Pressan - 28.01.1993, Side 26
26
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993
B I Ó
POPP VEITINGAHÚS BARIR
POPP
FIMMTUDAGUR
• Brass-bandið er
nýstofnuð blásara-
sveit sem tekur lagið í
fyrsta sinn á Gauki á Stöng.
•Lipstick Lovers hefja helgina
á Púlsinum, eftir að eigenda-
skipti áttu sér stað. Nú hafa þau
Ólafur, Guðmunda, Gunnar
Steinn og Kolbrún tekið við af
Jóhanni G. Nýju eigendurnir eru
fólkið á bak við barinn.
•Vincent Laurent leikur af
fingrum fram á Café Romance.
• Guðmundur Rúnar Lúð-
víksson, hinn landskunni trúba-
dúr og fagurkeri, verður á Fóg-
etanum.
• Haraldur Reynisson trúba-
dúr á Feita dvergnum.
• Þorsteinn Gíslason kráarp-
íanisti verður í Djassi í Ármúlan-
um.
• Brass-bandið hefur á að
skipa tólf tónlistarmönnum, þar
af sex blásurum og þremur
söngvurum. Þeir koma fram í
annað sinn á Gauki á Stöng.
Bandið býður ekki upp á frum-
samið efni og er því með mun
eldra efni en Júpíters.
•Bogomil Font og Milljóna-
mæringarnir ætla að endur-
vekja gleði síðustu helgar á
Púlsinum, þó svo sagt sé að
maður eigi aldrei að endurtaka
sig.
•Hljómar, Kuba Libra og allir
hinir uppvakningarnir verða á
Hótel fslandi.
•Hljómsveit hússins &
Söngvaspé verður í Danshús-
inu Glæsibæ um helgina. Fram
koma Eva Ásrún, Raggi Bjarna,
Haukur Heiðar, Ríó tríó, Smellir
og fleiri. Hægt er að snæða þrí-
réttaða máltíð á tilboðsverði í
tilefni 20 ára afmælis Danshúss-
ins.
•Vincent Laurents heldur
uppi heilmiklu fjöri á Café Ro-
mance.
• Björgvin Halldórsson og
hljómsveit hans halda sig sem
fastast á Hótel Sögu. Ætli það sé
Ifm á sviðinu?
•Hermann Ingi jr. verður á
Fógetanum fram á sunnudags-
kvöld.
•Blúsbrot er að byrja aftur, en
hún var í eina tíð vinsæl blús-
hljómsveit sem fór í dvala en er
að komast á skrið aftur á Blús-
barnum.
LAUGARDAGU R
• Haraldur Reynisson trúba-
dúr aftur á Feita dvergnum.
•Júpíters verður með risaball
á Hressó um helgina. Sveiflurnar
verða í stærra lagi. Auk þeirra
verða skífuþeytararnir Styrmir
og Krissi á svæðinu, en þeir hafa
um árabil haldið uppi miklu fjöri
á diskótekum bæjarins. Þeim er í
lófa lagið að halda uppi partí-
stemmningu.
•Bogomil Font og Milljóna-
mæringarnir halda áfram að
gera sér dælt við ungu stúlkurn-
ará Púlsinum.
• Hljómarnir og hinir orginal-
arnir verða á Hótel (slandi.
• Söngvaspé & Hljómsveit
hússins sem skipuð er flestöll-
um ellipoppurum landins fyrir
utan Evu Ásrúnu, verður á Dans-
barnum.
•Vincent Laurents skemmtir
elítu bæjarins á Café Romance.
•Björgvin Halldórsson verð-
ur með spé og söng á Hótel
Sögu.
•Hermann Ingi hinn slyngi er
á Fógetanum.
• Blúsbrot kyrjar aftur blús á
Blúsbarnum, en þeir eru í hópi
hinna fjölmörgu uppvakninga
sem komnir eru á kreik á ný.
SUNNUDAGUR
• Magnús Einarsson er einn
hinn íslensku Fána en verður nú
með sóló á Feita dvergnum.
• Haraldur Reynisson trúba-
dúr var á Feita dvergnum en
færir sig yfir á Fógetann, ekki
öllu verri stað.
