Pressan - 28.01.1993, Síða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993
15
Hjálmar Hjálmarsson grínar að öllum líkind-
um miklð í Sjónvarpinu á næstunni.
Baharadrengurinn.
fréhamaöurinn
og Shitfi frahhinn
„Mmm, ég vil ekkert um það segja,“ sagði
Hjálmar Hjálmarsson leikari, aðspurður um
það hvort hann væri hinn spaki fréttamaður
Haukur Hauksson. PRESSAN hefur hins vegar
öruggar heimildir fyrir því að Hjálmar bregði
sér af og til í búning fréttamannsins Hauks,
sem haldið hefúr uppi heiðri fréttastofu ríkisút-
varpsins að undanförnu og sagt ferskari fréttir
en margir kollegar hans.
Margt er annars á döfinni hjá Hjálmari, því
hann er nýjasti meðlimur glenshópsins sem
halda mun uppi fjöri á Hótel Sögu í vetur. Auk
hans verða þeir hálffyndnu hálfbræður, Halli
og Laddi, í hópnum, auk Ólafíu Hrannar Jóns-
dóttur og Björgvins Halldórssonar og fleira
fólks. Leikstjóri er Björn G. Björnsson. Þetta
mun vera í fimmtánda sinn sem spaugsýning
verður sett upp á Hótel Sögu og í sjötta sinn
sem Laddi er með.
Þú virðisthafa nógaðgera Hjálmar?
„Já, það er ekki laust við það. Um þessar
mundir er ég að leika bakaradrenginn í Dýrun-
um í Hálsaskógi og svo erum við Óskar Jónas-
son að vinna saman að léttu glensi, sem á að
birtast með Júróvisjónþáttum Sjónvarpsins. Og
án þess að það sé komið endanlega á hreint, þá
stendur til að við Óskar, ásamt Steini Ármanni
og Davíð Þór, verðum með grínþátt í Sjónvarp-
inu en hvenær, hvað og hvernig er alls óvíst.
Auk þess fer ég með eitt af aðal- hlutverkunum
í Stuttum fralcka sem frumsýnd verður innan
mánaðar.“
Takið þið þá við af Spaugstofumönnum?
„Það stendur ekki til að gera vikulega þætti,
en við fáum engu að síður gott tækifæri."
{yrirsætur
utan í kep
Það verða ekki færri en tuttugu ís-
lenskar fyrirsætur frá umboðsskrifstof-
unum Icelandic Models og Módel
mynd sem leggja land undir fót um
páskana til að taka þátt í alþjóðlegri
fyrirsætukeppni sem fram fer á hinu
kunna Waldorf Astoria-hóteli í New
York. Keppni þessi er ein sú stærsta
sinnar tegundar í heiminum og eiga
þama fulitrúa ekki minni umboðsskrif-
stofur en ENG models, Premiére, Vil-
helmina og Pauline. Um þessar mundir
er verið að velja tuttugu fyrirsætur, tíu
karlmenn og tíu konur, til að fara utan
og verður aldur keppenda nokkuð
breiður. „Það verða ég, Snúlla og Bonni
sem velja fyrirsæturnar sem fara utan.
Fyrirsæturnar verða valdar úr hópi
þeirra sem hafa verið á námskeiðum
hjá mér að undanförnu," segir Kolbrún
Aðalsteinsdóttir, einn af eigendum
Módels myndar og nýlegur hluthafi í
Icelandic Models, í samtali við PRESS-
UNA. „Það má alls ekki líkja þessari
keppni við fegurðarsamkeppni. í fyrir-
sætukeppninni þarf fólk að hafa miklu
meira til að bera en
einungis útlitið. Fyrir-
sæturnar þurfa að vera
mjög vel gefnar, geta
talað erlend tungumál,
þær verða að líta
hraustlega út og mega
hvorki neyta fíkniefna
né alkóhóls. Þær þurfa
að hafa bein í nefinu og
vita hvað þær vilja,
enda krefst fyrirsætu-
starfið þess. Verðlaun-
in sem eru í boði eru
ekki af verri endanum,
því þær sem komast
áfram eiga að öllum
lfldndum von á góðum
samningum.“
Fyrirsætukeppni
þessi, sem kölluð hefur
verið MAAI, er nú
haldin í 33. sinn, en
þetta er í fyrsta sinn
j sem íslendingar eru
j með. Kolbrúnu og fé-
{ lögum var boðin þátt-
j taka í keppninni. „Það
j styrkir stöðu samtaka
j okkar verulega að taka
j þátt í þessari þekktu
Laufey Bjarnadóttir.j
keppni.“
Hvemig jjármagnið þiðferða-
kostnað allraþessara ungmenna?
