Pressan


Pressan - 16.06.1993, Qupperneq 34

Pressan - 16.06.1993, Qupperneq 34
PRESSAN B I O 8t SJONVARP Miðvikudagurínn 16. júní 1993 SJONVARP Sjáið: • Hale and Pace ★★★ á Stöð 2 á miðvikudagskvöld. Þeir félagar hafa tileinkað sér brokkgengan húmor en eru á köflum óborganlega fyndnir. O NBA-körfuboltinn á Stöð 2 á miðvikudagskvöld. Fyrir hina f]öl- jjiörgu körfúboltaaðdáendur á landinu. Bein útsending ffá viður- eign Phoenix Suns og Chicago Bulls. • Vinstri fóturinn ★★★★ MyLeftFootá lýðveldisdaginn á Stöð 2. Hjartaknúsarinn Daniel Day-Lewis hlaut Óskarinn fyrir túlkun sína á bækluðum manni sem reynist gáfaðri en nokkum gat órað fyrir. Tárfellir. • Svanur á RÚV á laugardagskvöld. Islenskar myndir skila sér oft illa í sjónvarpi en þar sem Láms Ýmir leikstýrir þessari telst það áhættunnar virði að horfa á hana. • Grunnskólinn ★★★★ Obecná skola á RÚV á sunnudagskvöld. Tékkneska kvikmyndin sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin um leið og Bömin hans Friðriks. Varist: • ABBA 9 á RÚV 2 miðvikudagskvöld. Tónleikar haldnir í Lundúnum árið 1979. Þreyttara getur það vart verið. • Aðrar 48 stundir ★ Another 48 Hours á Stöð 2 að kvöldi lýð- veldisdags. Kemst ekki með tæmar þar sem fyrri myndin hefur hælana hvað varðar snerpu, grín og spennu. • Aflífi ogsál ★ Stepping Outá Stöð 2 á föstudagskvöld. Hver megnar að horfa á Lizu Minnelli leika listir sínar í fávísri sápu- ópem í hálfa aðra ldukkustund? • Eftirför 9 DangerZone II: Reaper’s Revenge á Stöð 2 á laugar- dagskvöld. Ein af mörgum ódýmm og lélegum myndum sem hafa þann tilgang einan að fyUa upp í dagskrána. • Roseanne ★ á RÚV á sunnudagskvöld. Digrir Ameríkanar vekja jafhan lítinn áhuga. Afar útvatnað sjónvarpsefni. -KVIKMYNDIR Algjört möst • Spillti lögregluformginn ★★★★ Bad Lieutenant Harvey Keitel var góður í Reservoir Dogs en gerir enn betur í þessari. Myndin fær umsvifalaust bestu meðmæli. BtoborginnL • Feilspor ★★★ Annar blær yfir ofbeldinu. Miklu raunsærri en við eigum að venjast ff á Hollywood og jafhffamt mun mannlegri. Laugarósbíói. • Sommersby ★★★ Vel gerð, vel leikin og oft unaðslega falleg mynd um kunnuglega sögu. Bíóborginni. • Dagurinn langi -k-k-kGroundhog Day Brilljant handrit og .Bill Murray hárréttur maður í réttri mynd. Sætur boðskapur sleppur undan að verða væminn. StjömubíóL • Mýs og menn ★★★ OfMice and Men Sæt útgáfa af Stein- beck-sögunni, mestmegnis laus við væmni. John Malkovich góður að vanda. Háskólabíói. • Siðleysi •k'k'kDamage Jeremy Irons leikur af feilcnalcraffi þing- mann sem ríður sig út af þingi. Helst til langar lcynlífssenur nema fýrir þá sem hafa byggt upp þol. Regnboganum. • Stuttur Frakki ★★★ Þriggja stjömu fýrir hlé, rennur svo að mestu út í sandinn. Frakkinn stutti bjargar því sem bjargað verður. Sögubíói. 1 leiðindum • Ósiðlegt tilboð ★★ Indecent proposal Svo hæg að það er varla að hún festist í minni. Demi Moore bjargar því sem bjargað verður. Bíóhöllinni og Háskólabíói. • Löggan, stúlkan og bófinn •k'kMad Dog and Glory Ágæt saga í slappri mynd. Bill Murray og Robert De Niro eins og þeir eiga að sér. Segir fátt af affekum Umu Thurman. HáskólabíóL • Lifandi •k'kAlive Átakanleg saga, en persónusköpun er eng- in og mannátið eins huggulegt og kostur er. Háskólabíói. • Loffskeytamaðurinn ickTelegrafisten Skandinavískþvæla, en þó má hafa gaman af góðum leik og fallegum konum. Regn- boganum. Bömmer • Malcolm X ★ Vond mynd sem gerir Malcolm að meiri bjána en hann var nokkum tíma. Fær eina stjörnu fýrir leik Denzels Wasliing- ton og fýrir að halda áhorfandanum vakandi á fjórðu klulckustund. Bíó- höllintn. • Goðsögnin &Candyman Þoku- kennd hugmynd og ennþá þoku- kenndari útfærsla. Vond mynd. Regnboganum. • Lögmál götunnar 9 Myndin er eins óspennandi og hugsast getur, svona álíka og að horfa á sjálf- virka þvottavél. Laugarásbíói. • Leikföng 9 ToysÓbærilega leiðinlegt kökuslettugrín. Robin Williams ætti að