Pressan - 02.12.1993, Blaðsíða 2
BÓKA- OG PLÖTUBLAÐ
B2 PRESSAN
Fimmtudagurinn 2. desember 1993
★ ★ ★ Stjörnugjöf gagnrýnenda ★★★
s Í.S. v.íl-,
Hrafn Jökulsson
Gunnar Hjálmarsson
Olafur Haraldsson
Kolbrún Bergþórsdóttir
íslensk skáldverk
Birgir Sigurðsson: Hengiflugið
Forlagið
★★★★
Brakandi snilld. Birgir hefur náð að pakka nútímanum inn
í þessa bók og það liggur við að maður segi einfaldlega takk.
(ÓH)
Guðbergur Bergsson: Sú kvalda ást
sem hugarfylgsnin geyma
Forlagið
★★★★
Alveg vita siðlaus saga, en sett saman af mikilii list. Full-
þroskuð skáldsaga og aðgengileg í bestu merkingu orðsins.
(ÓH)
Gyrðir Elíasson: Tregahornið
Mál og menning
★★★★
Gyrðir hefiir einstakt lag á að smíða samsetningar sem sitja
í minni manns. Hver setning gegnir því hlutverki að skapa
stemmningu. Engu er ofaukið. Listasmíð. (KB)
Steinunn Sigurðardóttir: Ástin fiskanna
Iðunn
★★★
Kvennabók. Ljúft millispil á rithöfiindarferli Steinunnar,
dálítið angurvær ástarsaga sem ég hef grun um að margar
konur telji sig hafa lifað. (KB)
Guðlaugur Arason: Hjartasalt
Mál og menning
★★
Framhald af Pelastikki. Það gengur bókstaflega allt upp hjá
söguhetjunni og fyrir bragðið skapast lítil spenna um
heppni og óheppni, sigur eða ósigur. (ÓH)
Kristján Jóhann Jónsson: Patt
Lesmál
★ ★
Snilldarvel gerð sem formleg tilraun um skáldsögu, en
ffamvinda sögunnar er vélræn og frásögnin eintóna. (ÓH)
Alfrún Gunnlaugsdóttir: Hvatt að rúnum
Mál og menning
★
Textinn er gerilsneyddur allri tilfinningu, einhæfur, þurr og
steríll, enda skrifaður í Norðurlandaverðlaunastílnum.
Virðist allt mjög vitsmunalegt, en ekki var það gaman. (KB)
Hannes Sigfússon: Ljósin blakta
Mál og menning
★
Frásagnarhátturinn, óskoruð samúð söguhöfundar með
tólf öldungum, ásamt svolítið klisjukenndri kaldhæðni,
bera verðugt söguefni ofurliði. (ÓH)
Njörður P. Njarðvík: Hafborg
Iðunn
★
Lítt eftirminnileg saga. Persónusköpun er ábótavant, bygg-
ing ekki nógu markviss og stíllinn tilþrifalítill. (KB)
Rúnar Helgi Vignisson: Strandhögg
Forlagið
★
Verðug yrkisefni og ágætar hugmyndir sem höfundi tekst
þó ekki að blása nægilegu lífi í. (KB)
Björgúlfur Ólafsson: Kvennagaldur
Almenna bókafélagið
®
Það er sjálfsagt að gefa ungum höfundum tækifæri, en hér
er ekki vott af hæfileikum að finna. Vandræðaleg mistök frá
upphafi til enda. (KB)
Ljóð
í andófinu — pólsk nútímaljóð
Geirlaugur Magnússon þýddi.
Hörpuútgáfan.
★★★★
Einhver ánægjulegustu tíðindi ársins fyrir ljóðavini. Það
leynir sér ekki að Geirlaugur Magnússon hefur vandað til
verksins. (HJ)
Hannes Pétursson: Eldhylur
Iðunn
★★★
Afar vönduð bók, agað og vel stillt verk þroskaðs ljóðskálds,
haganlega gert að öllu leyti. Hún á eftir að ffeistá úr bóka-
hillunni í firamtíðinni. (ÓH)
Þýðingar
Ljudmila Petrushevskaja: Ódauðleg ást
Mál og menning.
★★★★
Bók sem ætti að vekja aðdáun bókmenntaunnenda. örugg-
ur, einfaldur og hnitmiðaður stíll. Framúrskarandi þýðing.
(KB)
Mats Wahl: Húsbóndinn
Mál og menning
★★★★
Wahl kann sannarlega að segja unglingasögu; ffásögnin er
full af Qöri og spennu og lesandinn lifir sig inn í söguna.
