Pressan - 28.01.1993, Side 21

Pressan - 28.01.1993, Side 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993 E R L E N T 21 -f Afdrifarík mistök - -•> \V Samkvæmt nýjum upplýsingum um af- tökur í bandarískum fangelsum fer oft ýmislegt úrskeiðis við framkvæmd þeirra, þannig að hinir dæmdu hljóta hægan og kvalafullan dauðdaga. Ýmsir eru vongóðir um að viðhorf Bills Clinton forseta til dauðarefsingar verði mannúð- legra en fyrirrennara hans. Stærstur hluti Bandaríkja- manna er hlynntur dauðarefs- ingu, eða 85 prósent þjóðarinnar. Þeirra á meðal er vitanlega Biil Clinton forseti, enda hefði honum aldrei tekist að komast í forseta- stól hefði hann mælt mót dauða- refsingu. Clinton lét ekki sitt eftir liggja í þeim málum sem ríkis- stjóri Arkansas, en á meðan hann gegndi því embætti staðfesti hann 25 dauðadóma og voru fjórir glæpamenn teknir af lífi í embætt- istíð hans. Frá því dauðarefsingin var heimiluð á ný í Bandaríkjunum árið 1976 hafa 189 afbrotamenn verið teknir af lífi. Á síðasta ári var 31 fangi líflátinn og nú bíða 2.700 glæpamenn dauða síns í banda- rískum fangelsum. Flestar aftökur hafa farið fram í Texas, 54 talsins, en næst í röðinni kemur Flórída með 29. Algengustu tólin sem notast er við eru rafmagnsstóllinn og dauðasprautan, en auk þess eru afbrotamenn sendir í gasklef- ann, skotnir eða jafhvel hengdir. Þótt flestir Bandaríkjamenn séu hlynntir dauðarefsingu eru ýmsir sem finnst hún skelfileg, ómann- eskjuleg aðferð til að refsa afbrota- mönnum. Ekki bætti úr skák þeg- ar upplýsingar um afdrifarík mis- tök sem oft verða við aftökur komu fram á sjónarsviðið í Bandaríkjunum. Upplýsingar þessar er að finna í bók eftir Stephen Tombley nokkurn, en hún er afrakstur mánaðalangra rannsókna höfundar innan veggja bandarískra fangelsa. Bókin hefur vakið mikla athygli, en í henni er dregin upp ljót mynd af fram- kvæmd dauðarefsinga í Banda- ríkjunum. Margir fángar í Bandaríkjunum hafa hlotið hœgan og kvala fullan dauða, m.a. í rafmagnsstólnum. STEIKTUR LIFANDI í RAF- MAGNSSTÓLNUM Frá 1976 hafa ótalmörg alvarleg mistök átt sér stað við aftökur í Bandaríkjunum. Árið 1991 var af- brotamaðurinn Albert Clozza tek- inn af lífi í rafmagnsstólnum í Virginíufýlki. Rafleiðslur biluðu þannig að tæki afstilltust, með þeim afleiðingum að Clozza fékk hægan, kvalafullan dauða. Þrýst- ingurinn á höfuð hans áður en hann lést var svo mikill, að augun hrukku út og blóðið lak niður á bringu. Fyrsta aftakan í Alabama eftir 1965 var framkvæmd árið 1983. Þar dugði ekki minna en þijú 1900 volta raflost til að binda enda á líf glæpamannsins Johns Evans í rafmagnsstólnum. f miðri aftökunni bilaði hluti af rafskaut- unum og sat Evans á milli lífs og dauða í stólnum á meðan viðgerð fór fram. Eldur stóð út úr höfði hans.og öðrum fæti og tók aftakan allt í allt 15 mínútur. Walter Mercer, einn fjölmargra afbrotamanna sem teknir hafa verið aflífi í Bandaríkjunum. Ein óhugnanlegasta aftakan sögu Bandaríkjanna fór fram í Flórída 1990, er síafbrotamaður- inn Jesse Tafero var „steiktur" lif- andi í rafmagnsstólnum. Vegna mistaka starfsmanna sem stilltu tækin rangt liðu sjö kvalafullar mínútur þangað til