Pressan - 16.06.1993, Page 15

Pressan - 16.06.1993, Page 15
SKOÐANIR Miövikudagurinn 16. júní 1993 Sng -Snpítnl Stœrsta minnismerkið um framsóknarmennsku STJORNMAL Biðin langa Við bæjarmörk Reykjavíkur og Mosfellsbæjar er jörðin Korpúlfsstaðir. Um þessa jörð hefur leikið meiri dýrðarljómi en nokkra aðra jörð í landinu. Hún hefur verið höfð til marks um framsýni og stór- hug í upphafi aldarinnar. Danskur búðarpiltur, sem hafði efnast á útgerð, tók sér fyrir hendur að breyta þessu koti, sem hann hafði keypt af Einari Benediktssyni skáldi, í danskan herragarð með vinnuhjúum. Tæknilegar for- sendur fýrir búrekstri voru óbreyttar um aldir. Hringrás- in var: Gras, afurð, kúaskítur, gras o.s.ffv. Tilbúinn áburður var ekki til. Framkvæmdir hófust árið var ótrúlegur. Kjósendur í Reykjavík deila í dag um það hvort kostnaður við Ráðhús og Perlu hafi farið úr öllum böndum en kostnaður við byggingu Korpúlfsstaða var meiri en bygging Ráðhúss Reykjavíkur. Aður en lengra er haldið er rétt að líta til baka og hugleiða ástand mála á íslandi árið 1925. Iðnbyltingin, sem hófst í öðrum löndum með uppfinn- ingu James Watt, gufuvélinni, hélt innreið sína á íslandi rétt- um hundrað árum eftir iðn- byltinguna í Evrópu. Iðnbylt- ingin á Islandi hófst með vél- væðingu bátaflotans og tog- araútgerð upp úr síðustu alda- mótum. Vélvæðingin í land- búnaði var þúfnabani og rakstrarvélar, dregnar af hest- um. Búðarpilturinn hafði eign- ast togara og hann taldi að hægt væri að iðnvæða land- búnaðinn á sama hátt. En hann gleymdi því, að þótt ís- land væri vel fallið til útgerðar og fiskvinnslu var ekki víst að landið væri jafnvel fallið til landbúnaðar. Við lestur ævisögu búðar- piltsins, Thors Jensen, sem er skráð af Valtý Stefánssyni, bú- fræðingi og ritstjóra, er hvergi gerð grein fýrir þeim fjárhags- legu forsendum sem þessi stórframkvæmd byggðist á. Það þurfti ekki að spyrja að því hvað hlutirnir kostuðu, því afkoma útgerðarinnar var slík að hún þoldi þennan bagga, sem uppbygging á búr- ekstri var. Búreksturinn var Thor hugsjón. Má því segja um hann að hann hafi verið í hlekkjum hugarfarsins. Hug- tökin vextir, afkastavextir og fórnarkostnaður var ekki til hjá þessum góðu herrum. En það hallaði undan fæti í útgerðinni og búreksturinn stóð ekki undir kostnaði við gleðileg staðreynd að kaup- máttur launa þeirra, sem höfðu atvinnu á kreppuárun- um, var mjög hár. Þessi laun hafði búreksturinn ekki efni á að greiða. Búreksturinn á Korpúlfs- stöðum var frá upphafi einn allsherjar misskilningur og átti sér aldrei neinar fjárhagslegar forsendur. Sú skýring að af- urðasölulög og stofnun Mjólkursamsölunnar hafi knésett búrekstur á Korpúlfs- stöðum er röng. Hagkvæmni staðsetningar og stærðar vann ekki upp stofn- og rekstrar- kostnað í búrekstrinum. Reykjavíkurborg keypti all- ar jarðeignir Thors Jensen í nágrenni bæjarins, að undan- skildu Lágafelli, árið 1941. Thor var þá orðinn gamall maður og uppgefinn á bú- skapnum. Thor andaðist 1947 og hafa aðdáendur hans haldið því á loft að hann hafi orðið fórnar- lamb ofsókna hugsjóna ffam- sóknar- og samvinnumanna. I raun var það framsóknarmað- urinn í honum sjálfum sem varð honum kostnaðarsamur. En ekki er öll vitleysan eins. Nú hefur Reykjavíkurborg átt jörðina í 50 ár. Fyrstu 25 árin var þar hefðbundinn búrekst- ur en ffá því um miðjan sjö- unda áratuginn hafa hús á Korpúlfsstöðum verið nýtt sem geymslur. Fyrir nokkrum árum datt nokkrum hugsjónamönnum nútímans