Sérlega góð þýðing. (KB)
Mario Vargas Llosa: Hver myrti Móle-
ró?
Almenna bókafélagið.
★★★★
Ef ykkur finnst þið of oft lesa innihaldslítil skáldverk sem
hreyfa ekki við ykkur, þá lesið þessa sögu. (KB)
lan McEwan: Vinarþel ókunnugra
Almenna bókafélagið
★★★
Mjög sennilega það besta sem McEwan hefur skrifað. Ekki
handa viðkvæmum sálum, en ætti að verða effirlætislesning
töffaranna í intelligensíunni. Prýðilega þýdd. (KB)
A.J. Ouinnell: Blóðfjötrar
Almenna bókafélagið.
★★★
Sérlega ánægjuleg lesning, ein fárra spennubóka sem segja
má að séu geðfelldar og notalegar. (KB)
Torgny Lindgren: Fimm fingra mandlan
Mál og menning
★★★
Lindgren er örugglega í hópi bestu sögumanna á Norður-
löndum, hugmyndaríkur og óhræddur við að staðfæra,
endurskapa og gefa gömlum goðsögum nýja og ferska
merkingu. (KB)
Leif Esper Andersen: Brennd á báli
Mál og menning
★
Sérlega drungaleg og þunglyndisleg unglingabók, samtöl
stirð, persónur daufgerðar og engin ffásagnargleði. Allt
ffemur niðurdrepandi. (KB)
Aörar bækur
Handbók Epíktets
Almenna bókafélagið
★★★★
Gullkorn hins grísk-rómverska heimspekings óaðfinnan-
lega þýdd af dr. Brodda Jóhannessyni, einum fárra sem hafa
fullkomið vald á íslenskri tungu. (KB)
Jólaljóð: Gylfi Gröndal valdi
Forlagið
★★★
Ljóðin eru skemmtilega ólík, bókin fjölbreytt og Gylfa hef-
ur tekist vel upp við valið á ljóðunum. (HJ)
Gylfi Gröndal: Eldhress í heila öld
Forlagið
★★★
Endurminningar Eiríks Kristóferssonar veita heillandi inn-
sýn í veröld sem var. Sá sem ekki hrífst af ffásögninni hlýtur
að vera vel og rækilega dauður úr öllum æðum. (HJ)
Gylfi Þ. Gíslason: Viðreisnarárin
Almenna bókafélagið
★★
Gylfi er „grand old man“ íslenskra stjómmála og menn
leggja við hlustir þegar hann tekur til máls. Bókin er afar
ffóðleg, en ffáleitt eins safarík og efhi stóðu til. (HJ)
Þorsteinn E. Jónsson: Viðburðarík flug-
mannsævi
Setberg
★★
Þorsteinn er ævintýramaður að upplagi og virðist margoft
hafa beinlínis lagt lykkju á leið sína til að sneiða hjá vegi
dygðarinnar. (HJ)
Vetrarvirki Björns Th. Björnssonar: Af-
mæliskveðja frá nemendum
Mál og menning
★★
Ekki mikil tíðindi ffá listffæðilegu sjónarmiði, enda nokkur
tilfinningasemi sem réð hugmyndinni að útgáfunni, ffekar
en ffæðileg eða listræn markmið. (GJÁ)
Stefán Jón Hafstein: New York, New
York
Mál og menning
★★
Nokkuð trúverðug mynd af lífi utangarðsfólks í New York,
en aðalsögupersónan, Kristinn, verður svolítið útundan.
Auk þess hefði þurft mun meiri stillingu í stílinn. (KB)
Ferskeytlan — vísur og stef frá ýmsum
tímum
Almenna bókafélagið
★★
Fullffjálslega valið efni, en hreinar perlur innan um annað
sem hefur minna skáldskapargildi. Um leið vísast lýsandi
fyrir hina einkennilega samsettu þjóðarsál. (KB)
Lausavísur frá 1400-1900
Sveinbjörn Beinteinsson safnaði
Hörpuútgáfan
Því miður bregst Sveinbirni illa bogalistin. Bókin er einn
allsheijar öskuhaugur þarsem öllu ægir saman: leirburði,
hnoði, lágkúru — og snilld. (HJ)
Plötur
Rabbi: Ef ég hefði vængi
R músík / Japis
★★★★
Rabbi er í ffemstu línu sem persónulegur og ffábær laga-
smiður. Vandað popp og heildartónninn sterkur. (GH)
Nýdönsk: Hunang
Skífan
★★★
Hér er sáð í sama beð og áður, en ekkert óvænt til. Gott
popp, en platan ber þó hættuleg merki um yfirvofandi
stöðnun. (GH)
Todmobile: Spillt
Spor
★★★
Hér er allt pottþétt, bæði spilamennska og ffágangur. Það
skiptast á góð lög og lög sem sogast í hið risavaxna miðj-
umoðssvarthol dægurtónlistarinnar. (GH)
Bubbi Morthens: Lífið er Ijúft
Skífan
★★★
Einföld, værukær og þægileg plata, gamaldags og lág-
stemmd. Fjandi hentug við arininn á vetrarkvöldum, en
ekkert tímamótaverk.
