Pressan - 24.06.1993, Side 20
D R A M A T I K
20 PRESSAN
Fimmtudagurinn 24. júní 1993
íslendingur sem sat í illræmdu þýsku fangelsi
Beildi klefa meö eítunlyfja-
neytendum og morðingjum
íslendingur var dæmdur í tæplega tveggja ára fangelsi í Þýskalandi fyrir fjársvik að upphæð þrjár milljónir. Honum var haldið föngnum
leitt ár, innan um ofbeldisfulla eiturlyfjasjúklinga og morðingja, og lifði í stöðugum ótta um líf sitt.
i
Maðurinn var búsettur í
Þýskalandi um árabil og rak
þar fýrirtæki. Fyrir nokkrum
árum lenti hann í greiðsluerf-
iðleikum og sló lán hjá þýsk-
um kunningja upp á rúmar
þrjár milljónir. Skömmu
seinna sá maðurinn sér ekki
annað fært en leggja rekstur
fyrirtækisins niður, enda hafði
honum ekki tekist að rétta úr
kútnum. Bauð hann þá kunn-
ingjanum að endurgreiða
skuldina með afborgunum,
en sá sinnti því engu og kærði
málið til lögreglu. Ekkert
heyrðist frá yfirvöldum, fyrr
en einn góðan veðurdag að Is-
lendingnum var fyrirvaralaust
stungið á bak við lás og slá.
Hann hlaut 22 mánaða fang-
elsisdóm, þar af tíu skilorðs-
bundna. Að lokinni ársdvöl í
fangelsi, innan um morðingja
og eiturlyfjasjúklinga, var
honum í síðustu viku vísað úr
landi án þess að fá að hitta
fjölskyldu sína. Tíu mánuðir
af refsingu mannsins eru
bundnir því skilorði, að hann
Setjist eldd að í Þýskalandi
næstu fimm árin.
Tóku börnin með
í Ictngelsið_______________
„Handtakan kom mér í
opna skjöldu,“ segir maður-
inn, sem er fús að segja sögu
sína hér í PRESSUNNI, undir
nafnleynd af tillitssemi við
sína nánustu. „Ég var heima
snemma morguns með bæði
börnin, þegar tveir vopnaðir
lögregluþjónar bönkuðu upp
á og tilkynntu mér að ég væri
tekinn fastur. Ég sagðist ekki
geta hlaupið fyrirvaralaust ffá
heimilinu, en þeir gáfu sig
ekki og neyddu mig til að taka
börnin með mér í gæsluvarð-
hald. Þar máttu þau dúsa með
mér hálfan daginn, eða þang-
að til móðir þeirra fékk fregnir
af handtökunni og gat komið
og sótt þau.
Ég var auðvitað miður mín
yfir handtökunni, en það fékk
þó mest á mig að lögreglan
skyldi ekki sjá sóma sinn í að
halda börnunum utan við
málið. Mér finnst varla hægt
að ganga lengra en draga börn
inn í fangelsi. Yngra barnið
áttaði sig sem betur fer ekki á
því hvað var að gerast, en það
eldra var orðið það stórt að
það vissi hvað klukkan sló.
Núna, ári seinna, spyr það
mömmu sína ennþá af hverju
löggan tók pabba.“
Hann segist í fyrstu ekki
hafa trúað því að hann yrði
hnepptur í fangelsi. „1 barna-
skap mínum var ég sannfærð-
ur um að ég yrði látinn laus
eftir nokkra daga. Var viss um
að ég yrði látinn greiða skuld
mína og málið væri þar með
úr sögunni. Mér varð þó fljót-
lega ljóst að mönnunum var
fúlasta alvara og ég skyldi í
steininn.“
Næstu fjóra mánuði dvaldi
hann í gæsluvarðhaldi og náði
ekki fýrr en seint og um síðir
sambandi við fjölskyldu sína.
