur á að þetta eru afbrot — ekki sam- skiptaörðugleikar.“ Telma L. Tómasson ,Það er ekkert venju- legt heilbrigt fólk sem eyðir tíma sínum í að úthugsa allan þatm óþverra sem viðgengst \ Umálumsem Ægm þessu oggeysi- 41 legt hugmyndaflug þarftil áðupphugsa ’ allar leiðirnar sem farnar eru. Ég bý við stöðugan ótta oger ávallt í viðbragðs- stöðu.“ „Þetta er stöndugur og fínn borgari" - „og ég er stöðugt á varðbergi” „Morðhótun fékk mig loks til að kæra“ - segir rúmlega tvítug kona sem sætt hefur kúgun og ofbeldi um árabil „Ég hafði lifað við ofbeldi í hjónabandi um árabil og margoft haft ástæðu til að kæra manninn minn fyrrverandi. Ég gerði það hins vegar aldrei. Láttu kyrrt liggja barnanna vegna, sagði ég við sjálfa mig. Þvílík mistök,“ segir kona á miðjum aldri sem við köllum Ragnheiði. Hún kemur vel fýrir, virðist sterkur einstaklingur og ekki sjáanlegt að hún hafi búið við ofbeldi og ofsóknir í langan tíma. „Það þekkir mig enginn fyrir sömu manneskju og kom í Kvennaathvarfið fyrir nokkrum árum. Þá þorði ég ekki út úr húsi; svaf, grét, titraði og skalf í hálfan mánuð, var í raun helsjúk mann- eskja sem hafði logið og stundað feluleik í langan tíma.“ Ragnheiður og eiginmaður hennar voru vel efnuð, hann í góðri stöðu, og engar gárur sýni- legar á yfirborðinu. Annað bjó þó undir. „Þegar ég braust út úr þessu ástandi og hugðist byggja mig upp að nýju hræddist mótað- ilinn að upp kæmist um allan þann óþverra sem viðgekkst í sjúku hjónabandinu og upphófúst þá ofsóknir á hendur mér. Ger- andinn í mínu tiifelli er haldinn óstjórnlegri eignarréttarsýki og hann leitar allra leiða til að láta mér og börnum mínum líða sem verst og reynir að kvelja mig sem mest. I upphafi átti að koma mér á kaldan klaka fjárhagslega, en þeg- ar það mistókst reyndi maðurinn að neita mér um skilnað. „Hann hóf að vekja hana upp að nóttu með símhringingum og tók upp þann sið að hanga fyrir utan heimili hennar og hafa í hótunum um að pynta hana og drepa. Hann réðst á bíl hennar, skar á dekk og vann á honum aðrar skemmdir. Hann kom á vinnustað hennar og sat fyrir börnunum í skólanum þannig að þau voru með stöðugan magaverk af ótta. Það gekk svo langt að einu barnanna var rænt oghaldið nauðugu. „Barnaverndaryfirvöld brugð- ust ekki við og þurfti fógetavald til að endurheimta barnið,“ segir Ragnheiður. „Ég finn fýrir reiði í garð opinberra aðila, sérstaklega forræðisdeildar barnaverndar- nefndar, sem er fáliðuð og ekki fær um að sinna málum sínum sem skyldi. Það er með ólíkindum þegar ofsóknir hefjast í gegnum kerfið allt og deildir ráðuneytisins, og þessar leiðir eru notaðar til að knésetja mann og taka burt böm- in. Það er allt fundið til og í stað þess að veitt sé hjálp er ráðist að manni. Það er mannlegt eðli að snúast til varnar, en þessi vamar- staða er ákaflega veik. Á stundum reynist að vísu erfitt fyrir hið opin- bera að sjá sjúkleikann sem liggur að baki „prýðismanni" og mekt- arborgara og því enn mikilvægara að viðhafa vönduð vinnubrögð. Mistök geta verið dýrkeypt.“ f tilfelli Ragnheiðar vom börnin skilin að um tíma en nú á hún að baki sex ára baráttu við fýrrum eiginmann sinn, sem heldur áffam ofsóknum sínum þrátt fýrir að hafa hafið sambúð með annarri konu, og telur Ragnheiður dæmi sitt síður en svo einstakt. Hún seg- ist smám saman vera að komast yfir Jnæðsluna og að hún styrkist með degi hverjum. Hún segir að lögreglan hafi reynst sér vel. „Þetta er ekki drukkinn róni sem við er að eiga, heldur stöndugur og fínn borgari bæði hvað þjóðfé- lagsstöðu snertir og íjárhagsstöðu. Hann kemur ákaflega vel fýrir og við getum talið hann til „aristó- kratanna“ hér í bæ. Lögreglan stendur ráðþrota frammi fyrir klækjum slíks ofbeldismanns þeg- ar hann grætur, iðrast og ruglar alla í ríminu, jafnvel þótt heimilið sé eins og blóðugur vígvöllur og bömin öll í uppnámi. Ég hef aldrei kært hann því sönnunarbyrðin er erfið og ég hef ef til vill stjómast af