Pressan - 16.06.1993, Page 31
AÐ L I F A LIFINU
Miðvikudagurinn 16. júní 1993
PRESSAN 31
Fyrsta plata Bogomils Font og Milljónamæringanna kemur út á afmælisdegi lýöveldisins. Nú er von til þess að mambóa megi heima í stofu.
Það væri synd að segja annað en Bogomil Font og
Milljónamæringamir hafi verið heitir sólargeislar í
skuggsýnum gleðihúsum landsins allt frá því þeir
hófu að spila saman. Frá og með morgundeginum
gefst aðdáendum hljómsveitarinnar líka kostur á að
ylja sér við tónsmíðar Bogomils og félaga heima í
stofu, en þá kemur út fyrsta skífan með hljómsveit-
inni, undir nafninu Ekki þessi leiðindi. „Titillinn
kemur ffá ástsælum rótara okkar, Steina rót, sem brá
þessari setningu oft fyrir sig. Þetta er fyrsta ballplatan
sem gefin hefur verið út hérlendis, í þeirri merkingu
að hér er um að ræða úrval laga sem tekin voru upp
á tveimur dansleikjum í Hlégarði í mars. Þá var spil-
að fyrir kexfullu húsi og þar var mikið fjör,“ segir
Sigtryggur Baldursson, umboðsmaður Bogomils.
Á plötunni er engin virðing borin fyrir tungumál-
um og er á henni að finna kúbverska mambóa og
amerísk djass- og dægurlög ásamt fáeinum íslensk-
um lögum. „Ég gerði alvarlega tilraun til að snara út-
lendu textunum yfir á íslensku en útkoman varð
ónothæft bull. Það var því ákveðið að láta textana
standa í óbreyttri mynd.“ Að auki er aðeins eitt lag-
anna ffumsamið. „Slíkt efhi var í fyrstu blótsyrði og
bannorð en þegar yfir lauk reyndist eitt laganna vera
ffumsamið; Marsbúa-tsjatsjatsja. Þetta lag er stolið
og stælt, en textinn fjallar um danssnillinga lands-
• u
rns.
Ekkert launungarmál er að Bogomil er afar hrifinn
af listamannsferli Hauks heitins Morthens og ósjald-
an glittir í fyrirmyndina þegar Bogomil þenur radd-
böndin. „Platan er tileinkuð minningu hans, en
ástæða þess að ég tók ástfóstri við Hauk er sú að ég
tel hann vera ókrýndan konung dægurlaganna og
finnst hann jafnffamt standa stórum nöfnum á borð
við Frank Sinatra og Nat King Cole fyllilega á
sporði.“
Tónleikaför þeirra Bogomils og félaga hefst með
útgáfutónleikum á Ömmu Lú í kvöld, miðvikudags-
kvöld, en í sumar hyggjast þeir spila víða um land.
Einnig er ætlunin að halda mambó-blast reglulega á
föstudagskvöldum í ömmu Lú. Ekki er von til þess
að mikið heyrist frá hljómsveitinni á vetri komanda,
því Sigtryggur heldur utan til Ameríku ásamt fjöl-
skyldu sinni síðla sumars. Hyggur spúsa hans á dokt-
orsnám í lífefnaffæði meðan Sigtryggur sinnir upp-
eldis- og húsmóðurhlutverkinu, auk þess sem hann
mun banka eitthvað í trommur.
Pouilly-Fuissé Dry Réserve, Máconnais, er þurrt Búrgundar-
vín með góða fýllingu. Þetta vín bragðast óskaplega vel eitt og
sér eða með mat; fiskréttum, súpum, salötum og ostum svo eitt-
hvað sé nefht. Eini gallinn mun vera sá að það er heldur dýrt en
heilflaskan kostar 1.690 krónur.
Allir fá einhvern
tíma tækifæri
iNGIBJðRG GRÉTA GÍSLADÓTT1R leikkona flytur einþáttunginn „Dvínandi rödd“ eftir Sigurö Pálsson á
Óháöu listahátíöinni.
