Pressan - 28.01.1993, Side 25
___________FIMMTUDAGUR PKESSAN 28. JANÚAR 1993_
LEIKHÚS MYNDLIST KLASSÍK
25
Þolir íslenskt leikhúsfólk
ekki gagnrýni?
bræður. Dæmi um góðan leikdóm
er aítur á móti dómur Silju Aðal-
steinsdóttur um sama verk.“
Ingunn: „Mér finnst ástæðu-
laust að tína til einstaka leikdóma.
Ef menn hins vegar fara í gegnum
þá gagnrýni sem birst hefur í íjöl-
miðlum það sem af eru þessu leik-
ári, með ummæli mín hér að ofan
til hliðsjónar, þá er fljótlegt að
finna út hver skoðun mín er á
þeim.“
Stefán: „Auðvitað væri það
hægt. En ég legg ekki það mikið
upp úr gagnrýni að ég leggi hana á
minnið. Ég get verið sammála
gagnrýnanda í grundvallarvið-
brögðum hans gagnvart einhverri
sýningu en fundist framsetning
hans gjörómöguleg. Eða öfugt,
þ.e. virt stíl og framsetningu gagn-
rýnandans þótt ég sé fullkomlega
ósammála skoðunum hans.
Smám saman kynnist maður
gagnrýnandanum gegnum skrif
hans, smekk og viðhorf, þannig að
maður finnur fljótlega hvort mað-
ur á samleið með honum í afstöðu
hans til leikhússins og leiklistar-
innar.
Fólk má aldrei ofmeta gagnrýn-
endur eða gefa þeim of mikið
vægi. Gagnrýnandi er aðeins einn
einstaklingur úr stórum hópi
áhorfenda. Eigin skoðun og upp-
lifun áhorfandans er sá einn mæli-
kvarði sem marktækur er. Góður
gagnrýnandi getur þó bent áhorf-
andanum á ákveðin atriði, sem
hann hefúr ef til vill ekki áttað sig
á, og getur þannig auðgað skilning
hans á verkinu.“
Leikdómar gagnrýnenda valda iðulega miklum styr meðal leikhúsfólks - það er þegar
gagnrýnandinn er ekki hrifinn af sýningunni. Þótt aðrar stéttir listamanna eigi það til að
barma sér undan gagnrýnendum þá hafa þær hingað til ekki komist í hálfkvisti við
leikhúsfólkið. Það er því eðlilegt að menn spyrji hvort leiklistargagnrýnendur séu svona
miklu verri en gagnrýnendur annarra listgreina eða eins og spurt er í fyrirsögninni hér
að ofan; hvort leikhúsfólkþoli ekki gagnrýni.
PRESSAN leitaði álits þriggja
leikhúsmanna, Sigurðar Hróars-
sonar, leikhússtjóra Borgarleik-
hússins, Ingunnar Ásdísardóttur
leikstjóra og Stefáns Baldurssonar
Þjóðleikhússtjóra á íslenskri leik-
húsgagnrýni. Svörin fara hér á eft-
ir.
Sigurður: „íslenskt leikhúsfólk
tekur fagnandi allri gagnrýni sem
er faglega unnin og byggð á rök-
um, og tekur neikvæðum en góð-
um dómi betur en vondum já-
kvæðurn."
Ingunn: „Ég held að það sé
ekki spurningin hvort íslenskt
leikhúsfólk geti tekið gagnrýni eða
ekki. Málið snýst um það á hvaða
forsendum leikdómur er skrifað-
ur. Gagnrýnendur verða að gera
sömu kröfúr til sjálfra sín og þeir
gera til þeirra sem þeir fjalla um.