í hug að reisa lista- miðstöð á Korpúlfsstöðum og halda áffam með brjálsemina frá 1925. Þeir voru í veiðitúr og kann það að skýra frum- lega tillögu. Hugsjónamennirnir ganga á fund borgarstjóra, sem einn- ig er stórhuga hugsjónamað- ur, og leggja hugmyndina fýrir hann, en með viðbiti: Reykja- víkurborg standi til boða að fá að gjöf myndasafn Errós. Hugsjónamennirnir telja Erró heimsfrægan listamann, þótt hans sé hvergi getið í helstu yfirlitsritum um nútíma- myndlist. En borgarstjóra fannst hug- myndin snjöll. Tímasetningin var góð. Borgin yrði jú að hafa eitt gæluverkefhi undir hverju sinni. Enn heldur misskilningur- inn áfram. Nú ætla sjálfstæð- ismenn í Reykjavík að gera minnismerki framsóknar- mennskunnar ódauðlegt. Ástandið á Korpúlfsstöðum er mjög slæmt. Ekki verður hægt að tala um endurbætur heldur verður um að ræða endur- byggingu. En gæluverkefni geta falið í sér skynsemi. Einn er sá vaxt- arbroddur, sem einhverju gæti skilað af sér í íslenskt þjóðarbú. Það er móttaka ferðamanna, sem borga fýrir sig. En aðstöðuna vantar. Reykjavíkurborg er í þeirri einstöku aðstöðu að geta fljót- lega hafið byggingu ráðstefnu- miðstöðvar, sem yrði sam- keppnisfær við aðrar slíkar er- lendis. Óbeinar tekjur Reykja- víkurborgar munu skila sér í Borgarsjóð. Enn er von og vonandi mun hljóma í eyrum Markús- ar Arnar kvæði Steins Stein- ars, að breyttu breytanda: Borgarstjóri tók handfýlli af leir, en skynsemin sagði ekki meir, ekki meir... „Ég vil vera metin að verð- leikum í pólitík. Enga kvóta og enga kvennalista, takk!“ „Konur þurfa bara að herða sig og hætta þessu væli. Þær geta sjálfum sér um kennt ef þær komast ekki til æðstu metorða.“ Ég veit ekki hversu oft setn- ingar af þessu tagi hafa verið sagðar í mín eyru. Gildir einu hvort rætt er við karla eða konur. Komist konur ekki til valda er það vegna þess að þær eru lurður og hafa ekki í sér þann dug og það kapp sem hleypur vöskum karlmönn- um í kinn í hvert sinn sem lyktin úr kjötkötlunum berst að vitum þeirra. Ádrepan glymur í eyrum í óteljandi út- gáfum en skilaboðin eru alltaf þau sömu: Valdaleysi kvenna er þeim sjálfum að kenna. Þær standa sig ekki nógu vel. Hverjum er um að kenna að Rannveig Guðmundsdóttir þingkona hreppti ekki hnoss- ið þegar ráðherrastólum Al- þýðuflokksins var útdeilt til tveggja nýliða nú á dögunum? Hafði Rannveig svona litla reynslu úr pólitík? Hafði hún aldrei áður gegnt trúnaðar- störfum fyrir flokk sinn? Er Rannveigu ekki treystandi? Sé einhver ekki viss, þá er svarið við þessum spurningum NEI. Rannveig er nefnilega stjórn- málamaður af ráðherrakal- íber, eins og einhver orðaði það, og fær í flestan sjó. En samflokksfólk hennar ákvað að það væri ekki rúm fyrir aðra konu í íslensku ríkis- stjórninni. Það þurfti að koma strákunum að. Ungum „spúttnikkum" með valda- glampa í augunum. Mönnum sem ekki geta beðið. En Rannveig Guðmunds- dóttir má bíða líkt og íslenskar konur hafa gert öldum sam- an. Bíða eftir því að það henti körlum að þær taki sæti sem þeir vilja ekki verma lengur. Þá er óhætt að hleypa konu að. En helst bara einni í einu: Einni konu í ríkisstjóm, einni konu í hæstarétt, o.s.ffv., því „Á sama tíma og Alþýðuflokksmenn uppi á íslandi hafna konu sem ráðherra til- nefna Tyrkir konu sem forsœtisráðherra og í Kanada er kona að taka við stjórn- taumunum. “ 1925 og lauk árið 1929. Kostnaður við fram- kvæmdir á Korpúlfsstöðum vinnuhjú. Það er nefnilega FJOLMIÐLAR Skipta leiðréttingar engu