Fjölleikur er leiklistarsýning sem er meðal
dagskrárliða Óháðu listahátíðarinnar. Að
henni standa ungir leikarar og hljómlistarfólk,
en um er að ræða fjóra einleiki og einn einþátt-
ung. Meðal flytjenda er leikkonan Ingibjörg
Gréta Gísladóttir, sem flytur verk eftir Sigurð
Pálsson rithöfund, Dvínandi rödd, í Hafnar-
húsinu. „Ég kom að máli við Sigurð þegar ég
var við nám í Leiklistarskólanum og bað hann
að skrifa fýrir mig verk. Hann hristi þetta ffam
úr erminni og það gladdi mig mjög,“ segir
Ingibjörg Gréta, sem margir kannast við úr út-
varpi en einnig úr myndinni Stuttum Frakka.
Verkið fjallar um unga stúlku sem kemur í
prufu fyrir leikverk. Hún mætir heldur seint og
fer því móð og másandi með textann sinn.
Áhorfendur eru í hlutverki dómnefndar og fá
það verkefni að dæma innra með sér um
frammistöðu stúlkunnar.
Það á vel við að Ingibjörg Gréta skuli flytja
verkið nú, því hún var nýbúin að dusta af því
rykið fyrir sýningu á sviði Þjóðleikhússins í
tengslum við atvinnuumsókn, þá fyrir alvöru
dómnefnd. „Það dugði ekki til að koma mér
inn í leikhúsið í þetta sinn, en það kemur ekki
að sök, því ég trúi að allir ungu og atvinnu-
lausu leikaramir fái tækifæri þegar þeirra tími
kemur. Heillavænlegast er að halda ró sinni á
meðan og halda áffam að vinna að listinni, en
þátttaka mín í óháðu listahátíðinni er ekki síst
liður í því að slá ekki slöku við.“
Á sumrin starfar Ingibjörg sem flugreyja, en
það eru nánast einu tryggu tekjumar sem hún
hefur yfir árið. Einnig hefur hún stjómað út-
varpsþáttum á Bylgjunni að vetri til og sannar
þar að hún er svo sannarlega ekki af baki dott-
in. I því sambandi ber að geta þess að hún
komst á lista yfir tíu verstu útvarpsmennina í
síðasta tölublaði PRESSUNNAR, en þar var
um hana sagt að hún talaði „jafiiverstu íslensku
sem heyrst hefur í íslensku útvarpi“. Ingibjörg
hlær að þessu, segist ekki kannast við að vera
illa máli farin og telur það sér til hróss að menn
skuli hafa munað eftir sér. „Það má vel vera að
viðkomandi álitsgjafi hafi hlustað á mig þegar
ég var illa upplögð, slíkt kemur fyrir alla. Að
öðra leyti vísa ég þessum ummælum á bug.“
BOLL
M IÐVI KU DAG URlNNj
16. JÚNÍ
• Listahátíðarpopp í Faxa-
skála. Alls koma fram tíu
hljómsveitir í Faxaskála
(gegnt Kolaportinu) fyrir unga
sem aldna. Þetta eru meðal
annars sveitirnar Blimp, Þór
Mjölnir, Synir Rapsodíusar,
Lipstick Lovers, Óskírt og
ekki síst SSSól. Tískusýning
og ekkert aldurstakmark, eða
að minnsta kosti fremur lágt.
• Jökulsveitin með söngkon-
unni Margréti Sigurðardóttur
spilar þjóðhátíöartónlist á
Plúsnum.
• Tólf hljómsveitir í Tunglinu
venga útgáfu „0“. Hljómsveit-
irnar eru Dr. Gunni, Kolrassa
krókríðandi, Yukatan, Púff,
Curver, Hún andar, Saktmóð-
ígur, Stilluppsteypa, íslenskir
tónar, Rosebud, Fylgian og
SSSpan. Öll eiga þau lög á
„Núll og nix“, sem kemur út
meö „0".