„Fyrirtækin Módel mynd og
Icelandic Models kosta hann að
hluta til sjálf, en svo eru ýmsir aðil-
ar einnig tilbúnir að greiða hluta á
móti okkur. Annars
kostar farið
ekki nema
um 37.000 krónur,
sem er ódýrara en
flugmiði til Spánar.“
Áður en lagt verður
upp í þessa stórferð til
New York í aprfl munu Ice-
landic Models senda þrjár
stúlkur utan í keppni sem kölluð
hefur verið Hawaiian Tropic-keppnin.
Hún fer fram dagana 7. til 15. mars á
Daytona Beach í Flórída. Þátttakendur
hafa þegar verið valdir, þær Laufey
Bjarnadóttir, Nanna Guðbergsdóttir og
Árný Hlín Hilmarsdóttir. Keppni þessi
byggist á því að velja stúlkur sem taka
sig vel út í baðfötum. „Hawaiian Trop-
ic-keppnin er mjög skemmtileg, en þar
er mikið um ýmiskonar íþróttamót
sem stúlkumar þurfa að taka þátt í og
meðal annars keppt á bátum. Ekkert er
sparað til verðlaunanna, en meðal
þeirra eru hraðbátar, ferðalög og jafh-
vel bflar.“
Hvaða möguleika eiga allar þessar
íslensku fyrirsœtur?
„Ég hef alltaf sagt að við eigum fal-
legasta fólk í heimi. Það er ekki að
ástæðulausu að íslenskar konur ná
svona langt í fegurðarsamkeppnum er-
lendis og það er heldur ekki að ástæðu-
iausu að svona margar íslenskar fyrir-
sætur eru á toppnum. Hér er hreint
loftslag og heilbrigt líferni ástundað.
Þessi 270 þúsund manna þjóð er sér-
stök.“
Finnst öðrum það einnig?
„Já, það er engin spurning."
Við
mælum
meO
... sölu tyggigúmmís á bör-
um bæjarins
svo fleiri geti brosað. Það bætir
andrúmsloftið.
... japönskum veitingastað
til að matargerðarlistin í miðborg-
inni fái loks á sig heimsborgar-
brag.
...Marhaba
nýja líbanska veitingastaðnum.
Hann dregur ffam það besta í
miðausturlenskri matargerð.
... magadanssveinum
svo kvenfólkið fái líka eitthvað
fyrir sinn snúð.
Greindar ffamakonur. Þær sem leggja
rækt við hugsjónir sínar og geta lifað
af starfi sínu. Hér er að sjálfsögðu
vitnað í Hillary Clinton sem unnið
hefur að réttindabaráttu bama og
uppskorið þriðjungi hærri laun en
eiginmaðurinn fyrir vikið. Maður
þakkar fyrir að konur eins og Nancy
Reagan og Barbara Bush skuli ekki
lengur vera í þessum háu valdastöð-
um. Þær eru báðar tákn fyrir það sem
hefur verið og er á hraðri útleið í hin-
um vestræna heimi: ósýnilega konan.
Þó er frú Bush ekki alveg eins langt úti
og ffú Reagan, því ömmuímyndin er
alltaf svolítið sæt. Punkturinn í mál-
inu er sá að hægt sé að uppskera jafn-
ágæt laun og frú forseti hefur með
jaftilítilsvirtri vinnu og aðhlynning
barna hefur hingað til talist. Þótt slíkir
málaflokkar eigi enn nokkuð langt í
land með að verða metnir að verðleik-
um eru þeir þó ekki eins langt úti í
kuldanum og áður.
UN
HVERJIR VORU HVAR
Á hinum nýja líbanska veitingastað
Marhaba, sem var opnaður í síðustu
viku, var margt gesta á laugardags-
kvöldið að reyna nýjungarnar. Til borðs
sátu þar ásamt eiginkonum sínum þeir
Ingólfur Sveinsson geðlæknir og Ei-
ríkur Örn Arnarson sálffæðingur.
Þeir félagamir vom léttir í lund og kátir
þetta kvöld og tóku meðal annars léttan
magadans ásamt hinni líbönsku maga-
dansmær sem dansaði á milli borða við
vægast sagt góðar undirtektir matar-
gesta. Þar vom einnig þau hjónakom
Bjöm Brynjólfur Bjömsson auglýs-
ingagerðarmaður (bróðir Önnu Björns
stórfyrirsætu) og Hrefiia Haralds-
dóttirkennari.
Fjör var á Bíóbamum á laugardags-
kvöídið en þar stóðu við barinn og vom
áberandi þau Gunnar Eyjólfsson leik-
ari og Ásdís Thoroddsen leikstjóri.
Þar var einnig dóttir Gunnars, Þorgerð-
ur, sem er eiginkona Kristjáns Ara-
sonar handboltakappa. Eiríkur Jóns-
son sjónvarps-útvarpsmaður var þar
einnig ásamt ffúnni, Katrínu Baldurs-
dóttur. Flugfreyjufýrirsætan Anna
Margrét Jónsdóttir var þarna í fylgd
unnusta síns. Þama brá Hrafni Jökuls-
syni einnig fyrir, Arnari Jónssyni,
framkvæmdastjóra SUS, og Pálma
Jónassyni blaðamanni.
