Pressan - 16.06.1993, Side 11
FIKNIEFNI A ISLANDI
Miövikudagurinn 16. júní 1993
PRESSAN I I
Innflytjendur fíknlefna geta hagnast um milljónir og jafnvel tugmilljónlr króna. Allur þorri fíkniefna berst frá Hollandi og kemur yfir-
leitt sjóleiöina meö fragt- og fiskiskipum. Tölurnar hér aö ofan sýna kaupverö innflytjandans í Hollandl á elnu kílói af hassl og einu
kílól af amfetamíni. Hagnaöurinn er gríöarlegur hvort sem hann kýs aö afhenda drelfingaraölla efnlö á íslandl eöa sjá sjálfur um
smásöluna. Áætlaö magn fíkniefna sem berst ólöglega til landsins er nálægt 300 kílóum og söluverömæti efnanna en nærri hálf-
um milljaröi króna.
Heróínmarkaður að
Fíkniefnamarkað
urinn árlega
375 milljónir kr.
60 milljónir kr.
20 milljónir kr.
Innflutnings
hagnaður
Kaupverð í Verð til
Hollandi dreifingar
af hassi
kíló af amfetamíni
af kókaíni
Vferð a
götunni
1 kg hass 200.000 800.000 1.500.000
1 Iití amf Qflfl
myndast á íslandi
Allt bendir til að innan
skamms verði heróínneysla að
alvarlegu vandamáli hér á
landi. Heróín er það fíkniefni
sem menn hræðast mest,
enda víman best og eyðilegg-
ingin mest. Löngum hafa
gengið tröllasögur um heróín
í umferð, en fíkniefnalögregl-
an hefur einungis þrisvar lagt
hald á smávægilegt magn af
efninu. Þó er talið fullvíst að
ÞORSTEINN PÁLSSON
Nauösynlegt er aö fela einu
ráöuneyti höfuöábyrgö í þessu
efni, til aö tryggja markvissari
framkvæmd og ákveönari
aögeröir.
nokkurt magn hafi verið í
umferð ekki alls fyrir löngu.
Enn sem komið er þó útilok-
að að verða háður efninu hér
á landi þar sem framboðið er
einfaldlega ekki nægilegt.
Reynsla annarra þjóða sýnir
hins vegar að þróun í átt til
heróínneyslu er óumflýjanleg.
Réttur jarðvegur virðist
kominn fýrir neyslu á heróíni.
Sprautusjúklingar eða „djönk-
arar“ eru orðnir fjölmennur
hópur á íslandi, en þetta er
það fólk sem náð hefur botn-
inum í eiturlyfjaneyslu. Þeir
hafa prófað aílt og eru reiðu-
búnir að sprauta sig með
hverju sem er til að komast í
vímu. Víman er það eina sem
skiptir máli, skynsemin er
horfin og eigið líf skiptir ekki
einu sinni máli lengur. Þeir
sem hafa prófað heróín segja
að það gefi bestu vímu sem
þeir hafi nokkru sinni komist í
og eftir það virðist ekki affur
snúið. Nú þegar hefur fjöldi
íslendinga komist í kynni við
efhið og vitað er að nokkrir Is-
lendingar hafa orðið háðir
efninu, bæði í Danmörku og í
Hollandi. Hér á landi nota
„djönkararnir“ einkum am-
fetamín og fortral, sem þeir
sprauta sig með. Fortral cr
sterkt verkjadeyfandi lyf sem
sumir læknar útvega með lyf-
seðli, en efnið hefur svipaða
verkun og heróín.
Orðrómur um heróín í
umferð er litinn mjög alvar-
legum augum hér á landi og á
meðan tekst að halda fram-
boðinu í algeru lágmarki er
ekki mögulegt að heróínsjúk-
lingar geti þrifist hér á landi.
Ef að líkunr lætur er þetta þó
vandi sem við verðum að
glíma við í náinni framtíð.