máli? Enginn er óskeikull — allra síst fjölmiðlamenn. Það er eins og það fylgi starfinu að verða á í messunni, það er staðreynd sem enginn fjöl- miðlamaður getur komið sér undan. I amerískum hand- bókum um blaðamennsku er gefin upp prósentuóvissa um skrif blaðamanna þegar þeir fjalla um efni sem getur fallið undir sérfræðiþekkingu ein- hvers. Mig minnir að þá megi gera ráð fyrir á milli 10 og 15 prósent óvissu — eða svo segja Kanar. Yfirleitt virðist hægt að skipta athugasemdum í blöð- um í tvennt: Annarsvegar eru gerðar athugasemdir vegna staðreynda þar sem eitthvað, sem að öllu jöfnu þyrfti ekki að deila um, hefur skolast til. Oftast nær er einfalt mál að fá leiðréttingu mála varðandi það. Blaðamönnum er jú ljúft og skylt að birta leiðréttingar þegar þeim verður á, það lýtur einfaldlega að heiðri blaða- mannsins. Hins vegar er um að ræða athugasemdir við efiii eða efnistök. Þá er oftar um það að ræða að viðkomandi finnst blaðamaður hafa skotið yfir markið, dregið rangar ályktanir eða yfirhöfuð tekið ranglega á málurn. Þá er oft erfiðara að komast að niður- stöðu. Oft fer málið út í karp þar sem báðir hafa nokkuð til síns máls og eru lyktir þess oft að birta hlutlausa athuga- semd. En skipta leiðréttingar ein- hverju máli? Blaðamönnum er oft legið á hálsi fyrir að þegja athugasemdir í hel eða grafa þær einhvers staðar inni í blaði. Það gefur augaleið að athugasemd verður aldrei birt með jafnáberandi hætti og fféttin sjálf. Vanalega lúta at- hugasemdir að afmörkuðum þætti fréttarinnar og eiga því alls ekki skiiið að fá mikið rými. Það væri eins og ef kæmi í ljós að ákveðinn hluti bíls væri ótraustur, þá yrðu bílar þeirrar tegundar fram- leiddir með risavöxnu víra- virki þar sem bilunarinnar varð vart í stað þess að leysa vandamálið með heildar- hönnun bílsins í huga. Það Iiggur hins vegar fyrir að athugasemdir og leiðrétt- ingar vekja vanalaga töluvert meiri athygli en rými þeirra gefur til kynna. Þessi einföldu orð; Athugasemd eða Leið- rétting, kalla nefnilega á nokkra athygli. En þá kemur að kjarna þeirrar spurningar sem hér er sett fram í fyrirsögn. Skipta leiðréttingar einhverju máli? Því er þannig háttað að ef kemur til kasta dómstóla út af frétt, vegna þess að einhverj- um þykir vegið að æru sinni, skipta leiðréttingar engu máli. I krafti úreltrar löggjafar er hægt að stefna fyrir leiðrétt ummæli sem þar með hafa í reynd verið dregin til baka af þeim er þau skrifar. Hér á landi hafa fallið dómar þar sem ummæli sem búið var að „Blaðamönnum er jú Ijúft og skylt að birta leiðréttingar þegar þeim verður á, það lýtur ein- faldlega að heiðri blaðamannsins. “ draga til baka voru dæmd dauð og ómerk. Það má vera að finna megi einhverjar júr- istískar skýringar á þessari þverstæðu en ekki skil ég hana. Á móti má að sjálfsögðu spyrja: Til hvers eiga blaða- menn að hafa fýrir því að leið- rétta skrif sín ef dómstólar PRESSAN 15 að þess er vandlega gætt innan gömlu stjórnmálaflokkanna að „of margar“ konur komist ekki að. íslenskum karlmönnum ætlar seint að skiljast að svo ná megi jafnri stöðu kynjanna verða þeir að færa einhverjar fórnir. Það segir sig sjálft að fjölgi konum í ríkisstjórn eða á Álþingi verða einhverjir karlar að láta í minni pokann og tapa sínum sætum. En körlum lætur illa að tapa og lætur vel að leggja allt í söl- urnar fyrir stólana. Stöku sinnum rétta þeir eitthvert lít- ilræði að hinu kyninu og telja sig bara nokkuð góða. Annað var ekki að heyra á