Leikhúsfólk þolir þá gagnrýni sem
unnin er af fagmennsku og þekk-
ingu á leikhúsinu og gildir þá einu
hvort verið er að hæla verkinu eða
lasta það. Ef færð eru skynsamleg
rök fyrir fúllyrðingum held ég að
menn hafi ekkert við leikdóma að
athuga. Tilfinningar gagnrýnanda
eiga ekki að ráða ferðinni í leik-
dómi, heldur á hann að geta sett
skoðun sína fram á grundvelli
skynsamlegra og faglegra vinnu-
bragða. Auðvitað er alltaf erfitt að
fá slæma gagnrýni, en ef hún er
vel rökstudd þá er ekkert við
henni að segja."
Stefán: „Jú, íslenskt leikhúsfólk
er ótrúlega umburðarlynt gagn-
vart gagnrýnendum og tekur um-
fjöllun þeirra með jafnaðargeði,
jafnvel þótt hún sé oft ómakleg og
fjarri því að vera samboðin þeim
metnaði og þeirri alvöru, sem
leikhúsfólkið sjálft leggur starf sitt.
En auðvitað lætur það sig hana
mismiklu varða. Leikhúsfólki líkar
misvel við gagnrýnendur og skrif
þeirra á sama hátt og gagnrýnend-
um líkar misvel við leikara, leik-
stjóra og aðra þá, sem þeir fjalla
um. Ég held að flest fólk, sem
starfar í leikhúsi, taki allri gagn-
rýni með fýrirvara."
FÁ LEIKVERK SEM HÉR
ERU SÝND ÞÁ DÓMA SEM
ÞAU EIGA SKILIÐ?
Sigurðun „Islenskir fjölmiðlar
sinna vel því hlutveki að kynna
verkefni leikhúsanna. Ég verð þó
að hnýta því aftan við, að í saman-
burði við erlenda leikhúsgagnrýni
er sú íslenska því miður oft á mjög
lágu plani. I ljósi þess hversu vel
áhorfendur taka því sem íslenskt
leikhús býður upp á, og hljóta um
leið að viðurkenna að faglega sé
unnið í leikhúsunum, þá eigum
við sem þar störfum þá kröfu á
gagnrýnendur að þeir rökstyðji
dóma sína gaumgæfilega og sýni
leikhúsunum sömu virðingu og
þau sýna áhorfendum sínum.“
Ingunn: „Svarið tengist svar-
inu við fyrstu spurningunni. Ef
leikdómur er skrifaður af fag-
mennsku og rök færð fyrir hon-
um, þá fá ieiksýningar þá gagn-
rýni sem þær eiga skilið. Það er
mikil fagmennska í íslensku leik-
húsi nú orðið og það gerir miklar
kröfúr til sjálfs sín. Ef gagnrýni er
unnin af þekkingu og skynsemi er
hún samboðin leikhúsinu og leik-
húsið samboðið henni. Ef aftur á
móti umfjöllun um listir er byggð
á tilfinningum og rökleysu, hvort
heldur er á jákvæðum eða nei-
kvæðum grundvelli, er slík um-
fjöllun ekki marktæk."
Stefán: „Sjaldnast finnst manni
fjallað um leiksýningar hér af
nægum skilningi, þekkingu, víð-
sýni og ást á leikhúsi. En sem bet-
ur fer gerist það einstaka sinnum.
Góður gagnrýnandi þarf að huga
að öllum þáttum leiksýningar:
heildaráhrifunum og íjalla um þá
sýningu sem hann sér, þær for-
sendur sem hún er unnin út frá og
rökstyðja skoðanir sínar. Hér er
alltof lítið um að gagnrýnendur
hafi innsýn í leikhúsvinnuna og
þekki grundvallarlögmál leikhúss-
ins. Það er líka gremjulegt hve
gagnrýnendur hafa litla yfirsýn og
átta sig þar af leiðandi ekki á
neinu í stærra samhengi; stefnu
leikhúsa, þroska- og þróunarferli
einstakra listamanna, samhengi
hlutanna. Gagnrýni er alltof oft
skrifuð ofan frá og niður til þeirra
sem um er fjallað. Svar mitt við
spurningunni er því, að sýnmgar
fái hér sárasjaldan verðskuldaða
umfjöllun.“
Geturðu nefnt dæmi
UM VONDAN LEIKDÓM f
VETUR OG ANNAN SEM
VAR GÓÐUR?
