Pressan - 24.06.1993, Blaðsíða 2
FYRST & FREMST
2 PRESSAN
Fimmtudagurinn 24. júní 1993
Agnes Bragadóttir Ekki-frétt hennar um niöurskurö varnarliösins
hefur einkennilega eftirmála. Styrmir Gunnarsson Morgunblaös-
ritstjórar segja generála og æöstu embættismenn Bandaríkj-
anna vera „ómerkileg möppudýr“.
Mogginn kvartar
um möppudýr
Ritstjórar Morgunblaðsins
eru greinilega ekki alveg búnir
að jafna sig á ekki-fréttinni
um væntanlegan niðurskurð
hjá varnarliðinu, sem Agnes
Bragadóttir sendi ffá Wash-
ington á dögunum og slegið
var upp með eldgosfyrirsögn á
forsíðunni. Þannig kveinar
Víkverji á þriðjudag yfir
hversu lítið var að frétta af
fundum bandarískrar sendi-
nefndar sem hingað kom íyrr
í mánuðinum. Skýring Mogg-
ans var sú að sendimennirnir
hefðu verið of lágt settir til að
fregna mætti vænta og Vík-
verji spurði hvort Kaninn væri
nú farinn að veita okkur
sömu trakteringar og „svo-
kölluðum bananalýðveldum"
með því að senda hingað
ómerkileg möppudýr. Stað-
reyndin er sú að meðal
Bandaríkjamannanna voru
menn úr efstu lögum banda-
ríska stjórnkerfisins, generálar
og fleiri. Meðal þeirra voru til
dæmis John Teftt, sem ber tit-
ilinn Director of Northern
European Affairs í bandaríska
utanríkisráðuneyutinu, og
James Townsend, svonefndur
Country Director for Nort-
hern Europe í starfsliði vam-
armálaráðherrans, Les Aspin.
Teftt hélt héðan til Svíþjóðar
og Townsend fór til Finn-
lands, en hvomgt landið hefúr
kvartað yfir móðguninni, svo
vitaðsé.
Fleiri en Eggert
G. aö komast á
aldur__________________
I tengslum við ráðherrahró-
keringar hjá Alþýðuflokknum
hefur ítrekað verið nefnt að
Karl Steinar Guðnason muni
taka við stöðu Eggerts G. Þor-
steinssonar sem forstjóri
Tryggingastofhunar. Eggert er
kominn á ellilífeyrisaldur, en
aftur á móti er hann ekki
nauðbeygður til að hætta fyrr
en eftir tvö ár, þegar hann
verður sjötugur. En það er
ekki bara Eggert sem er að
nálgast tímamótin miklu.
Þannig verður sjötugur á
þessu ári Gunnar Bergsteins-
son, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar, og á næsta ári verða
sjötugir Jón ísberg, sýslumað-
ur í Húnavatnssýslu, og Guð-
Jaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari. Aðrir sem gætu
þess vegna hætt hvenær sem
er á næstunni em Jón Skafta-
son, sýslumaður Reykjavíkur,
Bjöm Helgason saksóknari,
Ármann Kristinsson saka-
dómari, Elías I. Elíasson,
sýslumaður og bæjarfógeti á
Ákureyri, og Sveinbjöm Dag-
finnsson, ráðuneytisstjóri í
landbúnaðarráðuneyti.
Fljúgandi
steggjgpqrti____________
I síðustu viku kærðu for-
ráðamenn loðdýrabúsins
Hvols í Ölfusi til lögreglunnar
á Selfossi meint lágflug rúss-
neskrar tvíþekju yfir búinu.
Það fylgdi þó ekki sögunni að
vélin var full af ungum sjálf-
stæðismönnum í bland við
rússneska fyrrverandi með-
limi Komsomol, ungliða-
hreyfingar sovéska kommún-
istaflokksins. Innanborðs
voru vinir og velunnarar
Sveins Andra Sveinssonar,
-hins umdeilda stjórnarfor-
manns Strætisvagna Reykja-
víkur, sem kvænist sinni heitt-
elskuðu á laugardaginn. Að
sögn heimilda PRESSUNNAR
gætir almennrar furðu með
staðsetningu loðdýrabúsins
þvi það liggur í beinni aðflugs-
línu að flugvellinum á Selfossi.
