Pressan - 09.12.1993, Síða 2

Pressan - 09.12.1993, Síða 2
FYRST OG FREMST Fimmtudagurínn 9. desember 1993 PRESSAN UMMÆLI VIKUNNAR Að hafa næmt auga — fyrir hinu sjálfsagða „Mér lætur miklu betur að vinna en tapa.“ Magnús Hreggviösson keppnismaöur. g ætJla a<o) gera tul getmF e er od sem. 1 SJKlJlM „Við ætlum eldd að lækka tónlistina. Við leigjum staðinn sem skemmtistað og ef eldd er hægt að hafa skemmtistað þama mun samningurinn falla niður.“ Fabio Patizini, (pólsk-ítalskur?) eigandi Barrokks. Þú segir ekki! „Fyrir nokkmm árum var það allt að því orðin plága, að heyra sífellt sama tuðið frá nokkrum mönnum að ég væri hálfgerður bjálfi og montrass.“ Kristján Jóhannsson. ÍStlÉ „Leiðist menn út í leit að táknum má líka eflaust gæla við þá hugmynd að klukkan sé e.k. andhverfa hennarj?], enda rödd hennar válegri og þrengir sér inn á óvæntum og oft ólík- legustu stöðum.“ HALLUR HELGASON. Flýr Hollívúdd og lei SEN. Búin að fá vilyrði erlendis frá og er nú spáð styrk frá Kvikmyndasjóði. Sigríöur sætasli sendiherrann Sænskur rithöfundur að nafni Kid Severin gaf nýlega út bók í heimalandi sínu sem hún nefhir Kokkteilpartí. Rit- höfundurinn var ákveðin í að gefa út bók sem myndi vekja athygli og notar hún því nöfn þekktra einstaklinga úr vera- leikanum til að skreyta bók- ina. Öðram þræði fjallar bók- in um konu að nafni Baby, sem er hin ókrýnda gleði- drottning sænsku pressunnar. Bókin segir frá því er Baby tekur upp á því að halda eitt allsherjar hanastélsboð fyrir rétta fólkið, eða „allt ffá bisk- upum niður í auminga", eins og sagt er í kynningu bókar- innar. Með öðrum orðum er öllum boðið sem myndu daðra við prinsinn og prins- essuna, en konungshjónin af- boða komu sína. Vitaskuld er nokkrum Wallenbergum boðið og fáeinum Bonnierum (sem ku vera ffægir í Svíþjóð) og auk þess öllum sendiherr- unum sem búsettir eru í Stokkhólmi. Af þeim er einn nefndur öðrum fremur, sendiherra íslands í Svíþjóð, sem er engin önnur en Sigríð- ur Snævarr. 1 bóldnni er hún sögð sætasti sendiherrann í Stokkhólmi. Áramótapartí á Búöum Fjöratíu manna hópur æd- ar að leggja leið sína alla leið vestur að Búðum á Snæfells- nesi og vera þar á djammi í tvo sólarhringa. Nýr rekstrar- stjóri er tekinn við hótelinu; Viktor Sveinsson, auglýsinga- gerðarmaður hjá Mættinum og dýrðinni. Veislustjóri í ára- mótagleðinni verður enginn annar en radíusflugan Steinn Ármann Magnússon grínisti. Félagi hans, Davíð Þór Jóns- son, ædar að fýlgja honum og svo er eins víst að bamastjam- an Hallur Helgason, sem nú er staddur í Hollívúdd, látí sjá sig. Þá hefur heyrst að Helgi Bjöms poppari og Ami Jörg- ensen, hinn drátthagi rit- stjórnarfulltrúi á Morgun- blaðinu, ætli einnig að mæta. Meiningin mun vera að kveikja varðeld á ströndinni, skjóta upp flugeldum, borða góðan mat og skvetta í sig, eins og góðra manna er siður á þessum ú'ma árs. Ásdísi spáö styrk Nú fer að líða að því að veitt verði úr Kvikmyndasjóði og kvikmyndagerðarmenn sem og áhugamenn um ís- lenska