Sigurður: „Það hafa margir
góðir og margir vondir leikdómar
Birst í íslenskum fjölmiðlum á
þessu leikári og ég vil ítreka að
það hefúr ekkert með það að gera
hvort leikdómur er neikvæður eða
jákvæður. En ef ég á að nefha tvö
dæmi er eðlilegast að ég nefni þá
tvo dóma sem standa mér næst í
tíma og rúmi. Dæmi um vondan
leikdóm er að mínu mati dómur
Súsönnu Svavarsdóttur um Blóð-
Algjört
ólíkindatól
segir Arnar Jónsson um Harold Pinter en Arnar er
einn þriggja leikara í Húsverðinum
k' ¥
/
% A %
' \ ^ \.
Pinter Jietdur áhorfenaum íspennu meðþví að tvinha sani-
an atburðarás og samskipti á'afar sérkennilegan hátt iHús-
verðinum, sem Pé-leikkápurinn setur upp í íslensku óper-
umWEnginn veit á hverju hann á von.
Leikritaskáldið Harold Pinter
er meistari tungumálsins, snilling-
ur í að segja margar sögur í einu.
Hann er „algert ólíkindatól" eins
og Arnar Jónsson Ieikari segir, en
hann fer með eitt þriggja hlut-
verka í Húsverðinum sem Pé-Ieik-
hópurinn flytur í íslensku óper-
unni og er eitt þekktasta verk
Pinters; í senn áleitið, meinfyndið,
grimmt og napurt. Leikstjórinn,
Andrés Sigurvinsson, segir verk-
inu best lýst með orðum höfundar
sjálfs: „Það eru ekki alltaf skörp
skil á milli þess sem satt er og þess
sem ósatt er.“
f Húsverðinum segir frá ri'eim-
ur bræðrum og flækingi nokkrum
sem annar þeirra tekur upp á sína
arma. Bræðurnir eru hvor sín
hliðin á sama peningnum en inn-
koma umrenningsins kemur ann-
arri vídd til skila og óvæntar
uppákomur vekja spumingar sem
áhorfandanum einum er ætlað að
svara. Persónurnar berjast um
völd og yfirráð með tungumálið
að vopni, eru ýmist niðurlægðar,
teknar í sátt, hafnar á stall eða á
grimmúðlegan hátt velt úr sessi,
en galdur verksins segir Arnar
leynast í samskiptum persónanna
þriggja. „Hver finnur þá merk-
ingu sem hann vill; það sem sést á
yfirborðinu segir ekki alla söguna,
en höfúndi tekst einstaklega vel að
halda áhorfendum í spennu með
því að tvinna saman atburðarás
og samskipti á afar sérkennilegan
máta. Það er yndislegt að leika í
verki eftir Pinter og óskaplega
gaman að fara með texta sem
þennan, í sannleika sagt lætur
hann mann ekki í friði.“
Á móti Arnari leika þeir Hjalti
Rögnvaldsson og Róbert Árn-
finnsson, sem báðir léku í „Heim-
komu“ Pinters sem flutt var árið
1988. Róbert verður sjötugur á ár-
inu en Arnar varð fimmtugur ekki
alls fyrir löngu og að auki mun
hann eiga þrjátíu ára leikafmæli,
en hann lék í fyrsta sinni í Gísl árið
1963. Aldurinn segir Arnar efla sig
og megi að því leyti líkja sér við
gamalt vín. „Leiklistm er erfið og
flókin kúnst og tekur ævrna að ná
henni svo vel fari. Ég held ég skáni
nokkuð með aldrinum.“
Húsvörðurinn er ekki eina
verkið sem Pé-leikhópurinn færir
upp á þessu ári og hefur hann í
hyggju að sýna tvö íslensk verk í
júnímánuði, annað eftir Árna Ib-
sen en hitt eftir Kristínu Ómars-
dóttur.