kjarkleysi. Það þarf samvinnu milli aðila sem eiga við mál af þessu tagi. Þegar einstaklingur kemur á sjúkradeild — greinilega með áverka af mannavöldum og búið að vinna á honum voðaverk, en með ótrúlegustu lygar á tak- teinum eins og ég bar fyrir mig — ber lögreglu og læknum að grípa inn í á einhvern máta. Manneskj- an sjálf er svo dofin og skilaboðin svo röng að henni dettur ekki í hug að sinna sínum málum. Ein- staklingur sem býr við þessar að- stæður er í raun ósjálfbjarga." Ragnheiður telur nálgunar- bann eina úrræðið til að tryggja börnum sínum og sér sjálfri frið og áminning lögreglu hafi lítið að segja. „Við höfum löngu slitið samvistir og því er ekki lengur um hjónaerjur að ræða. Línur eru hins vegar óskýrar milli þess sem álitið er opinbert mál og þess sem talið er til einkamála. Ef maðurinn bryti nálgunarbann þyrfti hann að súpa seyðið af því og tæki ábyrgð á því að trufla heimilislíf okkar. Forhertur maður hlær að áminn- ingu og hæðist að lögreglunni fyr- ir það og því þarf að koma á regl- um sem hindra menn í að stunda iðju sína. Það er ekkert venjulegt heilbrigt fólk sem eyðir tíma sín- um í að úthugsa allan þann óþverra sem viðgengst í málum sem þessu og geysilegt hug- myndaflug þarf til að upphugsa allar leiðirnar sem farnar eru. Ég bý við stöðugan ótta og er ávallt í viðbragðsstöðu. Það er smánar- blettur á þjóðfélaginu að þetta skuli vera látið viðgangast. Eg hef hins vegar trú á því að þessu linni.“ Hún er rétt rúmlega tvítug en hefur þó mátt þola ofbeldi og kúg- un í mörg ár af hendi fýrrum sam- býlismanns. Eftir samvistarslit hefur hann margsinnis ógnað henni og setið um heimili hennar. Hún kærði hann að lokum þegar hann hótaði henni lífláti og fengu hún og börn hennar lögreglufylgd dagana á eftir. „f mínu tilviki var sjaldan um að ræða gróft líkam- legt ofbeldi, þótt hann væri stöð- ugt að dangla í mig, toga í hár mitt eða sparka til mín. Eg bjó hins vegar við stöðuga kúgun af hans hálfú. Ef ég kom hálftíma of seint úr vinnu hófust yfirheyrslurnar: Hvar hafði ég verið, við hvern hafði ég talað og um hvað hafði verið rætt, — hann var sjúklega hræddur um að talað væri illa um hann. Þá sjaldan ég fór á skemmtistað var því haldið fram að ég hefði verið með öðrum mönnum og því hætti ég að fara nokkuð. Aðeins einu sinni þurfti ég að fara á slysavarðstofu illa særð, en þá hafði ég barist heila nótt og óttaðist að þetta væri mitt síðasta. Ég var yfir mig hrædd en kærði ekki og get vart lýst því hvernig mér leið; ég var dofin og sá enga undankomuleið. Þegar svo er í pottinn búið tileinkar maður sér hegðun sem gerir lífið sem léttbærast og allt líf manns stjórnast af sálarástandi gerand- ans. Eftir átökin dó eitthvað innra með mér, en ég reyndi ekki að spyrna á móti aftur fyrr en ég skildi endanlega við hann nokkr- um árum síðar. Þá var hann, eins og alltaf, fúllur samsæriskenninga og taldi alla vera að vinna gegn sér. Samkvæmt honum rættist það allt eftir skilnaðinn og mér var kennt um ófarimar.“ Stúlkuna, sem nefnd verður Sólveig, skorti kjark til að „flýja“ á eigin spýtur með börn sín og naut við það aðstoðar bróður síns. Hún mátti þola daglegar hringingar fyrst eftir skilnaðinn þar sem hann hafði í hótunum við hana. Stundum kom hann. „Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að taka börnin mín og fara út í bíl af ótta við að hitta hann á leiðinni niður stigana. Hann hefði gengið frá mér. Því var það sem bróðir minn aðstoðaði mig og beindust lífláts- hótanir gegn honum á eftir. „Bróðir þinn verður ekki langlíf- ur,“ sagði fýrrum sambýlismaður minn, „þú átt eftir að sjá eftir þessu.“ — Hann neytir mikils áfengis og annarra vímugjafa og líf hans gengur út á að afla sér þeirra. Hann er því langoftast undir áhfrifúm en það breiðir ekki yfír þá staðreynd að maðurinn þarf á hjálp að halda." Maðurinn fýlgdist grannt með Sólveigu og beið á stundum eftir henni þegar hún kom heim. Henni var nóg boðið þegar hann sat fyrir henni í bíl hennar að morgni dags og hótaði henni Iíf- láti. Leitaði hún þá til lögreglu. „Þetta var í fýrsta og eina skiptið sem ég kærði hann,“ segir Sólveig. „Hann hótaði mér morði oftar en einu sinni og ég trúði að honum væri alvara. Það kemur mér ekk- ert lengur á óvart.