Fangelsið reyndist ekki aðeins
ógnvekjandi heldur yfirfullt af
glæpamönnum, en enda þótt
það sé aðeins ætlað rúmlega
800 manns voru um 1.100
fangar þar í gæslu. Lýsingam-
ar á aðbúnaðinum og sam-
föngunum vekja óhugnað, en
að loknu gæsluvarðhaldinu,
þegar sjálf fangelsisvistin
hófst, tók þó enn verra við.
Engin heimsókn í
einn og hálfan
mánuo
„Það þyrmdi yfir mig effir
handtökuna og ég lagðist í
sjúklegt þunglyndi. Reis ekki
úr rekkju í hálfan mánuð og
borðaði sama og ekkert. Grét
bara örlög mín. Ég var nánast
búinn að sannfæra sjálfan mig
um að ég myndi aldrei aftur
líta glaðan dag eftir þetta.
Eymd mín væri algjör og
lengra væri ekki hægt að
sökkva.
En svo tók ég mér tak.
Sagði við sjálfan mig að lífið
væri ekki búið og ég mætti
ekki gefast upp. Einhvern veg-
inn tókst mér loks að rífa mig
upp úr mesta volæðinu, þótt
vanlíðanin væri mikil. Það
hjálpaði auðvitað ekki, að ég
fékk ekki að hitta konuna fýrr
en eftir einn og hálfan mánuð
og var það fýrsta og jafnframt
eina heimsóknin sem ég fékk
á meðan ég var í gæsluvarð-
haldi. Konan mín var ítrekað
búin að skrifa fangelsinu og
biðja um að fá að koma, en
var aldrei svarað. Svo virtist
sem allt væri gert til að ein-
angra menn sem mest ffá fjöl-
skyldu sinni. Ég fékk ekki að
nota síma og bréfin frá kon-
unni voru þrjár vikur á leið-
inni, enda þótt hún byggi í að-
eins 25 kílómetra fjarlægð. I
fangelsi er hver mínúta eins
og eilífð og því er hægt að
ímynda sér hvemig það er að
þurfa að bíða þrjár vikur eftir
bréfi. Biðin verður óendan-
leg.“
Tvisvar í viku í
sturtu_________________
Hann segist hafa getað
hrósað happi yfir að vera einn
í klefa á meðan á gæsluvarð-
haldinu stóð, enda þótt vistar-
veran væri ekki upp á marga
fiska. „Klefinn var um sjö fer-
metrar að stærð, með einum
litlum glugga upp undir lofti.
I herberginu var rúmgarmur
sem skipt var á á þriggja vikna
fresti, borð, stóll, vaskur og
salerni. Hreinlæti var mjög
ábótavant og til dæmis var
okkur aðeins leyft að fara í
sturtu tvisvar í viku. Það segir
sig sjálft að fangelsið lyktaði
hrikalega illa, einkum yfir
sumarmánuðina, þegar hitinn
fór oft yfir 30 stig og loftræst-
ing var engin.“
Föngum var leyft að dvelja
utandyra í einn tíma á dag.