kvikmyndagerð pískra mikið um það sín á milli þessa dagana hver verði til að hreppa styrk. Ásdís Thorodd- sen þykir líklegur kandídat, ekki síst fýrir það að nú þegar á hún að hafa vilyrði fýrir ein- um 40 milljónum úr ýmsum erlendum sjóðum. Og fyrst údendingarnir hafa trú á Ás- dísi, því skyldu Ámi Þórarins og hans fólk í úthlutunar- nefhdinni ekki hafa það líka? Fjjóröa deildin í atvinnuleit__________ Nolckrir topparnir í kvik- myndabransanum voru sam- ankomnir á þriðjudagskvöld í Lindarbæ. Þar voru meðal annarra Lárus Ýmir Óskars- son og Friðrik Þór Friðriks- son, svo einhveijir séu nefnd- ir. Ástæðan var sú að fjórða deild leikara, sem eru laus- ráðnir leikarar, stóð fyrir áheyrnarprófi eða „odisjón" eins og það er kallað í brans- anum. Með þessu vilja óþekktir leikarar vekja athygli á sér. Það fýlgir ekki sögunni hvort þeir kvikmyndamógúlar fúndu einhver „andlit“ í næsta bíó. ÞórÖur gerlr at- hugasemd_____________ Hlutafjárútboð Kaupfélags Árnesinga á B- hlutdeildar- skírteinum hefur vakið at- hygli. Margir telja útboðslýs- ingu lcaupfélagsins hæpna þar sem lidar upplýsingar fáist um raunverulega stöðu fýrirtækis- ins. Nú hefur Þórður Ólafs- son, forstöðumaður Bankaeft- irlits Seðlabankans, sent frá sér athugasemdir við stöðu innlánsdeildar kaupfélagsins, en innlánsdeildir falla undir bankastarfsemi. Staða deildar- innar er metin eftir eiginfjár- stöðu kaupfélagsins og ef hún fer undir ákveðið lágmark er kaupfélaginu skylt að gera við- hlítandi ráðstafanir eða leysa hana upp ella. Eftir því sem næst verður komist hefúr fýrst og fremst verið biðlað til fé- lagsmanna kaupfélagsins eftir lcaupum á bréfúm. Jói hefur vinn- ínginn_______________ Ljóst er að verðstríðið á Akureyri hefur alið af sér ódýrasta verðlag á Iandinu og er verð sumra vara komið langt undir innkaupsverð. Heyrst hefur að þetta sé orðið heldur langvinnara stríð en Jóhannes Jónsson í Bónus hafði gert ráð fýrir, enda verðlag í Bónus á Ákureyri tölu- vert lægra en í verslunum fýrirtækisins á höfúðborgarsvæðinu. Það ætti hins vegar að gleðja hann að í verðkönnun sem Neytendafélag Akureyrar gerði í vikunni á 250 vörutegundum og birtist í dag kemur berlega í ljós að Bónus hefúr vinninginn. Egill sápukéngur____________ Enn af ffama Egils Ólafssonar á er- lendri grand. PRESSAN sagði ffá því fýrir skömmu að hann hefði verið að leika nýsjálenskan bareiganda úti í Ke- nýa í þýskri sjónvarpsmyndaröð. Þátt- urinn var það sem kallað er „pilot“- þáttur eða til prafú. Hvort það er Agli að þakka eður ei féll þátturinn í góðan jarðveg og nú er Egill Ólafsson með samning í rassvasanum til tveggja ára um áframhaldandi leik í þessari þýsku sápuópera. Feröafélagiö fær brennivínspeningg ÁTVR mun á næstu dögum berast nokkurra milljóna króna framlag ffá Anheuser-Busch-fýrirtækinu sem sel- ur Budweiser- bjór. Verður farið með „framlag" þetta sem önnur álíka sem berast reglulega ffá fýrirtækjum eins og Reynolds, Carlsberg og Heineken og það lagt inn á svokallaðan