fangelsislækn- irinn gat staðfest dauða Taferos. Andlit hans var þá orðið nær óþekkj- anlegt vegna bruna- sára. Margir aðrir fangar hafa hlotið sömu örlög og Ta- fero í rafmagns- stólnum í Flórída síðustu ár. Einn Eftirlæti skopmyndateiknara Eitt allra vinsælasta fórnarlamb bandariskra skop- myndateiknara er hinn nýi forseti, Bill Clinton, og vart hægt að fletta bandarískum blöðum án þess að rekast á skopmyndir af manninum sem nú gegnir æðsta embætti þjóðarinnar. Einkum virðast húmoristarnir gera sér mat úr hárgreiðslu forsetans, sem m.a. hefur verið líkt við „hárgreiðslu bílasala", og hafa þeir útfært hana með ýmsum hætti. Iblöðunum Baltimore Sun og Palm Beach Post birtust nýlega teikningar afClinton sem draga upp nýja og heldur óvenjulega mynd afforsetanum, en á þeim likist hann einna helst risastórum, kinnamiklum hamstri. Margir hafa gaman afslíkum skopstælingum en þó eru aðrir sem ekki eru jafnhrifnir afsaklausu gríninu. Siðavandur lesandi Atlanta Constitution bar til dæmis ný- verið fram kvörtun við blaðið vegna afskræmingar skop- myndateiknara þess á forsetanum og sagði meðal ann- ars að nefhans minnti einna helst á getnaðarliml þeirra er fjöldamorðinginn Ted Bundy, en brunasárin á höfði hans og fæti efdr rafskautin voru svo mikil, að þegar líkið var fjar- lægt losnaði kjötið frá beinunum. KVALDIST í 25 MÍNÚTUR í GASKLEFANUM Ekki aðeins rafmagnsstóllinn getur bilað við aftökur, því fjöl- mörg óhöpp hafa átt sér stað í gas- klefanum. Meðal þeirra sem þar hafa mætt örlögum sínum er síaf- brotamaðurin Aaron Mitchell, sem tekinn var af lífi í Kalifomíu. Gasleiðslurnar virkuðu ekki fylli- lega og af þeim sökum tók aftakan mun lengri tíma en ella. Mitchell engdist froðufellandi um í stóln- um og hjarta hans hætti ekki að slá fyrr en eftir 12 mínútur. Svipaða sögu er að segja af morðingjanum Jimmy Lee Gray sem tekinn var af lífi í gasklefan- um í fangelsi í Missouri 1983. Vimi að aftökunni hafa staðfest að Gray hafi barist um á hæl og hnakka í átta mínútur og slengt höfðinu viðstöðulaust utan í stólpa, áður en hann lyppaðist niður í stólnum og gaf upp önd- ina. Mistökin sem eiga sér stað í gasklefum bandarískra fangelsa bitna ekki alltaf eingöngu á hinum dauðadæmdu. Þannig hafa bæði starfsmenn og vimi stundum ver- ið í stórhættu þegar gas hefur lek- ið út úr óþéttum aftökuklefun- umm, en þeir eru margir í lélegu ásigkomulagi. Flest óhöpp í tengslum við dauðasprautuna hafa orðið í Tex- as. Við aftöku morðingjans Raymonds Landry árið 1988 kom skyndilega gat á slönguna sem leiða átti banvænt eitrið í hand- legg hins dauðadæmda og spraut- aðist það í allar áttir, m.a. yfir starfsmenn fangelsisins og að- standendur Landrys. Tæknimenn ruku upp til handa og fóta og skiptu um slöngu, á meðan Landry engdist um í stólnum og liðu 25 mínúmr áður en hann lést. Á síðasta ári var fyrrum eiturlyfja- neitandinn Billy Wayne White tekinn af lífi í Texas. Það tók starfsmenn fangelsisins 47 mínút- ur að hitta á æð í handlegg mannsins og lést hann ekki fyrr en eftir níu mínútur. VONIR BUNDNAR VIÐ CLINTON f byijun janúar var bamamorð- inginn Westley AUan Dodd tekinn af lífi með hengingu í Washing- tonfylki. Aftakan