Pressan - 16.06.1993, Síða 12

Pressan - 16.06.1993, Síða 12
12 PRESSAN F I K N I E F N Miðvikudagurinn 16. júní 1993 Fíkniefnaheimurinn stjórnast af framboði og eftirspurn Fíkniefnaviðskipti lúta lög- málinu um framboð og eftir- spurn á sama hátt og önnur viðskipti og því reynir lög- gæslan bæði að slá á framboð- ið og eftirspurnina. Þegar hald er lagt á stórar sendingar er það nær undantekningarlaust við innflutning eða mjög skömmu eftir hann, áður en efnin eru komin í dreifingu. Slíkar aðgerðir slá tímabundið á framboð efnanna. Eftir- spurnin er einnig vandamál og því er samhliða reynt að gera sölumönnum og neyt- endum lífið leitt með stöðugu effirliti. Þjóðfélagið er lítið og það gerir slíkar aðgerðir áhrifameiri hérlendis en víða annars staðar. Með þessu móti er einnig hægt að kom- ast í samband við aðila í fikni- efhaheiminum sem geta gefið upplýsingar um stöðu mála og leitt til árangurs í stærri málum. Áhersla á smásölu eða innflutning? Á milli ára eru miklar sveifl- ur í hversu mikið magn af fíkniefnum hald er lagt á og skiptir miklu máli hvort áhersla er lögð á að hefta framboð eða eftirspurn. Árið 1991 virðist áherslan frekar hafa verið lögð á smærri mál og þannig slegið á eftirspurn- ina. í fyrra virðist þessu hafa verið öfugt farið. Árið 1991 voru 632 aðilar handteknir en varðhaldsdagar voru aðeins 34.1 fyrra voru hins vegar að- eins 457 aðilar handteknir en varðhaldsdagar voru 210. Haldlagt efhi var óvenjulítið árið 1991, en árið í fyrra var metár í haldlögðu efhismagni. Sem dæmi má nefna að í fyrra var lagt hald á 20 kíló af hassi en einungis 5 kíló árið áður og haldlagt kókaín var í fyrra 1.300 grömm en einungis 3 grömm árið áður. Mörg stór fikniefnamál voru rannsökuð í fyrra. Kókaínmálið vakti mesta eftirtekt, en þar var maður handtekinn með 1.200 grömm af kókaíni. Einn karl- maður var tekinn með 2 kOó af hassi, fjórir karlmenn með 3 kíló, einn var tekinn með nærri hálft kíló af amfetamíni og tveir karlmenn með 400 grömm af amfetamíni og nærri 3 kíló af hassi. Þá var karlmaður tekinn með með 6 kíló af hassi og 200 grömm af amfetamíni, og kona játaði innflutning að 2,2 kílóum af hassi. Þá má nefna að tveir fs- lendingar voru teknir með ÍCT kíló af hassi á Spáni sem þeir höfðu flutt frá Marokkó og ætluðu að flytja hingað. Það magn er ekki inni í tölum um haldlagt efni. Atvinnuiausir karlar á þrítugsaldri Af þeim sem handteknir voru í fyrra var nær helming- ur atvinnulaus en fjórðungur þeirra flokkast sem verka- menn. Sjómenn og nemar mældust 7 prósent hvor hóp- ur. Karlmenn eru um 85 pró- sent af þeim sem teknir eru, og ríflega tveir af hverjum þremur eru á þrítugsaldri. Þriðjungur handtekinna var tekinn í fyrsta skipti, en tveir af hverjum þremur voru þekkt andlit hjá fíkniefnalög- Helstu fíkniefni í umferð á Islandí (Gröftn sýna magn af bverju SuiiefBÍ fyrir ag sem laet hefur verið haid á árlegj) Hass er langalgengasta fíkniefnið hér á landi. Er unnið úr Kannabisplönt- unni sem er ættuð úr Himalayafjöll- um og á sér 5.000 ára neyslusögu. Efnið er yfirteitt mulið niður og reykt úr einhvers konar pípum. Efnið verk- ar slævandi