Hann segist í fýrstu ekki hafa
treyst sér út á meðal hinna
fanganna, en þegar á leið hafi
hann gert sér grein fyrir að
hann yrði að rífa sig upp úr
þunglyndinu. „Ég var búinn
að missa 24 kíló og leit orðið
út eins og ræfill. Loks sá ég að
ég yrði að fara út og hreyfa
mig ef ég ætlaði að lifa þetta
af. Ég notaði því útivistarleyf-
ið til að ganga rösklega ffam
og aftur um svæðið. Hinum
föngunum fannst þetta sér-
kennilegt og spurðu iðulega
hvort ég ætlaði að ganga til ís-
lands.“
Eiturlyf og slags-
mál innan fang-
elsisins__________________
Að loknu gæsluvarðhaldinu
var hann færður í nærliggj-
andi fangelsi, þar sem hann
kynntist fýrir alvöru harð-
neskjulegu lífinu á bak við
fangelsisrimlana. „Mér varð
hreint ekki um sel, en þarna
voru samankomnir um 800
harðsvíraðir og snarruglaðir
glæpamenn, margir eins og
þeir gerast verstir í bíómynd-
unum. Þarna voru nienn af
öllum þjóðarbrotum, þó
einkum ítalir og Tyrkir, sem
mér stóð stuggur af, enda of-
stækisfúllir og til alls líklegir. í
fangelsinu var ég ýmist með
tveimur eða fjórum öðrum
föngum í klefa. Það tók á
taugarnar að deila klefa með
eiturlyfjaneytendum og
morðingjum og ég óttaðist
um líf mitt allan tímann. Það
má segja að ég hafi verið með
Josef Schwammberger
Þýskistríðsglæpamaðurinn
sem íslendingurinn kynntist í
fangelsinu.
skítinn í buxunum.“
Hann segir ofbeldi og slags-
mál hafa verið daglegt brauð
og reglulega hafi fangar verið
sendir stórslasaðir á fangelsis-
sjúkrahúsið. „Ég reyndi að
láta lítið á mér bera og blanda
sem minnst geði við hina.
Taldi það ráðlegast, enda
margir fanganna óútreiknan-
legir og aldrei hægt að vita
upp á hverju þeir gætu tekið.
Ég yrti aldrei á neinn að fýrra
bragði og lagði lykkju á leið
mína þegar ég mætti verstu
slagsmálahundunum.
Það kom þó ekki í veg fýrir
að ég yrði nefbrotinn. Var á
leið inn í klefann minn þegar
einn fanginn, sem ég hafði
aldrei skipst á einu orði við,
vék sér að mér, sagði að ég
skyldi ekki voga mér að tala
svona til sín og skallaði mig
þrisvar með enninu. Síðan
hótaði hann að drepa mig ef
ég segði til sín. Margir fangar
urðu vitni að atvikinu en þeir
hreyfðu þó hvorki legg né lið.
I fangelsinu hugsar hver um
sig, þar hjálpaði enginn ná-
unganum. Og fangaverðirnir
spurðu ekki hvað hefði gerst,
heldur sendu mig orðalaust til
læknis.
Eiturlyf gengu kaupum og
sölum innan fangelsisins og
menn voru meira og minna
dópaðir frá morgni til kvölds.
Ég held að segja megi að ég
hafi verið eini fanginn sem
ekki neytti eiturlyfja, hinir
voru allir á kafi í heróíni.
Verðirnir létu sem þeir sæju
þetta ekki og ótrúlega auðvelt
reyndist að smygla eiturlyfj-
um inn í fangelsið, — líkast til
fannst þeim ágætt að fangarn-
ir væru í vímu því þannig
voru þeir rólegri. Fangelsið sá
þó ekki um að dreifa hreinum
sprautum og því voru alltaf
þær sömu í gangi. Ég vissi að
minnsta kosti um sex alnæm-
issmitaða fanga sem spraut-
uðu sig daglega, en það var
eins og enginn hefði áhyggjur
afþví.“
Kynnlisl stríös-
glæpamanninum
Schwammberger
I fangelsinu voru menn
skyldaðir til vinnu, enda þótt
aldei tækist að finna næg störf
fyrir alla. „Ég vann aðeins
hluta af fangavistinni, fýrst við
að búa til framlengingarsnúr-
ur og síðar á fangelsissjúkra-
húsinu í tvo mánuði. Á spítal-
anum hafði ég mesta frjáls-
ræðið og þar leið mér því best,
enda þótt ég gerði ekla annað
en skeina sjúklinga og þrífa
skít. Þarna var mikið um
fanga sem höfðu verið barðir
eða reynt að fýrirfara sér með
því að skera sig á púls eða
hengja sig. Þá var þama fjöld-
inn allur af langt leiddum al-
næmissj úklingum."
