Pressan - 24.06.1993, Blaðsíða 14
F R E T T I R
14
PRESSAN
Fimmtudagurinn 24. júní 1993
Pólitískar mannaróðningar og úthlutun biliinga
Ur olgusjo stjornm
í örugga höfn
Það kom engum á
óvart þegar Sighvatur
Björgvinsson ákvað
að skipa Jón Sigurðs-
son í stöðu Seðla-
bankastjóra. Hann gat
veifað samþykkt
meirihluta stjórnar-
sinna í bankaráði
Seðlabankans og ver-
ið viss í sinni sök um
að enginn gæti vænt
hann um að skipa
óhæfan mann til starf-
ans. En mál Jóns er
ekki einangrað. Á
allra vitorði er að
stöðuveiting hans er
aðeins liður í viða-
meiri uppstokkun.
Eiður Guðnason, frá-
farandi umhverfisráð-
herra, verður sendi-
herra. Karl Steinar
Guðnason þingmaður
verður forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins.
Pólitískar mannaráðningar í feit-
ustu embættin og úthlutanir ráð-
herra á hinum ýmsu bitlingum hafa
verið lenska í gegnum árin. Áður
fyrr á árum var það fámenn stétt
manna sem gat með góðu móti tek-
ið að sér hin veigameiri embætti. Sá
þröngi rammi víkkaði eftir því sem
menntun jókst og fólki fjölgaði. En
þótt kröfur hafi aukist um menntun
og sérfræði innan embættiskerfisins
eru pólitískar mannaráðningar og
úthlutanir bitlinga enn sterk ein-
kenni á íslenska stjórnkerfinu. í
öðru tilvikinu er verið að koma
misjafnlega þreyttum ráðherrum
eða þingmönnum fyrir í góðum
embættum. 1 hinu tilvikinu eru ráð-
herrar og samstarfsmenn þeirra að
koma vel völdum flokksmönnum
íyrir í góðum embættum.
Alþýðuflokkurínn stórtæk-
astur hin síðari misseri
Af ráðherrum og þingmönnum
sem fengið hafa feit embætti hefúr
verið minnst á Jón Sigurðsson, Eið
Guðnason og Karl Steinar Guðna-
son. Guðmundur í. Guðmundsson,
fyrrverandi ráðherra, afsalaði sér
þingmennsku 1965 og varð sendi-
herra. Sigurður Ingimundarson
hætti á þingi 1970 og varð forstjóri
Tryggingastofnunar. Þar hafa máls-
metandi kratar verið mann frá
manni um langt skeið. Sigurður var
ráðinn af Eggerti G. Þorsteinssyni
og Eggert sjálfúr leysti síðan Sigurð
af hólmi fyrir tilstuðlan Magnúsar
Á. Magnússonar árið 1979. Og nú á
Karl Steinar von bráðar að leysa
Eggert af.
Af fyrrum ráðherrum flokksins
hafa að minnsta kosti tveir aðrir en
Guðmundur orðið sendiherrar;
Kjartan Jóhannsson og Benedikt
Gröndal, og Eiður bætist væntan-
lega í hópinn. í Landsbankanum
situr fyrir hönd flokksins Björgvin
Vilmundarson, en í stól hans sat áð-
ur Emil Jónsson, fyrrum ráðherra
flokksins.
Af bitlingum krata er af nógu að
taka. Nefna má skipan Guðmundar
Einarssonar og Birgis Árnasonar til
starfa í Evrópu. Jón Baldvin Hanni-
balsson skipaði Stefán Friðfinnsson
forstjóra Islenskra aðalverktaka og
bróður hans, Björn Friðfmnsson,
sem ráðuneytisstjóra. Nýlega var
Magnús Jónsson gerður að Veður-
stofustjóra. Af öðrum og eldri
dæmum má nefna skipan Finns
Torfa Stefánssonar sem upplýsinga-
fulltrúa dómsmálaráðuneytisins
1979, er Vilmundur Gylfason réð
þar ríkjum, skipan Sighvatar Björg-
vinssonar sem framkvæmdastjóra
(kommissar) Framkvæmdastofn-
unar 1979, ráðningu Björgvins
Guðmundssonar í viðskiptaráðu-
neytið og ráðningu Sigurðar E.
ÚR ARGAÞRASINU í EMBÆTTIN FEITU
JÓN SIGURÐSSON
Eitt fyrsta verk eftirmannsins var aö skipa Jón
Seölabankastjóra. Enginn efast þó um hæfni um-
sækjandans.
ALBERT GUÐMUNDSSON
Forystumönnum krata og íhalds þótti þjóöráö aö
gera Albert aö sendiherra og losna þannig viö hann.
SVERRIR HERMANNSSON
Leysti Jónas Haraiz af hólmi í Landsbankanum 1988.
Flokksgæöingurinn valinn framyfir fagmanninn.
TÓMAS ÁRNASON
Settist í framsóknarstól Guömundar Hjartarsonar.
