Pressan - 16.06.1993, Blaðsíða 36
36 PRESSAN
Miðvikudagurinn 16. júní 1993
Guömundur
39 mörk
Guðmundur Steinsson hef-
ur löngum verið drjúgur við
að skora. 1 leik Víkinga gegn
Þór á miðvikudaginn skoraði
hann 99. mark sitt í fyrstu
deildinni. PRESSAN tók
þennan skotglaða mann tali í
tilefni þess að 100. markið er í
sjónmáli.
Hvemig leggst hundraðasta
markið í þig, Guðmundur?
„Það leggst bara ágætlega í
mig. Það hundraðasta kemur
bara vonandi í næsta leik.“
Ætlarðu að skora það með
stæl?
„Það væri gaman, en bara ef
það verður skorað, þá er það
nóg. Það skiptir engu máli
hvort þau em falleg eða ekki.“
Er eitthvert mark á ferlin-
um þér minnisstæðara en
önnur?
„Það er ekkert sérstakt
nema síðasta markið hverju
sinni og auðvitað fyrsta mark-
ið. Það var 1978 í leik á móti
FH á Hafnarflötinni í mínum
fyrsta leik. Ég skoraði meira
að segja tvö mörk í fyrsta
leiknum."
Nú er Ingi Björn marka-
kóngur með 126 mörk. Ertu
farinn að hugsa svo langt fram
í tímann?
„Nei. Það er nokkuð langt í
það ennþá.“
En þú átt nóg eftir?
„Já, já. Ég er í góðu formi
og skrokkurinn í góðu lagi.
Maður er ekkert að hugsa um
að hætta strax.“
Shawn Bradley og Manut Bol
Verða þeir í sama liði?
Val NBA-liðanna í háskólaboltanu
Verða himnalengjurnar
í sama liði?
Nú 30. júní verður há-
skólavalið í bandaríska
körfuboltanum. Einn þeirra
leikmanna sem töluverða at-
hygli hafa vakið er Shawn
Bradley, sem er hvorki meira
né minna en 228 sm, eða sjö
fet og 6 tommur.
Bradley er semsagt næst-
um jafnhár og Manut Bol ffá
Súdan. Bol þykir reyndar
fremur takmarkaður leik-
maður, en haft er á orði að
með hann í liðinu leiki liðið
einum fleiri í vörn en einum
færri í sókn. Bol hefur flakk-
að dálítið á milli liða en hann
leikur nú með Philadelphia
76ers.
Svo vill reyndar til að
Philadelpia á annan valrétt í
háskólavalinu og þá kemur
Bradley að öllum líkindum
til úthlutunar. Það er hins
vegar óvíst að Philadelphia
leggi í að stilla upp liði með
þessum tveimur slánum.
Gárungarnir eru reyndar
þegar búnir að finna nýtt
nafn á Philadelphia 76ers,
nefnilega Philadelphia Seven
Foot Six-ers!
En hvernig er það með ykk-
ur Víkingana. Farið þið ekkert
að hressast á næstunni? .
„Við áttum að vinna þenn-
an leik gegn Þór en lukkudís-
irnar eru ekki alltaf hliðhollar
okkur.“
Það var kvartað yfir því að
leikurinn gegn Þórsurum
hefði verið afspymu leiðinleg-
ur. Hvað segið þið leikmenn
um það?
„Já. Ég held að hann hafi
ekki verið mikið fyrir augað
þessi leikur, en þetta var bar-
áttuleikur."
Þú hefur nú löngum skorað
milcið. Heldurðu að þú eigir
eftir að skora mörg mörk í
sumar?
„Ég er að vonast til þess, já.“
En geturðu spáð einhverju
um úrslitin í deildinni?
„Það er erfitt en auðvitað
eru ákveðin lið líklegri en
önnur... Skagamennirnir og
KR-ingamir. Svo hafa Keflvík-
ingar byijað mjög vel og virð-
ast vera spútnildiðið núna. En
þetta er fljótt að breytast."
Á meðfylgjandi töflu má sjá
hvað Guðmundur Steinsson
hefur skorað mörg mörk í
fyrstu deildinni í gegnum árin.
