Pressan - 09.12.1993, Qupperneq 26
DERRICK & RAMBO
26
PRESSAN
Fimmtudagurinn 9. desember 1993
Keðjusög, blóð — mikið blóð, Land Rover,
skrúfstykki, hendur og hausar án ibúks.
Hvað er í gangi? Jú, splatter heitir fyrirbærið.
Þrír ungir menn standa
að Splatt film: Grímur Há-
konarson, Eiríkur Steinn
Kristjánsson og Stefán Ól-
afsson. Að sögn kviknaði
hugmyndin þegar þeir
voru allir samankomnir á
páskadag. „Við vorum að
hella í okkur kaffi og sáum
að Eiríkur var skapaður í
hlutverk slátrarans þar sem
hann hélt á bollanum. Við
fórum niður í kjallara og
filmuðum fyrri myndina.
Okkur fannst hún það vel
heppnuð að hún ætti er-
indi á markaðinn.“
Þeir í Splatt filnt hafa
gert tvær myndir sem bera
viðeigandi titla: Limir á
lausu I og Limir á lausu II.
Myndirnar, sent eru á
sömu vídeóleigunni, eru
teknar í sunnlenskum
sveitum, „það svífur
kántrí-andi yfir vötnum“.
Limir á lausu njóta hvað
mestra vinsælda á Suður-
landi. En hvað í ósköpun-
um erþetta splatter?
„Ég er nú kannski eng-
inn splatter-sérfræðingur
en fyrir mér er það kvik-
mynd þar sem allt er sýnt
og sjáanlegt; það eru engin
Derrick-morð. Splatter er
eitthvað sem gengur alla
leið, hryllingsmynd sem fer
yfir strikið." Það er leik-
stjórinn Grímur sem hefur
orðið og það er óhætt að
taka undir með honum
eftir að hafa séð myndina.
Ofbeldið er í öðru veldi,
hafa þessir ungu menn eng-
ar áhyggjur af því að vera
að leggja lóð á vogarskálar
aukins ofbeldis meðal ung-
linga?
„Við getum náttúrulega
ekki logið okkur út úr því
— við erum vondir strák-
ar. Nú reynir bara á það
hvort íslendingar hafa
nógu háa greindarvísitölu
og taka fram vélsagirnar.
En þessi mynd hefúr tæp-
lega eins sterk áhrif og
Rambó og félagar.“
Fyrir áhugasama er hægt
að nálgast Limi á lausu í
Hljómalind, Þrumunni og
hjá Vídeósafnaranum.
„Við höfum ekki ennþá
fengið tilboð frá Steinum
og Skífunni.“ En eiga þeir
von á að þetta verði jólagjöf-
in í ár?
„Við erum að þessu
okkur til gamans og í leið-
inni að efla neðanjarðar-
kvikmyndargerð. En við
eigum ekki von á því að
þetta verði í hrúgum undir
greinunum.“
Splatterþrennan er ekki
af baki dottin og þeir eru
þegar famir að leggja drög
að Limum á lausu III. Það
er ljóst að þetta er ekki eit-
thvað sem afar og ömmur
þessa lands hafa velþóknun
á en hva...
Jakob Bjarnar Grétarsson
Leiklistin hörfar iyrir jólasveininum
Rífandi gangur
Nú er yfirstandandi fimmta leikár Borgarleikhússins, en það gerir hlé á sýningum frá
fyrstu eða annarri viku í desember til jóla að venju. Aðsókn var fremur slök í fyrra en
þetta leikár hefur verið fádæma gott, um 30 þúsund manns hafa þegar komið til að sjá
sýningar í Borgarleikhúsinu.
Útsölustaðir
á Reykjavíkursvæðinu:
Leikhússtjóri Borgarleikhússins
er Sigurður Hróarsson. Kúvend-
ing ífá í fyrra?