Fékk áöur bitlinginn kommissar í Framkvæmdastofn
EGGERTG. ÞORSTEINSSON
Sem ráöherra skipaöi hann Sigurö Ingimundarson
forstjóra Tryggingastofnunar. Eftirmaöur Eggerts
skipaöi svo hann sjálfan sem eftirmann Siguröar.
BIRGIR ÍSLEIFUR GUNNARSSON
Sigur í sæti sjálfstæöismanna í Seölabankanum,
leysti af hólmi Geir Hallgrímsson, sem tók viö af
Davíö Ólafssyni.
BITLINGAR ÞEGNIR ÚR HÖNDUM RÁÐHERRANNA
ÖNUNDARSON
Matthías Bjarnason geröi hann aö tryggingayfir-
lækni gegn vilja tryggingaráös.
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
Hann heföi ekki oröiö lektor á sínum tíma nema fyr-
ir tilstilli fiokksiega vilhalls ráöherra.
R. HELGASON
Svavar Gestsson geröi hann aö forstjóra Brunabóta-
félagsins, en fimmtán sóttu um. Boröleggjandi
fiokksieg ráöning.
FINNUR TORFISTEFÁNSSON
Sjálfur fjandmaöur kerfisins númer eitt, Vilmundur
Gylfason, notaöi tækifæriö í minnihlutastjórn krata
til aö búa til embætti upplýsingafulltrúa og ráöa
Finn Torfa.
EINARSSON
Steingrímur Hermannsson geröi hann aö flugmála-
stjóra gegn vilja meirihluta flugráös, sem vildi Leif
Magnússon.
HRAFN GUNNLAUGSSON
Engum öörum en pólitískt vilhöllum ráöherra Sjálf-
stæöisflokksins heföi komiö til hugar aö ráöa brott-
rekinn dagskrárstjóra sem sjónvarpsstjóra.
MAGNÚSJÓNSSON
Eiöur Guönason valdi hann úr hópi margra umsækj-
enda um stööu Veðurstofustjóra.
Guðmundssonar sem forstjóra
Húsnæðisstofnunar.
Sjálfstæðisflokkurínn á
likast til metið
Það hefur löngum verið á allra
vitorði að ffarn á þennan dag hafa
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur skipt með sér öllum helstu
stöðunum í dómsmálakerfinu;
sýslumönnum, fógetum, dómur-
um, tollstjórum og fleiru. Af nokkr-
um eldri dæmum um góðgerðir við
forystumenn má nefna að 1965 af-
salaði Gunnar Thoroddsen sér
þingmennsku til að gerast sendi-
herra, sama gerði Einar Ingimund-
arson árið eftir til að gerast bæjar-
fógeti, sama gerði Davíð Ólafsson
1967 til að gerast Seðlabankastjóri
og sama gerði Sigurður Bjarnason
1970 til að gerast sendiherra.
Sjálfstæðisflokkurinn „á“ nokkur
bankastjórasæti. í Seðlabankanum
situr Birgir ísleifur Gunnarsson,
sem leysti þar af hólmi Geir Hall-
grímsson, fyrrum ráðherra, sem aft-
ur leysti fyrrnefndan Davíð Ólafs-
son af hólmi. Sverrir Hermannsson
varpaði frá sér löggjafarstarfmu
1988 til að gerast Landsbankastjóri
og fylla þar með sæti Jónasar Har-
alz, sem aftur hafði á sínum tíma
tekið við af Pétri Benediktssyni.
Sverrir er borðleggjandi dæmi um
að flokksgæðingur hafi verið tekinn
framyfir fagmanninn. Flokkurinn
var með eignarhald á einu sæti í Út-
vegsbankanum. Undir það síðasta
sat þar Lárus Jónsson, fyrrum þing-
maður, sem leysti af hólmi Jónas G.
Rafnar, sem aftur hafði tekið við af
Jóhanni Hafstein, fýrrum ráðherra.
Flokkurinn átti einnig sæti í Búnað-
arbankanum. Þar sat lengi Magnús
Jónsson frá Mel og stóð til að Lárus
Jónsson tæki það sæti, en vegna
pólitískra ýfinga við framsóknar-
menn varð fagmaðurinn Jón Adolf
Guðjónsson fyrir valinu. Hann var
þó talinn til sjálfstæðismanna.
Skipan Alberts Guðmundssonar
sem sendiherra er sérstakt tilfelli.
Þótt Albert hafi verið í Borgara-
flokknum er talið borðleggjandi að
ráðningin hafi ekki síst verið hugs-
uð til þess að koma í veg fyrir end-
urkomu hans í valdataflið innan
Sjálfstæðisflokksins.
Flokkurinn hefur verið duglegur
við bitíingana. Með frægari dæm-
um hin síðari ár er skipan Guð-
mundar Magnússonar sem for-
stjóra Þjóðminjasafnsins, skipan
Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
ar sem lektors við Háskólann, skip-
an Hrafns Gunnlaugssonar sem
framkvæmdastjóra ríkissjónvarps-