Pressan - 24.06.1993, Blaðsíða 11
Fimmtudagurinn 24. júní 1993
FRETTI R
PRESSAN 1 1
HER er. '
Ælpgius
cwu/m'i
CFTIR HAL1.P6B, BALPURSSON
rHEV Kips!
SVlf.
fíóLON KSLíTr'
Iþú i
muoGSvm
i leit ap mn/
. fí MBPflN V/P
(TlSA £P.OM I /
\to*tiAfí£WGj
FtPLI t>EZ
NMtOl tÓÍÐ
OKKURÍ
PIHVAROtWI
2S.JVH'/-- HLApieijVAtflS/RÖNÞ
'26-JÚN/: tU'ALSBUV VIAMdíVM
Landsins besta verð!
Vegna hagkvæmra innkaupa getum við boðið fatnað frá
Englandi og Þýskalandi á verði, sem á sér ekki hliðstæðu
hérlendis. Af tilefni opnunar verslunarinnar nýlega,
bjóðum við að auki allar vörur
með 25% kynningarafslætti til 1. iúlí nk.
Sálfræðingarnir Inga Stefáns-
dóttir og Sigurður Ragnarsson
hafa borið Arthur Morthens, for-
mann Barnaheilla, og hluta
stjórnar þungum sökum og
margir segja Arthur einráðan inn-
an samtakanna. Félagið greiddi
Sigríði Pétursdóttur rúmar 4,7
milljónir fyrir félagasöfhun, sem
hefur aðeins skilað 6 milijónum í
félagsgjöld enn sem komið er.
Ríkið gaf samtökunum jörð aust-
ur i Rangárvallasýslu undir heim-
ili fýrir vegalaus börn. Fljótlega
kom upp ágreiningur milli stjórn-
ar samtakanna og sálfræðinganna
sem ráðnir höfðu verið til að sjá
um heimilið. Klögumálin gengu á
víxl og enduðu með því að Inga
og Sigurður sögðu upp starfi sínu
fýrir samtökin.
Síðastliðið vor stóðu samtökin
Bamahjálp fýrir landssöfnun með
hjálp fjölmiðla til að skjóta skjóls-
húsi yfir vegalaus börn. Að sjálf-
sögðu komst þjóðin við og þegar
upp var staðið höfðu um 28 millj-
ónir komið í kassann auk fjölda
annarra gjafa. Ekki leið þó á löngu
áður en óánægjuraddir fóru að
heyrast. „Þjóðin“ hélt að með því
að láta einhveijar krónur af hendi
rakna væri hægt að leysa vandann
í eitt skipti fyrir öll en fljótlega
kom í ljós að svo var ekki. Þó svo
að safnast hafi nægt fé tii að hýsa
starfsemi meðferðarheimilis fyrir
heimilislaus börn á aldrinum sex
til tólf ára lendir rekstrarkostnað-
urinn að sjálfsögðu á ríkinu. Að-
standendur Barnahjálpar benda
réttilega á að ríkinu beri, sam-
kvæmt lögum, að sjá um þessi
börn, en hafi ekki aðhafst neitt í
málinu. Því má með nokkrum
rétti segja að Bamahjálp hafi feng-
ið ríkið til að horfast í augu við
ákveðinn vanda og axla ábyrgð.
Haröar ásakanir
Þann 28. maí síðastliðinn birtist
grein í Morgunblaðinu eftir hjón-
in Ingu Stefánsdóttur og Sigurð
Ragnarsson sálffæðinga, þar sem
þau komu fram með harðar ásak-
anir á hendur forystumönnum í
Bamahjálp. Þau bera formanni og
varaformanni á brýn að ástunda
„ótrúlega“ og „óheiðarlega“
starfshætti, svo vitnað sé til orða
hjónanna sjálffa. Þau saka stjórn
samtakanna um.að láta fagleg
sjónarmið víkja fýrir handahófs-
kenndum ákvörðunum. Þau voru
fengin til að veita meðferðar-
heimili á Geldingalæk í Rangár-
vallahreppi forstöðu enda með
mikla reynslu og menntun að
baki. I nóvember/desember var
hins vegar ráðinn verkefnisstjóri,
sem ekki hefúr sérmenntun á
þessu sviði, en var skyndilega orð-
inn einn aðalskipuleggjandi
heimilisins. Einnig segjast þau
hafa boðist til að gefa 2,5 milljónir
til að hægt væri að ljúka fram-
kvæmdum við húsið. Ekki var
tekið vel í þá málaleitan, hjónun-
um til mikillar furðu. Inga og Sig-
urður benda einnig á fjármála-
óreiðu og taka dæmi af átaki sem
gert var til að stækka félagaskrá
Barnahjálpar. í ársreikningum
Barnaheilla fýrir 1991 til 1992
námu innheimt félagsgjöld
5.743.750 krónum en kostnaður
vegna meðlimasöfnunarinnar var
4.712.750 krónur. Þannig kostaði
nokkurra mánaða vinna hátt á
fimmtu milljón króna.
Sínum augum lítur hver
silfrið
Aðstandendur Barnaheilla hafa
talsvert aðra sögu að segja. Hug-
myndir Barnaheilla og þeirra
hjóna um starfsemina virðast tals-
m/25% afsl.
