Pressan - 28.01.1993, Blaðsíða 19
f
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993
19
Útvarpsviðtal á Bylgju nni
Talbeitan fór
með rangt mál
f viðtali við Jóhann
Jónas Ingólfsson á
Bylgjunni síðastliðinn
föstudag komu fram
alvarlegar og rangar
fullyrðingar sem
PRESSAN sér sig
knúða til að leiðrétta:
1. Jóhann segir það
rangt hjá PRESS-
UNNI að hann hafi
verið dæmdur fyrir
nauðgun. Það hafi ver-
ið „kynferðisleg mis-
beiting á konu“. Orða-
lagið ætti að segja það
sem segja þarf, en auk
þess má vísa í hæsta-
réttardóm í málinu.
Hann tók undir þá
skoðun undirréttar að
Jóhann hefði klætt sof-
andi konu úr fötunum og haft við hana
samfarir gegn vilja hennar. Fyrir þetta
hlaut Jóhann sex mánaða óskilorðsbund-
ið fangelsi.
2. Jóhann segir PRESSUNA hafa hald-
ið því fram að hann hafi verið dæmdur
fyrir aðild að innflutningi á þremur kfló-
um af hassi. Þetta er rangt. Þvert á móti
hefur ítrekað komið fram í blaðinu að
ekki er búið að dæma í málinu, þótt
ákæra hafi komið fram 1 ágúst 1991 og
ríkissaksóknari hafi ítrekað hana síðast-
liðið vor. Þessar upplýsingar fengust síð-
ast hjá Héraðsdómi fyrir nokkrum dög-
um og var vísað í þær í síðasta blaði.
3. Jóhann segir PRESSUNA hafa full-
yrt'að hann hafi samið við fíkniefhalög-
regluna um ívilnun í hassmálinu gegn því
að leggja gildru fyrir Stein Ármann Stef-
ánsson í kókaínmálinu. Þetta er líka
rangt. Hins vegar hefur PRESSAN marg-
oft sagt að hann hafi farið fram á slíka
ívilnun og við það stendur blaðið. Fyrir
því liggur skýrsla fíkniefhadeildarinnar til
Rannsóknarlögreglu ríkisins, svo og
framburður Jóhanns sjálfs fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur.
4. Jóhann segist ekki eiga neina „sam-
býliskonu" hvers nafii hafi verið notað til
að stofna nýtt fýrirtæki til að taka við
rekstri Hollenska verslunarfélagsins.
PRESSAN stendur við þau ummæli að
stofnandi Þokka hf., var Margrét Þ. Stef-
ánsdóttir, sambýliskona Jóhanns J. Ing-
ólfssonar, með sama heimilisfang og
heimasíma. Jóhann hefur annast rekstur
Þokka hf. síðan hann lauk afþlánun vegna
nauðgunardómsins.
5. Jóhann segir rangt hjá PRESSUNNI
að hann hafi hlotið tveggja ára skilorðs-
bundinn dóm fyrir þjófhað. Þetta er rétt.
Blaðið hefur tvívegis rakið afbrotaferil Jó-
hanns. f fyrra sinnið var greint frá þremur
þjófiiaðarmálum þar sem kæru var frest-
að skilorðsbundið í tvö ár, en Jóhann
dæmdur í tveggja og eins mánaðar fang-
elsi fyrir hin brotin. í seinni samantekt
varð þetta að „tveggja ára, tveggja mánaða
og eins mánaðar“ dómum og skrifast á
fljótfæmi blaðamanns. Blaðinu er ljúft að
leiðrétta mistökin, enda engin ástæða til
aðýkjaferiljóhanns.
6. Jóhann segir PRESSUNA eina fjöl-
miðla hafa birt nafn hans og þó í fyrstu
ekki hafa viljað það, öryggis hans vegna.
Fyrra atriðið er rangt og nægir að nefha
nafnbirtingu landsmálablaða. Að nokkr-
um vikum liðnum sá PRESSAN hins veg-
ar ekki ástæðu til nafnleyndar lengur,
enda fullljóst að nafn Jóhanns var á allra
vörum og sýnt að hann yrði kallaður fyrir
undir nafrii sem vitni í opinberu sakamáli.
Þar með voru rökin fyrir nafnleynd hald-
laus og stuðst við nafnbirtingarvenjur
blaðsins I þessu máli sem öðrum.
Fullyrðingar Jóhanns um skipulega
herferð á hendur honum eru fráleitar.
Frétt PRESSUNNAR í síðustu viku fjall-
aði um það, að konur sem fá dæmdar
miskabætur í nauðgunarmálum eiga fárra
kosta, og engra góðra, völ við innheimtu
þeirra þegar nauðgarinn neitar að borga.
Mál Jóhanns og viðbrögð hans voru þar
tekin sem dæmi. Sú staðreynd að Jóhann
hefur átt aðild að öðrum fréttnæmum
sakamálum er því óviðkomandi.
Ritstj.
■ w i 11
Amjbrojia
Umboðs- og heildverslun
Hólmgarður 34 • Slmi 680Ó30
Myndsendlr 687180
Nýja litalínan frá
Fashion Bazaar er komin.
Litir við allra hœfi.
Útsölustaðir:
Ingólfsapótek, Kringlunni
Akureyrarapótek, Akureyri
Hórgreiðslustofan Evita, Starmýri 2
Hórgreiðslust. Reykjavíkurvegi 16, Hafnarfirði
Verslunin Mozart, Vestmannaeyjum
Verslunin Mirra, Hvammstanga
AII*
TALAÐU VIÐ OKKUR UM
BÍLASPRAUTUN
Jóhann Jónas Ingólfsson var f viðtali við Hallgrfm
Thorsteinsson á Bylgjunni á föstudaginn var.
Þar fór hann með ósannindi um sakamál sfn
og umfjöllun PRESSUNNAR um þau.
BILALEIGUBILL I EINN SOLARHRING
INNIFALDIR 100 KM OG VSK
HLAÐBREKKU 2, SÍMI: 91-43300, FAX: 91-42837, V/BSÍ, SÍMI: 91-17570
•' ' WCBl'XIXf.
Auðbrekku 14, sími 64 2141
HOGGDEYFAR
öggdeyfarnir frá KYB eru
viðurkenndir fyrir tæknilega
hönnun, gæði og endingu.
Þessir eiginleikar KYB högg-
deyfanna skapa þægilegri
akstur, betri meðferð og stjórn
á bílnum; en umfram allt:
- ÖRYGGI í UMFERÐINNI -
KYB eru:
Daihatsu Motor Co. Ltd.
Fuji Heavy Industries Ltd.
Hitachi Construction Co. Ltd.
Isuzu Motors Ltd.
Kawasaki Heavy Indistries Ltd.
Komatsu Forklift Co. Ltd.
Mazda Motor Co. Ltd.
Mitsubishi Motors Corporation.
Nissan Motor Co. Ltd.
Sumitomo Heavy Industries Ltd.
Suzuki Motor Co. Ltd.
Toyota Motor Co. Ltd.
Yamaha Motor Co. Ltd.
Skeifunni 11 • Sími 679797
IL YIS
TIL ÖRYGGIS
Opið 8.00 - 19.00 virka daga.
Opið laugar daga 10.00 - 13.00.
4