Bæjarstjórn
Kópavogs klofn-
qr______________________
Mikill hitafundur var hjá
bæjarstjórn Kópavogs á
þriðjudagskvöld. Þá var tekin
á dagskrá tillaga um breytingu
á skipulagi Fossvogsdals. Sam-
þykkti meirihluti stjórnar-
manna að senda til kynningar
breytingu á skipulagi sem fæli
í sér að í Fossvogsdalinn yrði
settur níu holu golfvöllur.
Þetta kostaði mikil átök á
fundinum og lyktaði málum
með því að allar fylkingar
klofhuðu. Bæjarstjórinn, Sig-
urður Geirdal, reyndist full-
komlega andvígur golfvellin-
um, enda íbúi í dalnum. Það
sem kom málinu í gegn var að
Guðmundur Oddsson studdi
sjálfstæðismenn og greiddi at-
kvæði með tillögunni. Er mik-
ill hiti meðal krata í Kópavogi
Hrafn veifar hegningarlögunum
Hrafn Gunnlaugsson, sett-
ur framkvæmdastjóri Sjón-
varpsins, hótaði starfsmönn-
um óbeint með refsiákvæð-
um almennra hegningarlaga
vegna fféttar PRESSUNNAR
um leigubílakostnað hans, en
Hrafn eyddi alls 55 þúsund
krónum í leigubíla á þeim tíu
dögum sem hann var á land-
inu og gegndi stöðu dag-
skrárstjóra. í kjölfar fréttar-
innar messaði Hrafn yfir
starfsmönnum Sjónvarpsins
um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna og trú-
mennsku í starfi. Effir fund-
inn voru nokkrir starfsmenn
kallaðir inn á teppið en
Hrafni tókst ekki að negla
þann eða þá „seku“.
En Hrafn Gunnlaugsson
sendi Sigmundi Erni Arn-
grímssyni dagskrárstjóra
einnig bréf, dagsett 18. maí. I
því segir: „Ýmsar upplýsing-
ar, sem fara á með sem trún-
aðarmál innan Sjónvarpsins,
hafa komist í hendur óvið-
komandi. Hjálögðum texta
úr almennum hegningarlög-
um hefur starfsmannastjóri
vakið athygli mína á. Viltu
vinsamlegast brýna eftirfar-
~andi lagaákvæði fyrir starfs-
mönnum IDD.“
í fylgiskjali er sérstaklega
merkt við 136. grein hegn-
ingarlaganna. Þar segir meðal
annars: „Opinber starfsmað-
ur sem segir frá nokkru er
leynt á að fara og hann hefur
fengið vitneskju um í starfi
sínu eða varðar embætti hans
eða sýslan, skal sæta varð-
haldi eða fangelsi allt að einu
ári. Hafi hann gert það til
þess að afla sér eða öðrum
óréttmæts ávinnings eða noti
hann slfka vitneskju í því HRAFN GUNNLAUGSSON
skyni má beita fangelsi allt að Minnti starfsmenn á refsiákvæöi hegningarlaga vegna leka um leigubílakostnaö hans.
þremur árum.“
út af þessari afstöðu Guð-
mundar og þar sem þarna er
um að ræða kúvendingu á fyr-
irhugaðri notkun á dalnum
má gera ráð fyrir hörðum við-
brögðum frá íbúum í ná-
grenninu. Hingað til hefur
verið gengið út frá því að
svæðið yrði tekið til almennr- Davíð Oddsson lýsti á dögun-
ar útivistar. Þá var einnig sam- um ánægju með störf sitjandi
þykkt að stækka athafhasvæði formanns SUS, Guðlaugs
Stundum fellur
eplið langt frá ei-
kinni
Afstaða feðganna Davíðs
Oddssonar, formanns Sjálf-
stæðisflokksins, og einkasonar
hans, Þorsteins Davíðssonar,
hefur vakið nokkra athygli.
Víkinga um 9.000 fermetra,
svo væntanlega geta þeir
glaðst yfir einhverju þessa
dagana.