Á Café Romance var fullt út úr
dyrum á laugardagskvöld.
Edda Sigrún Olafsdóttir lög-
fræðingur leit inn í örskamma
stund. Þar voru einnig þær stöllur
Sigrún Hauksdóttir í Sér og
Valdís Gunnarsdóttir útvarps
kona, Halldór Kristjánsson (Dóri í
Kók) og Kristín Stefánsdóttir förðun-
arff æðingur, Sigurður Hlöðversson
og frú, Magnús Scheving, Norður-
landameistariíþol-
fimi, Unnur
Steinsson feg-
urðardrottning
og eiginmað-
urinn, Vil-
hjálmur
Skúlason, Sól
veig Grétars
dóttirfyrir-
sæta, rithöfundurinn Thor Vilhjálms-
son var meðal gesta svo og Helga
Möller.
Að snæðingi í Óperu sátu meðal ann-
arra Brynja Sverris fyrirsæta og
Brynja Nordquist, Halla móðir
hennar, Magnús Ketilsson og Ró-
bert Magnússon, Nanna Guð-
bergsdóttir, Þorsteinn frá
Hamri og Laufey Sigurðardótt-
ir, Simbi og Björgvin Gíslason
tónlistarmaður.
. Á dömukvöldi sem fföken Dóra
Einars hélt vinum sínum á Barrokk
síðastliðið fimmtudagskvöld var meðal
annars að finna þau Lindu Péturs-
dóttur og Les og þau Lonnie og Ara
Singh.
Það myndaðist einhver lengsta bið-
röð sem um getur fyrir utan Hressó
um helgina. Svo löng var röðin að
hún náði alla leið niður að Reykjavik-
urapóteki. Þeir sem komust inn voru
þó fjölmargir, til að mynda þau Sól
veig Grétarsdóttir ásamt Herði,
tilvonandi ektamanni sínum, og
Simbi ásamt ffíðu föruneyti. Þá
voruþarmættartil-
vonandipopp-
stjörnur lslands;
Páll Rósinkrans og|
Gunnar Bjarni
ásamt hinum úr
JetBlackJoe.Þ að
sást til ferða
Jonna Sigmars
Veggfóðrara,
Halls Ingólfs-
sonar úr Bleeá-
ing Volcano, Kristínar Ingva sýning-
arstúlku, Ara Gísla Bragasonar stór-
skálds, Baltasars Kormáks, hluta af
stórsveitinni Júpíters, Pálma Guð-
mundssonar af Bylgjunni, Magnúsar
Þórðarsonar, inspector scholae, Guð-
laugs Falk gítarleikara, Halls Krist-
inssonar á FM og Ingvars
Þórðarsonar, sem hlotið
hefur viðurnefnið skemmt-
anastjóri fslands. Á Hressó
komu einnig þeir Helgi
Gunnlaugs iSólog scelu og
Róbert Arni Hreiðarsson
lögmaður.
Veikindavæl karlmanna. Alltaf þegar
inflúensur hefla hina árlegu innreið
sína er maður illilega minntur á hve
illa hún leggst á þann helming mann-
kyns sem löngum hefúr haft á sér
sterkara-kyns-stimpilinn. Það er alltaf
talað um að 40 stiga hiti hjá börnum
samsvari 38 stiga hita hjá fúllorðnu
fólki. Það er ekki alveg rétt, því 38
stiga hiti hjá karlmönnum er eins og í
það minnsta 41 stigs hiti hjá börnum.
Fái karlmenn nokkrar kommur verða
þeir verri en veikustu böm og heimta
stöðuga athygli, hlýju og aðhlynningu.
Sumir verða meira að segja svo
veikir af vægri innflúensu
að þá dreymir manninn
með ljáinn nótt eftir
nótt. Þessihitasálar-
kreppa karlmanna er
reyndarffemur
áhugavert rannsókn-
arefni. En einhverra
hluta vegna á maður
voðalega erfitt með að
skilja þetta með sterka
kynið!
„Ég veit svei mér ekki, en stundum velti égþvífyrir
mér hvort ekki vteri ráð hjá þeim á PRESSUNNI að
kíkja inn á vinnustaði þessafólks sem er alltaf í
dálkinum hér til hliðar; Hverjirvoru hvar?Égsé
ekki betur en sumt afþessufólki sé nánast alltafá
börunum. Hvemig væri að búa til samskonar dálk
ogskanna vinnustaðina á mánudagsmorgni? Það
mœtti segja mér að sumir vœru þá ekki þar sem
sumirœttu að vera."