Pressan - 16.06.1993, Page 2
FYRST & FREMST
2 PRESSAN
Miðvikudagurinn 16. júní 1993
ÞÓRÐUR ASGEIRSSON. Lét fjölskylduna hafa góöan samning en var
tekinn fyrir á einkavæðingarfundi í staðinn.
SlGURÐUR HELGASON. Fokkerarnir farnir að tínast úr landi og Ijóst
að leigan dugar ekki fyrir kaupleigunni.
ÞÓRÐUR
SKRMMTAR
FJOLSKYLD-
UNNI VERK-
EFNI.________________
Nýlega upplýstist um þá
ætlun Þórðar Asgeirssonar,
nýráðins Fiskistofustjóra, að
gefa út blað í samvinnu við
útgáfufélagið Farveg. Það fýr-
irtæki er rekið af Þórunni
Gestsdóttur, sviikonu Þórðar.
Þá mun kona Þórðar einnig
vinna eitthvað við útgáfuna.
Útgáfa blaðsins komst inn í
umræðu á einkavæðingar-
fundi í síðustu viku og varð
það til þess að Þórður ákvað
að taka auglýsingar úr blað-
inu, enda þótti fundargestum
blasa við að það yrði í sam-
keppni við önnur blöð á sjáv-
arútvegssviðinu. Ef af hefði
orðið hefði útgáfa blaðsins
verið nokkuð traust fjárhags-
lega, en engin útboð fóru þó
fram áður en tekin var
ákvörðun um útgáfu þess.
FLUGLEIÐA-
MENN BORGA
MEÐ FOKKERN-
UM._________________
Enn einu sinni hafa dunið
yfir landsmenn tíðindi um
tapið á innanlandsflugi Flug-
leiða, eins og Sigurður Helga-
son forstjóri hefur upplýst.
Um leið hefur verið opinber-
að að ein af Fokker 50-flugvél-
um félagsins hafi verið leigð
erlendu flugfélagi. Sem kunn-
ugt er keyptu Flugleiðamenn
vélar þessar á kaupleigu og
þurfa því að borga af þeim
mánaðarlega. Eftir því sem
komist verður næst dugar
leigugjaldið ekki fyrir mánað-
arlegum afborgunum og hef-
ur heyrst að munurinn á
mánuði sé um 20.000 dollarar
eða 1,3 milljónir króna á
mánuði. Tæpast getur það tal-
ist góður bissness.
KALT A MILLI
OSSURAR OG
KARLS STEIN-
ARS._____________
Eins og rækilega var rakið á
sínum tíma var mjög spenn-
andi kosning á milli þeirra
Rannveigar Guðmundsdótt-
ur og össurar Skarphéðins-
sonar í þingflokki alþýðu-
flokksmanna í síðustu viku.
Eins og gefur að skilja voru
menn búnir að leggja nokkuð
línumar áður en til kosningar
kom. Var meðal annars gert
ráð fyrir að Karl Steinar
Guðnason styddi Össur í
kosningunni og hafði hann
gefið ádrátt um það. Annað
kom á daginn og hefur síðan
verið kalt á milli þeirra. Hefur
meðal annars verið haft á orði
að stóll forstjóra Trygginga-
stofhunar sé ekki eins tryggur
fyrir Karl Steinar og menn
gerðu ráð fyrir.
GUNNAR BIRG-
ISSONMEÐ 140
MILLJONA
KRONA VERK
FYRIR HITA-
VEITUNA.___________
Nú mun hafa verið tekin
ákvörðun um að leggja bund-
-ið slitlag á veg þann sem al-
mennt hefur verið kallaður
Nesjavallavegur og liggur
meðfram hitaveitulögninni
frá Nesjavöllum til Reykjavík-
ur. Mörgum finnst þetta
skjóta skökku við, því flestar
framkvæmdir við virkjunina
og veginn em búnar og þá em
engir þungaflutningar mögu-
legir á veginum hvort sem er.
Nú þykir flestum ljóst að það
verði Klæðning hf., fyrirtæki
Gunnars Birgissonar, sem
fær verkið, en þegar munu
vera hafnar þarna einhverjar
framkvæmdir á veginum.
Aðrir verktakar eru hissa á
þessu, því ekki er kunnugt um
að neitt útboð hafi farið ffarn
við þetta verk, sem mun vera
upp á um 100 til 140 milljónir
króna.
SÚSANNA FEST-
IR RAÐ SITT.
Einhverra hluta vegna þykja
það alltaf gleðileg tíðindi ef
fólk ákveður að deila lífinu
með einhverjum öðrum en
sjálfu sér, svona ffamrni fyrir
guði og mönnum. Það hlýtur
að vera merki um ást og ein-
drægni og allt það. Þó þykja
STEN DU R
TIL AÐ RIFA
NYTT HUS
IÐNAÐARHÚSNÆÐIÐ VIÐ VORÐUBERG
Fokhelt og verður að öllum líkindum látið víkja fyrir íbúðarbyggingum.
Bæjarráð Hafnarfjarðar
hefur samþykkt að breyta
Vörðubergi, sem er á mörk-
um Hafnarfjarðar og Garða-
bæjar, gegnt Kaplakrika, úr
iðnaðar- og þjónustuhverfi í
íbúðarhverfi. Það er í sjálfu
sér ekki í ffásögur færandi á
tímum þegar lítil sem engin
eftirspum er effir þess konar
húsnæði. Það sem er þeim
mun effirtektarverðara er að
þar stendur nú fyrir tveggja
ára fokhelt iðnaðarhúsnæði,
eitt og yfirgefið, sem passar
engan veginn inn í íbúðar-
byggðina sem þar mun eiga
að rísa í ffamtíðinni. Stendur
jafiivel til að rífa húsið.