Þórs Þórðarsonar, en hann
var mikill stuðningsmaður
Davíðs í formannsslagnum
um árið. Jónas Fr. Jónsson
var hins vegar ætíð talinn
stuðningsmaður Þorsteins
Pálssonar. Það kemur ekki í
veg fyrir að Þorsteinn Dav-
íðsson berjist grimmt fyrir
Jónasi Fr. ásamt félögum sín-
um í Heimdalli og víðar.
Hlj ómco-menn
sigurreifir í
Þyskalandi
í síðasta mánuði sögðum
við frá gjaldþroti gamla
Hljómco og stofnun nýs
Hljómco með ýmiss konar til-
færslum á eignum; vörum,
húseignum, hestum, biffeið-
um og fleiru, en að nýja
Hljómkó standa Haraldur
„Harrý“ Gunnarsson og
Garðar Þorsteinsson, sonur
eiganda gamla Hljómco, Þor-
steins Garðarssonar. Ekki er
að sjá að þeir félagar hafi á
nokkurn hátt hægt á ferðinni
við umfjöllun blaðsins. Um
síðustu mánaðamót héldu
Haraldur og Þorsteinn til
Þýskalands að semja við um-
boðsaðila. Einn morguninn
voru þeir staddir kampakátir
við morgunverðarsnæðing á
hóteli sínu og ræddu málin.
Þeir vissu ekki að skammt ffá
þeim sátu aðrir Islendingar
sem hlustuðu á þá félaga
gleðjast yfir því að þeir væru
búnir að gera „díla“ við alla
umboðsaðila sem Hljómco (-
gamla) hafði átt viðskipti við
og að þau mál hefðu öll geng-
ið eins og í lygasögu. Nefndu
þeir Nintendo á nafn. Af orð-
um þeirra félaga skildist hin-
um óvæntu áheyrendum
helst, að erlendu aðilarnir
hefðu enga hugmynd um að
gamla Hljómco hefði tekið
breytingum á einn veg eða
annan.
Guðlaugur Þorvaldsson Ríkissáttasemjari veröur sjötugur á næsta ári og því losnar viröulegt embætti. JÓN SKAFTASON Sýslumannsstaöan í Reykjavík losnar fljótlega
eins og margar aörar toppstööur. SVEINN ANDRISVEINSSON Stuttbuxnadeildin og ungir kommúnistar sameinast viö giftingu Sveins Andra. GUÐMUNDUR ODDSSON Kratinn
kom Sjálfstæöisflokknum til bjargar viö byggingu golfvallar en Siguröur Geirdal sat eftir meö sárt enniö. DAVÍÐ ODDSSON Formaöurinn styöur Guölaug Þór Þóröarson í
formannsslagnum í SUS en einkasonurinn styöur Jónas Fr. Jónsson. Þorsteinn Garðarsson Sonur hans og Harrý stofnuöu nýtt Hljómco og sömdu viö alla gömlu um-
boösaöllana.
UMMÆLI VIKUNNAR Hvað mega pöddurnar segja? v / Það er nefnilega Jón er, jú hæfastur allra Islendinga „Við stóðum ffammi fyrir því að velja þann hæfasta úr hæfum umsækjendum og við teljum að við höfum gert það.“ Ágúst Einarsson starfsmanna- stjóri.
„Michael er mjög skemmtilegur og Getur maður hlegið sig í gegn- j i .jr um skólann? alveg laus vio Stcela “ „Við fyrirgefum manni allt, svita- lykt, flekkað mannorð en aldrei Anna Mjöll Ólafsdóttir, húmorsleysi.“ vinur Michaels iackson. Robert Holden, skólastjóri húmoristaskóla \ „Ég kem bara að görðunum ogþaðerbúiðaðúðaþá. Ég get ekkert gert. Óþægilegur maður hefur hreinlega sagst vera ég eða á vegum mínum. Það er mjög gróft.“ þaö! ■| Jfey'. „Þeir komu inn í verslunina með hagla- byssu og kylfu og maður verður smeyk- ur þegar haglabyssu er beint að andliti manns.“ Vofa atvinnu- leysisins flú- in „Þessi niðurstaða kom mér ekki á óvart og ég er mjög þakklát- ur bankaráðinu að skipa mig í þetta starf.“ Jón Sigurðsson hinn efnilegi.
Steinn Kárason úðunarmeist j \ \