en langtímaneysla getur valdið tilfinningaslökun og svefn- drunga. Grammið selst á um L500 krónur. S R £ Marijuana Marijuana var áberandi hér á landi um og upp úr 1970 og tengdist þá einkum vamarliðinu í Keflavík og Suðurnesjum. Síðustu árin hefur Irtið borið á efninu enda óhagkvæmt í innfiutningi. Marijuanablöðin eru reykt í pípu eða „jónum" eins og hassið, enda unnið úr sömu plöntu/ flhrifin eru svipuð og af hassi. flmfetamín Amfetamín kom fram upp úr 1930 sem lækninga- og megrunarlyf. Varð fljótt mikið notað enda ekki talið hættulegt og var til dæmis mikið notað í stríðinu. Hvítt duft sem sogið er upp í nefið, étið eða sprautað í æð. í byrjun er neytandinn jákvæður og ör til orðs og æðis en efnið veldur lystarleysi. Langtímaneysla veldur ofsóknaræði. Varð fyrst áberandi hér fyrír tiu árum en neyslan eykst hratt. Grammið selst á 4-5.000 krónur. £N£?2?!í>SPL',S02>SSt''Ö9u>to,''e9o>®*Ht'io> 2222222°!0i0>0>0>0>0>0>0>0>0>0>0>0>0> '9 X W .. fc£:!i:£:£:!J:£:~í82?S9 00 00 00 00 00 00 00 0>0>0>0> S0l0!0!0!0!0>0>0>0>0>0>0>0>0>0>0>0>0>0>0>0> HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH Kókaín £!CS!5í5tS02?SaSISS:!2ÍS!529SSS!£'S2 N.NK.NIsNNKCOOOOOOOQOCOOoOOOOOO<J)Ó)<fiCh ojOioiaiaioiajCíaiaioiaiaiaioioaiaiciaiCDoi Kókaín er hvítkristallað duft, unnið úr blöðum kókarunnans, og neyslan á sér minnst 5.000 ára sögu. Efnið hefur örvandi verkun, eykur úthald og sjálfsöryggi og dregur úr næring- arþörf. Verkun efnisins er stutt og neysla því oft stöðug með skömmu millibili enda afar ávanabindandi. Efnið er oftast sogið upp t nef, étið eða sprautað í æð. Neyslan hefur aukist mikið síðustu ár. Grammið selst á um 10.000 krónur LSD varð vinsælt hér á landi um og upp úr 1970 og tengdist þá ekki síst frjálsræðisbyltingunni sem kennd var við '68 kynslóðina. LSD er ofskynjun- arlyf með miklar aukaverkanir en notkun þess kemur í bylgjum. Sýran er á pappaspjöldum. Verkun hefst eftir 1-2 klukkustundir og varir í fjóra tíma eða lengur. Varanlegur reglunni. Árlega eru um 700 aðilar teknir til yfirheyrslu, gerðar eru á annað hundrað húsleitir og um 20 manns sendir í röntgenrannsókn. Vanbúin fíkniefnadeild Margir telja fíkniefhadeild- ina vanefhum búna, hvað varðar mannskap, fjármagn og tæki. Löggæsla úti á landi er erfiðleikum háð vegna manneklu og yfirvinnukvóti gerir mönnum óhægt um vik að fylgja málum eftir á höfuð- borgarsvæðinu. Þá hefur það einnig verið gagnrýnt að stjórnvöld skuli ekld hafa markað ákveðna stefnu í þess- um efnum. Reglur um starf- semi deildarinnar eru mjög af skomum skammti, éins og tíl dæmis kom fram í kókaín- máfinu á dögunum. Þá reyndi á hluti eins og notkun hlemn- arbúnaðar og tálbeitu. í dómnum yfir Steini Armanni Stefánssyni var vísað til al- mennra réttaröryggisreglna þar sem lagareglur skorti. Þá er það vandamál hér á landi sem annars staðar að þeir sem stunda viðskipti með fíkniefhi hafa úr miklu fjármagni að spila og lögreglumönnum hefur verið boðið talsvert fé fyrir að loka augunum og gefa upplýsingar. Við fíkniefna- deildina starfa fjórtán lög- reglumenn en auk þess sinnir tollgæslan mikilvægu hlut- verki við leit að