Fjallasjóð ÁTVR. Fé úr Fjallasjóði er varið til landverndarmála og er Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, formaður sjóðsins. Þetta er ekki í fýrsta sinn sem Ánheuser-Busch leggur sitt af mörk- um til „landverndar" á Islandi, því 1991 kom 1,8 milljóna króna ffamlag ffá fýrirtækinu sem var þá látíð Land- græðslunni í té. Reynolds-tóbaksvöra- framleiðandinn veitti sama ár þriggja milljóna króna ffamlag í tilefni fimm- tíu ára viðskipta fyrirtækisins við ÁTVR og hefúr síðan veitt árlegt ffam- lag. Er ekki einleikið hversu mikinn áhuga erlend áfengis- og tóbaksfýrir- tæki hafa á íslenskri landvemd og úti- vist, en nú í haust risu tvær voldugar göngubrýr í Þórsmörk fýrir þessa pen- inga. Herbert Guðmundsson, þáver- andi félagsmálafulltrúi Verslunarráðs Islands, kallaði þetta reyndar „grímu- lausa mútuþægni“ en það er önnur í saga. ÐRIK ÞÓR FRJÐRIKSSON. Hlustuðu á atvinnulausa leikara í verkefnaleit. ÞÓRÐUR ÓLAFSSON. Gerir athugasemd við hlutafjárútboð Kaupfélags Ámesinga. JÓHANNES JÓNS- SON. Bónus virðist hafa vinninginn á Akureyrí. EGILL ÓLAFSSON. Áfram í þýsku sápunni. HÖSKULDUR JÓNSSON. Peningarnir frá brennivínssölunum fara í sjóði ferðafélagsins sem hann stýrír. Ólína bókar — Kristín dregur til Allóvenjuleg uppákoma varð á borgarráðsfundi 30. nóvember síðastliðinn. Eftir einhverjar umræður sá Ólína Þorvarðardóttir, fulltrúi Nýs vettvangs, sig ' knúna til að gera athugasemdir við framferði Markús- ar Amar Antonssonar borgarstjóra. Óskaði hún eftir að bókað yrði: „Ég sé mig því miður tilknúna að gera athugasemdir við ffamgöngu formanns borgarráðs á fundinum. Það er illþolanlegt þegar fundarmenn geta ekki lokið máli sínu án ítrekaðra inngripa stjórnanda fundarins, og er meinað máls vegna fýrirspurna og annarra mála sem minnihlutafulltrúar hafa ástæðu til að taka upp og ræða á borgarráðsfundum, eins og hef- ur gerst margoft upp á síðkastið.“ f kjölfar þessa kom óvænt bókun frá hinum fulltrú- um minnihlutans, þeim Sigurjóni Péturssyni, Sig- rúnu Magnúsdóttur og Guðrúnu ögmundsdóttur. Hún hljóðaði svona: „Við undirrituð teljum bókun borgarftilltrúa Ólínu Þorvarðardóttur ómaklega og tilefriislitla. Fulltrúar í borgarráði, jafnt kjörnir fulltrú- ar sem áheyrnarfulltrúar, fá að tjá sig um öll þau mál sem eru á dagskrá.“ Þá þegar kom Ólína með bókun til baka: „Borgar- fulltrúar minnihlutans hafa ekki sætt samskonar að- hrópi á fundum hér og sá borgarfulltrúi Nýs vettvangs sem hér situr. Það hryggir mig mjög að verða nú fýrir því hvernig þeir ganga í lið með meirihlutanum með þeirri ómaklegu bókun sem hér hefúr verið lögð fram. Fremur hefði ég búist við samstöðu af þeirra hálfú en þessari óvæntu árás.“ Við svo búið hvarf Ólína af fundi, reið mjög. Skömmu síðar kom hinn fúlltrúi Nýs vettvangs, Krist- ínÁ. Ólafsdóttir, til fúndarins og dró bókanir Ólínu tilbaka. Ólína bókar um dónaskap, en Krístín dregur bókanirnar til baka. Sindri Freysson ungskáld.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.