• Dan Cassidy & George
Grossmann leika saman bláa
tónlist á Blúsbarnum.
SVEITABÖLL
FÖSTUDAGUR
númerið
Joe.
•Sjallinn, Akureyri
fær öngva aukvisa f
heimsókn því aðal-
kvöld eru Jet Black
LAUGARDAGU R
•Þotan, Keflavík heldur upp
á eíns árs afmæli sitt í kvöld með
stórhljómsveit fslands, Sálinni
hans Jóns míns. (tilefni dagsins
má vænta fjölda óvæntra uppá-
koma.
•Sjallinn, Akureyri Skriðjökl-
arnirverða með dúndrandi stuð.
• Hótel Selfoss hljómsveit
Ingu Eydal (dóttur Ingimars)
skemmtirá opnu þorrablóti.
Líbanskur
matur &
magadans
Marhaba er
Ifbanskt í einu og
öllu og þarer
hvorki sparað í
þjónustu né mat.
Líbaninn Aladin Yasin
rekur staðinn og
eiginkona hans,
Gabriella Garizani
Yasin, er
veitingastjóri.
Vart líður sá dagur að ekki spretti upp nýr
veitingastaður í miðborginni. Þeir eru þó mis-
góðir og frumleika hefur ekki gætt í þeim efn-
um að undanförnu þar til nú fyrir viku er veit-
ingastaðurinn Marhaba var opnaður á Rauðar-
árstígnum, nánar tiltekið í hinu gamla verk-
smiðjuhúsi Egils Skallagrímssonar.
„Þeir sem kynnst hafa líbönskum mat segja
hann þann besta í heimi. Líbanskur matur er
bragðmikill án þess þó að vera sterkur og mjög
fjölbreyttur,“ sagði Aladin Yasin sem rekur
nýja staðinn, en hann er Líbani og hefur ver-
ið búsettur hér á landi undanfarin ár.
Það kemur ekki til af góðu að líbanskur mat-
ur hefur breiðst svo ört út, því margir líbanskir
matargerðarmenn flúðu land vegna stríðsins
sem ríkti þar í ein fimmtán ár. Landið var áður
vinsæll griðastaður ferðamanna, enda var þar
mikil velsæld, svo mikil að Beirút var gjarnan
kölluð París austursins.
Sem dæmi um vinsælan líbanskan rétt má
nefna Mezzah, sem eru heitir og kaldir
smáréttir með ídýfum. Réttur þessi er jafnan
borinn fram með líbönsku brauði sem kallast
Khubitz og er ekki ólíkt brauðinu sem borið er
fram með mörgum miðausturlenskum mat.
Margur lætur sér ekki nægja þann rétt ein-
göngu og fær sér 1 aðalrétt kryddlegna kjötrétti,
en Líbanir leggja einnig mikið upp úr græn-
meti og fiskurinn fær að fljóta með. Vínið sem
fæst á Marhaba er einnig líbanskt, bragðmik-
ið rauð-, rósa- og hvítvín. Anísdrykknum
Arak, sem sjálfsagt á eftir að ná nokkurri
útbreiðslu hér á landi, er gjarnan skolað
niður með matnum. Reyndar er æski-
I legt að blanda drykkinn með vatni þar
sem hann er 54% að styrkleika.
Ferskasta nýjungin á þessum
skemmtilega hannaða líbanska veitinga-
stað verður þó að teljast hin líbanska
frjálslega vaxna magadansmær Catherine
Selford, sem hefur ekki hinn hefðbundna
90-60-90-vöxt. Hún kemur inn í salinn
nokkrum sinnum á meðan fólkið situr að
snæðingi og dillar sér fram og til baka, öll-
um — þó sérstaklega karlmönnunum —
til mikillar gleði.
Þess má geta að Hótel Reykjavík og Café
Kim eru rekin undir sama hatti og er
Kaupgarður eigandinn.
Búningarþjónanna eru
óneitanlega skrautlegir.