„Þetta er í raun ekkert óvenju-
legt. Það skiptast gjarnan á tvö góð
ár og eitt slæmt og meðan það er á
þann veginn en ekki hinn, þá get-
um við vel við unað. Annars er af-
stætt hvað eru góð ár og hvað
slæm, viðmiðið aðsóknartölur er
hæpið. Eftir tvö góð ár hvað að-
sókn varðar þá leyfir leikhúsið sér
verkefnaskrá sem er klassískari og í
einhverjum skilningi metnaðar-
fyllri en annars.“
Má þá segja að metnaður og að-
sókn séu andstœðir pólar?
„Þessu er erfitt að svara, en verk
hinna klassísku meístara fá ekki
mikla aðsókn og hafa aldrei fengið.
Hins vegar lítur leikhúsið á það
sem sjálfsagða skyldu sína, bæði
gagnvart leiklistinni og áhorfend-
um, að sýna þau reglulega. En
Borgarleikhúsið, sem er verulega
háð eigin tekjum, verður að fara
sparlega í það.“
Með öðrum orðum, það er hœgt
að ganga útfrá einhverju vísu í þess-
um heimi?
„Það er nú fátt eitt. Auðvitað
sjáum við það í gegnum árin að
SIGURÐUR HRÓARSSON. „Gama-
nefnib hib vinsælasta en blessun-
arlega eru undantekningar þar á."
þau verkefni sem notið hafa mestr-
ar hylli eru ný íslensk verk og þá
gjarnan í gamansamari kantinum.
Aðrir toppar hafa gjaman verið er-
lendir gamanleikir eða farsar. Af
þessu má sjá að gamanefnið er hið
vinsælasta en síðan em blessunar-
lega undantekningar þar á — í
báðar áttir.“
Hvað veldur þessum góða vetri
— ef við miðum við aðsóknartölur?
„Ég treysti mér ekki til að vitna í
neitt annað en sýningamar sjálfar.
Ég hef aldrei getað séð að neitt til-
tekið ástand í þjóðfélaginu hafi
nein veruleg áhrif til eða ffá í að-
sókn. Kreppa og annað virðast
léttvægir þættir varðandi aðsókn í
leikhúsi. Þetta ræðst af því hvemig
til tekst í leikhúsinu sjálfú. Góð að-
sókn í haust er einfaldlega vegna
þess að sýningarnar hafa fallið fólki
ígeð.“
Nú gœti tnanni í fljótu bragði
sýnst desember ákjósanlegur til að
halda úti menningarstarfsemi.
Hvað ræður því að þið takið ykkur
frí ápessum tíma?
„Astæðan fyrir því að við tökum
okkur hlé er einfaldlega sú að það
verður sífellt erfiðara að fá fólk í
leikhús á þessum tíma. Það eru
áhorfendur en ekki leikhúsið sem
búa þetta frí til. Við erum hins
vegar á fúllri ferð í desembermán-
uði að undirbúa viðamestu sýn-
ingar leikársins, sem eru gjarnan
ffumsýndar í upphafi árs. En í des-
ember er fólk farið að huga að öðr-
um þáttum og gefur leikhúsinu
ekki mikinn gaum.“
Hvað verður á dagskrá eftir ára-
mót?
„Þrjár sýninganna halda áfram
sökum einstakrar velgengni:
Spanskflugan og Ronja ræningja-
dóttir — Ronja hefur gengið í heilt
ár og enn er lítið lát á aðsókn,
áhorfendur eru komnir í um 25
þúsund — og Elín Helena verður
áffam á litla sviðinu, en á þá sýn-
ingu hefur verið nánast uppselt ffá
því hún var ffumsýnd.“
Kemst þá nokkuð annað að?