• Lipstick Lovers halda út-
gáfutónleika vegna plötu
sinnar My dingaling. Margir
hafa trú á þessari hljómsveit,
jafnvel Dr. Gunni, ef vel er að
gáö.
• Richard Scobie er illa viö
aö vera kallaður Ijóska, þótt
þaö sé ekki verra en hvað
annað. Hann er ágætur og
syngur hjá vini sínum Reyni
Kristinssyni á Scala í kvöld.
• Svartur pipar: Fæst orö
bera minnsta ábyrgð. Þaö má
víst lítið segia annaö en þaö
að Margrét Eir og Gylfi eru
meðal meðlima sveitarinnar.
Þau veröa á Gauki á Stöng
fram á aöfaranótt laugardags.
• Pelican; Pétur Kristjáns-
son, Guðmundur Jónsson og
allar grúppíurnar koma til
með að hanga í loftræstikerf-
inu ef góð stemmning skap-
ast. Þeir ætla í þaö minnsta
að meika’öa.
• Diskó-kynslóöin kemur
saman á Hótel Islandi í kvöld.
Tákngervingar hennar eru
menn á borö viö Magnús Le-
ópoldsson og Magnús (fína)
Kristjánsson, sem voru
innstu koppar í búri í Holly-
wood. Þeir halda utan um
skemmtunina. Þess má geta
að diskóendurnar voru undan-
farar uppanna: Ég fer í Ijós
þrisvar í viku, og égfer reglu-
lega í líkamsrækt. Eg fer í
Hollywood um helgar...
FIMMTU DAGU R I N N I
1 7, JÚNÍ I
• Pláhnetan verður í mið-
bænum í dag.
• GCD einnig. Smokkadreif-
ing ekki enn hafin.
• Júpíters spila í garðinum á
Hressó í tilefni dagsins.
Margir munu hafa veriö kall-
aöir en fáir útvaldir. Júpíters
ætla aö endurtaka leikinn frá
í fyrra og skapa gardenpartí.
• Svartur pipar og þjóöhátíö-
arstemmning á Gauki á
Stöng.
FOSTUDAGURINN |
1 8. JÚNÍ I
• Hinir skuldbundnu eða ðí
Commitments á Plúsnum.
Þetta eru fjölbrautaskóla-
krakkarnir úr Breiöholtinu
sem slógu rækilega í gegn á
skólaskemmtun í vetur og hjá
Hemma Gunn.
• Baby Ford og Shakara eru
skífuþeytarar sem snúa munu
plötum í framhaldi af spileríi
hljómsveitanna Bubble Flies,
T- World, Spaceman Spliff,
Bong og fleiri. Tískusýning frá
Skaparanum og Kjallaranum.
I-D-Iiðið fylgist með. Þaö er
því eins gott aö haga sér vel í
Tunglinu, svo orðspor íslend-
inga í útlöndum megi haldast
gott.
• Jötunuxarnir síkátu leika
fýrir gesti Hressingarskálans.
Mottó þeirra er: „Brennivínið
bjargaöi okkur frá íþróttaböl-
inu.“ Nýr hollenskur mjöður,
sem barst meö gám til lands-
ins, verður kynnturí leiöinni.
• Valdimar Flygenring veröur
á einkaflippi á Scala í kvöld.
• Svartur pipar heldur uppi
fjörinu á Gauki á Stöng, í síð-
asta sinn í bili.
• Meira listahátíöarpopp í
Faxaskála gegnt Kolaporti.
Yukatan, Tjalzgissur, Texas
Jesus, Kolrassa krókríöandi,
Niöur, Down of Bad, Heiöa og
fleiri leika fyrir unga sem
aldna.
• Sniglabandiö með blökku-
manna-Motown-fíiing á Tveim-
ur vinum. Þeir í Sniglabandinu
eru auðvitað létthallærislegir
en ekki síöur skemmtilegir.
Textarnir eru skemmtilega
eitthvaö...