Perluvín
Það er ekki á hvaða veitingastað
sem er sem maður rekst á vín sem
er sérstaklega tappað á flöskur
fyrir veitingastaðinn sem upp á
vínið býður. Þó er eitt slíkt á vín-
lista Perlunnar og ber einfaldlega
nafnið Perluvín. Vínið sem um
ræðir er milliþurrt Riesling-hvít-
vín, og eins og segir á flöskunni á
það vel við með innbökuðum
fiski, steiktum silungi, fuglarétt-
um, réttum úr kálfakjöti eða bara
eitt og sér. „Vínið hefur mælst
mjög vel fyrir, enda nánast engin
þurr fyrsta flokks þýsk hvítvín á
markaði hér. Það er einnig mjög
algengt að gestirnir vilji halda upp
á flöskuna, enda myndin á henni
mjög falleg," segir
Hafldór Sigdórsson,
yfirþjónn í Perlunni.
Myndin sýnir Perl-
una í sinni fegurstu
mynd og má geta
þess að Björn Blön-
dal, ljósmyndari
PRESSUNNAR,
tók myndina.
Raunverulegt
heiti vínsins er
Kiedricher
Wasseros Ries-
f f R f, A N
lingKabinett
og er valið eftir
mikla íhugun
af veitinga-
mönnum
Perlunnar.
Það kostar
2.710 krónur
í Perlunni.
Fyrirþá sem
áhuga hafa á
að sérpanta
vínið í gegn-
urn áfengis-
verslunina
má geta þess
að heild-
verslunin
Austurbakki
er umboðs-
aðili þess.
Dagur í dósaverksmiðju
INRI
VIÐNÁMSHVÖRF
★
Einu sinni starfaði
hljómsveitin INRI í
Breiðholti og spiiaði
ágætt nýbylgjurokk. Magnús
A.G. Jensen spilaði á bassa í þeirri
sveit en nú virðist hann hafa tek-
ið nafnið traustataki og notar á
nýtt sólóverkefni; níu laga
snældu sem kom út nýlega í 100
tölusettum eintökum og má
finna í nokkrum plötubúðum í
höfuðborginni ef leitað er vel.
Verksmiðjutónlist, hin svo-
kallaða „industrial" tónlist, á sér
langa forsögu og rekur ættir st'nar
allt aftur til fúturista og dadaista.
í byrjun síðasta áratugar héldu
enskar sveitir á borð við Throbb-
ing Gristle uppi merkinu og enn í
dag er „industriar tónlist mikið
stunduð í Evrópu,' alltaf mjög
langt undir yfirborðinu. Á Islandi
eru það m.a. sveitirnar Reptilic-
us, Inferno 5 og nú INRI sem
leita í þungavélagnýinn. í eðli
sínu er diskótakturinn mjög vél-
rænn og því augljós möguleiki að
blanda þessu saman í vélræna
verksmiðjuheild. Útkoman er ör-
sjaldan merkileg eða spennandi,
enda er melódíum oftast hent út
tii að fuilkomna hin vélrænu
áhrif.
Framleiðsla Magnúsar er svo
sem ekki verri en tónlistin sem
hann vitnar í; hann kemst ágæt-
lega ffá sínu en er því miður bara
að vinna í löngu mettuðu tónlist-
arformi. Flutningurinn er högg-
þéttur en fulllítil fjölbreytni í
gangi til að áhugi hlustandans
haldist lengi. Textamir eru talaðir
eða tjáðir með reiðum ópum.
Þeir virðast ættaðir úr visku-
brunni dr. Bjarna H. Þórarins-
sonar; eru sem sagt gjörsamlega
óskiljanlegt ogþreytandi tuð með
tæknilegum og „listrænum“ for-
merkjum. Spólan líður hjá eins
„Textarnir eru talaðir
eða tjáðir með reiðum
ópum. Þeir virðast
œttaðir úr viskubrunni
dr. Bjarna H. Þórar-
inssonar; eru sem sagt
gjörsamlega óskiljan-
legt ogþreytandi tuð
með tœknilegum og
„ listrœnum “formerkj-
um. “
og tilbreytingarlaus dagur I dósa-
verksmiðjunni, og sem fýrrum
starfskraftur þar get ég fullyrt að
af tvennu illu þá er „Viðnáms-
hvörf ‘ skárri kostur.
Umbúðirnar eru veglegar og
nokkuð flottar, svo kannski ætti
Magnús að snúa sér að auglýs-
ingateikningu.
Gunnar Hjálmarsson