Arin ’82 og ’83 lék hann með
Öster í Svíþjóð og 1987 lék
hann aðeins hálft sumarið.
Árið 1991 flutti hann sig úr
Fram yfir í Víking og varð
markakóngur það sama ár. I
fyrra átti hann við meiðsl að
stríða, fór í uppskurð í haust
en er orðinn góður.
GUDMUNDUR STEINSSON hefur fjórum sinnum fengið bronsskó, einu sinni silfurskó og einu sinnigullskó á ferl-
inum. Það verður forvitnilegt að sjá hvort hann bætir í safnið í sumar.
Af hverju er Michael Jordan svona góöur?
Þessarar spurningar spyrja
aðdáendur fremsta íþrótta-
manns heims í dag þegar flest
bendir til þess að Chicago
Bulls ætli að verja „heims-
meistaratitilinn" í NBA-defld-
inni þriðja árið í röð og verða
fyrstir til að gera það síðan
Boston Celtics tókst það á
miðjum sjöunda áratugnum.
Jordan kom inn í NBA árið
1984 eftir að hafa nýunnið
ólympíugull með Patrick Ew-
ing. Þetta endurtóku þeir síð-
an síðasta sumar. Hann er því
búinn að vera níu ár í deild-
inni, sem margir töldu einmitt
að yrði liðinu til trafala; Jord-
an væri orðinn þreyttur og
mettur. En þar vanmátu þeir
Jordan.
Jordan, sem er 198 sm á
hæð og 99 kg, er án efa besti
íþróttamaðurinn í deildinni.
Þessi skotbakvörður hefur
ótrúlegan stökkkraft, sem gaf
af sér ævintýralegar troðslur,
enda varð það vörumerki
hans fljótlega á ferlinum. Það
er oft eins og Jordan eigi
ósýnilega lendingarpalla í loft-
inu þegar hann svífur í gegn-
um vörn andstæðinganna.
Þegar allt þetta fer saman við
gífiirlegt keppnisskap er út-
koman: Jordan vinnur og
vinnur. Meira að segja í golf-
íþróttinni er hann sigurvegari;
kominn niður í 0 í forgjöf þótt
það hafi ekki forðað honum
ffá því að tapa umtalsverðum
fjárhæðum. En með 2.300
milljóna lcróna árstekjur (laun
og auglýsingar innifalið) hefur
hann efni á að tapa nokkrum
dollurum. Jordan fékk hins
vegar að heyra það í fjölmiðl-
um (nokkrum, flestir tóku
málstað Jordans enda fór
hann með pabba sínum í fúll-
komlega löglegt spilavíti!)
vegna spilavítisferða sinna en
svaraði fýrir sig inni á vellin-
um.
Einbeitingu Jordans í leik er
viðbrugðið; það er afskaplega
fátítt að hann missi stjórn á
skapi sínu þrátt fýrir að vera
skotmark andstæðinganna í
hverjum leik. Gjarnan sitja
tveir til þrír leikmennn um að
stöðva hann með öllum ráð-
um en allt kemur fyrir ekki.
Eins og kom ffam í viðureign-
inni við Knicks töldu þeir
mun vænlegra að reyna að
setja Scottie Pippen (næst-
besta manninn í besta liðinu)
úr jafnvægi heldur en að snúa
sér að Jordan. Það tókst
reyndar því Pippen var útilok-
aður í einum leik fyrir vikið.
Menn vita hins vegar að svona
brögðum verður ekki beitt á
Jordan.
Það sjá það allir sem vilja;
Jordan ætlar sér titilinn. Þegar
komu ffam tölur um það í
vetur að hittni hans væri að
dala tók hann sig til og hóf
séræfingar. Og viti menn;
hittnin er komin í samt lag.
Hann skammar og hvetur
samherja sína áffam í leik og
það blasir við að hann fari
með þá alla leið. Nú er bara
spurningin: Tekst þetta í
fjórða skiptið?
Michael Jordan og John Starks Mikið var látið með einvígi þeirra í viðureign Chicago og New York Knicks.
Svipurinn á þeim segir allt um hvernig fór.