1.312
660
825
1.049
1.650
2.099
629
786
944
7.549
2.399
681
,ÖSTV«<
VE v-
PÓSTVAL
Skútuvogi 1 (næsta hús sunnan Miklagarðs), sími 68 44 22
Arthur Morthens Formaöur
Barnaheilla, hefur verid borinn
þungum sökum af fyrrverandi
starfsmönnum samtakanna.
Dæmi:
Peysur......
Bolir........
Pils.........
Buxur........
Jakkar.......
Kjólar...........
Náttföt......
Skyrtur......
Skór.........
Leðurjakkar.,
Kápur......
Náttsloppar..
frá kr. 1.750
frá kr. 880
frá kr. 1.100
frá kr. 1.399
frá kr. 2.200
frá kr. 2.799
frá kr. 839
frá kr. 1.049
frá kr. 1.259
frá kr. 9.799
frá kr. 3.199
frá kr. 909
Franskar snyrtivörur
Dæmi um verð:
Varalitur og naglalakk......596 44 7
Varalitur...................344 258
Naglalakk...................344 258
o.fl. o.fl.
vert ólíkar. Inga og Sigurður
höfðu hugsað sér að vera á Geld-
ingalæk til ffambúðar og hafa þar
talsvert umfangsmikinn búskap,
allt að 250 ærgildum. Enda er
jörðin mjög stór, eða um 1.200
hektarar. Forsvarsmenn Barna-
heilla höfðu allt aðrar hugmyndir
um stærð bústofnsins. Þeir litu
þannig á að nóg væri að vera með
milli 50 og 100 rollur þannig að
börnin lærðu að umgangast
skepnur og taka ábyrgð á þeim.
Upphaflega var það landbúnaðar-
ráðuneytið sem gaf jörðina og
Landgræðslan á næstu jörð við
hliðina á Geldingalæk. Land-
græðslan hafði hug á að nota
hluta af landrými Geldingalækjar
undir beitarhólf fyrir bændur
sveitarinnar, sem sárabætur fýrir
afréttarland sem átti að loka fýrir
ágangi búfjár og græða upp. Þetta
féll skiljanlega ekki í kramið hjá
hjónunum, þvf þau ætluðu sér út
í búskap samhliða meðferðar-
starfseminni. Hugmyndir
Ingu og Sigurðar gengu út á
endurbætur á gamla húsinu á
Geldingalæk upp á allt að 30
milljónum króna. Forystu-
menn Barnahjálpar tóku aftur
á móti ekki í mál að fara út í
svo kostnaðarsamar fram-
kvæmdir jafhvel þó að hjónin
legðu ffam tvær og hálfa millj-
ón til að létta undir með sam-
tökunum. Þeir höfðu sett þak
á kostnaðinn við ffam-
kvæmdina og miðuðu við að
hann yrði ekki hærri en 22 til
23 milljónir. Auk þessa kom
þeim á óvart þegar Inga Stef-
ánsdóttir og Sigurður Ragn-
arsson voru allt í einu orðin
skráðir ábúendur Geldinga-
lækjar en ekki samtökin
Barnahjálp. Þessu var breytt,
þannig að nú eru samtökin
skráð ábúendur á jörðinni.
Aökeypt félagasöfnun
kostaöi sitt
Forstöðumenn Bamahjálp-
ar líta á kostnaðinn við með-
lifnasöfnunina þannig að
hann falli til aðeins einu sinni
en muni skila sér margfalt til
baka á næstu ámm þegar fé-
lagsgjöldin fara að streyma
inn. Þeir fengu manneskju
sem þeir „treystu vel“ til að sjá
um söfhun nýrra félaga inn í
samtökin og launakjörin vom
þau að hún fær rétt. tæplega
helminginn af félagsgjöldun-
um, að frádregnum virðis-
aukaskatti, sem þóknun fýrir
hvern og einn nýjan félaga.
Þetta mun ekki vera óvenju-
legt fyrirkomulag.i Aftur á
móti má furðu sæta hvers
vegna líknarsamtök með 400
félagsmenn gátu ekki fengið
sjálfboðaliða til að hringja í
fólk, kynna samtökin og bjóða
(eða biðja) um aðild.
Meðlimasöfnunin gekk mjög
vel og samkvæmt reikningum
Barnaheilla höfðu komið inn ný
félagsgjöld fýrir rúmlega sex millj-
ónir í byrjum mars síðastliðins. Þá
vantar mars-, apríl- og maímán-
uði. Sendir voru út gíróseðlar til
þriggja mánaða, en frá og með
fýrsta september verður farið í
harðari innheimtuaðgerðir til að
rukka inn það sem upp á vantar.
Megn óánægja
Borið hefur á óánægju með
stjórn samtakanna og kannski
ekki að undra, þar sem fjórtán
manns eru í stjórn og því hætta á
að einhver fámenn klíka innan
stjórnarinnar ráði öllu en tvistrað-
ur meirihluti engu. Arthur er
sagður vera einráður innan sam-
takanna og hafa eignað sér mál-
staðinn._______________________
Gunnar Haraldsson
Barnaheill borin
hungum sökum