Pressan - 16.06.1993, Page 35
S K I L A B O Ð
Miövikudagurinn 16. Júní 1993
r
l
PRESSAN 35
i s&-
ýWk ■ &
þú verður að smakka það!
5 Continents er ný kaffiblanda frá
SKIPUN TRYGGYAJ
STOÐU BÆJARSTJORA
MERKIUM STYRK
GUÐMUNDAR ARNA...
Eitt af þeim málum sem
enn á eftir að afgreiða er
^L/ skipun í stöðu bæjarstjóra í
Hafnarfirði. Þar eru margir kaJlaðir
en fáir útvaldir. Viðurkenndir um-
sækjendur eru Tryggvi Harðarson,
Jóna Ósk Guðjónsdóttir og Ingvar
Victorsson, en þau eru nú í bæjar-
stjómarflokki Hafnarfjarðar. Sumir
vilja jafnvel vera ffumlegir og leita
út fyrir hópinn en samstaða mun
vera meðal þremenninganna um að
eitthvert þeirra hreppi hnossið. Val-
ið í embætti bæjarstjóra verður
einnig til marks um styrk Guð-
mundar Áma Stefánssonar, nýskip-
aðs heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra. Tryggvi er einn dyggasti
stuðningsmaður hans og ef hann
fengi ekki starfið yrði það áfall fyrir
Guðmund. Ja, nema Tryggvi verði
skipaður sendiherra!
LÆRÐIDALEIÐSLU
UTANSKQLA QG
SATAFSERDOM...
e>
FRIÐRIK SOPHUSSON
TIL PARISAR...
, Enn gefast menn ekki upp á
I því að velta fyrir sér hvað
verði um uppstokkunina
hjá sjálfstæðismönnum. Ein frurn-
legasta kenningin er sú að Friðrik
Sophusson fjármálaráðherra sé á
útleið úr pólitík. Hefur hann meðal
annars verið orðaður við sendi-
herrastöðuna í París, sem Albert
Guðmundsson hefur gegnt til
þessa. Staðan er einhver sú feitasta í
utanríkisþjónustunni og
verður æ mikilvægari eftir því
sem Evrópubandalagið
þjappast saman. Talið er að
kona Friðriks, dr. Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir, vilji
gjarnan komast til Parísar.
SÍMALÍNUR RAQÐ-
GLOANDIUPPII
EFSTALEITI...
, Þeim var ekki öllum
I skemmt landsmönn-
um þegar morgun-
þáttur Rásar 2, í lausu lofti,
fór í loftið um daginn. í þætt-
inum slógu stjórnendurnir,
Sigurður Ragnarsson og Kle-
mens Arnarson, að venju á
létta strengi og settu á svið
samtal við Mário Soares, for-
seta Portúgals, sem þá var um
borð í einkaþotu sinni á leið
til Islands. Þeir félagar náðu
tali af forsetanum í háloftun-
um og ræddu ffjálslega við
hann með aðstoð túlks. Fram
kom að forsetinn áformaði
að semja við landsmenn um
kaup á saltfiski og hefði í
hyggju að fá íslenskar fegurð-
ardísir til að kynna þann eð-
alvarning í Portúgal. Þeir fé-
lagar enduðu sprellið með
þeirri ábendingu, að Soares
ætlaði að skella sér á ærlegt
kvennafar um helgina, ásamt
ríkisstjórninni allri. Ummæli
þeirra piltanna fóru greini-
lega fyrir bijóstið á mörgum
hlustandanum, því símalínur
voru rauðglóandi uppi í
Efstaleiti langt ffameftir degi.
Séra Heimir Steinsson út-
varpsstjóri. lét sér fátt um
finnast.
Ólafur Ólafsson land-
læknir hefur nú með
sérstakri auglýsingu
varað almenning við dáleiðslu-
fúski. Friðrik Páll Ágústsson,
sem rekur sérstakan dáleiðslu-
skóla, hefur séð ástæðu til að
taka vamaðarorð landlæknis til
sín og skal engan undra. Það má
rifja það upp að PRESSAN fjall-
aði sérstaklega um Friðrik þenn-
an í október 1990, en hann var
þá aðeins tvítugur. Þar kom
fram að dáleiðsluna hefði Frið-
rik þá lært að mestu utanskóla,
„við og við í tvö ár“, að eigin
sögn. Á sama tíma og þessi
utanskólalærdómur fór ffam
hafði Friðrik það af að reka fyr-
irtæki, verja sig í erfiðu dóms-
máli og loks sitja af sér þriggja
mánaða fangelsisdóm. Nánar
tiltekið rak hann fyrirtækið Am-
eríska bíla og hjól, en fýrirtækið
varð gjaldþrota og Friðrik fékk á
sig tólf mánaða dóm fyrir fjár-
drátt og fleira, þar af þrjá mán-
uði ósldlorðsbundna. Á þeim
tíma vísaði Friðrik á kennara
sinn í Bandaríkjunum. Þegar
blaðið hafði samband við þann
mann kannaðist sá við að Frið-
rik hefði fyrst haff samband
mánuði fyrr og að hann hefði
fengið sendar ffá honum upp-
tökur — á íslensku. Að öðru
leyti brást Friðrik hinn versti við
fyrirspurnum blaðsins og neit-
aði að sýna þau skírteini sem
hann kynni að hafa aflað sér.
TALAÐU VIÐ OKKUR UM
BÍLASPRAUTUN
ÉTTINGAR
Auðbrekku 14, a'mi 642141
Sumarfrí í Evrópu!
Evrópa bíður, full af spennandl ferftamögulelkum.
Fjölmargir gistimöguleikar í boði, allar upplýsingar eru að finna í
SAS hótelbæklingnum. Flogið er til Kaupmannahafnar alla daga,
allt að þrisvar sinnum á dag. Hafðu samband viö söluskrifstofu
SAS eða ferðaskrifstofuna þína.
Sumarleyfisfargjöld SAS
Keflavík - París 29.900,- Keflavík - Vín 30.900,-
Keflavík - Hamborg 29.900,- Keflavík - Zurlch 30.900,-
Keflavík - Frankfurt 30.900,- Keflavík - Mflanó 30.900,-
Keflavík • Miinchen 30.900,- Keflavfk - Barcelona 30.900,-
Verð gildir til 30. september og miðast við dvöl erlendis í 6 - 30 daga.
Barnaafsláttur er 33%. Bókunarfyrirvari 21 dagur.
Innlendur flugvallarskattur 1.310 kr., þýskur flugvallarskattur 237 kr.,
franskur flugvallarskattur 199 kr., austurískur flugvallarskattur 225 kr.
og ítalskur flugvallarskattur 545 kr.
M/str
SAS á íslandi ■ valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 Sími 62 22 11
JÁL MAKlINiJ i MtfAlCU.
heildsala & dreifing; S: 686 700
100% ARABICA KAFFI
YDDA F42.55 / SÍA