Pressan - 09.12.1993, Page 3

Pressan - 09.12.1993, Page 3
S KI LA BOÐ Fimmtudagurinn 9. desember 1993 PRESSAN 3 ©kkrir þeirra sem sóttu ráðstefnu um geimverur í Há- skólabíói, og lögðu í kjölfar þess í ferð vestur á Snæfellsnes til að freista þess að komast í snertingu við geimverurnar, eru ekki af baki dottnir þrátt fyrir engar geimverur. Ætlun- in er að stofna félag áhuga- manna um geimverur og fljúgandi furðuhluti á næstu dögum. Stofnendur félagsins segjast hafa í fórum sínum ijölda merkilegra upplýsinga um fljúgandi furðuhluti á Is- landi sem þeir hafi komist á snoðir um á ráðstefnunni, þar á meðal staðfest á myndbönd- um. Um leið og það fór að berast manna á milli að stofn- un félagsskaparins væri í bí- gerð ku hafa hringt fjöldi manns, sem áhuga hefur á að skrá sig í félagsskapinn... Baltasar, Hárlð og Þjóðleikhúsið Vegna skrifa í síðasta tölu- blaði PRESSUNNAR um hugsanlegar sýningar á söng- leiknum Hárinu hér á landi og hlut Þjóðleikhússins í því máli óskum við að koma eff- irfarandi staðreyndum á ffamfæri: I fýrravetur ráðgerði Baltas- ar Kormákur leikari ásamt nokkrum aðilum öðrum að koma upp sýningu á söng- leiknum Hárinu í sumarleyfi sínu og stofnaði af því tilefhi leikhópinn Vesturbæjarleik- húsið. Handhafi höfúndar- og sýningarréttar á Norðurlönd- um, Nordiska Teaterförlaget, krafðist hinsvegar það hárrar greiðslu fyrir sýningarréttinn, þar eð um óþekktan „jaðar- leikhóp“ væri að ræða, að það varð leikhópnum um megn. Leikhópurinn leitaði þá til Þjóðleikhússins varðandi hugsanlegt samstarf um um- rætt verkefhi, enda hafði Hár- ið komið til athugunar í verk- efnavalsnefnd Þjóðleikhúss- ins. Ljóst var að möguleiki gæti verið á samvinnu í ýms- um myndum, en áður en til þess kom ákvað hópurinn að skjóta málinu á frest. Þjóðleikhúsið hafði eftir sem áður áhuga á að sýna verkið og hefur keypt sýning- arrétt á því til tveggja ára. Er samningur sá við leikritafor- lagið í engu frábrugðinn öðr- um samningum, sem leikhús- ið gerir við forlagið um önnur verk, og því enginn fótur fyrir fullyrðingum PRESSUNNAR um að sýningarréttur sé skil- yrtur þvi, að verkið sé sýnt af „jaðarleikhópi“. Þvert á móti, eins og ofangreindar stað- reyndir sanna. Að Þjóðleikhúsið eða Vest- urbæjarleikhúsið hafi staðið í samkeppni við Sigurð Rúnar Jónsson og Brynju Benedikts- dóttur um sýningarrétt á Hár- inu er okkur allsendis ókunn- ugt um. Það var ekki fyrr en á sl. sumri að við fréttum um áhuga þeirra á verkinu — eftir að Þjóðleikhúsið hafði keypt umræddan sýningarrétt. Virðingarfyllst, Baltasar Kormákur leikari, Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri. mm Sagfa íslendmgfs New York! STEFÁN jÓN HAFSTEIN Ævintýrib vitjabi hans þegar hann var tuttugu og fjögurra ára gamall og búinn ab fá nóg af því ab bera út póst í Reykjavík. Hann hélt af stab til sjálfrar höfubborgar heimsins, New York, ekki til ab verba ríkur eba frœgur eba eitthvab annab en hann sjálfur - heldur til ab lenda í œvintýrum. Á leib sinni kemst hann íkynni vib þjófa, dópista, betlara, snillinga, spámenn, krakkmellur, gubsbörn og gebsjúklinga. Hann lifir og hrœrist í skuggahverfum stórborgarinnar án þess ab glata nokkru sinni góbmennsku sinni, grandvarleik og greibvikni vib alla þá sem bágt eiga. Og allan tímann er þab ástin sem rekur hann áfram. Vib kynnumst konunum í lífi hans: Elskunni hans, Maríu Pagan, norninni miss Curry, nœturdrottningunni í Harlem, Dionne - ab ógleymdri eiginkonunni skelfilegu sem dregur heilan trúflokk meb sér inn í líf hans. Kristinn jón Cubmundsson sendi Stefáni jóni Hafstein Ameríku- annál sinn - þegar Stefán Jón hafbi lesib hann gat hann ekki setib heima, heldur varb ab fara og sjá allt þetta skrautlega lib eigin augum. Afraksturinn er þessi ótrú- lega saga sem er þó umfram allt sönn. Bókin er 200 bls. og í henni eru margar litmyndir. Mál IMI og menning LAUCAVECI 18, SÍMI (91)24240 & SÍÐUMÚLA 7-9, SÍMI (91) 688577 r//'/7fs //' FORLAGIÐ 1AUGAVEGI 18 <;ími 9^1 Karólína Lárusdóttir er einn þeirra listamanna sem fer algjörlega sínar eigin leiðir. Við göngum inn í sal með mörg hundruð myndum á veggjum og sjáum undir eins — þama er Karólína! í heillandi frásögn rekur hún bemsku sína og œskuár í Reykjavík, nám í Bretlandi, einkalíf, vináttu og viðurkenningar, áföll og sigra. Hér er komið víða við sögu og meðal annars dregur hún upp litríka og óvœnta mynd af ömmu sinni og afa, þeim Karólínu ogfóhannesi Jósefssyni á Hótel Borg. í bókinni em 50 litmyndir af verkum Karólínu auk fjölda graJTkmynda og skemmtilegra Ijós- mynda sem tengjast tífi hennar, œttmennum og samferðafólki.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.