hafa vit á að velja betri handrit. Sögubíói. Lausir í reipunum TV ASLAUG DORA Vaknað með kántríbæ Nýverið hóf göngu sína þátturinn Slett úr klaufunum sem verður á dagskrá Sjón- varpsins annan hvern mið- vikudag í sumar, en að hon- um standa þeir Felix Bergsson leikari og Bjöm Emilsson auk fjölmargra annarra. Fyrsti þátturinn hefur þegar verið sýndur, en hann hlaut afar misjafhar móttökur, sem ekld er óvanalegt þegar íslenskt léttmeti er annars vegar. „Það er köllun effir efhi sem þessu og áhorfendur Sjónvarps eiga rétt á að sjá fleira en hádram- atískt efni. Persónulega er ég mjög ánægður með viðtök- urnar sem fyrsti þátturinn fékk, þótt þær hafi að sjálf- sögðu verið misjafhar eins og við var að búast. Allflestir líta þó þessa gamansemi jákvæð- um augum og þeim sem leið- ist ætti ekki að verða skota- skuld úr því að slökkva bara á sjónvarpstækinu sínu,“ segir Felix. Það var Björn Emilsson sem fékk hugmyndina að því að gera léttan sumarþátt. Grunntónninn er, eins og þeim er kunnugt sem þegar hafa séð hann, að talca sig ekld of alvarlega, sem kemur ef til vill gleggst fram í því að stiga- gjöfin í keppninni er ekki al- veg eins og áhorfendur hafa vanist fram að þessu. „Við reynum að hafa andann léttan og skemmtilegheitin aukast því á kostnað hreinnar keppni. Keppendur hafa svig- rúm til að sletta vel úr ldauf- unum því allar reglur eru afar Þáttur Felix Bergssonar og Björns Emilssonar, Slett úr klaufunum, hefur fengiö misjafnar viötökur eins og venjan er þegar íslenskt léttmeti er annars vegar. lausar í reipunum." Auk gríns og gleði er fjöldi manna og kvenna teldnn tali með það fýrir augum að sýna líf og störf að sumri. „Það er mikið að gerast á sumrin og skemmtilegt að kynnast öllum þeim sem hafa eitthvað áhugavert fýrir stafni. Að vísu getur reynst vandasamt að ná í fólk og því verður eilítið til- viljunarkennt hvemig raðast í þættina. Ég lít þó á það sem er kost fremur en galla, því mátuleg óreiða er alveg í stíl við uppbyggingu þáttanna.“ Flestir eru sammála um að Felix hafi staðið sig vel í sínu stykki en sjálfur segist hann þó hafa verið fremur óöruggur. Hann er þess hins vegar fitll- viss að það muni lagast þegar frá líður, einkum og sér í lagi vegna þess að Siggi Zoom veitir honum mikinn og góð- an stuðning, en honum er leyft að leika sér með kvik- myndatökuvélina að vild. Siggi þessi heitir reyndar réttu nafni Gunnar Pálsson og er innanhússmaður hjá Sjón- varpinu, en þeir Felix hafa þekkst frá því þeir voru guttar. Að viku liðinni mæta félag- ar í Fallhlífaklúbbi Reykjavík- ur vöskum stangveiðimönn- um í keppni og eru svindltil- raunir þeirra að sögn með ólíkindum. 10:00 Kántn'messa Jim og Tammy Bakker. Heiö- ursgesturer BillyRay Cyrus. 11:00 Kúrekar norðursins. Friörik Þór sýnir meö- al annars kántrí- messu aö norðlensk- um sið. 13:00 Sumo-glíma. Valdir kaflar og úrslit dags- ins. 13:30 Bein útsending frá Ak þingi. Önnur umræöa um krókaleyfi smá- báta. 15:00 Hlé Þættimir Þjóð í hlekkjum hugarfarsins endur- sýndir hægt, án hljóös, í staö stillÞ myndar. 18:30 Lucy Ball 19:30 Þjóöin. Þáttur með blönduðu efni um þaö helsta sem er aö ger- ast í menningar- og mannlífi hér á landi. 20:00 Fréttir. Aö hefðbundn- um siö. 20:30 Fréttaskýring. Kafað dýpra í þær fréttir semeru efstá baugi. 21:00 Fræösluþáttur. Heill- andi lífríki borðtusk- unnar. 22:00 Sænskur vandamála- framhaldsmyndaflokk- ur. Max von Sydow T aöalhlutverki. 