vakti athygli, ekki sfst fyrir þær sakir að um var að ræða fyrstu henginguna í Bandaríkjunum í tæp þrjátíu ár. Margir urðu til að hreyfa hávær- um mótmælum og töldu þeir að hengingin væri grimmileg aðferð til að binda enda á líf afbrota- manna. í kjölfarið færðist enn á ný h'f í umræðuna um gildi dauða- refsingar í Bandaríkjunum. Innan mannréttindasamtak- anna Amnesty Internartional binda menn vonir við að afstaða BiUs Clinton forseta til dauðarefs- ingarinnar verði mannúðlegri en fyrirrennara hans úr röðum repú- blikana, Reagans og Bush. Þrátt fyrir að 85 prósent þjóðarinnar séu hlynnt dauðarefsingu vona menn að Clinton taki vægar á málum þeirra 2.700 dauðadæmdu fanga sem bíða dauða síns í bandarískum fangelsum. Hjá Am- nesty International telja menn að ekki sé annað hægt en Bandaríkin endurskoði viðhorf sitt til dauða- refsingarinnar. Eins og málum sé háttað nú séu Bandaríkin hvað þetta varðar nánast í „bandalagi" með löndum á borð við íran og Sýrland, þar sem brot á mannrétt- indum séu daglegt brauð. Helmut Kohl án hímnigátu Það sannaðist á dögunum, sem margir hafa haldið ffarn í gegnum árin, að Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, er gersneyddur allri kímnigáfu. f nýlegum grínþætti í þýska sjónvarpinu brá eftirherma sér í gervi KoMs og hringdi í Eriku Berger nokkra, en hún er eftirsótt- ur kynlífsráðgjafi í Þýskalandi og stjórnar eigin sjónvarpsþætti. Eft- irherman, sem var nauðalík Kohl, bar sig aumlega í símanum og trúði kynlífsfræðingnum fyrir því að „hann ætti í miklum erfiðleik- um með samrunann“. Mönnum þótti þátturinn almennt spaugi- legur, ef frá er talinn kanslarinn sjálfur sem var ekki skemmt. Kohl gat engan veginn sætt sig við loðið orðalagið og setti ofan í við sjón- varpsstjórann. Kvað hann brand- arann grófan og fór ffarn á að ekki yrði fjallað um hans persónu á neinn hátt í tengslum við kynlífs- frömuðinn hispurslausa. Sjón- varpsstjórinn var ekki sömu skoð- unar, sagði atriðið ekki vera ann- að en saklausa satíru og Helmut Kohl yrði að eiga það við sjálfan sig ef hann gæti ekki tekið gríni. Cartland ver Díönu Barbara Cartlander eins og flestir vita vinsælasti ástarsögu- höfundur í heimi og kann hún ýmsar að- ferðir til að koma ásta- málunum í lag, enda þótt hún sé sjálf orðin vel roskin. Cartland er stjúpamma Díönu prinsessu og vel að sér í ástamál- um og því kom það svo sem eng- um á óvart þegar hún tók upp á því að tjá sig opinberlega um sam- búðarörðugleika Díönu og Karls Bretaprins. Cartland lýsti því yfir að hún vonaði innilega að sættir tækjust á milli hjónanna og kvaðst hún fyrst og fremst bera velferð barna þeirra og breska konung- dæmisins fyrir bijósti. Karl og Dí- ana yrðu bókstaflega að taka sig saman í andlitinu og koma hjóna- bandsmálum sínum í lag. Cart- land bar í bætifláka fyrir Díönu, sem legið hefur undir mikilli gagnrýni, og sagði konungsfjöl- skylduna bera ábyrgð á því hvern- ig komið væri. Það væri eins með hana og Söru, fyrrum eiginkonu Andrews prins, þeim hefðu aldrei verið kenndir hirðsiðir og því væri ekki að furða þótt þær kynnu ekki að hegða sér eins og kóngafólk.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.