Bubbleflies: The World is Still Alive
Hljómalind
★★★
Kærkomin skurðaðgerð á skvapkenndu íslensku tónlistar-
lífi. Bjartasta vonin, engin spuming. (GH)
Ýmsir flytjendur: Núll og nix
Smekkleysa
★★★
Mælir blóðþrýstinginn í músíklífinu með 33 hljómsveitum,
mikið af því undirgangatónlist sem aldrei fær að heyrast í
útvarpi. Þörf útgáfa.
Ámi Johnsen
Milljónaútgáfan
Eindrangur/Japis
★★1/2
Ámi getur raulað sig fýrirhafnarlaust í gegnum hálft lag og
hljómað eins og hver önnur varðeldabytta í hinni árlegu
útilegu. Textamir sumir geggjað mgl og stuðrembingurinn
á suðupunkti. (GH)
Orri Harðarson: Drög að heimkomu
Jepsen/Japis
★★1/2
Tvítugur trúbadúr, en það heyrist ekki á plötunni. Frekar
eins og hér sé á ferð lífsreyndur og sigldur maður. Ekki
byltingarkennt, en ágætt innlegg og nauðsynlegt. (GH)
Móa syngur: Lögin við vinnuna
Smekkleysa
★★
Lögin þekkja allir og platan líður hjá eins og hvert annað
umhverfishljóð. Þetta er stemmningarplata og ekki verri er
hver önnur kertaljósaplata. (GH)
Halli: Undir hömrunum háu
★★
Nýr Bjartmar, á köflum sérhannað jogginggallapopp, en
ekki ýkja eftirminnilegt. (GH)
Herbert Guðmundsson: Being human
HG Records / Japis
Ótrúlega máttlaus og óspennandi plata, svo dautt, marg-
notað og tilfinningalaust efni að það líður næstum yfir
mann af leiðindum. (GH)
Endurútgáfur
Purrkur Pilnikk: Ekki enn
Gramm/Smekkleysa
★★★★
Fullt af ffábæmm lögum og heildarandinn skemmtilega
ftillur af nýjungum. Textar Einars Amar úr reykvísku um-
hverfi annó 1981 veita leitandi unglingum vonandi jafn-
mikinn innblástur nú og þá. (GH)
Ýmsir flytjendur: Rokk í Reykjavík
Hugrenningur/SmekkleysA
★★★
Misjafnar upptökur en nauðsynleg plata í skápnum til upp-
rifjunar fyrir þá sem náttúmlaust nútímapopp hrellir sem
mest. (GH)
Sígild snilld og ágætt léttmetl
MEGAS
PARADÍSARFUGLINN
SKlFAN
★★★★
STUÐMENN
STUÐMENN
SKlFAN
★★
Það hlaut að gerast
að endurútgáfuárátt-
an næði til meistara
Megasar. Fáir eiga
það jafnskilið að vera til í
næstu plötubúð. Helst hefði
maður auðvitað viljað sjá allar
gömlu plöturnar útgefnar í
heilu lagi, þeir sem keyptu
upp upplagið af kassanum
„Megas allur“ ættu ekki síður
að vilja eiga lagerinn á geisla-
plötu. Smellasafnið „Paradís-
arfuglinn" er þó auðvitað ffá-
bær byrjun og á vonandi eftir
að seljast nógu vel til að Skífu-
menn íhugi alvarlega mögu-
leikann á heildarendurútgáfu.
Það eru tuttugu lög á safn-
inu, af öllum plötum Megasar
nema þeirri síðustu. Það má
alltaf deila um lagavalið, og
persónulega hefði ég skipt á
nokkrum lögum, en hér eru
velflestar perlur Megasar í
gamla góða hljómnum og
margir verða örugglega glaðir
að heyra snilldina rispulausa.