23:00 Casablanca 01:00 Robin Byrd sýnir sín- ar bestu hliðar fram- eftir nóttu. Dagskrárlok KVIKMYNDIR Dómstóll drottins SPILLTI LOGREGLUFORINGINN (THE BAD LIEUTENANT) BÍÓBORGINNI ★★★ GUÐMUNDUR ÓLAFSSON öll menningarsamfélög hafa búið til ævintýri þar sem sögupersónum er kippt ger- samlega úr sambandi við efnahagskerfi síns tíma. Alí Baba, greifinn af Monte Christo og James Bond eru dæmi um þess konar persón- ur. Oftar en ekld hafa þær einnig yfirskilvitlega hæfileika svo sem hvað snertir afl, ffamsýni og visku. Hér áður fýrr, meðan menn voru trú- aðri, hélst þessum persónum misjafnlega á því ftillkomna frelsi sem þeim var úthlutað í ævintýrinu, sluppu venjulega með skrekkinn, því menn vildu ekki ógna veldi guð- anna með mögnuðum mannlegum verum. I kvik- myndum kaldastríðsins varð hins vegar frelsi James Bond- anna algert. Engin þraut var svo mikil að þeir gætu eldd leyst hana, ekkert verk svo tælcnilega vandasamt að ekki fyndist lausn á því í tækja- smiðju einhverrar leyniþjón- ustu og engin kona svo stórlát að ekki kæmu þeir fram þrot- lausum vilja sínum. Enda veitti ekki af að róa menn í hræðslunni við Jvinn voðalega óvin, sem milljónir manna höfðu atvinnu af að vara menn við. Almenningur varð að trúa því að engin hætta væri á ferðum ef leyniþjón- ustumennirnir, lögreglu- mennirnir og hermennirnir hefðu nægjanlegt frelsi, ffelsi til að drepa, eins og það var orðað. Kvikmyndin „Spillti lög- regluforinginn“ er dæmisaga um það hvert þessi sjúki áróður um fullkomið ffelsi til handa valdsmönnum hefur leitt olckur. Hún segir ffá lög- regluforingja sem er á kafi í öflugum geðlyfjum, áfengi jafnt sem kóki og heróíni. Jafnframt veðjar hann stór- um upphæðum við vini sína í lögreglunni og er kominn í miklar kröggur. Þetta leiðir til þess að hann fer að kanna mál nunnu sem er nauðgað af unglingum, sem hún hafði vildð góðu að. Þetta mál er þó ekld á hans könnu, en verð- launafé til höfuðs nauðgur- unum ffeistar Jiins spillta lög- reglumanns. Þannig er sögu- þráðurinn á yfirborðinu. Undir niðri er heimspeldleg og trúarleg pæling, enda hefði ekki annað komið til mála í kvikmynd sem Harvey Keitel leikur í. Þegar leikarar komast á þann stað þar sem Harvey þessi Keitel er ráða þeir að verulegu leyti rullum sínum, þeir geta að minnsta kosti valið og hafnað. Kemur þá í ljós hvem mann þeir hafa að geyma. Það má til dæmis al- veg treysta því að mynd sem Robert Redford leikur í er ómerkileg þvæla. Sömu sögu er að segja af þeim hjóna- kornum Melanie Griffith og Don Johnson, allt sem þau koma nálægt núorðið er vemmilegt rugl. Auðvitað er nauðsynlegt að ffamleiða létt- meti í bland við erfiðari kvik- myndir, en metnaðarfullar myndir em samt sorglega fá- tíðar. Harvey Keitel leikur helst ekld í öðruvísi kvik- myndum en að þær jaðri við að vera óskiljanlegar. SpiUti lögregluforinginn er ógnvekjandi mynd. Hún sýn- ir eina hlið hættunnar sem ffamundan er þegar vestræn menning hefur misst ytri óvin sinn, kommúnismann, og snýr sér nú af fullum kraffi að innri óvinum á borð við eiturlyf og ofbeldisglæpi með takmarkalitlu frelsi valds- manna ríkisins. En það hafa svo sem verið gerðar ágætis- myndir um hættuna á spill- ingu valdsmanna. Það sem gerir þessa mynd sérstaka er að hinn spillti lögregluforingi er dreginn fyrir dómstól drottins í bókstaflegri merk- ingu. Réttlæti mannanna er stillt upp gagnvart auðmýkt og fýrirgefningu trúarinnar og dæmi nú hver fýrir sig. Með falli kommúnismans hætti vestræn menning að horfa í vitlausa átt. Hún stendur nú ffammi fýrir sjálfri sér og öllum þeim meinum sem ekki hefúr verið tekið á svo lengi. Á næstunni má búast við að listamenn og hugsuðir takist á við þessi verkefni. Sú tilraun sem fór út um þúfur með falli kommúnismans hófst með ffönsku byltingunni, þar sem til stóð að hengja síðasta að- alsmanninn í görnum síðasta klerksins. Það er hugmyndin um að mannkynið geti skap- að réttlátt allsnægtaþjóðfélag, fyrir tilstilli skynseminnar einnar, sem hefur beðið skip- brot Þess vegna er eðlilegt að menn leiti nú aftur til trúar- innar þegar mælikvarðar skynseminnar hafa reynst gagnslitlir. Það er þessi trúar- lega vídd sem er kjarninn í myndinni og gerir hana óvenjulega. Fjalla hefði mátt meira um þennan kjarna á kostnað alls ógeðsins sem hinn veiklundaði maður get- ur leiðst út í, sé honum fengið nægjanlegt vald og frelsi.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.