Pressan - 16.06.1993, Side 17

Pressan - 16.06.1993, Side 17
VILLTA NORÐRIÐ Miðvikudagurinn 16. júní 1993 PRESSAN 17 Umfangsmikil rannsókn ó meintum lögbrotum sýslumannsins í Siglufirði: EMBÆTTIÐ MiIÐSTOÐ SMYGLS OG SPILLINGAR Rætt um smygl á reiðtygjum og áfengi í mörg ár7 varning- urinn rakinn til Herberts „Kóka“ Ólasonar í Þýskalandi, sem framleiðir hnakka og reiðtygi í Póllandi. Sonur Kóka í gæsluvarðhaldi. Sonur sýslumannsins dæmdur fyrir tilraun til að smygla fálkaungum til Þýskalands. Sýslumaðurinn, framkvæmdaraðili aðfarargerða, „mætti“ fyrir hönd gerðar- beiðenda og fékk þrjúþúsundkall í hvert skipti. Ráðstöfun eigna þrotabúa og reikninga í lánastofnunum til skoðunar. Erlingur Óskarsson Sjálfur sakaöur um að hafa smyglaö varningi frá Þýskalandi og um ýmis önnur embættisafglöp. Sonur hans var nýlega dæmdur fyrir smygl á fálkaungum, handtekinn í Danmörku á leiðinni til Þýskalands. Rannsókn Rannsóknarlög- reglu ríkisins, Ríkisendur- skoðunar, dómsmálaráðu- neytis og Ríkistollstjóra vegna meintra embættisafglapa og lögbrota Erlings Óskarssonar sýslumanns og Gunnars Guð- mundssonar, yfirlögreglu- þjóns í Siglufirði, gerist nú æ umfangsmeiri. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR nær rannsókn þessara aðila til fjölmargra sviða og teygir anga sína allt til Þýskalands. Er talið að lengi hafi verið kunnugt um ýmsar misfellur í starfi sýslumannsins og yfir- lögregluþjónsins, án þess að gripið hafi verið til aðgerða. Erlingur hefur gegnt stöðu sinni frá því hann var „pólit- ískt skipaður" af Friðjóni Þórðarsyni dómsmálaráð- herra í upphafi síðasta áratugar. Sýslumaöurinn rukk- aði gerðarbeiðendur sem fulltrúi beirra Eins og kunnugt er var Er- lingur Óskarsson tekinn fyrir meint smygl á reiðtygjum og áfengi, sem flutt var inn í nafni eiginkonu sýslumanns- ins. Honum var vikið úr emb- ætti og í kjölfarið sömuleiðis Gunnari Guðmundssyni yfir- lögregluþjóni. Fyrir utan meint lögbrot á tollalöggjöfinni hefur farið ffarn rannsókn á vegum Rík- isendurskoðunar á embættis- verkum Erlings og fjárreiðum embættisins almennt; á inn- heimtum tekjum og í hvað út- gjöld embættisins hafa farið. Ríkisendurskoðun hefur reyndar þegar sent dóms- málaráðuneytinu greinargerð um málið. Mjög veigamikill kafli í þeirri greinargerð er taka Erlings sýslumanns á svo- kölluðum mótaþóknunum, sem einfaldlega eru kallaðar Mót. Við hinar ýmsu aðfarar- gerðir; nauðungarsölumeð- ferð, kyrrsetningar, lögbanns- og löggeymslugerðir og út- burðar- og innsetningargerð- ir, geta lögfræðingar fengið aðra löglærða menn til að mæta fyrir sig, komist þeir sjálfir ekki á vettvang. Þeir sem mæta þannig fyrir hönd gerðarbeiðenda fá í þóknun Mót, sem alla jafna er tæplega þrjú þúsund krónur fyrir hvert skipti. I tilfelU sýslumannsins mun hann hafa tekið að sér að mæta fýrir ýmsa gerðarbeið- endur og innheimt Mót fýrir. Með öðrum orðum tók sá. sem framkvæmdi aðfarar- gerðina að sér að mæta fyrir gerðarbeiðendur, sem felur vitaskuld í sér