„Jú, jú, það er náttúrulega sjálf
Eva Lúna. Það er viðamesta verk-
efni hússins til þessa með miklum
íjölda leikara, dansara, söngvara og
hljóðfæraleikara. Síðan var mein-
ingin að leikritið Gleðigjafarnir
kæmist upp í byrjun febrúar, en
sökum velgengni annarra verka
verður sú frumsýning færð aftur
um hálfan mánuð. Leikritið er effir
NeU Simon, í leikstjórn, þýðingu
og staðfærslu Gísla Rúnars Jóns-
sonar. Hann hefur snúið þessu
gríðarlega vinsæla verki upp á ís-
lenskar aðstæður. Bessi Bjamason
og Árni Tryggvason leika tvö
stjömuhlutverk fýrir roskna gam-
anleikara og má segja að hlutverk-
in standi þeim ansi nærri. Auk
þessa er fleira í bígerð sem verður
kynnt síðar.“
Jakob Bjarnar Grétarsson
Austurbæjarapótek
Árbæjarapótek
Breiðholtsapótek (í Mjódd)
Hraunbergsapótek (Breiðholti)
Borgarapótek
Kópavogsapótek
Garðabæjarapótek
Háaleitisapótek
Holtsapótek
Lyfjabúðin Iðunn
Laugarnesapótek
Laugavegsapótek
Ingólfsapótek (Kringlunni)
Mosfellsapótek
Reykjavíkurapótek
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
Snyrtivöruverslunin Spes
Snyrtivöruversl. 17, Laugavegi
Seltjarnarnesapótek
Vesturbæjarapótek
Toppsól, Faxafeni
Sól og sæla, Hafnarfirði
Útsölustaöir
á landsbyggöinni
Austurlandsapótek
Akureyrarapótek
Akranesapótek
Blönduósapótek
Borgarnesapótek
Dalvíkurapótek
Egilsstaðaapótek
Keflavíkurapótek
Lyfsala Eskifjarðar
Lyfsala Hólmavíkur
Lyfsala Vopnafjarðar
Verslunin Mirra, Hvammstanga
Nesapótek
Ólafsvíkurapótek
Stjörnuapótek
Sauðárkróksapótek
Siglufjarðarapótek
Vestmannaeyjaapótek
Rangárapótek
Stykkishólmsapótek
Patreksapótek
Ölfusapótek
t. GÍSL
A.SOl>I
km
EINSTÖK BÓK EFTIR GYLFA Þ. GÍSLASON
Viðreisnarstjórnin
í réttu ljósii
Bókin Viðreisnarárin eftir Gylfa Þ. Gíslason er ítarleg
og hlutlæg greinargerð um þá ríkisstjórn sem lengst
hefur setið á íslandi. Höfundurinn var ráðherra í
Viðreisnarstjórninni allan tímann og er því manna
kunnugastur því sem gerðist innan veggja stjórnar-
ráðsins og utan þeirra.
Frásögnin er bæði hreinskilin og óhlutdræg og
fram koma mikilvægar upplýsingar um menn og
málefni Viðreisnarstjórnarinnar á þessum miklu
umrótstímum í íslensku þjóðfélagi.
„Bók Gylfa er sneisafull af fróðleik og reyndar
fjallar hann talsvert ítarlega um alla stjórn-
málasögu aldarinnar."
Hrafn Jökulsson, Pressan 25. nóv. 1993
3.593 kr.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ HF
HEILLANDI FERÐASAGA MICHAEL PALIN
Spéfuglinn Michael Palin lýsir í bókinni, Póla á milli,
leiðangri sem hann hélt í frá norðurpólnum til suður-
pólsins. Leiðangurinn fylgdi þeim baug er liggur á
30 gráðum austlægrar lengdar í gegnum 17 þjóð-
lönd, ýmist í brunakulda eða funhita. Hann dansar
kossadans í Novgorod, fer í drullubað í Ódessu,
vinnur gull í Lapplandi, þreifar fyrir sér um
kaup á úlfalda og leitar ráða töfralæknis.
Michael Palin, sem margir þekkja sem einn af
spéfuglunum úr Monty Python hópnum og úr
hinni óborganlegu gamanmynd A fish called
Wanda, segir hér á léttan og skemmtilegan
hátt frá ferð sinni í myndum og máli.
.993 kr.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ HF