Hér eru frábær lög af fyrstu
plötunum („Þóttú gleymir
guði“, „Ragnheiður biskups-
dóttir", „Spáðu í mig“
o.s.ffv.), drafandi flutningur á
mergjuðum textum með
góðu síðhippaundirspili. Hér
er pönkaða groddarokkið sem
Megas gerði með Spilverkinu
og Tolla („Paradísarfuglinn“,
,,Krókódílamaðurinn“), hér
eru smellir frá síðasta áratug
(„Reykjavíkurnætur“, „Fatla-
fól“), hér er meira að segja
sýnishorn af barnaplötunni og
Passíusálmaprógramminu
sem kom út sem viðbót í kass-
anum góða 1986. Semsagt:
Hér er drepið niður á öllum
skeiðum meistarans og þetta
er allt sígild snilld sem enginn
ætti að missa af.
I kaupbæti fá kaupendur
tvö lög sem tekin voru upp á
þessu ári. Þar eru hjálparhell-
urnar Stefán Hjörleifsson og
Björn Jr. úr Nýdanskri. „Ef þú
smælar ffaman í heiminn" er
hér í nýrri órafmagnaðri út-
gáfú og textinn er endurbætt-
ur. Hitt er „Þóra“, sem lengi
hefur verið á tónleikapró-
grammi Megasar þótt ekki
hafi það komið út fyrr. Bæði
eru lögin góð og fín skreyting
á þær guðaveigar sem þessi
þverskurður á ferli Megasar
er. Ómissandi plata.
Stuðbandið Stuðmenn var
að sönnu hljómsveit allra
landsmanna. Úr þeim ullu
smellirnir eins og þeir fengju
borgað fyrir þá, sem þeir
reyndar gerðu og gera enn.
Ferli Stuðmanna má skipta í
tvo helminga. Fyrri helming-
urinn spannar tvær plötur og
lýkur 1976. Bæði „Sumar á
Sýrlandi“ og „Tívolí" eru
klassísk verk og bestu þema-
plötur sem hafa verið gerðar á
Islandi. Lögin sem þessar plöt-
„Semsagt: Hér er drep-
ið niður á öllum skeið-
um meistarans og
þetta er allt sígild
snilld sem enginn œtti
að missa af Ómiss-
andi plata. “
ur hafa að geyma hafa elst vel
og valda enn gleði þótt maður
hafi heyrt þau ótrúlega oft. 1
þessu saffii eru aðeins tvö lög
frá þessu skeiði, „Tætum og
tryllum" og „í bláum skugga“,
en aðaláherslan er á seinna
skeið Stuðmanna, sem hófst
með metsölumyndinni „Með
allt á hreinu“ 1982. Til ársins
1990 gerðu Stuðmenn sex
plötur, misgóðar, og það fór
verulega að slá í hugmyndina
um að framleiða skemmti-
popp með léttum húmor eftir
því sem á leið. Plöturnar sýna
ákveðið hnignunarmunstur
og hljómsveitin hætti alltof
seint. Misheppnaðar tilraunir
til heimsffægðar og flopp eins
og Stuðmannabókin og
„Hvítir mávar“ bættu svo á
bölið. í lokin var hljómsveitin
sjúskaður skuggi af sjálffi sér
og þeirri góðu hugmynd sem
varð til á fyrstu plötunni.
Flestir yfir tvítugu hafa ein-
hvern tímann upplifað Stuð-
menn á balli eða útihátíð og
þeir sem eiga útvarp hafa
heyrt flest þau lög sem hér
eru. Maður fær útbrot og
uppsölu ef „Popplag í G-dúr“
verður á vegi manns, svo
margspilað er lagið á „öldum
ljósvakans." Mörg önnur
Stuðmannalög af seinna
skeiðinu eru ekki langt ffá því
að valda sömu líkamlegu
óþægindunum, en hér eru líka
nokkur sem lítið hafa heyrst,
eins og „Staldraðu við“ og
„Baktala", hvortveggja ágæt
lög.
Þessi útgáfa er ekki góð og
ekki nauðsynleg. Flestar plöt-
ur Stuðmanna eru enn fáan-
legar í næstu búð og fyrstu
plöturnar tvær hafa verið end-
urútgefnar, sem skýrir
kannski af hverju svo fá lög af
þeim eru hér. Textar fylgja
með en hvorki upplýsingar
um höfúnda né af hvaða plöt-
um lögin koma, sem er ótví-
ræður löstur. Svo hefði alveg
mátt skella nokkrum mynd-
um af sveitinni með í pakkann
og einnig ágripi af sögu henn-
ar. Ef gera á almennilegan
smellapakka með Stuðmönn-
um þurfa þessi atriði að vera í
lagi og fyrstu plötunum
tveimur, meistaraverkunum,
þarf að gera hærra undir
höfði.
Gunnar Hjálmarsson