LAUGAR DAGU R I N N
19. JÚNÍ
• Hinir skuldbundnu endur-
taka vonandi fjöriö á Plúsn-
um.
• Friörik XII. heldur stutta
kynningu á hirösiöum slnum í
kvöld á Hressó. Sá sem situr
heima þetta kvöld fyrirgerir
rétti sínum til að hljóta út-
nefningu til fálkaoröunnar.
• Eyjólfur klútur Kristjáns-
son verður væntanlega á
rómantísku nótunum á Scala
viö Hlemm í kvöld.
• Deep Jimi and the Zep
Creams og Bone China fá aö
spila jafnmikið á sviðinu á
Gauki á Stöng. Þessi veisla
er tengd Ólétt '93, eða
Óháðu listahátíöinni.
• Enn meira listahátíöar-
popp í Faxaskála. Ólétt '93
poppar í miðbænum: Cata
Tonic, Natasha I, Maöurinn á ■
kassanum, Pulsan, Bíllinn,
Stilluppsteypa, Maumin, Svið,
Leiksvið fáránleikans og hvaö
þær nú heita allar. Fyrir alla
sem vilja. Tískusýning Kol-
brár, Silju og Ástu Guðrúnar.
• Mannakorn Pálmi og
Magnús og allir hinir meö all-
ar Ijúfu ballööurnar á Tveimur
vinum. Ef að líkum lætur
veröur þetta Ijúft kombakk.
SUNNUDAGURINN
20. JÚNÍ
• Peiican Pétur, Gummi og
allir aðrir meðlimir gömlu Pel-
ican ætla að meika það t
sumar, hvaö sem það kostar.
Þeir verða bæöi sunnudags-
og mánudagskvöld á Gauki á
Stöng.
SVEITABÖLL
M IÐVI KUDAGURINN
1 6. JÚNí
• Höföinn, Vestmannaeyjum
Pláhnetan fær þar vonandi
betri aðsókn en á Hótel Is-
landi um síðustu helgi. Dans-
lagatónlist síðustu ára t al-
gleymingi.
• Sjallinn, Akureyri Stjórnin
heldur áfram að troöfylla þótt
fáir hefðu trú á því í upphafi
vertíöar.
• Eskifjöröur einhvers staöar
þar t bæ munu Skriöjöklarnir
leika fyrir Alla rtka og hans *
fólk.
FIMMTU DAG U R I N N
17.JÚNÍ
• Sjallinn, Akureyri Stjórnin
leikur „unplugged” eöa raf-
magnslaus fyrir Akureyringa,
svona t tilefni dagsins.
• Eskifjörður Þjóðhátíðar-
stemmning með Skriðjöklum
bæði um daginn og kvöldiö.
Barnaball að deginum og full-
orðinsbarnaball um kvöldiö.
FÖSTUDAGURINN I
18. JÚNÍ
• Hótel Lækur, Siglufiröi Plá-
hnetan heilsar upp á þá sem
komu undir t stldarstemmn-
ingunni.
• Seyöisfjöröur þar ætla
Skriöjöklar aö raska ró al-
mennings þetta kvöld.
• Valaskjálf, Egilsstöðum
Stjórnin, bæði t kvöld og ann-
aö kvöld, t tilefni torfæruhá-
ttöar.
• Sjallinn, Akureyri Nýdönsk
á heimaslóöum.
LAUGAR DAG U R I N N
19. JÚNÍ
• Ýdalir, Aöaldal GCD dreifir
smokkum meö hverjum miða
og óskar þess aö allir komi
heilir heim.
• Miögaröur, Skagafiröi Plá-
hnetan þeysist alla leið norö-
ur t Varmahlíö meö hjálp
Speis.
• Valaskjálf, Egilsstööum
Stjórnin enn og aftur. Torfær-
an enn.
• Vopnafjörður og nú er það í
heimabæ Lindu Pé sem
Skriöjöklarnir skemmta.
• Sjallinn, Akureyri Nýdansk-
ir enn á heimaslóöum, eöa
því sem næst.