Jóni Bald- vini Hannibalssyni en hann undraðist heimtufrekju Rann- veigar að gera sér ekki að góðu formennsku í þingflokki Al- þýðuflokksins, sem hann bar saman við ráðherradóm. Nú má Rannveig stýra þingflokki jafnaðarmanna, enda össur búinn að ljúka sér af og á leið upp metorðastigann. Á sama tíma og Alþýðu- flokksmenn uppi á Islandi hafha konu semnáðherra til- nefha Tyrkir konu sem for- sætisráðherra og í Kanada er kona að taka við stjórntaum- unum. I annan tíma hefði það þótt frétt til næsta bæjar að tyrkneskir stjórnmálamenn væru framsýnni en starfs- bræður þeirra hérlendir. I Kanada hafa menn einnig haft vit á að glopra ekki niður tækifæri til að koma konu til valda, en þvl er ekki að heilsa hér á landi. Þannig virkar nefnilega gervijafnréttið á Is- landi. Á forsendum karla og fýrir karla. Ójöfh- uðurinn í Jafnaðarmanna- flokki Islands hefur sjálfsagt aldrei verið meiri en einmitt nú, árið 1993. Eitt má þó telja jákvætt við atburðina í Alþýðuflokknum. Þeir hafa sýnt konum svo ekki verður um villst að karlar hyggjast ekki hleypa þeim að í íslenskum stjórnmálum. Það skiptir engu hversu málefna- leg eða klár þú ert, eða hversu mikið þú herðir þig þegar á móti blæs. Þegar að úthlutun ráðherrastóla kemur verður þú ekki metin að verðleikum. Þá veistu það. Höfundur er stjórnmálafræðingur taka ekki mark á því þegar til kastanna kemur? Þessu er reyndar fljótsvarað: Blaða- menn láta dómstóla ekki segja sér fýrir verkum. Auðvitað ber ekki að taka á misfellum af léttúð, það heldur því enginn fram sem vill láta taka sig al- varlega að það sé allt í lagi að slá einhveiju fram — alltaf sé hægt að leiðrétta síðar. Málið er að blaðamenn verða að fá frið til að starfa út frá þeim forsendum sem starfið sjálft setur þeim. Það fer enginn fram á að þeir fái að lifa í tómarúmi en þeir hljóta þó að eiga rétt á að tekið sé tillit til sérstöðu starfs þeirra, sem verður alltaf á mörkurn hins mögulega._______________________ Sigurður Már Jónsson f BJÖRK GUÐMUNDSDÓTT1R SÖNGKONA Þrátt fyrir aö líta út eins og Kínverji er hún líklega á góbri leib meb ab veröa frægust allra íslendinga. Má gera ráb fyrir aö þjóbin fylg- ist í andakt meö lagi hennar skríba upp um eitt og eitt sæti breska vinsældalistans næstu vikurnar. BJÖRN TH. BJÖRNSSON ÞING VALLA FRÆÐINGUR Hann vissi reyndar ekki um áletrunina á Þingvöllum þótt hann ætti aö vita allt um þennan forna þingstaö, en hinu er ekki aö neita aö hann var fljótur aö útskýra krassiö þegar hann skoöaöi það. JÓN SIGURÐSSON TILVONANDI SEÐLABANKA- STJÓRI Þaö heföi engum nema snill- ingi á leiöina í Seölabank- ann tekist aö útskýra fyrir náttúruunnendum fyrir norö- an aö Dettifoss yröi miklu fallegri og langlífari ef Jök- ulsá yröi virkjuö. ÓLAFUR TÓMASSON PÓST- OG SÍMAMÁLA- STJÓRI Þaö hlýtur aö vera eitthvaö bogiö viö þaö símkerfi sem bilar alltaf þegar gert er við þaö. Svo viröist sem sím- kerfi höfuöborgarsvæöisins hafi ofnæmi fyrir starfs- mönnum Pósts og síma. ÁRNIBERGMANN FYRRVERANDI RITSTJÓRI Hann er hættur aö berjast viö stjórnmálamenn og hef- ur snúiö sér aö forstjórun- um. Einhvern veginn fínnst manni aö þar leggist lítiö fyrir mikinn hugsjónamann, eöa er hann kannski kominn á rétta kúrsinn nú? FRIÐRIK ÓLAFSSON SKRIFSTOFUSTJÓRI OG STÓRMEISTARI Þetta fyrrum átrúnaöargoö þjóöarinnar viröist eldast hraöar en aörir gamlir skák- menn. Þaö er ferlegt hjá honum aö láta konurnar í Vín fara svona með sig.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.