mikla hags- munaárekstra. Ráðstöfun tveggja sumarhúsa úr þrota- búum til skoðunar Hvað aðrar embættisfærsl- ur varðar hefur PRESSAN fengið staðfest að meðal þess sem til skoðunar hefur verið sé ráðstöfun eigna úr nokkr- um gömlum þrotabúum í Siglufirði. Hér er átt við þrota- bú Búts hf., Tréverks hf. (dótturfélag Búts), Húsein- inga hf. og ísafoldar hf., en liðin eru á milli þrjú og sex ár frá því þessi félög voru úr- skurðuð til skipta. Þrjú þau fyrsttöldu voru í aðaleigu Konráðs Baldvinssonar. Sam- kvæmt heimildum blaðsins nær rannsókn þessara mála meðal annars til þess hvort Erlingur Óskarsson hafi sem sýslumaður og skiptaráðandi keypt tvö sumarhús af þrota- búi Húseininga, en það fýrir- tæki var í eigu sömu einstak- linga og Bútur og Tréverk. Bústjórinn er Hallgrímur Ól- afsson, lögffæðingur í Reykja- vík, og voru gerðar ítrekaðar en árangurslausar tilraunir til að ná af honum tali. Er með- ferð þessara þrotabúa sögð með eindæmum, meðal ann- ars áframhaldandi rekstur Búts og Tréverks, sem leitt hafi til þess að þrotabúið sjálft varð gjaldþrota og að í kjölfar- ið hafi ýmsum eignum verið ráðstafað ódýrt eða hreinlega gefnar. Þrotabú Búts/Tréverks fór í mál við Sigíufjarðarbæ og krafðist hárra fjárhæða vegna framkvæmda við „Gamla bakaríið“ svokallaða, en tap- aði málinu í undirrétti. Það er nú fýrir Hæstarétti. Þá munu hafa verið skoð- uð, í tengslum við rannsókn á fjárreiðum embættanna, mál- efni útibús íslandsbanka í Siglufirði og Sparisjóðs Siglu- fjarðar. Komu menn að sunn- an frá þessum lánastofnun- um. Sendingar sonar Kóka „ tollskoðaðar“ í Siglu- firði______________________ Alvarlegustu meintu afbrot- in hjá Erlingi og Gunnari tengjast þó smyglmálinu, en Erlingur er æðsta yfirvald á staðnum og Gunnar Guð- mundsson umsjónarmaður tollskoðunar auk þess að vera yfirlögregluþjónn. Erlingur og tengdasonur hans, sumar- afleysingamaður í lögreglunni, munu hafa verið að festa hestakerru með hinum vafa- sama varningi þegar tollarar að sunnan stöðvuðu þá. Hef- ur jafnframt verið fullyrt að þeir hafi verið stöðvaðir of snemma; að ekki hafi verið beðið eftir því að mennirnir affermdu varninginn. Fullyrt er að reiðtygi frá Er- lingi hafi verið til sölu á Norð- urlandi um nokkurt skeið og þótt ódýr. Meðal annars hafi þau verið til sölu á Sauðár- króki, þar sem búa meðlimir fjölskyldu Gunnars Guð- mundssonar. Það er annars um þennan varning að segja að hann barst til Reykjavíkur frá Þýskalandi. Hestakerran var ekki tollskoð- uð í Reykjavík, heldur áfram- send til Siglufjarðar til toll- skoðunar þar. Talið er fullljóst að um fjölmargar slíkar send- ingar hafi verið að ræða und- anfarin misseri. Vegna þessa hefur maður í Reykjavík ver'ið hnepptur í gæsluvarðhald. Sá er Asgeir Svan Herbertsson hestakaupmaður. Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúr- skurðinn síðastliðinn mánu- dag. Ásgeir starfar í nánum tengslum við föður sinn, Her- bert „Kóka“ Ólason, sem rek- ur hestabúgarð nálægt Hannover í Þýskalandi — og hnakka- og reiðtygjafram- leiðslu í Póllandi. Það er ein- mitt Kóki sem er hinn meinti sendandi hestakerranna til sýslumannsins með þeim varningi sem talið er að hafi fýlgt í hvert sinn; reiðtygjum og áfengi. Kóki: 30 manns í Pól- landi framleiða hnakka og reiðtvdi Herbert „Kóki“ Ólason var á árum áður umsvifamikill í tískufatabransanum á Akur- eyri, rak búðina Sesar í sam- vinnu við Faco í Reykjavík. Síðar keypti hann bújörðina Króksstaði við Eyjafjörð og sneri sér að hestamennsku. Króksstaði seldi hann 1982 og hélt upp úr því til Þýskalands. í viðtali sem Þorgrímur Þráinsson tók við Kóka fyrir Mannlíf haustið 1991 sagði Kóki meðal annars að hann væri byrjaður með hnakka- og reiðtygjaframleiðslu í Pól- landi, þar sem störfuðu 29 manns á hans snærum og væri fýrirhugað að selja afurð- irnar til Islands, auk annarra landa. Aðalstarf hans þá sem nú var rekstur hestabúgarðs með kaupum, tamningu og sölu á íslenskum hestum. Það kom og ffarn hjá Kóka að sex aðrir íslendingar væru í sams konar rekstri og hann í Þýska- landi. Hann gaf annars hesta- mennsku á íslandi sína verstu einkunn: „I þessum bransa er varla hægt að treysta nokkr- um manni. Þetta er hrikalega rotið.“ Sonur sýslumannsins dæmdur fyrir að smvala falkaunaum Þeir Þorsteinn Óskar Er- lingsson, 23 ára sonur sýslu- mannsins, og Vilhelm Ulfar Vilhelmsson, 27 ára systur- sonur eiginkonu sýslumanns- ins, voru handteknir af lög- reglunni í Herning í Dan- mörku með tvo fálkaunga, en út fóru þeir með þá með Nor- rænu frá Seyðisfirði tveimur dögum fýrr. Ætlunin var aug- ljóslega að selja ungana og voru mennirnir á leiðinni til Þýskalands. Þeir voru færðir til íslands og þann 8. ágúst fundu rannsóknarlögreglu- menn tvo smyrilsunga í kjall- araíbúð Þorsteins Óskars við Reynimel í Reykjavík. Þorsteinn og Vilhelm ját- uðu brot sín skýlaust. í Dan- mörku þurffi að aflífa annan fálkaungann vegna fótbrots og á íslandi var ákveðið að aflífa annan smyrilsungann vegna þess hve fjaðrir voru mikið skaddaðar, líklega sviðnar. I Héraðsdómi Reykjavíkur þótti Sverri Einarssyni það verka refsingu til þyngingar að þeir frömdu brot sín gegn við- kvæmri náttúru landsins í því skyni að hagnast verulega á þeim og að ekki yrði annað séð en fuglarnir hefðu sætt illri meðferð mannanna. Sverrir dæmdi hvorn þeirra í þriggja mánaða óskilorðs- bundið fangelsi og 200 þús- und króna sekt. Þessu áffýjaði ákæruvaldið og vildi fá þyngri refsingu. I Hæstarétti dæmdu málið Hrafn Bragason, Garðar Gíslason og Guðrún Erlends- dóttir. Þar brá svo við að dómararnir féllust ekki á þyngingu og ekki nóg með það; tveir mánuðir af þremur voru skilorðsbundnir hjá Þor- steini Óskari. Vilhelm átti að baki dóm vegna hegningar- lagabrots.________________ Friðrik Þór Guðmundsson ásamt Sigurði Má Jónssyni Þýskalandi og verksmiðju í Póllandi sem framleiðir hnakka og reiðtygi. Sonur hans situr í gæsluvarðhaldi vegna sýslumanns- málsins í Siglufirði.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.