Meðal þeirra sem hann
kynntist lítillega á sjúkrahús-
inu var þýski stríðsglæpamað-
urinn Josef Schwammberger,
sem dreginn var fyrir dóm-
stóla í Þýskalandi 1991 vegna
aðildar sinnar að helförinni.
„Karlinn er nokkuð ern, þótt
kominn sé á níræðisaldur, og
við spjölluðum nokkrum
sinnum saman. Það var
óhugnanlegt að hlusta á hann,
en viðhorf hans til gyðinga
hafði ekkert breyst frá því í
stríðinu. Hann sagðist aðeins
hafa gert skyldu sínu, gyðing-
ar hefðu valdið spillingu í
þýsku þjóðfélagi sem nauð-
synlegt hefði verið að upp-
ræta. Þeir hefðu verið á góðri
leið með að taka yfir öll völd í
landinu, þeir hefðu átt allt og
verið orðnir allt of margir.
Ég rakst á alls konar menn
þarna á sjúkrahúsinu. Þar á
meðal fyrrum meðlim
hryðjuverkasamtakanna
Rauðu herdeildarinnar
(RAF), sem hafði mörg morð
á samviskunni og var búinn
að sitja inni í fimmtán ár. Þá
var þarna Tyrki sem hafði
myrt konuna sína. Hann
stakk hana með hnífi fýrir
framan börnin þeirra af því
hún vildi ekki horfa á sömu
sjónvarpsrás og hann. Annar
hafði starfað með fíkniefna-
lögreglunni sem tálbeita og
aðstoðað við að koma upp
um stóran kókaínhring. Það
var sagt að honum yrði útveg-
að nýtt nafh þegar hann
slyppi út.“
Hef vonandl lært
qf mislökunum
Hann segir var hægt að lýsa
því hvernig honum leið í
fangelsinu. Sífellt með nag-
andi samviskubit og áhyggjur
af fjölskyldu sinni og þjakaður
af einsemd. Fangelsisreglur
leyfðu aðeins eina heimsókn í
mánuði og hann sá bömin sín
ekki í heilt ár á meðan hann
var í haldi. Segist ekki hafa
viljað að þau upplifðu eymd-
ina í fangelsinu.
„Mér leið verst þegar ég
lagðist upp í rúm á kvöldin.
Þá ásóttu mig neikvæðar og
sjálfsásakandi hugsanir, svo ég
átti í stökustu erfiðleikum
með að sofna. Með tímanum
tókst mér þó að sigrast á and-
vökunni með því að þvinga
mig til að hugsa aðeins um já-
kvæða hluti uppi í rúmi. Dag-
arnir voru skárri, þótt þeir
gætu verið hrikalega lengi að
líða. Ég reyndi að halda mér
uppteknum og gleypti í mig
allt lesefhi sem ég komst yfir.
Las til dæmis Biblíuna spjald-
anna á milli og hafði gott af.
Trúin hjálpaði mér oft á erfið-
um augnablikum og ég finn
að hún er sterkari en áður.“
Hann segist nú vera kom-
inn heim til að byrja nýtt líf á
íslandi ásamt fjölskyldu sinni.
Reynslan hafi verið bitur en
hún hafi líka kennt honum
margt og hann segist vona að
hann hafi nú lært af mistök-
unum. „Auðvitað ber hver
ábyrgð á sínu lífi og það
hvarflar ekki að mér að álasa
öðrum en sjálfum mér. Ár í
fangelsi hefur vonandi breytt
mér til batnaðar; ég finn að
minnsta kosti að ég er orðinn
raunsærri og laus við draum-
óra. Guði sé lof. Því ef þessi
erfiða lífsreynsla hefði ekki
orðið til að breyta hugarfari
mínu, þá væri mér ekki við-
bjargandi.“
Bergljót Friðriksdóttlr