“ Maðurinn var þó ekki kallaður til yfirheyrslu fýrr en fjórum dögum síðar og undrast Sólveig tímann sem það tók að kalla hann fýrir, en hún og börn hennar nutu lögregluverndar dag- ana á eftir. „Þegar ég kærði varð honum Ijóst að mér var alvara og hann lét sér segjast. Börnin eru hins vegar hrædd við hann og enn talar hann auðmýkjandi bæði til mín og þeirra. Hræddust er ég um að hann komi börnunum að óvörum og þau skil ég ekki eftir ein heima. Þegar síminn hringir á ég von á að hann sé á línunni og er í sífelldri spennu. Hann hefur alltaf getað hrætt mig til að gera alla skapaða hluti.“ Sólveig býr nú ein og er að koma undir sig fótunum. Hún hefur í þrígang þurft að leita í Kvennaathvarfið en getur ekki hugsað sér að stofna heimili með öðrum manni enn sem komið er. Hún notar öryggishnapp frá Secu- ritas, sem veitir manninum ákveðið aðhald. „Þetta heldur honum ffá en ég er þreytt og reið yfir því að hann skuli endalaust geta látið allt hrynja í kringum mig. Eina leiðin til að losna undan honum er að hann fái dóm og láti mig í fríði. Hart skal mæta hörðu því samningar duga ekki. Ég finn enga skýringu á því af hverju hann lætur mig ekki í friði, en jafnffamt reyni ég að svekkja mig ekki á for- tíðinni, þar sem ég veit nú að það má sleppa úr svona ástandi. Ég skal berjast við hann svo lengi sem ég lifi, því það er fullkomið óréttlæti að hann geti rústað líf heillar fjölskyldu og komist upp með það.“ „Égskal berjast við hann svo lengi sem ég lifi, þvíþað er fullkomið óréttlœti að hann geti rústað lífheillarfjölskyldu og komist upp með það.“ „Það er fyrst og fremst harka sem gildiren aldrei reynist hægt að semja og því finnst engin sanngirni í þessu, ekk- ert réttlæti." Ilng ein- stæð móðip dæmigent fonnanlamb - segir Tryggvi Agnarsson lögfræðingur „Oft er um brotaröð að ræða og málið fer sjálfkrafa í gang þegar kært er. Rannsókn máls- ins er í höndum lögreglu, en reynist ásakanir nægilega al- varlegar tekur ríkissaksóknari ákvörðun um hvort ákæra verður lögð fram í málinu og hvort það fer fyrir dómstóla. Reynsla mín er að því kröffugri sem andstaða þolandans er þeim mun meiri reynist mót- staðan vera. Ung einstæð móð- ir er dæmigert fórnarlamb þótt ofsóknir fyrirfinnist í öllum þjóðfélagsstiganum, en upp- gjöf getur reynst hverjum sem er afdrifarík og ber þolendum að leita aðstoðar hið fýrsta, ýmist hjá Kvennaathvarfinu eða hjá lögmanni. Aðstoð er af- ar mikilvæg en ekki er síður mikilvægt að þolandinn byggi upp sjálfstraust," segir Tryggvi Agnarsson lögmaður. Aðspurður um álit sitt á nálgunarbanni sagði hann: „Ég vil fara ákaflega varlega í að snúa sönnunarbyrðinni, en með tillögu okkar er henni hnikað ögn til. Þetta er nýtt réttarúrræði sem bannar við- veru á ákveðnum stöðum og gefur möguleika sem við höf- um ekki núna. Ef þessi laga- breyting næði fram að ganga mundi hún vissulega bæta stöðu fórnarlambsins.“ Tryggvi segir að gerendur verði venjulega uppvísir að heilum flokki glæpa gagnvart fólki og venjulegt fólk trúi því vart að slíkt geti átt sér stað. „Fólk skilur ekki hvernig „góði eiginmaðurinn" getur fengið af sér að stunda slík myrkraverk, en þeir eru svo einbeittir í óþverrabrögðum sfnum að ekkert sem þeir gera getur tal- ist eðlilegt. Mynd gerenda af lífinu er allt öðruvísi en ann- arra og lemja þarf raunveru- leikann inn í þá með fjölda kærumála. Það er fyrst og fremst harka sem gildir en aldrei reynist hægt að semja og jví finnst engin sanngirni í )essu, ekkert réttlæti. Sönnun- arbyrðin er afleit, en mál ættu að leysast með samstarfi og skilningi.“

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.