fíkniefhum. Fimm leitarhundar eru í land- inu og þar af hefur fíkniefna- deildin tvo og tollgæslan einn. Tveir eiga að vera staðsettir í Keflavík en annar þeirra drapst nýlega og staðgengill hans kemur innan fárra mán- aða. Meðferð fyrir ffhniefnaneytendur Árlega leita um 300 manns sér lækningar vegna neyslu ólöglegra fikniefna. í langflest- um tilvikum er um misnotk- un á kannabisefhum og am- fetamíni að ræða. Árlega eru um eða yfir 1.500 einstakling- ar sem hljóta meðferð á sjúkrastofnunum SÁÁ og um 15 prósent þeirra eða um 250 teljast misnotendur á kanna- bisefni. Þá er miðað við að viðkomandi hafi neytt kanna- bisefna vikulega eða oftar í eitt ár eða lengur. Hlutfall þeirra sem mælast misnotendur á amfetamíni er um eða yfir 10 prósent. Tiltölulega fáir mæl- ast stórneytendur á kókaíni. Af þeim sem leituðu sér með- ferðar hjá SÁÁ í fyrra voru fimmtán sem höfðu notað kókaín reglulega í hálft ár eða meira. Meðferð fíkniefhaneytenda er í meginatriðum sú sama og hjá þeim sem hafa misnotað áfengi. Afeitrunin er nokkuð frábrugðin og í meðferðinni er einnig reynt að koma til móts við sérþarfir þessara ein- staklinga. Eins og aðrir sjúk- fingar fara þeir fýrst í gegnum sjö daga meðferð og síðan 28 daga eftirmeðferð. Samtals er kostnaður af þessum legudög- um nærri 150.000 krónum. Mælingar sýna engan sjáan- legan mun á batalíkum þeirra sem eiga einungis við áfengis- vandamál að stríða og þeirra sem misnota kannabisefni. Varanlegar batalíkur þeirra sem koma til meðferðar í fyrsta sinn og ljúka meðferð er um 60 prósent. Erfiðara er að gera sér grein fýrir þeim sem misnota amfetamín þar sem þeir hafa oft verið áður í með- ferð. Batafikur þeirra sem hafa verið áður í meðferð eru um 30 prósent. Það var ekki fýrr en um 1970 að ólögleg fíkniefna- neysla varð fýrst vandamál hér á landi og þá einkum notkun kannabisefna, en einnig þekktist misnotkun á ofskynj- unarlyfinu LSD. Notkun á kannabisefnum jókst aftur til muna eftir 1980 en hefur ver- ið nokkuð stöðug síðan. Mið- að við tölur SÁÁ hefur heldur dregið úr kannabisneyslu hjá þeim sem eru eldri en 25 ára en aukist hjá þeim sem eru yngri en 20 ára. Tölurnar benda til þess að neyslan í heild hafi dregist saman. Um þriðjungur þeirra sem leita sér meðferðar hefur notað kannabisefni tíu sinnum eða oftar. Amfetamín varð ekki áber- andi fýrr en á níunda áratugn- um þótt notkun efnisins væri vel þekkt á þeim áttunda. Mælingar sýna að þá hafi am- fetamínneytendur nær und- antekningarlaust gengið í gegnum misnotkun á kanna- bisefnum en á síðustu árum virðist notkun þessara efha ekki vera eins nátengd. Tölur SÁÁ benda til þess að notkun amfetamíns sé mun sveiflu- kenndari. Neyslan virðist hafa náð hámarki um miðjan síð- asta áratug og dalað nokkuð eftir það en sé nú að ná svip- aðri útbreiðslu aftur. Sprautu- notkun virðist einnig hafa verið mest um og effir miðjan síðasta áratug. Árlega nota um hundrað sjúklingar sprautur en mun færri nota þær reglu- lega. ÞÓRARINN TYRFINGSSON Meöferö fíkniefnaneytenda er í meginatriöum sú sama og hjá þeim sem hafa misnotaö áfengi

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.