MYNDLIST
® Japönsk sam-
tímalist nefnist
Isýning sem
stendur yfir á Mokka, þar sem
gefur að líta verk eftir sjö jap-
anska samtímalistamenn.
• Hólmfríður Sigvalda-
dóttir sýnir verk sín í Gallerii
Sævars Karls. Sýningin ber
heitið Kyrr form.
• Birgir Andrésson & Þór
Vigfússon opna sýningu á
verkum sínum í Nýlistasafn-
inu á sunnudag.
• Portið nefnist nýr sýning-
arsalur sem opnaður hefur
verið á neðri hæð Myndlistar-
skólans í Hafnarfirði. Þrír lista-
menn sýna um þessar mund-
ir verk sín í Portinu; þau Bragi
Ásgeirsson, Guðjón Ketilsson
og Þórdís Alda Sigurðardóttir.
• Haraldur Jónsson sýnir |
lágmyndir og skúlptúra í
Gerðubergi. Verkin eru rýmis-
verk, unnin úr ólíkum efnum
en viðfangsefnin eru gegnsæi
og takmörk. Opið mdnudaga
til fimmtudaga kl. 10-22,
föstudaga kl. 10-16 og laugar-
daga kl. 13-18.
• Skoskir grafíklistamenn,
26 talsins, sýna verk sín í
Geysishúsinu og er sýningin
hluti af menningarhátíðinni
Skottís, skosk-íslenskum
menningardögum. Opið dag-
lega kl. 10-18.
• Guðmundur Karl hefur
opnað fyrstu einkasýningu
sína hér á landi á Kaffi Splitt.
Verkin eru 15 myndasam-
stæður unnar með tölvu.
• Erlingur Jónsson, mynd-
höggvari og lektor í Osló, hef-
ur opnað sýningu í húsnæði
Bílakringlunnar í Keflavík. Þar
gefur að líta 107 verk unnin
með margvíslegri tækni og
ýmis efni, s.s. málm, tré og
stein.
• lan Hamilton Finlay,
listamaðurinn skoski, sýnir j
verk sín á Kjarvalsstöðum á
menningarhátíðinni SKOTTfS,
skosk- fslenskum menningar-
dögum. Á sýningunni gefur
að líta myndverk Finlays,
nokkra neonskúlptúra og lit-
skyggnur af Stonypath-garð-
inum í Lanarkshire.
• „Outsider USA". Banda-
rísk utangarðslist í Hafnar-
borg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar. Sýn-
ingin hefur verið sett upp
víða um Norðurlönd.
• Ásmundur Sveinsson.
Ásmundarsafni stendur yfir |
ningin Bókmenntirnar í list
smundar Sveinssonar. Opið
alla daga kl. 10-16.
%
• Harpa Björnsdóttir sýnir
um þessar mundir myndverk
sín í Slunkaríki á (safirði. Verkin
eru öll unnin með blandaðri
tækni. Sýningunni lýkur á
sunnudag.
SÝNINGAR
| H|t Kaj Franck. Sýn-
f i^Ming á listiðnaði eftíi
f J^Bhönnuðinn finnska
á^^BNorræna húsinu. Þar
gefur að lita glervörur, borð-
búnað, skrautmuni og ýmsa
nytjahluti. Opið daglega kl.
14-19.
• Nýútskrifaðir arkitektar
sýna lokaverkefni sín í Ás-
mundarsal. Um er að ræða
sex arkitekta sem stunduðu
nám i Englandi, Noregi, Dan-
mörku og Bandaríkjunum.
Opið virka daga kl. 9-16 og
um helgarkl. 13-17.
• Paul Nedergaard. Sýning
Ijósmyndum Pauls Ne-
dergaard af gömlum íslensk-
um húsum stendur yfir í
Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Víkin og Viðey, sýning í
Nýhöfn á fornleifum frá land-
námi til siðaskipta í Reykjavík,
á vegum Árbæjarsafnsins.
n