Fíkniefnin koma
sjoleiöina frá
Hollandi
Talið er að nálægt 300
kílóum af fíkniefnum sé
smyglað til landsins árlega,
einkum hassi en einnig þó-
nokkru magni af amfetamíni
og kókaíni. Algengast er að
efnin berist með skipum sem
leggja að við hinar ýmsu
hafnir landsins en einnig
koma fíkniefni með farþeg-
um sem fara um Keflavíkur-
flugvöll og nokkurt magn
kemur með pósti.
Holland er miðstöð fyrir
fíkniefni í Evrópu og þaðan
koma nær öll þau fíkniefni
sem berast hingað til lands,
nema kókaín, sem kemur
yfirleitt í gegnurn Bandaríkin
eða beint frá Suður-Amer-
íku. Núorðið er Spánn orð-
inn miðstöð fyrir kókaíninn-
flutning frá Ameríku og berst
efnið þaðan inn í Evrópu,
eins og raunin var með kóka-
ínið sem Steinn Ármann
kom með til landsins. Sú
staðreynd að Island er eyja
gerir innflutning efnanna
ekki erfiðari. Strandlengja
landsins er víðáttumikil og
eftirlit, einkum á landsbyggð-
inni, miklum erfiðleikum
háð. Þegar um stórar send-
ingar er að ræða eru efnin því
í langflestum tilfellum keypt í
Hollandi og flutt sjóleiðina til
landsins, bæði með fiskiskip-
um og fraktskipum. Áhætta
við innflutning er tiltölulega
lítil en hagnaðarvonin að
sama skapi mikil. Mikið
magn fíkniefha kemur einnig
í gegnum flugstöðina í Kefla-
vík, en magnið sem hver far-
þegi getur komið með er tak-
markað. Nokkurt magn
kemur einnig með pósti. All-
ur erlendur póstur berst á
sama staðinn og hundar hafa
því fundið nokkurt magn
efna. Þeir eru hins vegar ekki
fullkomnir og má nefna að
LSD er lyktarlaust með öllu.
Finnur Ingólfsson
„Alþingi á aö marka
stefnu þar sem tll dæmis
veröi ráögert aö uppræta
alla fíkniefnaneyslu á
næstu 4-5 árum, aö ís-
land yröl án eiturlyfja
1995.“
ITALIA 'HEILLAR
ÆVINTÝRAFERÐIR
TIL RÓMAR
▲ Stórkosrlegur ferðamöguleiki í ævintýraferð til
Rómaborgar. Flogið er til Kaupmannahafnar á miðviku-
dögum og gist eina nótt í Copenhagen Star-hótelinu
rétt við Ráðhústorgið. Næsta dag er flogið með ítalska
flugfélaginu Alitalia til Rómaborgar. Dvalið í Róm í sex
daga og gist á Fiotel Brasil, sem er þriggja stjörnu hótel í
hjarta borgarinnar.
▲ I Róm gefst kostur á að fara í margskonar skoðunar-
ferðir
svo sem dagsferð til Napólí og Kaprí með viðkomu í
Bláa hellinum. Verð á mann kr. 7.500.
▲ Stórkostlegar skoðunarferðir með enskumælandi far-
arstjórum. I boði bæði hálfsdags- og heilsdagsferðir: Co-
losseum, Vatíkanið, Péturskirkjan. Fornminjar og meist-
araverk endurreisnartímans eru alls staðar og magn-
þrungin listin heillar. Verð frá kr. 1.500.
A Sértilboð fyrir ALÍS-farþega. Verð aðeins kr.
64.500. Innifalið er flug Keflavík-Kaupmannahöfn-
Róm-Kaupmannahöfn- Keflavík, gisting eina nótt í
Kaupmannahöfn, fimm nætur í Róm (miðað við tveggja
manna herbergi), morgunverður, flugvallarskattur á Is-
landi, Danmörku og á Italíu.
Örfá sæti laus í ódýru BILLUND-FERÐIRNAR. Verð
kr. 26.900 með ölíum flugvallargjöldum. Ferðatímabil
16. júní til 25. ágúst.
FERÐAVEISLA SUMARSINS j
FERÐASKRIFSTOFAN ALÍS, SÍMI: 91-652266 1