„Það er ekki búið að
ákveða hvort húsið verður
látið fara, en sá kostur er tal-
inn hagkvæmastur fyrir nýj-
an eiganda, sem keypti
svæðið með öllu tilheyr-
andi,“ segir Jóhannes Kjar-
val, formaður skipulags-
nefndar Hafnarfjarðarbæjar.
Sá aðili sem upphaflega átti
að sjá um byggingu þjón-
ustu- og iðnaðarhúsnæðis í
Vörðubergi var byggingar-
fyrirtækið Reisir, sem náði
eingöngu að byggja þetta
eina hús og varð svo gjald-
þrota. Sá sem hefur nú yfir-
umsjón með byggingunum
er verktakafyrirtækið Hag-
tak.
Skipulag svæðisins er ekki
enn tilbúið, en vangaveltur
hafa verið um það undanfar-
ið ár. Eins og áður segir hef-
ur bæjarráð þegar samþykkt
breytingarnar — úr iðnaðar-
og þjónustuhverfi í íbúðar-
hverfi — og bæjaryfirvöld
hafa lagt blessun sína yfir
landnotkunarbreytingarnar,
en skipulagið sjálft liggur
ekki enn fyrir.
þau tíðindi alltaf merkilegri ef
nafhtogaðar manneskjur eiga
í hlut. Um páskana mun hafa
kviknað ný ást í huga Sús-
önnu Svavarsdóttur, hins
skelegga leiklistargagnrýnanda
Morgunblaðsins, og jafhffamt
í huga manns að nafiii Ásgeir
Bjarnason, sem er efhaffæð-
ingur að mennt. Og það sem
meira er; þau eru gengin í það
heilaga, og það fyrir þó-
nokkru.
GUMMI BRAGA
VAKTI ATHYGLI
KANANNA.
Nýlega tóku Islendingar þátt í
keppni á smáþjöðaleikunum á
Möltu. Frammistaða körfu-
knattleikslandsliðsins vakti
mikla effirtekt þar, enda mjög
glæsileg. Fremstur í flokki fór
Guðmundur Bragason,
körfuknattleiksmaður úr
Grindavík, sem hefur leikið
fádæma vel undanfarið tíma-
bil. Mun frammistaða hans
hafa vakið mikla eftirtekt út-
sendara frá bandarískum há-
skólaliðum og er ekki að efa
að Guðmundur hefði fengið
tilboð frá þeim væri hann
yngri.
GERVIEFNA-
VOLLUR A
LAUGARVATN.
Á næsta ári er gert ráð fyrir að
landsmót UMFÍ fari fram á
Laugarvatni, en mótinu hefur
verið ffestað um ár. Það vekur
athygli margra að ætlunin er
að byggja upp mikla íþrótta-
aðstöðu á Laugarvatni vegna
þessa móts sem á síðan að
nýtast fyrir íþróttamiðstöðina
í framtíðinni. Þetta felst meðal
annars í uppsetningu gervi-
efha á hlaupabrautir og yrði
þá Laugarvatn þriðji staður-
inn á landinu með slíkt.
Margir telja hins vegar að
þessari fjárfestingu sé illa varið
þar sem Laugarvatn sé nokk-
uð úr alfaraleið og ffekar hefði
átt að byggja völlinn á Selfossi.
Rankveig Guðmundsdóttir. Hefur orsakað kulda milli Össurar og Karls Steinars. ÞÓRUNN GESTSDÓTTIR. Svilinn lét hana hafa góðan samning með nýtt blað í sjávarútvegin-
um. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON. Hættur að tala við Karl Steinar eftir kosninguna um ráðherraembættið. KARL STEINAR GUÐNASON. Nú er spurningin sú hvort honum hefnist fyrir
að hafa stutt Rannveigu í ráðherrasiagnum í Alþýðuflokknum.GUNNAR BlRGISSON. Kominn afstað með risavaxið verk fyrir Hitaveituna við að malbika vegsem enginn
vissi af. SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR. Er komin í hnapphelduna með efnafræðingi.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Styttan af Ingólfi Arnarsyni er
nokkuð vel á sig komin miðað
við að hún er 70 ára gömul og
hefur ekkert verið haldið við. “
Pétur Bjarnason myndhöggvari.
Strax byrjaður að plata!
„Mig langaði ekkert sérstaklega til að verða ráðherra, þetta er
eins og hvert annað starf.“
Guömundur Árni Stefánsson, tilvonandi niðurskurð-
Hi'jsri. (zonœi ítió xnmáfamaSux
itjc
Ef mér verður boðið að tala og það veldur ekki mikli
: EX (ítta?
iklumó
óþægindum þá mun ég auðvitað þiggja boðið.“
Dalai Lama, leiðtogi fjallabúa.
FERILLINN í
HNOTSKURN
„Það er ekkert í hendi, en vænlegir
fuglar í skógi.“
Jón Sigurösson, á milli starfa.
cÞettaen.eútA,0(j,ci&lúlaíihottii$áJé/i
„Dagmar er kærð fýnr brot á lögum um skottulækningar
en þar sem hún hefur ekki stundað skottulækningar þá sé
ég ekki að hún hafi brotið neitt af sér.“
Ragnar Hall verjandi.
Alveg eins og ég
sjálfur
„Kerfið er tregt og það er þungt og
andsnúið breytingum.11
Eiður Guðnason, umhverfisvænn
sendiherra.